Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Blaðsíða 20
Tólf steindir gluggar vígðir í Suðureyrarkirkju SAMFELLDUR ÓÐUR TIL ALMÆTTISINS Morgunblaðið/Árni Sæberg Benedikt Gunnarsson ásamt vinnuteikningum af hluta glugganna sem nú hafa verið settir upp í Suðureyrarklrkju. Tólf steindir gluggar eftir listmólarann Benedikt Gunnarsson voru vigðir í Suðureyrarkirkju fyrr í haust. MARGRÉT SVEIN- BJÖRNSDQTTIR heim- sótti Benediktog fékk hann til að segja sér sög- una að baki gluggunum. GLUGGARNIR steindu voru gjafír til kirkjunnar frá Súgfirðingum á þús- und ára afmæli kristni- töku á íslandi, gefnar til minningar um látna ást- vini og til kirkjunnar og samfélagsins á Suður- •?jtí. Gluggarnir voru formlega afhentir og vígðir í kirkjunni 10. september sl. Benedikt rekur upphaf verksins til þess er 'iann var beðinn að gera verk í kirkjuna í tengslum við 60 ára afmæli hennar árið 1998. Hann gerði fjóra steinda glugga í kórhluta kirkjunnar, sem voru vígðir á páskum það ár. Gluggarnir voru gefnir kirkjunni til minningar um súgfirsku sæmdarhjónin Kristeyju Hall- bjömsdóttur og Sturlu Jónsson, fyrrverandi útgerðarmann, oddvita og organista við Suður- eyrarkirkju. „Þegar ég gerði þessa fjóra glugga þróuðust með mér það margar tillögur að ég hélt áfram og ákvað að gefa eina mynd til minningar um foreldra mína sem bjuggu á Suðureyri en þar leit ég líka sjálfur fyrst dagsins ljós,“ segir Benedikt. Hann hélt áfram að vinna tillögur að fleirí myndum í kirkjuna og í framhaldinu þró- aðist sú hugmynd að gefa Súgfirðingum kost á að festa kaup á þeim fullunnum og gefa kirkj- unni þær, m.a. til minningar um látna ástvini. Undirtektir voru afar góðar, að sögn Bene- dikts, og ekki leið á löngu áður en allir glugg- amir vom pantaðir. Kirkjuglugginn farvegur heilags anda Auk þess að hafa lengi starfað sem listmálari og kennari og haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum hefur Benedikt gert allmarga steinda glugga fyrir kirkjur, svo sem í Kefla- víkurkirkju, Hábæjarkirkju í Þykkvabæ og Fáskrúðarbakkakirkju á Snæfellsnesi. Þekkt er einnig altarismynd hans úr mósaík í Há- teigskirkju í Reykjavík. í vinnu sinni við kirkjugluggana kveðst hann virkja ljósið sem gegnumstreymandi afl. Hann leggur áherslu á að kirkjugluggi sé ekki einungis op sem hleypi birtu inn til að menn sjái á sálmabókina, heldur sé hann í raun farvegur heilags anda. ,jUlar glermyndir kirkjunnar eiga það sam- eiginlegt að vera samfelldur óður til almætt- isins. Kristin trú, kristin viðhorf til lífs og um- hverfis, era meginkveikimáttur þeirra, og þar á allt inntak verkanna rætur. Verkin spretta úr veröld ljóssins, sem lífið gaf og aldrei þverr,“ sagði listamaðurinn í ávarpi sínu við vígslu glugganna í Suðureyrarkirkju. Ljósið sem forsenda alls lífs Ein myndanna í kirkjunni er gefin til minn- ingar um Sigríði Jónsdóttur ljósmóður og mann hennar, Ásgeir Jónsson vélstjóra. Gef- endurnir voru 56 súgfirskar konur, sem flestar höfðu notið aðstoðar Sigríðar við fæðingu barna sinna, og mörgum þessara kvenna, ásamt mökum þeirra, hafði hún einnig tekið á móti í ljósmóðurstarfi sínu. „Þessi athyglis- verða samstaða kvennanna á sér vart hlið- stæðu í íslenskri kirkjulistarsögu, enda vakið athygli víða um land og jafnvel erlendis," segir Benedikt. Sjálfur fæddist Benedikt inn í birt- una á Suðureyri við sólarapprás 14. júlí árið 1929. „Nú er ég að virkja þessa birtu á sama stað og ég fæddist. Þannig dýpka ég þessa trúartilfinningu og þökk til lífsins fyrir að hafa fæðst,“ segir hann. Ljósmóðirin var fyrrnefnd Sigríður en Benedikt var fyrsta barnið sem hún tók á móti í sjálfstæðu ljósmóðurstarfi. „Hún var þá nýkomin vestur, ung stúlka,“ seg- ir hann. „Orðið ljósmóðir er í mínum huga eitt feg- ursta orð tungunnar og umlukt ljóma kærleika og vináttu. I huga Súgfirðinga fylgir einmitt sá ljómi nafni Sigríðar og ljósmóðurstörfum hennar. Kveikja myndarinnar, ljósið sem for- senda alls lífs, fellur á táknrænan hátt vel að innsta kjarna ljósmóðurstarfsins, sem felur í sér kærleiksríka þjónustu við líf og ljós, undrið mesta í allri sköpun, fæðingu barns inn í ljós- veröld lífsins," segir Benedikt. Ekki kemur á óvart að heiti myndarinnar sem gefin var til minningar um Sigríði er „Verði ljós! Og það varð ljós.“ Hinn trúarlegi þáttur kjarninn í öllum listaverkum Benedikt telur að hinn trúarlegi þáttur sé kjarninn í öllum góðum listaverkum, jafnvel þó að listamaðurinn viti ekki alltaf af því og lýsi því jafnvel yfir að verk hans séu ekki trúarleg. „Það er þetta afl sem vakir í honum sem gerir honum kleift að gera eitthvað sem er innblásið - þó að einstaklingurinn átti sig ekki endilega á því hvers eðlis það afl er,“ segir hann. Benedikt ber mikið lof á Listgler í Kópavogi sem sá um tæknilega framkvæmd við samsetn- ingu glugganna. „Þetta er trúlega eina fyrir- tækið sinnar gerðar sem starfrækt er á ís- landi. Það vinnur með listamönnum og hefur á að skipa afar hæfum starfsmönnum á þessu sviði, þar á meðal er sjálfur forstjórinn, Yngvi Lnzj [9 * = 1 ; H L H > I ’ Krossinn og Ijós heilagrar þrenningar er yf- irskrift þessa glugga, sem er einn hinna tólf steindu glugga sem vígðir voru í Suðureyrar- kirkju á haustdögum. Högnason. Samvinna mín og þeirra hefur verið umtalsverð á undanförnum árum og ætíð góð, þrátt fyrir margþátta krefjandi og seinunna tæknivinnu,“ segir hann. AÐVENTUTÓN- LEIKAR KARLAKÓRS REYKJAVÍKUR KARLAKÓR Reykjavíkur heldur þrenna aöventutónleika í Hall- grímskirkju um helgina. I dag, laugardaginn 16. desember, verða tvennir tónleikar, kl. 17 og 22, og sunnudaginn 17. desember kl. 20. Á efnisskránni eru jólalög, sálmar og önnur kirkjuleg verk s.s. Alta trinita beata, Locus iste og Slá þú hjartans hörpustrengi. Einsöngvari með kórnum að þessu sinni er Hulda Björk Garð- arsdóttir sópran. Hulda Björk er fædd á Akureyri og lauk burt- fararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1996. Þá sundaði hún framhaldsnám við The Royal Academy of Music í London og lauk þaðan Dip RAM með láði árið 1998. Hulda Björk hefur sung- ið allnokkur óperuhlutverk, m.a. Fiordiligi í Cosi fan tutte við Amersham Festival í London. Hún mun syngja hlutverk Michaelu í Carmen eftir Bizet með Sinfóníuhljómsveit Islands í mars nk. Hörður Áskelsson lcikur á orgel og Ásgeir H. Steingrímsson og J’liríkur Örn Pálsson annast trompetleik. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson. Miðaverð er 1.500 krónur. Forsala aðgöngumiða er í Ými, Skógarhlið, og hjá Eymundsson, Kringlunni/Austurstræti. Einnig verða miðar scldir við innganginn. Karlakór Reykjavíkur. 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 16. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.