Tíminn - 22.01.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.01.1967, Blaðsíða 3
I í SPEGLITIMAIMS Fyrrverandi frönsk tízku- sýningardama, Michele Ray er horfin í Suður-Vietniam. Það er talið líklegt, að hún hafi annað hvort verið tekin til fanga eða skotin af Víet Cong. Hin 23 ára gamla Mile Ray vann sem ljósmyndari og blaðakona, en var þó ekki fastráðin við neitt sérstakt dagblað. Hún hvarf síðastliðinn þriðjudag á frum- skógastíg einum nálægt Bong Son í miðhálendi Suður-Viet- nam. Strax nóttina á eftir hófu bandarískar flugvélar og her- flokkar leit að henni en án árangurs. Ray sagði við banda- rískan hermann, þá er hún yfirgaf síðustu varnarstöðina áður en hún fóí í ferðalag sitt: „Þú sérð, að ég hef langa líf- línu“ um leið og hún sýndi hon um 1 lófa sinn. ir Enska lögreglan telur, að ungi maðurinn, sem fannst iiggjandi í tveimur kistum ná- lægt Ipswich í England.i, sund- urskorinn í átta þluta hafi orð- ið fyrir árás homosexualista. Hann hefði verið kvalinn eftir að hafa fengið þung höfuðhögg. 'Líkið var nakið þegar komið 'var að því. ic I*að þótti kraftaverk, í 'síðasta mánuði, þegar Breski 'sjóarinn Francis Chichester 65 'ára að aldri sigldi á hinni 53 'feta kænu sinmi nn í höfnna í Sidney í Astraliu eftir að 'hafa lagt að baki 14.000 mílur 'frá Englandi um Góðrarvon- 'arhöfða. Chichester kom í höfn 'öruggur, glaður en útkeyrður eftir 105 daga siglingu. í þess- 'ari viku mun Chichester hialda 'enn einu sinni af stað og I þetta sinn sigla fyrir Cape ‘Horn syðsta odda suður Ame- riku en veðráttan á þeim slóð 'um hefur oft verið slík, að full mönnuð skip hafi farizt þar 'svo tugum cj hundruðum skipt ir. Einn gamall þekktur sjó- maður, Alan Villers, sem er vinur Chichesters hefur beðið 'hann um að reyna þetta ekki. „Guð hefur verið honum bæn- hollur", sagði hann en þetta er að biðja Guð of mikils". 'ir Enski þjóðlagasöngvarinn 'Donovan mun bráðum hefja 'leik í kvikmynd en upptaka 'hennar mun byrja í vor- Einn- ig hefur verið ákveðið, að hann komi fram í sjónvarpsþætti 'hjá BBC. Næsta sumar mun 'hann fara í hljómleikaferð til ■Ítalíu, Frakklands, Þýzkalands Belgíu, Hollands, Austurrikis, Danmerkur og Svíþjóðar. Hann 'fer í Mjómleikaferð til Banda- 'ríkjanna hinn 26. febrúar. ‘ir Þegar the Rolling Stones 'voru á hljómleikaferð í Banda- Tíkjunum á dögunum kom upp 'sá orðrómur að Mike Jagger •væri dáinn. Blaðafulltrúi Roll- 'ing Stones sagði að síminn hefði ekki stoppað hjá sér og ‘sér hefði virst, sem ill Banda- Tíkin væru .að reyna að ná sam- 'bandi við hann. Jagger hefur •viljað koma því á iramíæri að 'hann sé ekki dauður og að orðrómur þessi hafi verið stór- lega ýktur. The Rolling Stones Voru hæstu plötuseljendur í 'Bandaríkjunum árið 1966. ★ í skýrslu einni sem Mr. iWinthrop Rookefemier hinn mýji ríkisstjóri í Arkansas í •U.S.A. hefur gefið út um fang- lelsi ei-tt þar í fylki, segir frá rafmangspyndnigum, svipu- ihöggum, sulti og fl. sem þar ihafi verið að finna til skamms tíma. f skýrslunni, en ríkislög ireglan safnaði gögnum í hana, isegir einn fanginn m.a. þetta: t,,Menn gátu fengið allt frá iWhisky til eiturlyfja svo fram- tarlega sem penin-gar voru fyrir ihendi". Nokkrir aðrir fangar isögðu frá því, að þeir hefðu tverið afklæddir, síðan tengdir við síma, sem knúinn var raf- ihlöðum og þannig hefðu þeir ifengið þungan rafstraum þeg- •ar síminn hringdi. Þessi pynd- áng var einnig notuð til þess lað fá upp úr föngum upplýs- lingar og voru þeir þá á meðan ibundnir upp á borð og reyrð- lir niður. Oft var stun-gið prjón 'um og nálum undir fin-gurgóma þeirra og aðrir voru flengdir leða barðir illilega. Fangamir igátu keypt sér einhverja stöðu 'í fangelsinu fyrir pengina í iminnsta lagi ca. 40.000. kr. ísl. <Haft var eftir einum þeirra, 'að kjöt hefðu þeir fengið einu sinni í mánuði, egg einu sinni •á ári, þ.e.a.s. á jóladag . i Nú herma fréttir, að síðasti ógifti bítillinn, Paul McCart- ney, 24ra ára, hafi í hyggju að kvænast. Það staðhæfir a.m.k. Jane Asher, 20 ára ensk leik- kona, sem segist vera sú út- valda, en hún hefur verið náin vinkona Paul í sl. þrjú ár. Hún fullyrðir að ástin sé gagnkvæm, og hafi ætíð verið það. Jane Asher er nú í mánaðarferða- lagi í Bandaríkjunum með leikflokk frá Old Vic í Bristol, og leikur hún Júlíu í „Rómeó Og Júlíu." Enn hefur ekkert heyrzt frá Paul varðandi hugs anlega giftingu. Bítlarnir eiga allir mikilfeng leg einbýlishús, og eru þau öll umkringd háum múrum og öðr um torfærum til að halda að- dáendaskaranum í hæfilegri fjarlægð. SUPfNUDAGUR 22. janúar 1967 TÍMINN Ilér sést forsætisráðherrafrú, Fnakka, frú George Pomidou WWW ■HHHWHMM rétta Chaplin blóm við það tækjfæri. Milli þeirra standa, kona Chaplins Oona til vinstri, og Geráldine dóttir hans til hægri. ir Birgitte Bardot og eigin- maður hennar Gunther Sachs ásamt hundi sínum ganga hér — Hvernig átti ég að átta mig á því að skip mundi eiga leið um veginn, sagði mótor- hjólaeigandinn fyrir réttinum. Enski dómarinn í bænum Gos- port var fullur samúðar, en neyddist þó til að sekta hann um 10 pund fyrir að hafa ekið á loftbúðaskip, sem var á leið til sjávar! N.k. sunnudag heldur Duke EHington hljómleika í Kaup- mannahöfn, og söngkona verð- ur engin önnur en Ella Fitzger ald, sem hélt hljómleika í Há- skólabíói í fyrravetur. um götu í Svissneska skíða- þorpinu Gstaad en forvitnir vegfarendur mæna á eftir þeim. ★ Nýjasta Bítla frúin, það •er að segja Jane Asher, sem ibráðum mun ganga að eiga •eina piparsveininn í the Beatl- <es, Paul McCartney, er leik- 'kona og er einmitt um þessar imundir að leika í kvikmynd, isem er nákvæm kvikmyndun iShakespears leikritsins ,The 'Winters Tale“. Það er að kom- 'ast mjög í tízku í Englandi, 'að kvikmynda leikhúsverk talveg óbreytt þ.e.a.s. á sviði. 'Það liggur í augum uppi, að 'þannig verður myndin miklu ó- 'dýrari í framleiðslu og mynda 'takan tekur einnig miklu 'skemmri tima heldur en ef um 'venjulega kvikmynd væri að Tæða. Þetta fer þannig fram, lað leikendurnír eru látnir leika 'hlutverk sín eðlilega en þrem- ‘ur kvikmyndavélum er síðan 'beint að þeim, frá mismunandi ‘sjónarhornum. Upptökutíminn 'eru örfáir dagar. Að vísu nær þannig kvikmynd ekki jafn 'miklum fjölbreytileik og mynd 'ríkj og venjulegar myndir, en á þennan hátt er þanngi hægt 'að geyma á spólu fræg leik- húsverk, sem ella hefðu aðeins 'lifað í minningunni. Roger Moore er nú hættur ■að leika dýrlinginn fyrir sjón- •varp .Hann hafði leikið hlut- 'verk sitt í hverri viku í þrjú ‘ár en langaði til þess að prófa 'eitthvað nýtt. Hann hafði um 'það bil 120.000 ísl. krónur á 'hverri viku i þrjú ár fyrir þátt- 'inn. Joan Kennedy, eiginkona Teddy Kennedys öldungardeild arþingmanns á von á þriðja ‘barni sínu í júní n.k. Þetta barn verður 26 barnabarn •gömlu hjónanna Joe og Rose. ir Mynd Cliarlie Chaplins, Greifynja frá Hong Kong, var frumsýnd í París fyrir skömmu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.