Alþýðublaðið - 17.04.1984, Page 1

Alþýðublaðið - 17.04.1984, Page 1
Þriðjudagur 17. apríl 1984 76. tbl. 65. árg. 22.700 eintök Þetta blað er prentað í 22.700 eintökum, sem er dreift að stórum hluta á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Dreifing blaðsins er nákvæm og örugg, og að er því góður auglýsingamiðill. Þetta kom skýrt fram, þegar síðasta blað af þessu tagi var gef- ið út. Næsta blað kemur út eftir þrjár vikur. Þeir, sem kjósa að auglýsa í því, eru beðnir að hringja í síma Alþýðublaðsins 81866. Jóhanna Siguröardóttir Þjóðhagsstofnun hefur staðfest stórfelldar skattahœkkanir Utsvar hækkar um 40% frá árinu Skattbyrði vísitölufjölskyld- unnar eykst um 10 þús. krónur Þjóðhagsstofnun hefur nú staðfest, að á þessu ári eykst skattbyrði á lands- menn gífurlega. Sam- kvæmt útreikningi hennar hækkar álagning útsvars um rúmlega 40% frá 1983, eða úr 2 milljörðum 133 milljónum króna í um 3 milljarða, eða um 867 milljónir króna. Þetta gengur þvert á stóryrtar yfirlýsingar ríkisstjórnar- innar, einkum Sjálfstæðis- manna, um að skatta- hækkanir komi ekki til greina. Þessar upplýsingar komu fram í ræðu, sem Jóhanna Sigurðardóttir flutti á Alþingi fyrir helgi. Þar kom fram, að skatt- byrði vísitölufjölskyid- unnar vegna álagðs útsvars á milli áranna 1983 og 1984 eykst um 10 þúsund krónur, þar af um 5000 krónur umfram launa- hækkanir. í greinargerð Þjóðhags- stofnunar kemur fram, að álagðir skattar sveitarfé- laga, þ.e. útsvar og fast- eignaskattar í hlutfalli við tekjur greiðsluárs hafa aldrei verið hærri a.m.k. síðustu 10 ár. Hér fer á eftir hluti af ræðu þeirri, er Jóhanna Sigurðardóttir flutti um þetta alvarlega mál: Heildarskattbyrði 13,7% í áætlun frá l>jóðhagsstofnun um skattbyrði einstaklinga á árun- um 1975—1984 kemur í ljós að þeg- ar álagðir skattar scm hlutfall al' tekjum greiðsluárs voru hæstir voru þeir 7.6% en það var á árinu 1975. — í ár verða álagðir skattar sveitar- félaga 8% í hlutfalli við tekjur greiðsluárs en á árinu 1983 voru þeir 6.8%. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- hagsstofnunar verður heildarskatt- byrði einstaklinga um 13.7% miðað við tekjur þessa árs, þar af vegna skalta sveitarfélaga, útsvars og fast- eignaskatta um 8%. Til samanburðar má sjá í þessum gögnum Þjóðhagsstofnunar að á árinu 1983 nam heildarskattbyrði 12.5% en skattar sveitarfélaga námu um 6.8% af heildartekjum. Skattar rikisins eru hinsvegar taldir fela i sér svipaða skattbyrði á þessu ári og í fyrra samkvæmt þessum út- reikningum Þjóðhagsstofnunar eða um 5.7% af heildartekjum ein- staklinga bæði árin 1983 og 1984. Ég tel að nauðsynlegt sé fyrir háttvirta alþingismenn að gera sér ljósar þessar tölur um gifurlega aukningu á skattbyrði á fólkið í landinu, nú þegar við fjöllum um frumvarp um tekjustofna sveitar- félaga sem hér er verið að afgreiða, en þetta frumvarp fjallar um per- sónuafslátt og frádrátt á útsvari vegna barna. 10% umfram laun Ég hef látið Þjóðhagsstofnun reikna út hvað þessar afsláttartölur til útsvars þ.e. persónuafsláttur og frádráttur frá útsvari vegna barna þyrftu að hækka til að ríkisstjórnin myndi standa við það fyrirheit sem hún hefur gefið um að skattbyrði heimilanna þyngdist ekki á þessu ári frá því sem var á árinu 1983. Ef einungis er m.v. að skattbyrðin verði 30% milli ára sem þýðir að samt sem áður yrði um aukningu á skattbyrði að ræða eða um 10% umfram almennar launahækkanir milli ára í stað 20%, þá þyrftu þess- ar afsláttartölur sem um er fjallaö i þessu frumvarpi sem hér er lil um- ræðu að tvöfaldast og í stað 1800 króna persónuafslátt til útsvars kæmi 3.600 og barnafrádrátturinn yrði 720 krónur með hverju barni í 1983 stað 360 króna sem hér er gert ráð fyrir. Það er því Ijóst að jafnvel þó al'- sláttartölur yrðu tvölaldaðar til að hæstv. ríkisstjórnin myndi standa að einhverju leyti við það yfirlýsta markmið að skattbyrði heimilanna ykist ekki milli ára, — þá yrði engu að síður um verulega aukningu að ræða. Breytingatillögur? Þar sem búast má við að sveitar- félögin hafi þegar gcrt sínar tekju- og gjaldaáætlanir, verður að telja að ekki geti náðst pólitísk samstaða eða meirihluti hér á Alþingi fyrir því að gera þær breytingar á þessu frumvarpi sem nauðsynlegar eru til að skattbyrði heimilanna aukist ekki milli ára. — Telja verður því að á þessari stundu sé tilgangslaust þó freistandi sé að flytja nauðsynlegar breytingartillögur við þetta frum- varp til að létta þessa auknu greiðslubyrði sem nú er fyrirhuguð á heimilin i landinu. Vrði 1. gr. frumvarpsins breytt og afsláttartölurnar tvöfaldaðar, sem eins og ég áður sagði þýddi samt sem áður aukna greiðslubyrði,þýddi það um 300 milljón króna tekjutap sveitarfélaga m.v. það sem þau hafa Framhald á 9. síðu Árni Gunnarsson Erindi um velferðarþjóðfélagið og stöðu þess Andstöðu við atvinnurekstur verður að breyta 1 öfluga atvinnuuppbyggingarstefnu Á ráðstefnu sem haldin var fyrir skömmu í Gerðu- bergi, var fjallað um velferðarþjóðfélagið og stöðu þess. Þar flutti Árni Gunnarsson erindi, sem hann nefndi: „Er velferðarþjóðfélagið á undanhaldi?“ — Erindið fer hér á eftir. Mitt verkefni á þessari ráð- stefnu er að reyna að svara þeirri spurningu hvort velferðarþjóðfé- lagið sé á undanhaldi. Þá er geng- ið út frá því sem gefnu, að við bú- um í raunverulegu velferðarþjóð- félagi. Og til þess að svara þessari spurningu verð ég að hverfa eilítið aftur í tímann. Jafnaðarmenn hafa ávallt litið svo á, að markaðskerfið geti aldrei tryggt réttláta tekju- og eignaskiptingu og að kjarasamn- ingar launþegasamtakanna tryggi ekki réttmæta hlutdeild launþega í þjóðartekjum. Mikill fjöldi þjóðfélagsþegna verður ávallt af- skiptur í markaðskerfi, m.a. vegna aldurs, sjúkdóma, slysa og af ýmsum öðrum ástæðum. Þess- ir einstaklingar geta ekki lifað því mannsæmandi menningarlífi, sem þeir eiga rétt á, nema hið op- inbera gæti hagsmuna þeirra og tryggi þeim nauðsynlegar tekjur. Þetta hefur verið einn af rauðu þráðunum í starfi og stefnu jafn- aðarmannaflokka. Til að ná þessu marki hefur mikið verið streðað og stritað og barist harðri baráttu gegn þeim afturhaldsöfl- um, sem enn reyna að skerða vel- ferðina. Með sjúkratryggingum, lífeyr- istryggingum, 'fjölskýrduBotúrhT slysatryggingum,-- öroekttbótum, atvinnuleysisbótum og lágmarks- tekjutryggingu, hefur náðst stór- kostlegur árangur í átt til tekju- jöfnunar. Fáir geta hugsað sér þjóðfélagið án þessa kerfis, og nær allir viðurkenna réttmæti þess. Þessu til viðbótar hefur verið barist fyrir húsnæðislánakerfi, svo að hinir tekjulægri og raunar allur almenningur, eigi þess kost að afla sér húsnæðis, sem ekki væri unnt, ef markaðsöflin ein réðu framboði og eftirspurn. Einn mikilvægasti þátturinn er svo auðvitað sá, að svo afla megi fjár til þessa tekjujöfnunarkerfis, þarf skattalöggjöfin að vera þannig, að allir þjóðfélagsþegnar og öll fyrirtæki greiði til sameig- inlegra þarfa í skynsamlegu og réttu hlutfalli við greiðslugetu. Félagsmálastefna Þannig er i grófum dráttum sú stefna á sviði almannatrygginga, heilsugæslu, húsnæðismála og skattamála, sem nefnd hefur ver- ið félagsmálastefna og leggur grundvöll að velferðarþjóðfélag- inu. Jafnaðarmenn, og sósíalistar almennt, hafa ávallt verið braut- ryðjendur í baráttunni fyrir þess- ari stefnu, sem í grundvallaratrið- um hefur hlotið almenna viður- kenningu eftir áratuga baráttu. Það fer hins vegar ekki hjá því, að enn sé deilt um það hversu langt skuli ganga á þessu sviði, hve rækilega afkoma einstakling- anna skuli tryggð, og hvort sú hætta sé fyrir hendi, að þetta kerfi, á einhverju stigi, hafi áhrif í þá átt að draga um of úr fram- taki einstaklingsins til sjálfsbjarg- ar. Svo þegar erfiðleikar steðja að í efnahagsmálum, grípa aftur- haldsöflin til þeirra kenninga, að velferðin sé þjóðfélaginu of dýr. Þess vegna þurfi að skerða þá tryggingu, sem einstaklingurinn hefur fyrir því, að fáað lifa mann- sæmandi Iífi, hvort sem hann get- ur aflað til þess tekna eða ekki. Fjármunum, sem þannig sparast sé betur varið á öðrum vettvangi. Þessir andfélagslegu boðberar vitna gjarnan í gamalt máltæki, sem segir, að hver sé sinnar gæfu smiður. Þeir gleyma því, að við er- um misjafnlega góðir smiðir, og að sumir eiga alls engin verkfæri til að smiða með. Þegar helkalt frumskógarlög- málið tekur við og ógnað er með valdi hins sterka, getur velferðar- ríkið verið í hættu, svo og mann- leg reisn og frelsið til að fá að lifa lífinu. Þeir, sem vilja standa vörð um félagsmálastefnuna, verða þá að grípa til sinna ráða. Það hefur hins vegar reynst örðugt á stund- um, því erfitt hefur reynst að benda á leiðir til að fjármagna velferðarkerfið með eðlilegum hætti. Þá hafa menn ekki verið sammála um hversu langt skal ganga, hvaða þættir rúmast innan ramma þess velferðarþjóðfélags, sem við viljum standa vörð um. Þessar hugleiðingar snúast fyrst og fremst um þann þáttinn, sem Framhald á 7. síðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.