Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Qupperneq 19

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Qupperneq 19
Söngsveitin Fílharmónía ALLT ER FERTUGUM FÆRT Minningar og sögustiklur á afmæli Söngsveitarinnar Fílharmóníu Eftir Baldur F. Sigfússon 7 ARIÐ 1959 dreif ungur og sprækur leikfimikennari og ágætur tenór, Valdimar Örnólfsson, okkur fjóra nýbakaða stúdenta og bekkjarfélaga úr Menntaskólanum í Reykjavík með sér og tveimur systkinum sínum í blandaðan kór, sem verið var að stofna í Reykjavík til flutn- ings stærri kórverka með Sinfóníuhljómsveit íslands. Eldsálin og aðaldriffjöður þessa var vel menntaður, reyndur og afar hæfileikaríkur tónlistarmaður, doktor Róbert Abraham Ott- ósson, sem stjórnaði síðan kórnum, Söngsveit- inni Fflharmóníu, nær óslitið til dauðadags. Er mér til efs að ég eigi nokkrum mér óvanda- bundnum meira að þakka en þessum tveimur mönnum, að beina mér á þessa braut - hvor með sínum hætti - nema ef vera skyldi þeim ágæta lækni, sem hefur gert mér kleift að gala áfram! Formlegur undirbúningur að starfsemi söngsveitarinnar hófst hinn 24. apríl 1959 með stofnun félagsins Fflharmóníu, sem mun hafa talið alls 27 stofnendur auk dr. Róberts, þar á meðal marga fremstu tónlistarmenn þjóðar- innar og aðra tónlistarunnendur. Formaður fimm manna stjómar, auk tveggja í vara- stjórn, var Þorsteinn Hannesson óperusöngv- ari, sem, ásamt Jóni Þórarinssyni tónskáldi og Ragnari Jónssyni forstjóra, mun hafa átt frumkvæðið að stofnuninni. Sjö manns, þar af tveir frá söngsveitinni, skipuðu framkvæmda- nefnd. Söngsveitin hóf æfingar á Carmina Burana eftir Carl Orff í nóvember sama ár og frum- flutti hér á landi í Þjóðleikhúsinu ásamt Þjóð- leikhúskórnum og Sinfóníuhljómsveit Islands 23. apríl 1960. Flutningnum var feiknavel tek- ið, og var hann endurtekinn fyrir fullu húsi næsta dag og 3. maí. Mjög hafði verið vandað til undirbúnings frá byrjun. Auk fjölbreyttrar kennslu dr. Róberts, með aðstoð Stefáns Edel- steins undirleikara, leiðbeindu söngvararnir Þuríður Pálsdóttir og Birgir Halldórsson um raddbeitingu. Um vorið fengu kórfélagar svo ómetanlega kennslu Engel (Göggu) Lund í framburði í söng á þremur tungumálum (ís- lensku, þýsku og frönsku). Fór hún fram í Þrúðvangi við Laufásveg. Bjart er yfir minningunum frá þessum fyrsta vetri með söngsveitinni. Andi frumheija ríkti, sem leiðbeinendum og hinum eldri í kómum veittist létt að glæða, og verkið var með af- brigðum skemmtilegt og veraldlegt í hæsta máta. Hef ég oft brosað í kampinn að klókindum dr. Róberts að hefja starfið á þennan hátt - hann stefndi á önnur og torsóttari mið, sem ég er ekki viss um að hann hefði fengið hin yngri og óreyndari okkar út á, svona í byrjun. Að minnsta kosti fannst okkur sumum næsta verkefni, Þýsk sálumessa eftir Brahms, æði þung og frábrugðin í fyrstu, en ekki varð aftur snúið - við vorum ánetjuð! Þetta verk varð mér hins vegar, ásamt Sálumessu Mozarts, einna kærast allra þeirra sem ég hef tekið þátt í með söngsveitinni. Skömmu fyrir frumflutning Carmina Bur- ana, annan í páskum 18. aprfl 1960, var fyrsta stjórn sjálfrar Söngsveitarinnar Fflharmóníu kosin. Formaður var Aðalheiður Guðmundsdóttir. Er aldur söngsveitaimnar venjulega miðaður við þennan tíma, þótt starfsemi hennar hefði hafist haustið áður. Samstarfið við félagið Ffl- harmóníu var gott en þótti þungt í vöfum, þannig að á almennum fundi í söngsveitinni 10. september 1961 var ákveðið að starfa sjálf- stætt í framtíðinni. A fyrsta reglulega aðal- fundi söngsveitarinnar, 1. október 1961, var hún gerð að sjálfstæðu félagi með eigin lögum, að höfðu samráði við félagið Fflharmóníu sem hét stuðningi sínum áfram. Ekki er ætlunin að rekja hér sögu Söng- sveitarinnar Fílharmóníu nákvæmlega upp frá þessu. Stiklað verður á stóru, jafnframt því sem vísað skal til yfirlits Ragnars Ámasonar og fleiri greina, þar á meðal minningarorða Aðalgeirs Kristjánssonar um dr. Róbert, í veglegu afmælisriti söngsveitarinnar frá árinu 1985, svo og ágrips Önnu Maríu Þórisdóttur í efnisskrá afmælistónleika fimm árum síðar. Upplýsingar um stærri kórverk sem söngs- veitin hefur flutt til þessa dags, listræna stjórnendur og fleira er að finna í verkefna- skrá annars staðar í þessu riti. Gefur hún góða mynd af starfseminni, ekki síst fjölbreytileika viðfangsefnanna og þar með af elju alls þess ágæta hæfileikafólks, sem lagt hefur söng- sveitinni lið og seint verður fullþakkað. Mest hefur auðvitað mætt á söngstjórum, ásamt raddþjálfurum og undirleikurum á æf- ingum, að bræða saman og móta þann ólíka efnivið sem þeir höfðu til umráða hverju sinni. Þótt innan um hafi alltaf verið meira eða minna af tónmenntuðum félögum í söngsveit- inni, hafa líka fjölmargir stigið þar sín fyrstu spor á sviði stærri kórbókmennta, þannig að verulega hefur reynt á kennsluhæfni og þolin- mæði fagfólksins. Eftir því sem kórinn stækkaði og varð sam- æfðari var ráðist í viðameiri verkefni. Fyrsti hápunkturinn verður að teljast flutningur 9. sinfóníu Beethovens í Háskólabíói undir stjórn dr. Róberts, 10. febrúar 1966, og hinn næsti væntanlega Missa solemnis eftir sama tónskáld, 5. mars 1970. Eftir þennan frumflutning „þeirrar níundu“ hér á landi þurfti að endurtaka hana fjórum sinnum í röð, einnig fyrir fullu húsi. Auðvitað var þetta ævintýri líkast, en jafnvel stjórn- andanum fannst þá nóg komið í bili! Dr. Ró- bert andaðist 10. mars 1974, aðeins tæplega 62 ára gamall, eftir skamma legu á Sjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð, þar sem hann hafði veikst skyndilega á norrænu sálmabókarþingi. Eg var þá búsettur þar og bar gæfu til að heim- sækja hann nokkrum dögum fyrii- andlátið. Sem fyrr hvatti hann mig til að hefja aftur þátttöku í kórsöng, undir stjórn góðs vinar hans þar, en því miður lét ég ekki verða af því þá. Sjálfur hugsaði hann um framtíðina, kvaðst líklega verða að hætta að hoppa á stjórnpalli en snúa sér meira að rannsóknum á sviði íslenskrar tónlistar. Örlögin leyfðu hvor- ugt. Ymislegt breyttist við fráfall stjórnandans, sem kalla mátti með réttu föður söngsveitar- innar, enda gjarna talað í bænum um „kórinn hans Róberts". Algengara varð að söngstjórar æfðu kórinn en aðalstjórnendur Sinfón- íuhljómsveitarinnar stjórnuðu tónleikum. Önnur erfið breyting varð þegar hljómsveit- in sagði upp föstu samstarfi við söngsveitina í júní 1986, til að geta haft frjálsari hendur að starfa einnig með öðrum kórum. Má vera að þetta hafi verið sanngjarnt frá samkeppnis- eða jafnræðissjónarmiði, þótt ekki væri sárs- aukalaust fyrir félaga söngsveitarinnar. Allur rekstur hennar, sem Sinfóníuhljómsveitin kostaði áður að mestu leyti, varð líka miklu torveldari, bæði stjórnunar- og fjárhagslega, þótt söngsveitin hafi síðan lengst af notið nokkurra styrkja, einkum frá Reykjavíkur- borg, auk þess sem borgin hefur að mestu séð henni fyrir ókeypis æfingahúsnæði. Fyrsta veturinn eftir rekstrarbreytinguna sá Smári Ólason um æfingar og stjórnaði Cat- ulli Carmina eftir Carl Orff í mars 1987, en aðrir stjórnuðu tónleikum í apríl og maí sama ár. Kórstarfið lá svo að verulegu leyti niðri næsta vetur, en haustið 1988 var ráðinn nýr söngstjóri, Ulrik Ólason orgelleikari, og starf- semin hófst aftur af fullum krafti. Flutti söngsveitin á eigin vegum sálumessu Mozarts þrisvar fyrir yfirfullu húsi í Kristskirkju í Landakoti 17.-19. mars 1989, auk þess sem hún sá um messusöng við páfakomu í Landa- koti 4. júní sama ár. Hinn 10. og 11. desember hélt söngsveitin svo aðventutónleika í Krists- kirkju, með blandaðri dagskrá, kammersveit og einsöngvara. Hafa þeir verið fastur liður árlega upp frá því, á síðari árum venjulega í Langholtskii’kju, auk þess sem oftast hefur verið farið með hluta dagskrár þeirra á vist- heimili aldraðra fyrir jólin. Að öðru leyti var haldið áfram á sömu braut með flutningi stærri verka, oftast á eigin veg- um og undir stjórn Úlriks, sem starfaði með söngsveitinni í samfellt átta ár. Tvö verk voru þó flutt í Háskólabíói undir annarra stjórn, C- moll messa Mozarts með Sinfóníuhljómsveit- inni 10. og 12. janúar 1991 (Owain Arwel-Hug- hes) og Baldr eftir Jón Leifs með Sinfón- íuhljómsveit æskunnar 24. mars sama ár (Paul Zukovski - frumflutningur). Baldr, sem var býsna erfitt og minnisstætt verk, var síðan tekinn upp næstu daga og gefinn út á tveimur geisladiskum (Musical Observations, Inc., New York: CP2 106/7). Auk stærri kórverka og aðventutónleika hefur söngsveitin eða góður hluti hennar tekið þátt í ýmsum smærri verkefnum, sem eru ekki öll í verkefnaskránni, einkum hin síðari ár. Má þar nefna kaþólska vígslu nýn-ar Jósefskfrkju að Jófríðarstöðum í Hafnarfirði, 3. júlí 1993, og síðar sama ár fyrstu sjónvarpsmessu á ís- landi, beina útsendingu í Ríkisútvarpi Sjón- varpi frá sömu kirkju sunnudaginn 7. nóvem- ber. Undir stjórn Úlriks Ólasonar reis söngsveitin upp á ný, þegar verulega hafði syrt í álinn, og hófst til æ viðameiri og fjölbreyttari verkefna. Með dyggri aðstoð Elísabetar Erlingsdóttur söngkonu, sem hefur annast raddþjálfun og ráð- gjöf að mestu síðan haustið 1990, og Hrefnu U. Eggertsdóttur sem þá sá um undirleik á æfing- um, gaf söngsveitin út á eigin vegum síðla árs 1992 sinn fyrsta geisladisk, ,Á hæstri hátíð“ (SSF 001), með jóla- og hátíðartónlist. Hlaut hann mjög góða dóma, enda vel til hans vandað, og hefur selst vel allt til þessa dags. Sjálf upp- tökuvinnan var afar skemmtileg og lærdómsrflí, ekki síst þar sem hlusta mátti í Langholtskirkju jafnharðan á upptökumar. Kom þar æði margt á óvart! Amóta minnisstæð og þroskandi, en á allt annan hátt, var fyrsta og hingað til eina ut- anlandsferð söngsveitarinnar, „Norðurlanda- ferðin", þar sem flutt voru alls 27 þjóðlög og önnur íslensk lög í kirkjum í Osló, Gautaborg, Kaupmannahöfn og Lundi í tilefni 50 ára afmæl- is íslenska lýðveldisins, 8.-12. júní 1994. Úlrik og Elísabet leiddu söngsveitina sem fyrr, en undir- %L leik annaðist Douglas A. Brotchie orgelleikari. Áður mun söngsveitin stundum hafa verið kölluð „kórinn sem aldrei fer til útlanda“! Það lýsir hins vegar vel því, hve fjárhagsleg að- staða Fílharmóníu hefur verið miklu erfiðari en til dæmis kóra sem tengjast ákveðnum kirkjum og þurfa ekki að kosta söngstjórn og hús til tónleikahalds á sama hátt. Myndarlegir styrkir, einkum frá ríki og borg, gerðu Norðurlandaferðina að veruleika. Síðan haustið 1996 hefur Bernharður S. Wilkinson flautuleikari og nú aðstoðarhljóm- sveitarstjóri Sinfóníunnar leitt söngsveitina áfram á sömu braut, með lítið eitt breyttum áherslum eins og vænta mátti. Var mikið happ fyrir kórinn að fá til liðs við sig svo hæfileika- ríkan og reyndan hljómsveitar- og söngstjóra sem Benni er, og ekki spillir óendanleg þolin- mæði, jákvæðni og gott skap - samfara vissum *r skammti af aga auðvitað! Raunar hefur mér alla tíð þótt undrum sæta, hve flestir söng- stjórar sem ég hef haft kynni af hafa haldið ró sinni og krafti, þrátt fyrir mikið vinnuálag og tæting. Undir stjóm Benna og með aðstoð El- ísabetar og Douglasar gaf söngsveitin út ann- an geisladisk sinn, „Heill þér himneska orð“ (SSF 002), fyrir jólin í fyrra. Var ekki síður til hans vandað en hins fyrri. Undirleikari á æf- ingum var Guðríður St. Sigurðardóttir, sem hefur verið stoð og stytta söngsveitarinnar undanfarin ár. Mál er að linni. Hin fertuga söngsveit, Fíl- harmónía eða „Fflan“ eins og hún er stundum kölluð (að ekki sé minnst á „Fflamannakórinn“ eins og einn uppáhaldsaðdáandi söngsveitar- innar, Flosi Ólafsson leikari, nefndi hana á yngri árum), er vaxin vel úr grasi og horfir * björtum augum til framtíðar, þrátt fyrir viss- an karlaskort eins og stundum áður. Hún hef- ur þegar skilað víðtæku og mikilvægu hlut- verki, ekki bara tónlistarlegu heldur einnig uppeldislegu og félagslegu, eins og slíkt starf gerir ávallt og verður seint metið að verðleik- um. Að starfa í metnaðarfullum blönduðum kór, þar sem saman koma einstaklingar á ýmsum aldri og úr flestum stéttum þjóðfélags- ins, er góð tilbreyting frá námi og starfi, þroskandi og umfram allt skemmtilegt - ör- ugglega ekki síður en í öðrum kórum og klúbbum! Vonandi linnir senn hinu óhóflega vinnuálagi Islendinga, karla sem kvenna, sem hlýtur oft að standa eðlilegri þátttöku í upp- eldis-, tómstunda- og félagsstarfi fyrir þrifum. Eg óska söngsveitinni minni gæfu og gengis á komandi árum, með blómlegu félagsstarfi og listrænum árangri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. MA( 2000 1 9*

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.