Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 19
Söngsveitin Fílharmónía
ALLT ER FERTUGUM FÆRT
Minningar og sögustiklur á afmæli Söngsveitarinnar Fílharmóníu
Eftir Baldur F. Sigfússon
7
ARIÐ 1959 dreif ungur og sprækur
leikfimikennari og ágætur tenór,
Valdimar Örnólfsson, okkur fjóra
nýbakaða stúdenta og bekkjarfélaga
úr Menntaskólanum í Reykjavík með sér og
tveimur systkinum sínum í blandaðan kór,
sem verið var að stofna í Reykjavík til flutn-
ings stærri kórverka með Sinfóníuhljómsveit
íslands. Eldsálin og aðaldriffjöður þessa var
vel menntaður, reyndur og afar hæfileikaríkur
tónlistarmaður, doktor Róbert Abraham Ott-
ósson, sem stjórnaði síðan kórnum, Söngsveit-
inni Fflharmóníu, nær óslitið til dauðadags. Er
mér til efs að ég eigi nokkrum mér óvanda-
bundnum meira að þakka en þessum tveimur
mönnum, að beina mér á þessa braut - hvor
með sínum hætti - nema ef vera skyldi þeim
ágæta lækni, sem hefur gert mér kleift að gala
áfram! Formlegur undirbúningur að starfsemi
söngsveitarinnar hófst hinn 24. apríl 1959 með
stofnun félagsins Fflharmóníu, sem mun hafa
talið alls 27 stofnendur auk dr. Róberts, þar á
meðal marga fremstu tónlistarmenn þjóðar-
innar og aðra tónlistarunnendur. Formaður
fimm manna stjómar, auk tveggja í vara-
stjórn, var Þorsteinn Hannesson óperusöngv-
ari, sem, ásamt Jóni Þórarinssyni tónskáldi og
Ragnari Jónssyni forstjóra, mun hafa átt
frumkvæðið að stofnuninni. Sjö manns, þar af
tveir frá söngsveitinni, skipuðu framkvæmda-
nefnd.
Söngsveitin hóf æfingar á Carmina Burana
eftir Carl Orff í nóvember sama ár og frum-
flutti hér á landi í Þjóðleikhúsinu ásamt Þjóð-
leikhúskórnum og Sinfóníuhljómsveit Islands
23. apríl 1960. Flutningnum var feiknavel tek-
ið, og var hann endurtekinn fyrir fullu húsi
næsta dag og 3. maí. Mjög hafði verið vandað
til undirbúnings frá byrjun. Auk fjölbreyttrar
kennslu dr. Róberts, með aðstoð Stefáns Edel-
steins undirleikara, leiðbeindu söngvararnir
Þuríður Pálsdóttir og Birgir Halldórsson um
raddbeitingu. Um vorið fengu kórfélagar svo
ómetanlega kennslu Engel (Göggu) Lund í
framburði í söng á þremur tungumálum (ís-
lensku, þýsku og frönsku). Fór hún fram í
Þrúðvangi við Laufásveg.
Bjart er yfir minningunum frá þessum fyrsta
vetri með söngsveitinni. Andi frumheija ríkti,
sem leiðbeinendum og hinum eldri í kómum
veittist létt að glæða, og verkið var með af-
brigðum skemmtilegt og veraldlegt í hæsta
máta.
Hef ég oft brosað í kampinn að klókindum
dr. Róberts að hefja starfið á þennan hátt -
hann stefndi á önnur og torsóttari mið, sem ég
er ekki viss um að hann hefði fengið hin yngri
og óreyndari okkar út á, svona í byrjun.
Að minnsta kosti fannst okkur sumum
næsta verkefni, Þýsk sálumessa eftir Brahms,
æði þung og frábrugðin í fyrstu, en ekki varð
aftur snúið - við vorum ánetjuð! Þetta verk
varð mér hins vegar, ásamt Sálumessu
Mozarts, einna kærast allra þeirra sem ég hef
tekið þátt í með söngsveitinni.
Skömmu fyrir frumflutning Carmina Bur-
ana, annan í páskum 18. aprfl 1960, var fyrsta
stjórn sjálfrar Söngsveitarinnar Fflharmóníu
kosin.
Formaður var Aðalheiður Guðmundsdóttir.
Er aldur söngsveitaimnar venjulega miðaður
við þennan tíma, þótt starfsemi hennar hefði
hafist haustið áður. Samstarfið við félagið Ffl-
harmóníu var gott en þótti þungt í vöfum,
þannig að á almennum fundi í söngsveitinni
10. september 1961 var ákveðið að starfa sjálf-
stætt í framtíðinni. A fyrsta reglulega aðal-
fundi söngsveitarinnar, 1. október 1961, var
hún gerð að sjálfstæðu félagi með eigin lögum,
að höfðu samráði við félagið Fflharmóníu sem
hét stuðningi sínum áfram.
Ekki er ætlunin að rekja hér sögu Söng-
sveitarinnar Fílharmóníu nákvæmlega upp
frá þessu. Stiklað verður á stóru, jafnframt því
sem vísað skal til yfirlits Ragnars Ámasonar
og fleiri greina, þar á meðal minningarorða
Aðalgeirs Kristjánssonar um dr. Róbert, í
veglegu afmælisriti söngsveitarinnar frá árinu
1985, svo og ágrips Önnu Maríu Þórisdóttur í
efnisskrá afmælistónleika fimm árum síðar.
Upplýsingar um stærri kórverk sem söngs-
veitin hefur flutt til þessa dags, listræna
stjórnendur og fleira er að finna í verkefna-
skrá annars staðar í þessu riti. Gefur hún góða
mynd af starfseminni, ekki síst fjölbreytileika
viðfangsefnanna og þar með af elju alls þess
ágæta hæfileikafólks, sem lagt hefur söng-
sveitinni lið og seint verður fullþakkað.
Mest hefur auðvitað mætt á söngstjórum,
ásamt raddþjálfurum og undirleikurum á æf-
ingum, að bræða saman og móta þann ólíka
efnivið sem þeir höfðu til umráða hverju sinni.
Þótt innan um hafi alltaf verið meira eða
minna af tónmenntuðum félögum í söngsveit-
inni, hafa líka fjölmargir stigið þar sín fyrstu
spor á sviði stærri kórbókmennta, þannig að
verulega hefur reynt á kennsluhæfni og þolin-
mæði fagfólksins.
Eftir því sem kórinn stækkaði og varð sam-
æfðari var ráðist í viðameiri verkefni. Fyrsti
hápunkturinn verður að teljast flutningur 9.
sinfóníu Beethovens í Háskólabíói undir
stjórn dr. Róberts, 10. febrúar 1966, og hinn
næsti væntanlega Missa solemnis eftir sama
tónskáld, 5. mars 1970.
Eftir þennan frumflutning „þeirrar níundu“
hér á landi þurfti að endurtaka hana fjórum
sinnum í röð, einnig fyrir fullu húsi. Auðvitað
var þetta ævintýri líkast, en jafnvel stjórn-
andanum fannst þá nóg komið í bili! Dr. Ró-
bert andaðist 10. mars 1974, aðeins tæplega 62
ára gamall, eftir skamma legu á Sjúkrahúsinu
í Lundi í Svíþjóð, þar sem hann hafði veikst
skyndilega á norrænu sálmabókarþingi. Eg
var þá búsettur þar og bar gæfu til að heim-
sækja hann nokkrum dögum fyrii- andlátið.
Sem fyrr hvatti hann mig til að hefja aftur
þátttöku í kórsöng, undir stjórn góðs vinar
hans þar, en því miður lét ég ekki verða af því
þá. Sjálfur hugsaði hann um framtíðina,
kvaðst líklega verða að hætta að hoppa á
stjórnpalli en snúa sér meira að rannsóknum á
sviði íslenskrar tónlistar. Örlögin leyfðu hvor-
ugt.
Ymislegt breyttist við fráfall stjórnandans,
sem kalla mátti með réttu föður söngsveitar-
innar, enda gjarna talað í bænum um „kórinn
hans Róberts". Algengara varð að söngstjórar
æfðu kórinn en aðalstjórnendur Sinfón-
íuhljómsveitarinnar stjórnuðu tónleikum.
Önnur erfið breyting varð þegar hljómsveit-
in sagði upp föstu samstarfi við söngsveitina í
júní 1986, til að geta haft frjálsari hendur að
starfa einnig með öðrum kórum. Má vera að
þetta hafi verið sanngjarnt frá samkeppnis-
eða jafnræðissjónarmiði, þótt ekki væri sárs-
aukalaust fyrir félaga söngsveitarinnar. Allur
rekstur hennar, sem Sinfóníuhljómsveitin
kostaði áður að mestu leyti, varð líka miklu
torveldari, bæði stjórnunar- og fjárhagslega,
þótt söngsveitin hafi síðan lengst af notið
nokkurra styrkja, einkum frá Reykjavíkur-
borg, auk þess sem borgin hefur að mestu séð
henni fyrir ókeypis æfingahúsnæði.
Fyrsta veturinn eftir rekstrarbreytinguna
sá Smári Ólason um æfingar og stjórnaði Cat-
ulli Carmina eftir Carl Orff í mars 1987, en
aðrir stjórnuðu tónleikum í apríl og maí sama
ár. Kórstarfið lá svo að verulegu leyti niðri
næsta vetur, en haustið 1988 var ráðinn nýr
söngstjóri, Ulrik Ólason orgelleikari, og starf-
semin hófst aftur af fullum krafti. Flutti
söngsveitin á eigin vegum sálumessu Mozarts
þrisvar fyrir yfirfullu húsi í Kristskirkju í
Landakoti 17.-19. mars 1989, auk þess sem
hún sá um messusöng við páfakomu í Landa-
koti 4. júní sama ár. Hinn 10. og 11. desember
hélt söngsveitin svo aðventutónleika í Krists-
kirkju, með blandaðri dagskrá, kammersveit
og einsöngvara. Hafa þeir verið fastur liður
árlega upp frá því, á síðari árum venjulega í
Langholtskii’kju, auk þess sem oftast hefur
verið farið með hluta dagskrár þeirra á vist-
heimili aldraðra fyrir jólin.
Að öðru leyti var haldið áfram á sömu braut
með flutningi stærri verka, oftast á eigin veg-
um og undir stjórn Úlriks, sem starfaði með
söngsveitinni í samfellt átta ár. Tvö verk voru
þó flutt í Háskólabíói undir annarra stjórn, C-
moll messa Mozarts með Sinfóníuhljómsveit-
inni 10. og 12. janúar 1991 (Owain Arwel-Hug-
hes) og Baldr eftir Jón Leifs með Sinfón-
íuhljómsveit æskunnar 24. mars sama ár (Paul
Zukovski - frumflutningur). Baldr, sem var
býsna erfitt og minnisstætt verk, var síðan
tekinn upp næstu daga og gefinn út á tveimur
geisladiskum (Musical Observations, Inc.,
New York: CP2 106/7).
Auk stærri kórverka og aðventutónleika
hefur söngsveitin eða góður hluti hennar tekið
þátt í ýmsum smærri verkefnum, sem eru ekki
öll í verkefnaskránni, einkum hin síðari ár. Má
þar nefna kaþólska vígslu nýn-ar Jósefskfrkju
að Jófríðarstöðum í Hafnarfirði, 3. júlí 1993,
og síðar sama ár fyrstu sjónvarpsmessu á ís-
landi, beina útsendingu í Ríkisútvarpi Sjón-
varpi frá sömu kirkju sunnudaginn 7. nóvem-
ber.
Undir stjórn Úlriks Ólasonar reis söngsveitin
upp á ný, þegar verulega hafði syrt í álinn, og
hófst til æ viðameiri og fjölbreyttari verkefna.
Með dyggri aðstoð Elísabetar Erlingsdóttur
söngkonu, sem hefur annast raddþjálfun og ráð-
gjöf að mestu síðan haustið 1990, og Hrefnu U.
Eggertsdóttur sem þá sá um undirleik á æfing-
um, gaf söngsveitin út á eigin vegum síðla árs
1992 sinn fyrsta geisladisk, ,Á hæstri hátíð“
(SSF 001), með jóla- og hátíðartónlist. Hlaut
hann mjög góða dóma, enda vel til hans vandað,
og hefur selst vel allt til þessa dags. Sjálf upp-
tökuvinnan var afar skemmtileg og lærdómsrflí,
ekki síst þar sem hlusta mátti í Langholtskirkju
jafnharðan á upptökumar. Kom þar æði margt
á óvart! Amóta minnisstæð og þroskandi, en á
allt annan hátt, var fyrsta og hingað til eina ut-
anlandsferð söngsveitarinnar, „Norðurlanda-
ferðin", þar sem flutt voru alls 27 þjóðlög og
önnur íslensk lög í kirkjum í Osló, Gautaborg,
Kaupmannahöfn og Lundi í tilefni 50 ára afmæl-
is íslenska lýðveldisins, 8.-12. júní 1994. Úlrik og
Elísabet leiddu söngsveitina sem fyrr, en undir-
%L
leik annaðist Douglas A. Brotchie orgelleikari.
Áður mun söngsveitin stundum hafa verið
kölluð „kórinn sem aldrei fer til útlanda“! Það
lýsir hins vegar vel því, hve fjárhagsleg að-
staða Fílharmóníu hefur verið miklu erfiðari
en til dæmis kóra sem tengjast ákveðnum
kirkjum og þurfa ekki að kosta söngstjórn og
hús til tónleikahalds á sama hátt.
Myndarlegir styrkir, einkum frá ríki og
borg, gerðu Norðurlandaferðina að veruleika.
Síðan haustið 1996 hefur Bernharður S.
Wilkinson flautuleikari og nú aðstoðarhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníunnar leitt söngsveitina
áfram á sömu braut, með lítið eitt breyttum
áherslum eins og vænta mátti. Var mikið happ
fyrir kórinn að fá til liðs við sig svo hæfileika-
ríkan og reyndan hljómsveitar- og söngstjóra
sem Benni er, og ekki spillir óendanleg þolin-
mæði, jákvæðni og gott skap - samfara vissum *r
skammti af aga auðvitað! Raunar hefur mér
alla tíð þótt undrum sæta, hve flestir söng-
stjórar sem ég hef haft kynni af hafa haldið ró
sinni og krafti, þrátt fyrir mikið vinnuálag og
tæting. Undir stjóm Benna og með aðstoð El-
ísabetar og Douglasar gaf söngsveitin út ann-
an geisladisk sinn, „Heill þér himneska orð“
(SSF 002), fyrir jólin í fyrra. Var ekki síður til
hans vandað en hins fyrri. Undirleikari á æf-
ingum var Guðríður St. Sigurðardóttir, sem
hefur verið stoð og stytta söngsveitarinnar
undanfarin ár.
Mál er að linni. Hin fertuga söngsveit, Fíl-
harmónía eða „Fflan“ eins og hún er stundum
kölluð (að ekki sé minnst á „Fflamannakórinn“
eins og einn uppáhaldsaðdáandi söngsveitar-
innar, Flosi Ólafsson leikari, nefndi hana á
yngri árum), er vaxin vel úr grasi og horfir *
björtum augum til framtíðar, þrátt fyrir viss-
an karlaskort eins og stundum áður. Hún hef-
ur þegar skilað víðtæku og mikilvægu hlut-
verki, ekki bara tónlistarlegu heldur einnig
uppeldislegu og félagslegu, eins og slíkt starf
gerir ávallt og verður seint metið að verðleik-
um. Að starfa í metnaðarfullum blönduðum
kór, þar sem saman koma einstaklingar á
ýmsum aldri og úr flestum stéttum þjóðfélags-
ins, er góð tilbreyting frá námi og starfi,
þroskandi og umfram allt skemmtilegt - ör-
ugglega ekki síður en í öðrum kórum og
klúbbum! Vonandi linnir senn hinu óhóflega
vinnuálagi Islendinga, karla sem kvenna, sem
hlýtur oft að standa eðlilegri þátttöku í upp-
eldis-, tómstunda- og félagsstarfi fyrir þrifum.
Eg óska söngsveitinni minni gæfu og gengis
á komandi árum, með blómlegu félagsstarfi og
listrænum árangri.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. MA( 2000 1 9*