Tíminn - 31.01.1967, Page 1
!
sundur hausinn á Tító! — Niður
Framhald á hls 14
Til ArBington
og West Point
BÞG-Reykjavík, mánudag.
Myndina hér að ofan fékk
Timinn símsenda í dag frá
Kennedyhöfða á Floridaskaga
og er hún tekin í þann mund,
er kista Edward H. White,
geimfara er sett um borð í
flugvél, sem flutti hana áleið-
is til West Point í New York-
ríki, þar sem White verður
jarðsettur. Félagar hans tveir,
Grissom og Chaffee, sem einn-
ig fórust í hinu hörmulega
slysi í tilraunastöðinni á
K'ennedyhöfða á föstudags-
kvöld, verða jarðsettir í heið-
ursgrafreitnum í Arlington,
skammt frá Washington. Whité
Framhald a bls. i4-
ENGAR SAMN-
INGA VIÐRÆÐUR
EJ—Reykjavík, mánudag.
SamningaviðræSur launþegafé
laganna og atvinnurekenda hafa yf
irleitt legið niðri frá þvj fyrir jól
enda virðasf atvinnurekendur ekki
í neinu samningsskapi. Viðræðu-
fund*r hafa ekki átt sér sfað, og
að því er blaðið hefur komizt næst
hafa engar ákvarðanir verið teknar
um formlega viðræðufundi enn
sem komia er.
Verkamannasambandið átti að-
eins einn fund með atvinnurekend
um í haust, og hefur ekkert verið
ákveðið um áframhaldandi viðræð
ur enn sem komið er. Svo sem
kunnugt er, sömdu verkalýðsfélög
in s.l. sumar um frestun frekari
samningaviðræðna fram á haustið.
Var þá haldinn einn formlegur
samningafundur, en síðan hafa
viðræður legið niðri, að því er
bezt er vitað.
Byggingariðnaðarmenn hafa
haft lausa samninga frá 1. október
og að sögn formanns Trésmíðafé-
KINVERJAR OG RUSSAR EIGAST VIÐ AF
OkT VAXANDi HEIFT
NTB-Moskvu og Peking, mánud.
Sovézkir ráðamenn velta nú fyr
ir sér til hvaða gagnráðstafana
skuli gripið í stjórn Kína, sem
hefur virt að vettugi kröfur Sovét
stjórnarinnar um að hætt vcrði
mótmælaaðgerðum fyrir utan
sendiráðið og verða þær stöðugt
heiftúðugri með degi hverjum. f
dag voru m.a. hengdar dúkkur,
sem áttu að sýna æðstu ráða-
menn Sovétríkjanna. Nú eru liðn
ir fjmm dagar frá því átökin milli
kínverskra stúdenta og sovézkra:
lögreglumanna urðu á Rauða torg
inu í Moskvu.
Á sunnudagskvöldið sendi So-
vétstjórnin harðorða mótmælaorð
sendingu til kínversku stjórnarinn
ar, þar :,em m.a. er talað um, að|
gerðar verði „nauðsynlegar ráð-
stafanir" vegna atburðanna við
sovézka sendiráðið í Peking, en
ekki er nánar skýrt hvað í þeim
orðum felist. Fréttaritarar telja,
að Sovétstjórnin muni þó ekki
ganga svo langt að slíta stjórn-
málasambandi við Kína, vegna
þessara síoustu a'.' .irða.
S.egja fréttamenri, að sambúð
Sovétríkjanna og Kína hafi aldrei
verið eins slæm og nú og leggja
sovézkir ráðamenn áherzlu á, að
hér sé um að ræða samræmdar
ögrunaraðgerðir gegn Sovétríkj-
unum og ráðamönnum þar. Geti
svo farið, að Sovétstjórnin verði
að fyrirskipa hörkulegar gagnað-
gerðir.
Segja má, að þeir 300 Sovét-
borgarar, sem eru í Peking, að
meðtöldum sendifulltrúum og fjöl
skyldum þeirra, lifi við eins kon-
ar umsátursástand. Hefur jafnvel
komið fyrir, að fólk þetta hafi
verið hindrað i að gera matarinn-
kaup sín. Sendifulltrúar Sovétríkj
anna segja, að árásaraðgerðir
Kínverja gegn sendiráðinu og hat-
ursfull afstaða þeirra til leiðtoga
Sovétríkjanna hafi skapað alv.ar-
legasta ástand í diplómatískum
samskiptum tveggja ríkja, seni vit
að sé um á friðartímum.
Sovézkir leiðtogar segjast ótt-
ast, að Kínverjar kunni að grípa
til hreinna ofbeldisaðgerða gegn
sovézkum borgurum í Peking og
einnig sé hætta á, að til vopna-
viðskipta komi við landamæri ríkj
anna. Haft er eftir heimildum í
Moskvu, að Kínverjar stefni nú
markvisst að því, að stjórnmála-
samband slitni milli ríkjanna.
í dag komu 40 kínverskir stú-
dentar frá Lundúnum til Moskvu
á leið sinni til Kína að taka þátt
í menningarbyltingunni. Ekki
kom til neinna óeirða í sambandi
við komu þeirra, enda öflugur lög
regluvörður á flugvellinum.
Á sunnudag hófust mótmælaað-
gerðir fyrir utan júgóslavneska
sendiráðið í Peking, en ekki eru
þær eins umfangsmiklar og fyrir
utan sovézka sendiráðið. Er harka
lega ráðizt á Tító í áletrunum á
spjöld og borða og má þar lesa með júgóslavnesku endurskoðun-
setningar eins og þessar: Lemjið arklíkuna! Þá hafa verið brennd-
lags Reykjavíkur, Jóns Snorra
Þorleifssonar, hafa engar viðræð
ur farið fram á þessu ári, og eng-
in ákvörðun verið tekin um að
hefja viðræðufundi.
Samningar Málm- og skipasmiða
runnu einnig út 1. október. Sagði
Guðjón Jónsson, formaður Félags
járniðnaðarmanna, að nokkrir
fundir hefðu verið haldnir í haust.
Síðasti fundurinn var haldinn 9.
desember og þar lögðu fulltrúar
málm- og skipasmiða fram uppkast
að samningi um setningu ákvæðis
vinnutaxta. Hefur þessi tillaga
málm- og skipasmiða verið í at-
hugun hjá atvinnurekendum, og
engar viðræður farið fram um
þetta mál síðan tillagan var af
hent.
Guðjón sagði, að engir samning
ar væru nú til um ákvæðisvinnu
í járniðnaði, og væri l^ér um að
ræða tilraun til að koma samn-
ingi um ákvæðisvinnutaxta í fram
tíðinni. Lægi mikið undirbúnings
starf að baki þeim tillögum, sem
fram hefðu verið lagðar. |
Guðjón sagði, að frekar lítil á-
kvæðisvinna hefði verið í járniðn
aðinum, en járniðnaðarmenn
vildu hafa um þetta samning, svo
að hægt væri að vinna að því að
auka ákvæðisvinnuna.
Þetta væri þó að sjálfsögðu ekki
hugsað sem lausn á . hinum al
menna kjarasamningi, heldur til
þess gert að reyna að koma á samn
ingi um þetta sérstaka atriði.
MnversKu sTuaenrarmr, sem lenru i aroKum við sovezka logreglumenn á Rauða torginu í Moskvu á miS-
vikudag, eru nú komnir til Peking til aS taka þátt í menningarbyltingunni. Þannig litu nokkrir þeirra út, er
þeir komu á járnbrautarstöðina í Moskvu. Voru þeir meS fyrirferSarmikla plástra á andliti og margir bólgnir
og bláir. SögSu þeir meiðslin vera eftir kylfur lögreglumanna. Stúdentarnir voru allir klæddir að hætti RauSra
varðliða.
STUDENTAR I MADRID HEIMTA FRELSI
NTB-Madrid, mánudag.
í dag kom til mikilla átaka milli
stúdenta og lögreglu í hjarta
Madrid á Spáni. Stúdentarnir köst
uðu steinum að lögreglumönnum,
sem beittu kylfum og vatnsbyss
um. Um 700 stúdentar tóku þátt
í mótmælaaðgerðum og hrópuðu
taktfast: Frelsi, frelsi!
Mótmælaaðgerðirnar beindust
gegn handtöku stúdenta og verka
manna, sem í fyrri viku kröfðust
frelsis fyrir verkalýðsbreyfinguna
og mótmæltu vaxandi dýrtíð inn-
anlands.
Gangan í dag var nýhafin, er
fjöldi lögreglumanna kom á stór
um flutningavögnum og lögreglu
bifretðum á vettvang og réðst lög
regluliðið þegar af hörku gegn
stúdentunum. Hvað eftir annað
urðu lögreglumennirnir að hörfa
undan steinkasti og leita skjóls við
Framhald á bls. 14-
)