Tíminn - 31.01.1967, Page 3
I
ÞRIÐJUDAGUR 31. janúar 1967
TÍMINN
Nýskipun prestakalla hefur ver-
ur verið á dagskrá m.a. í blöðum
og útvarpi. Virðist þar margt orka
tvímælis, srvo ekki sé meira sagt..
í fyrstu héldu einhverjir. að hér
væri einhver sparnaðarstefna á
ferð. Það var fljótlega bórið til
'baka, enda hafa víst fáir búizt við
að sá andi svifi yfir vötnun æðstu
stjórnar kirkjumála á íslandi nú
til dags. Lítið hefur heyrzt frá safn
aðafólki í dreifðum byggðum um
þetta mál, þó hafa sumir söfnuð.:
mótmælt harðlega þessu brölti Ó-
líklegt er, að þeir verði ginnkeypt
ir fyrir því að leggja niður gömul
og virðuleg prestaköll, eins og hjá:
leigur undir höfuðból. þar sem
klerkurinn á að tróna í hæfilegri
fjarlægð frá söfnuðuuum. Þera
virðist vera stefna kirkjufeðranna
nú. Jafnframt því, að víða ber á
því í æ ríkara mæli, að messan er
gerð að iburðarmikilli skrautsýn-
ingu. Eg held, að einfalt form eigi
betur við fslendinga.
Furðuleg er tillagan um hina
tvo nýju biskupa, á Hólum og Skál-
holti. Þó má Hólabiskup búa utan
Hóla, ef æðri ráð fallast á það;
'kysi e.t.v. freimur að sitja á Sauð-
árkróki eða Akureyri? En Skal-
holtsbiskup skal vera i Skálholti.
Gæti þó ekki verið. að hami kynni
betur við sig í þéttbýlinu á Sel-
fossi — eða þá Reykjavík? Því
ekki það?
Til þess að fullkomna þennan
glans skal biskupi heimilt að ráða
tvo prestvígða menn, annan að
Skálholti, hinn að Hólum. .,þó ekki
fyrr en starfsaðstaða og sérstiik
verkefni eru þar fyrir hendi“ Þó
það. Það ætti þá a.m.k. að vera
sæmilega séð um sálarheill Bisk-
upstungnamanna. með biskup
Skálholti, S'kálhonsprest og söknar
prest í Skálholti. Hvert á að vera
verkefni hinna nýjj biskupa og
staðarpresta? Um það hefur Jítil
fræðsla fengizt.
Stofnun- kristnisjóðs gæti verið
allhæpin ráðstöfun, þar sem mik
ið fé skal dregið undan fjárveitinga
valdinu í hendur eins konar æðsta
ráðs kirkjumála. Auk þess er at-
hyglisvert, hve ma:gur grein<.r
prestakallafrv. hefjast á orðunum:
„Biskupi er heimilt . ‘ Þar ber
allt að sama brunni. Er þá ekki lík
legt, að fleiri stofnanir vil.ii verða
ríki í ríkinu?
Sunnlendingur.
LANDAKIRKJA
Landakirkja í Vestmannaeyjum
er ein af elztu, stílJireinustu óg
fegurstu kirkjum landsins, og það
sem kallað er velhaldin kirkja í
góðri umhirðu og vel búin og á
kirkjan margt góðra kirkjugripa.
í prestskapartíð séra Halldórs
heitins Kolbeins sóknarprests í
Eyjum fóru fram ýmsar gagngerð
ar umbætur á kirkjunni. Engilbert
Gíslasoin málariameistari og hinir
snjöllu synir hans máluðu kirkj-
una af sinni alkunnu snilli og
smekkvísi með þeim glæsibrag og
mildri samstillimgu lita að vafa-
samt er að hliðstæða finnist hér-
lendis um snilldarhandbragð það
sem þarna sýnir óbrotgjarnan ár-
angur listamannanna sem fram-
kvæmdu þetta verk.
Það viar keypt pípuorgel í kirkj-
una, hið bezta hljóðfæri og Ólafur
Björinsson húsgagnasmíðameistari
smíðaði nýja bekki í kirkjuskipið
af sinni alkunnu snilli og hand-
lagni og loks var byggður nýr
tum við kirkjuma -og stóð Ólafur
Kristjánsson fyrrv. bæjarstj. fyr-
ir þeirri framkvæmd og teiknaði
turininn og lofar það verk meist-
arann og hefur þar svo vel til tek-
izt, að engum sem ekki þekkir
til gæti dottið í hug að turninn
væri síðari tíma framkvæmd. Til
viðbótar þeim almennu notum
sem bygging kirkjuturnsins skap-
ar kirkjunni og þeim fegurðar-
auka og reisn sem turninn skap-
ar kirkjunni, þá er rými uppi í
turninum sem skapar aðstöðu til
aukinnar starfsemi á vegum kirkj-
unnar. Vestmannaeyingar og fyr-
irtæki í Eyjum þar á meðal sam-
tök útgerðarmanna hafa verið
ósparir á að leggja kirkju sinni
lið til fegrunar og aukiijfia fnam-
kvæmda og er það vel farið og
mun svo framhalda um allt sem
samræmist smekk safnaðarfólksins
i Vestmannaeyjum.
Tvennt hefur farið úrhendis af
framkvæmdum við kirkjuna sem
ekki verður þagað yfir og krefst
úrbóta. Hið listræna hellulagða
kirkjugólf sem upphaflega var í
Landakirkju var kaffært með því
að grjótmulningsgólf (terraso) var
steypt yfir hellurnar til mikils
vansa fyrir þá sem að þeirri fram-
kvæmd stóðu, en hugsanlegt er að
úr þeim mistökum se hægt að
bæta og re.ynist það fært, þá er
sú úrbót og björgun fornra minja
eitt af mest aðkallandi umbótum
á kirkjunni Annað er það að fyr-
ir nokkrum árum voru keyptir til
kirkjunnar og lagfærðir aflagðir
bíóstólar með málmuppistöðum.
Það fer ^aman að þessi stóla-
ræksni skiapa misræmi í stílhrein-
leika kirkjunnar og búnaðar henn
ar og nú eftir að hið mikla kirkju-
orgel hefur verið stækkað og unr
byggt svo orgelið bæfir vel snilli
hin-- mikja listamnhns sem nú ann
ast orgelleik í Landakirkju, pa er
italið að málmurinn í stólunum
itrufli orgellhljóminn og þurfi af
þeim ástæðum að fjariægjast, en
þó það hefði ekki orðið, þá er
engu að síður sjálfsagt og nauð-
synlegt að fjarlægja stóla þessa
og smíða nýja kirkjustóla í sam-
ræmi við sæti þau sem eru í kirkju
skipinu. Og er ekki að efa að svo
verður gert. ,
En nú hefur hugmynd skotið
upp kolli sem veldur Vestmanna-
eyingum ugg og kvíða. UmtaJ hef-
ur komizt á loft um, að prestar
og sóknamefnd hyggi^t breyta fyr
irkomulagi Landakirkju með þeim
hætti, að stækka aitari kirkjunnar
og rífa þinn svipmikla og fagra
predikunarstól sem nú er sam-
byggður altarinu og setja í þess
stað einhvers konar predikunar-
pontu í staðinn til hliðar út við
vegg. Þessi hugmynd á ekki hljóm
grunn í hugum ajmennings í Eyj-
um og prestar og sóknarnefnd
hafa hvorki vald né umboð til
slíkra aðgerða, sem jafngilda helgi
spjöllum, og er þess vegna um
þetta getið hér til þess að söfn-
uðinum berist fréttir af þessum
ráðagerðum og skapist þannig að-
staða til þess að hindra það sem
kalla mætti kirkjuspjöll og eyði-
leggingu fornnar menningar og
kirkjulegra verðmæta. En úr því
farið er að tala um Landakirkju
i á annað borð, þá má minnast á
jfleira. Það er margt í starfi kirkj-
unnar sem gæti horft til bóta. í
kirkjuturninum er aðstaða til
kirkjulegra fræðiiðkana og tæri
vel á því að kirkjan eignaðist
kirkjulegt bókasafn. Halldór heit-
inn Kolbeins átti nokkuð stórt
safn kirkjulegra fræðirita og kiann
vel að vera að það safn væri fá-
anlegt til kaups, en þó svo væri
ekki, þá eru í gildi lög um stuðn-
ing við kirkjubókasöfn sem gætu
hjálpað þessari hugmynd til veru-
leika og fjárráð kirkjunnar eru
það rúm að kirkjan gæti árlega
varið einhverri upphæð til bóka-
kaupa og þá myndi málinu fl'ótt
þoka áleiðis en að slíku bókasafni
væri kirkjunni vegsauki og hag-
nýt not og Eyjunum sem heild
menningarauki.
Þá er það kirkjulóðin, henni er
ekki nógu mikill sómi og umhirða
sýnd, nýtur það aðallega við um-
hirðu og umönnunar þeirra hjón-
anna frú Sigríðar Friðriksdóttur og
manns hennar Halldórs Halldórs-
sonar skipstjóra, en þetta er miklu
meira verk heldur en tvær mann-
eskjur, störfum hlaðnar, geta fram
kvæmt í tómstundum. Vegna þess
hve jarðvegur kirkjulóðarinnar er
grunnur og grýttur, þá þarf su.ám
sam:.n, ,frá ári ti] árs að bæta
mold ofan á lóðina til þess að
gera grasvörðinn þykkri þar til
eðlilegri þykkt er náð og það skap
ast auknir mösuleikar ti' skraut-
blómaræktar og gróðursetningar
trjágróðurs, en þetta er ekki sízt
verkefni Kvenfélags Landakirkju
sem hefur viðunandi fjárráð til
þessara framkvæmda. Þá hefur
komið fnam tillaga um það, að mál
aðar verði myndir af núverandi
og fyrrverandi prestum við Landa
kirkju, eftir því sem við verður
komið og myndir þessar hengdar
upp í skrifstofu kirkjunnar í
kirkjutuminum.
Af þeim séra Oddgeiri Guð-
mundssyni og Halldóri Kolbeins
eru til myndjr sem væntanlega
væru fáanlegar og sépa Sigurjón
Árnason ásamt núvérandi prcst-
um væri hægt að fá málaðar mynd
ir af, og af nokkrum eldri látn-
um prestum eru til prentaðar
myndir sem mála mætti eftir, en
þetta verkefni væri þeim mun
erfiðara iað leysa sem lengra Jiði
og þess vegna aðkallandi að til
framkvæmda komi strax. Landa-
kirkja hefur nú tveimur prestum
á að skipa ásamt með meina laun-
aða starfslið heldur en var í tíð
fyrirrennara þeirra, svo það er
ekki óeðlilegt að söfnuðurinn ætl
ist til aukins kirkjustarfs og auk-
innar og miargbreytilegri kirkju-
legrar þjónustu.
H.B.
SERVIETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Lóð á Seltjarnarnesi
Til sölu lóð undir raðhús á Seltjarnarnesi norðan-
verðu (Mýrarhúsaland.) Lóðin er tilbúin til bygg-
ingaframkvæmda. Allar teikningar fylgja. Afar
skemmtileg og hagkvæm teikning, fallegt útsýni.
Gatnagerðargjald inifalið í verðinu, sem er 250
þúsund krónur. Tilboð um greiðsluskilmála send-
ist blaðinu, merkt „Seltjarnarnes1.
DRENGIR Í SVEIT
Óskum eftir að koma tveim drengjum 9 og 13 ára
á gott sveitaheimili í sumar.
Vinsamlegast skrifið á afgreiðslu Tímans og merk-
ið bréfið „Sveitalíf'.
BYGGINGARFÉLAG VERKAMANNA,
REYKJAVÍK.
Til sölu
þriggja herbergja íbúð í IV. byggingarflokki. Þeir,
félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi
umsóknir sínar i skrifstofu félagsins, Stórholti
16, fyrir kl. 12 á hádegi 8. febrúar n.k.
Stjórnin.
3
Á VÍÐAVApNOU
/Lífsbarátta" ríkis-
stjórnarinnar
Leiðari Morgunblaðsins s. 1.
sunnudag heitir Stjórnmál og
lífsbarátta. Er þar minnt á, að
kosningar séu á vori komanda
og síðan gefið fyllilcga í skyn,
að fólk geti aðeins bjargað nú-
verandi lífskjörum sínum með
því að kjósa stjórnarflokkana.
Sést á þessu, að þótt stjórnin
reyni að setja dæmið svona
upp, þá gerir hún sér ljóst, að
það er lífsbarátta hennar sjálfr
ar, sem nú er hafin og á vafa-
lífið eftir að harðna.
Þjóðin öll veit það, að lifs-
kjörin undanfarin ár hafa ein
vörðungu byggzt á alveg
óvenjulegum góðærum, mikl-
um aflafeng og háu afurða-
verði erlendis. Þetta er svo
augljóst, að skýrar tölur segja
að með meðalfeng þjóðarinnar
eða minnu, hefðu atvinnuveg-
ir hreinlega stöðvazt og ríkis-
sjóður greiðsluþrota, miðað við
sömu siglingu og verið hefur.
Samt koma stjórnarmálgögnin
nú fram og segja þjóðinni, að
lífskjör hennar næstu ár séu
undir því komin, að stjórnar-
flokkarnir haldi velli. Stjórn-
in eignar sér nefnilega eins
og fyrri daginn góðærið, afla-
fenginn og háa afurðaverðið
og vill að fólk trúi því, að
hún geti tryggt þetta áfram.
f þessum áróðri, svo óhrjáleg-
ur sem hann er, er lífsbarátta
ríkisstjórnarinnar nú fólgin.
riGóðærið" í kosning-
unum 1963
Morgunblaðið telur, að
stjórnarflokkarnir hafi notið
„góðæris“ í kosningunum 1962,
er þeir héldu velli með 55,6%
atkvæða samanlagt og t-Zui-
það mikinn sigur, að þeir
bættu við sig hálfu próser.ti.
En núna í upphafi þessarar
,,lífsbaráttu“ er stjórninni hollv
að muna, að barómetið hefu:
fallið ærið mikið siðan, og úr
slit bæjarstjórnarkosninganna
voru Sjálfstæðisflokknum djúr
lægð, þegar hann tapaði sem
svaraði tíunda hverjum fylgis
manni sínum í kaupstöðum
landsins. Og þess sjást engin
merki, að barómet íhaldsins sé
farið að stíga aftur' gott ef það
heldur ekki áfram að falla og
lægðin að dýpka. Stjórnin vcit,
að ,,Ufsbaráttan“ verður Tiörð
á komandi vori.
„Lítil reisn"
Alþýðublaðið ræðir húsbygg-
ingamál ríkisins eða stjórnar-
ráðsins í forystugrein og lætur
m.a. svo um mælt:
„Sannleikurinn er sá, að
byggingamál íslenzka ríkisins
eru ráðamönnum þess til há-
borin.nar skammar. Það virðist
óhugsandi að koma upp við-
unandi þinghúsi, stjórnarráði,
ráðhúsi í höfuðborginni eða
öðru þvi, sem ætti að hýsa
hinn sameiginlega félagsskap
íslendinga með nokkurri reisn.
En á sama tíma getur ríkið
reist tollstöðvar, lögreglustöðv
ar og sitthvað annað, ríkis-
stofnanir reisa þúsund manna
bíó og bæjarstofnanir voldug-
ar sýningarhallir, að ekki sé
minnzt á öll stórhýsi einka-
braskaranna. Þegar fjárfesting
þykir hættulega mikil er
kreppt að ríkinu — en bæir
og einkaframtak látið óskert.
íslendingar bera nú á dög-
um Iitla virðingu fyrir heim-
ilisföður, sem ekki kemur upp
húsnæði fyrir fjölskyldu sína.
Hvenær verður byggt yfir vesa
Iings lýðveldið okkar?“