Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Qupperneq 10
Alvöru garðhúsabær: Kartöflukofarnir í Kringlumýri um 1950. Horft er yfir kartöfluræktarlönd Reykvíkinga, en neðst til hægri er vatnsgeymirinn. Ralph Erskine, Bandaríkjunum. Robert Graves, Bandaríkjunum. Heikinen-Komonen, Finnlandi. _ EFTIR PÉTUR H. ÁRMANNSSON OG ÁGÚSTU KRISTÓFERSDÓTTUR Á Kjarvalsstöðum stendur fram til 23. júlí sýningin Garðhúsabærinn, sem snýst um skemmtilega hug- mynd: Lítið hús sem hefur þann ti Igang að þar er hægt að vera í friði með sjál fum sér - eða öðrum. Heimsfrægir arkitektar hafa lagt hugmyndi nni lið. Garðhúsabærinn (Ko- lonihaven) er yfirskrift sýningar á Mkönum og teikningum eftir nokkra kunnustu arkitekta heims sem stendur yfir á Kjarvalsstöðum fram til 23. júlí nk. Sýningin er sameiginlegt framlag Arkitektafélags Islands og Listasafns Reykjavíkur til dagskrár Reykja- víkur menningarborgar Evrópu árið 2000 og má óhikað telja hana einn merkasta sýningar- viðburð á sviði byggingarlistar sem haldinn hef- ur verið hérlendis. Sögulegur bakgrunnur sýningarinnar er sú hefð sem skapast hefur í Danmörku og víðar að fólk reisi Mtil og ódýr smáhýsi á ræktunarreit- um utan við borgir. Hugmyndin um garðlendur (Kolonihave) kom fyrst fram í lok 19. aldar sem Uður í umbótum á aðbúnaði iðnverkafólks. Lífs- skilyrði almennings í mörgum borgum voru óbærileg sökum þrengsla og verkafólk krafðist bættrar aðstöðu, jafnt á vinnustað sem heima fyrir. Til að gefa almenningi kost á afdrepi frá skarkala borganna hófu yfirvöld að úthluta garðsvæðum til leigu utan við þéttbýMsmörkin. Landsvæðið var girt af og því deilt upp í 100- 200 fm. lóðir, svo til varð lítill bær eða samfélag. í garðlandabæjunum gafst verkamönnum færi á að eiga stund með fjölskyldu sinni að aflokn- um vinnudegi, anda að sér hreinu lofti, stunda ræktun og gleyma amstri hversdagsins um stund. Fljótlega fóru garðeigendur að reisa frumstæð skýli tO að geyma verkfæri sín og leita skjóls í. Smám saman urðu húsin vandaðri og skrautlegri eftir því sem nostrað var meira við þau. Við bættust tumar og spírur, þaksvalir og súlnagöng, verandir, gluggaútskot og garð- veggir í öllum stílbrigðum. Imyndunaraflið eitt fékk að ráða ferðinni og smám saman runnu garður og hús saman í eina, litríka heild. Þó svo garðhúsabæir eigi sér sterkastar ræt- ur í Danmörku má finna hUðstæðu þeirra í flestum löndum. Sú er og raunin hér á landi, enda þótt vöxtur þéttbýUs í kjölfar iðnvæðingar hafi komið síðar til. Um og eftir 1933 var út- hlutað ræktunarlöndum (erfðafestulöndum) í Kringlumýri og nærUggjandi svæðum í bæjar- landi Reykjavíkur. Hugmyndin með ræktunar- löndunum var m.a. sú að veita atvinnulausu Ljósmyndir: Jens Lindhe. Arata Isosaki, Japan. fólki tækifæri til að drýgja tekjur sínar. Með aukinni atvinnu eftir stríðið fækkaði þeim sem stunduðu ræktun í atvinnuskyni. Voru reitimir þá minnkaðir með tilliti tU þess að þeir dygðu til heimUisnota. Áhugi fólks á matjurtarækt var mikUl eftir stríð og um 1950 vom um tvö þúsund fjölskyldur í Reykjavík með eigin rækt- unarreit. Stærsta ræktunarsvæðið var í Kringlumýri (þar sem nú em mót Kringlu- mýrarbrautar og Miklubrautar), en auk þess vom garðlönd á Melunum, í Fossvogi, við Borgartún og í Laugardal. í garðlöndum Reykvíkinga risu sumarskýM og jafnvel heilsársbústaðir sem nú em flestir löngu horfnir undir malbik og steinsteypu. Húsin í garðlöndunum vora tvenns konar, annars vegar MtU skýli fyrir garðyrkjuáhöld og útsæði og hins vegar stærri hús, ætluð til dvalar yfir sumarið. Þau vom flest minni og ódýrari en venjulegir sumarbústaðir enda oftast reist af efnaminna fólki. Enn í dag eiga margir höfuð- borgarbúar ræktunarlönd og leita þangað í tómstundum sínum. Vísi að íslenskum „garð- húsabæ“ má finna í garðlöndum Reykjavíkur í Skammadal í Mosfellsbæ. Árið 1994 fengu dönsku arkitektamir Christian Lund og Kirsten Kiser þá hugmynd að efna til sýningar þar sem þrettán af kunn- us Þ' bc m te í i er % b' ar ar vc íi ar ai fr vc us vi m fr ei in hc la ái le ir in b’ G R hc hc hí ir di ei © ft 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.