Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.2000, Síða 17
Sigrún Einarsdóttir og Sören S. Larsen við verk sem eru á sýningunni.
Hvers vegna hafið þið ekki haldið einkasýn-
ingu í allan þennan tíma?
„Við erum með mikið bákn á bakinu þar sem
verkstæðið er. Eins og aðrir listamenn vinnum
við þessa gripi í frítímanum. ísland er lítið land
og þótt kollegar okkar erlendis geti unnið eina
sýningu og flutt hana milli staða, vegna þess að
markaðurinn er svo stór, er það ekki hægt á
Islandi. Hér vinnur þú ný verk fyrir hverja
sýningu og getur ekki sýnt þau aftur á næstu
sýningu. Það er því töluvert átak íyrir okkur
og mikil vinna að undirbúa svona sýningu og
við höfum bara kvöldin og helgarnar til þess.“
Listsköpun og þróun
Á sýningunni eru litríkir og gullfallegir
skúlptúrar sem Sören segist hafa unnið lengi
að. „Það er engin ný hugsun í þeim hjá mér en
nokkur þróun,“ segir hann. „Ég hef verið að
breyta tækninni. Fyrst var ég aðeins með
kringlótt form en nú hef ég breytt forminu og
er með þríhyrninga. Ég slípa glerið líka meira
en áður. Skúlptúrinnsem ég kalla „Himna-
stiga“ eru eins konar framhald af skúlptúr sem
ég gerði 1984 og er kallaður „Himnavatn".
Hann er eins konar gluggaverk í nælonvír en
núna tengi ég diskana með járni.
Það er sagt að rithöfundar séu alltaf að
skrifa sömu söguna og það á við um alla lista-
menn. Sagan þróast bara og breytist eftir því
sem listamaðurinn þroskast og nær betri tök-
um á því listformi sem hann vinnur við.
„Ég dáist alltaf að því fólki sem getur þróast
á hraða snigilsins," segir Sigrún, „vegna þess
að ég er alltaf á ferðinni. Þetta er svo lítið þjóð-
félag sem kallar stöðugt á nýjungar vegna þess
að hraðinn er svo mikill hér. Það er frekar erf-
itt fyrir listamann að fá að þróast hér hægt og
rólega vegna þess að þá er sagt að hann sé allt-
af að gera það sama. Það þarf því nokkuð sterk
bein til þess að halda ótrauður áfram á sinni
braut.“
Listhandverksmaðurinn
„Hjá mér er það handverkið sem er númer
eitt, tvö og þrjú,“ segir Sören. „Ég lærði múr-
verk áður en ég fór í listnám og lærði keramik.
Ég lít fyrst og fremst á mig sem listhandverks-
mann og vil alls ekki kalla mig listamann. Ég
ber mikla vii'ðingu fyrir handverkinu. Ég hef
lært að blása gler og það sem mér finnst svo
skemmtilegt er að vinna með gler sem er 4.000
ára gamalt, jafnvel eldra. Það sem er svo gam-
an er að það eru stöðugt að opnast nýjar dyr,
nýir möguleikar. Glerið er mjúkt og mjög
sveigjanlegt form en jafnframt svo erfitt efni
að maður er eins og Lísa í Undralandi og veit
aldrei á hverju er von næst.“
Hvernig tilfinning er það að sýna aftur eftir
sextán ára hlé?
„Nú þegar þetta er komið á koppinn finnst
okkur þetta mjög spennandi, okkur finnst
þetta dálítið eins og endurkoma. Við erum búin
að vera svo einangruð og vernduð á verkstæð-
inu okkar og upplifum þetta því eins og við
séum að kasta okkur út í hringiðuna. En þette
er mjög gott hús og þetta er svo gaman að víí
erum þegar búin að ákveða aðra sýningu.“
• •
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Karólína Lárusdóttir sýnir minningar sínar í málverkum.
„Prestarnir eru bara tákn. Tákn fyrir hvern-
ig andrúmsloftið var á þessum tíma þegar
embættismenn þóttu mjög merkilegt fólk.“
Hvað með sveitina og garðana og bílinn við
hliðið?
„Það eru tvær myndir þarna sem eru sumar-
bústaðarmyndir. Þú myndir ekki trúa því en
við vorum með sumarbústað í Fossvoginum.
Það var úti í sveit og það var alltaf verið að
gera eitthvað við garðinn þar. Eitt sinn kom
stór bíll með fullt af mönnum og jarðýtu eða
gröfu. Ég man ekki hvað þeir voru að gera en
það leit flott út. Hin myndin frá sumarbústað-
num er óljós minning af því að einn daginn
stóðu einhverjir menn við hliðið og mamma og
Leija voru að segja þeim að fai'a í burtu.“
Leija?
„Leija fylgdi fjölskyldunni í áratugi. Hún
ýtti pabba fram og til baka í barnavagni þegar
hún var fimmtán ára og seinna passaði hún
okkur bömin hans. Hún var barnapía fyiir
þrjár kynslóðir og hluti af stórfjölskyldunni.
Hún var alltaf í peysufötum, þar til seinustu
árin, og með peysufatafléttur. Hún hló alltaf
þessi lifandis ósköp og var aðalmanneskjan í
öllum veislum, spjallaði við alla og skemmti sér
manna best. Hún gifti sig aldrei eða eignaðist
börn. Hún bara flutti inn í fjölskylduna okkar
og fylgdi henni alla tíð.“
Geirmundur og fleiri karakterar
Karólína bendir á eina mynd og segir: „Þessi
mynd heitir Geirmundur kemur með matinn
frá Hótel Borg. Ég hugsaði með mér hvort ég
ætti að þora að mála hana - en það eru einmitt
myndimar sem maður á að mála, þessar sem
maður þorir ekki að mála.
Þegar við vorum krakkar, lét mamma alltaf
senda mat í hádeginu frá Hótel Borg. Hún gat
hringt niður á Hótel Borg, fengið matseðilinn
og valið hvað hún vildi fá í hádeginu. Við höfð-
um vinnukonu sem lagði á borð. Svo kom Geir-
mundur og sótti pottana og fór með þá niður á
Hótel Borg þar sem kokkamir settu mat í þá
og hann kom heim með þá, glóðheita í bflnum
og við borðuðum matinn frá Hótel Borg. Þetta
gerði mamma vegna þess að pabbi átti Hótel
Borg. Hvort mamma áttaði sig á því eða ekki,
þá var þetta alger skandall. Að hún skyldi ekki
elda matinn sjálf, var auðvitað algert tabú. Og
hún bakaði aldrei. Það var hvíslast á um þetta í
skólanum og var alveg hræðilega pínlegt fyrir
okkur.
Geirmundur var karakter. Hann kvæntist
aldrei og vann fyrir Feldinn. Pabbi og maður-
inn sem bjó á efri hæðinni á Hagamel 10, ráku
fyrirtæki sem hét Feldur, þar sem það besta
var selt sem til var í þá tíð, til dæmis kápur frá
Englandi og annar kvenfatnaður. Það var ekki
mikið hægt að fá á þeim tíma. Það var allt svo
lokað og það var eins og fólk fyndi til stolts
þegar það sagði: „Það er bannað,“ eins og þetta
væri einhver valdaleikur. Það mátti ekki neitt
- eftir því sem ég man og ég held að ég sé ekk-
ert ein um að vera laus við eftirþrá eftir þess-
um tímum. En Geirmundur er á tveimur
myndum. Hin myndin er af því þegar hann fer
inn á brauðstofuna á Hótel Borg og fær sér
kaffi og kleinu hjá Jórunni yfirsmurbrauð-
sjómfrú. Hún var annar karakter og var alltaf
hvítklædd.
Ekki hætt að mála fljúgandi fólk
Það er ekkert loftkennt, fljúgandi eða myst-
ískt við fólkið í myndum Karólínu að þessu
sinni en hún segist ekki vera hætt að mála
mystískar myndir af fólki sem er á flugi; þær
séu ennþá í vatnslitamyndunum hennar. „En í
olíumálverkunum er fólkið yfirleitt svo stórt og
feitt og þungt að það getur ekki flogið," segir
hún og bætir við: „En það flýgur í einni mynd
af báti á Þingvallavatni.
Þingvellir eru endalaus uppspretta af mynd-
efni. Sumarbústaðurinn, Hótel Borg og Þing-
vellir eru endalaust þema. Það var farið í laut-
arferðir út frá þessum þremur stöðum. En það
er ekki lengur hægt að fara inn í raunveruleik-
ann eins og hann var á Hótel Borg vegna þess
að þar er allt svo breytt. Ég er hins vegar
ánægð með það hvernig nýir eigendur hafc
gert hótelið upp. Það er mjög fallegt. Það er
ekki heldur hægt að fara inn i raunveruleikann
í sumarbústaðnum vegna þess að hann er ekki
til. En Þingvellir eru ennþá til.“
Þegar Karólína er spurð hvers vegna hún
taki þessi þemu fyrir, eins og Gullfoss, Hótel
Borg, sumarbústaðinn og Þingvelli, segir hún:
„Það er eins og ég sé að koma öllu heim og
saman. Það er eins og ég sé að koma í höfn. Ég
veit ekki hvar og hvernig en þetta er mjög
sterk tilfinning.“
Hinn 26. október verður opnuð önnur sýning
á verkum Karólínu. Hún verður í Bankside-
galleríinu í London, sem er við hliðina á nýja
Tate-galleríinu. Þar sýnir hún vatnslita- og
grafíkmyndir. „Þetta er óskaplega stórt gallerí
og hefur mun meira veggpláss en hér er - en
ég er tilbúin með grafíkmyndirnar og þaðA
bara eftir að setja þær í ramma. Ég er skil-
hrædd við að vera með tvær sýningar í einu en
ég ætla samt að gera það. Það er svo auðvelt að
hræða sjálfan sig.“
Aðspurð um myndefnið á þeirri sýningu seg-
ir hún það allt vera íslenskt.
„Myndirnar á þeirri sýningu eru mjög líkar
myndunum sem hér eru, en auk þess eru þar
myndir frá Danmörku. Þar er þó meira af svíf-
andi englum og slíku en myndefnið mjög skylt.
Þetta er allt partur af því að vera að koma í
höfn.“
Finndu til óttans en gerðu það samt
Ástæðuna fyrir því að svo skammt sé á milli
sýninga, segir Karólína vera þá að sýningin í
Listasafni Kópavogs hafi frestast um eitt ár af
óviðráðanlegum ástæðum og um tíma hafi hún
verið að hugsa um að hætta við aðra sýning-
una.
„En eins og máltækið segir: Pinndu til ótt-
ans en gerðu það samt, og ég ákvað að standa
við báðar sýningarnar.
Ég veit að ég mála ekki eins og aðrir og ég
veit að það pirrar suma. En ég mála svona.
Þetta er bara ég og ég ætla ekkert að biðjast
afsökunar á því. Ég er komin á þann aldur að
ég vil halda trúnað við sjálfa mig og lifa lífi
mínu í friði. Ég tek einn dag í einu og sé hvað
lífið hefur upp á að bjóða og það líður ekki sá
dagur að maður sjái ekki eitthvað skemmtilegt
og gott. Hver einasti dagur er kraftaverk í
sjálfu sér. Ég er bara svo þakklát fyrir að h<*£a
haft aðstöðu til að mála myndir og fyrir það að
fólk vilji kaupa myndimar mínar. Ég á líka tvö
yndisleg börn og get með sanni sagt að ég hafi
verið ákaflega heppin í lífinu."
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 23. SEPTEMBER 2000 1 7
f