Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Qupperneq 20
Tólf steindir gluggar vígðir í Suðureyrarkirkju
SAMFELLDUR ÓÐUR
TIL ALMÆTTISINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Benedikt Gunnarsson ásamt vinnuteikningum af hluta glugganna sem nú hafa verið settir upp í
Suðureyrarklrkju.
Tólf steindir gluggar eftir
listmólarann Benedikt
Gunnarsson voru vigðir í
Suðureyrarkirkju fyrr í
haust. MARGRÉT SVEIN-
BJÖRNSDQTTIR heim-
sótti Benediktog fékk
hann til að segja sér sög-
una að baki gluggunum.
GLUGGARNIR steindu
voru gjafír til kirkjunnar
frá Súgfirðingum á þús-
und ára afmæli kristni-
töku á íslandi, gefnar til
minningar um látna ást-
vini og til kirkjunnar og
samfélagsins á Suður-
•?jtí. Gluggarnir voru formlega afhentir og
vígðir í kirkjunni 10. september sl.
Benedikt rekur upphaf verksins til þess er
'iann var beðinn að gera verk í kirkjuna í
tengslum við 60 ára afmæli hennar árið 1998.
Hann gerði fjóra steinda glugga í kórhluta
kirkjunnar, sem voru vígðir á páskum það ár.
Gluggarnir voru gefnir kirkjunni til minningar
um súgfirsku sæmdarhjónin Kristeyju Hall-
bjömsdóttur og Sturlu Jónsson, fyrrverandi
útgerðarmann, oddvita og organista við Suður-
eyrarkirkju.
„Þegar ég gerði þessa fjóra glugga þróuðust
með mér það margar tillögur að ég hélt áfram
og ákvað að gefa eina mynd til minningar um
foreldra mína sem bjuggu á Suðureyri en þar
leit ég líka sjálfur fyrst dagsins ljós,“ segir
Benedikt. Hann hélt áfram að vinna tillögur að
fleirí myndum í kirkjuna og í framhaldinu þró-
aðist sú hugmynd að gefa Súgfirðingum kost á
að festa kaup á þeim fullunnum og gefa kirkj-
unni þær, m.a. til minningar um látna ástvini.
Undirtektir voru afar góðar, að sögn Bene-
dikts, og ekki leið á löngu áður en allir glugg-
amir vom pantaðir.
Kirkjuglugginn
farvegur heilags anda
Auk þess að hafa lengi starfað sem listmálari
og kennari og haldið fjölmargar sýningar á
verkum sínum hefur Benedikt gert allmarga
steinda glugga fyrir kirkjur, svo sem í Kefla-
víkurkirkju, Hábæjarkirkju í Þykkvabæ og
Fáskrúðarbakkakirkju á Snæfellsnesi. Þekkt
er einnig altarismynd hans úr mósaík í Há-
teigskirkju í Reykjavík. í vinnu sinni við
kirkjugluggana kveðst hann virkja ljósið sem
gegnumstreymandi afl. Hann leggur áherslu á
að kirkjugluggi sé ekki einungis op sem hleypi
birtu inn til að menn sjái á sálmabókina, heldur
sé hann í raun farvegur heilags anda.
,jUlar glermyndir kirkjunnar eiga það sam-
eiginlegt að vera samfelldur óður til almætt-
isins. Kristin trú, kristin viðhorf til lífs og um-
hverfis, era meginkveikimáttur þeirra, og þar
á allt inntak verkanna rætur. Verkin spretta úr
veröld ljóssins, sem lífið gaf og aldrei þverr,“
sagði listamaðurinn í ávarpi sínu við vígslu
glugganna í Suðureyrarkirkju.
Ljósið sem forsenda alls lífs
Ein myndanna í kirkjunni er gefin til minn-
ingar um Sigríði Jónsdóttur ljósmóður og
mann hennar, Ásgeir Jónsson vélstjóra. Gef-
endurnir voru 56 súgfirskar konur, sem flestar
höfðu notið aðstoðar Sigríðar við fæðingu
barna sinna, og mörgum þessara kvenna,
ásamt mökum þeirra, hafði hún einnig tekið á
móti í ljósmóðurstarfi sínu. „Þessi athyglis-
verða samstaða kvennanna á sér vart hlið-
stæðu í íslenskri kirkjulistarsögu, enda vakið
athygli víða um land og jafnvel erlendis," segir
Benedikt. Sjálfur fæddist Benedikt inn í birt-
una á Suðureyri við sólarapprás 14. júlí árið
1929. „Nú er ég að virkja þessa birtu á sama
stað og ég fæddist. Þannig dýpka ég þessa
trúartilfinningu og þökk til lífsins fyrir að hafa
fæðst,“ segir hann. Ljósmóðirin var fyrrnefnd
Sigríður en Benedikt var fyrsta barnið sem
hún tók á móti í sjálfstæðu ljósmóðurstarfi.
„Hún var þá nýkomin vestur, ung stúlka,“ seg-
ir hann.
„Orðið ljósmóðir er í mínum huga eitt feg-
ursta orð tungunnar og umlukt ljóma kærleika
og vináttu. I huga Súgfirðinga fylgir einmitt sá
ljómi nafni Sigríðar og ljósmóðurstörfum
hennar. Kveikja myndarinnar, ljósið sem for-
senda alls lífs, fellur á táknrænan hátt vel að
innsta kjarna ljósmóðurstarfsins, sem felur í
sér kærleiksríka þjónustu við líf og ljós, undrið
mesta í allri sköpun, fæðingu barns inn í ljós-
veröld lífsins," segir Benedikt. Ekki kemur á
óvart að heiti myndarinnar sem gefin var til
minningar um Sigríði er „Verði ljós! Og það
varð ljós.“
Hinn trúarlegi þáttur
kjarninn í öllum listaverkum
Benedikt telur að hinn trúarlegi þáttur sé
kjarninn í öllum góðum listaverkum, jafnvel þó
að listamaðurinn viti ekki alltaf af því og lýsi
því jafnvel yfir að verk hans séu ekki trúarleg.
„Það er þetta afl sem vakir í honum sem gerir
honum kleift að gera eitthvað sem er innblásið
- þó að einstaklingurinn átti sig ekki endilega á
því hvers eðlis það afl er,“ segir hann.
Benedikt ber mikið lof á Listgler í Kópavogi
sem sá um tæknilega framkvæmd við samsetn-
ingu glugganna. „Þetta er trúlega eina fyrir-
tækið sinnar gerðar sem starfrækt er á ís-
landi. Það vinnur með listamönnum og hefur á
að skipa afar hæfum starfsmönnum á þessu
sviði, þar á meðal er sjálfur forstjórinn, Yngvi
Lnzj [9
* = 1 ; H L H >
I ’
Krossinn og Ijós heilagrar þrenningar er yf-
irskrift þessa glugga, sem er einn hinna tólf
steindu glugga sem vígðir voru í Suðureyrar-
kirkju á haustdögum.
Högnason. Samvinna mín og þeirra hefur verið
umtalsverð á undanförnum árum og ætíð góð,
þrátt fyrir margþátta krefjandi og seinunna
tæknivinnu,“ segir hann.
AÐVENTUTÓN-
LEIKAR KARLAKÓRS
REYKJAVÍKUR
KARLAKÓR Reykjavíkur heldur þrenna aöventutónleika í Hall-
grímskirkju um helgina. I dag, laugardaginn 16. desember, verða
tvennir tónleikar, kl. 17 og 22, og sunnudaginn 17. desember kl.
20.
Á efnisskránni eru jólalög, sálmar og önnur kirkjuleg verk s.s.
Alta trinita beata, Locus iste og Slá þú hjartans hörpustrengi.
Einsöngvari með kórnum að þessu sinni er Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran. Hulda Björk er fædd á Akureyri og lauk burt-
fararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1996. Þá sundaði
hún framhaldsnám við The Royal Academy of Music í London og
lauk þaðan Dip RAM með láði árið 1998. Hulda Björk hefur sung-
ið allnokkur óperuhlutverk, m.a. Fiordiligi í Cosi fan tutte við
Amersham Festival í London. Hún mun syngja hlutverk Michaelu
í Carmen eftir Bizet með Sinfóníuhljómsveit Islands í mars nk.
Hörður Áskelsson lcikur á orgel og Ásgeir H. Steingrímsson og
J’liríkur Örn Pálsson annast trompetleik.
Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson.
Miðaverð er 1.500 krónur. Forsala aðgöngumiða er í Ými,
Skógarhlið, og hjá Eymundsson, Kringlunni/Austurstræti. Einnig
verða miðar scldir við innganginn.
Karlakór Reykjavíkur.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 16. DESEMBER 2000