Alþýðublaðið - 17.04.1984, Síða 4
4
Þriðjudagur 17. apríl 1984
Feðgar og nafnar rœða saman um fyrirtœkið. Pétur O. Nikulásson framkvœmdastjóri og sonur hans Pétur, Pétur O. Nikulásson, framkvœmdastjóri. Ljósm.: G.T.K.
aðstoðarframk vœmdastjóri PON.
Heildverslun Péturs O. Nikulássonar:
Lyftarar upp í 50 tonn
Rœtt við þá feðga Pétur O. Nikulásson og Pétur son hans um inn
flutning á vörum til þjónustu við sjávarútveginn og fiskvinnslu
„Það er hreint sjómannsblóð í öllum mínum æðum“,
segir Pétur O. Nikulásson hjá samnefndri heildverslun,
þegar hann sest í leðurhægindastólinn gengt okkur og
býður upp á kaffi. „Ég er eiginlega mest hissa á því hvað-
an hann sonur minn hefur hestamennskuna“, segir
hann, þegar talið barst að ferð sonar hans og aðstoðar-
framkvæmdastjóra við fyrirtækið og undirritaðs norð-
ur yfir heiðar á landsmót hestamanna í hitteðfyrra.
Ekki verður farið hér lengra út í
eðalborið sjómannsblóð í hesta-
mönnum, en foreldrar Péturs eldra
voru engin önnur en heiðurshjónin
Gróa Pétursdóttir, bæjarfulltrúi og
formaður kvennadeildar Slysa-
varnafélags íslands um árabil og
hinn kunni togaraskipstjóri, Niku-
lás K. Jónsson i Reykjavík.
„Það var árið 1962 sem heild-
verslun Péturs O. Nikulássonar var
stofnuð. Strax í upphafi var aðalá-
herslan Iögð á þjónustu við fisk-
veiðar og fiskiðnað. Um sama leyti
voru tæknideildir fiskiðnaðarins að
vinna að mikilli hagræðingu í fisk-
vinnslustöðvunum. Því var það
strax í upphafi að við fórum að leita
að góðum umboðum á því sviði“.
Það er Pétur yngri Pétursson,
sem nú hefur orðið og hann heldur
áfram:
„Vörur tengdar sjávarútvegi eru
enn í dag megininnflutningur heild-
verslunar PON, en langþyngst veg-
ur þó innflutningur á gaffallyftur-
um. í meira en tuttugu ár hefur
heildverslun PON flutt inn gaffal-
lyftara frá V-Þýska fyrirtækinu
STEINBOCK. STElNBOCK-lyft-
ararnir eru nú orðnir yfir 700 hér-
lendis. Flestir eru þeir notaðir í fisk-
iðnaðinum, en einnig í alls kyns fyr-
irtækjum, sem þurfa á vönduðum
og liprum tækjum að halda til
flutninga um eigið athafnasvæði.
Algengasta stærð á STEINBOCK-
lyfturumer frá 1,6 tonn til 2,5 tonna
rafmagnslyftara, en að sjálfsögðu
eru einnig diesel, benzin og gas lyft-
arar allt upp í 7 tonn. Nýlega sam-
einaðist breski lyftaraframleiðand-
inn Lancer Boss, sem einkum var
sérhæft í framleiðslu stærri lyftara
ss. gámalyftara og síðulyftara, og
Steinbock. Eftir sameininguna eru
þessir tveir framleiðendur, eitt
stærsta lyftarafyrirtæki í heimi og
geta boðið lyftara með lyftigetu frá
500 kg. og allt upp í 50 tonn. Þegar
um er að ræða flutninga á erfiðum
plönum úti henta kraftmeiri lyftar-
ar. Þar býður PON hina öflugu
frönsku MANITOU-lyftara, sem
eru dieselknúnir og með grófrifl-
uðu spyrnumynstri á hjólbörðum,
enda nýtur Manitou-lyftarinn sín
best við erfiðustu skilyrði á ósléttu
Iandi eða þar sem snjór getur verið
til trafala. Hið sama á við um Mani-
tou-lyftarana og Steinbock-lyftar-
ana. Bilanatíðni er ákaflega lág og
PON leggur mikla áherslu á góða
varahlutaþjónustu. En stundum
eiga minni tæki við og þar býður
PON upp á handlyftivagna og stafl-
ara frá BT í Svíþjóð. Yfir 3000 BT-
handlyftivagnar eru nú í notkun á
íslandi og eru þeir sérstaklega lipr-
ir, sterkir og áreiðanlegir.
Þá var einnig hugað að hentug-
um körum fyrir pækilsöltun og
hófum við innflutning 1963 á galv-
aniseruðum og máluðum kössum,
sem nú eru notaðir um allt land í
fiskiðnaði.
Enn höldum við áfram að leita að
tækjum sem stuðla að vinnuhag-
ræðingu og má þar nefna stál-
borðabindivélar, plastborðabindi-
vélar og heftara fyrir fiskumbúðir.
Heildverslun Péturs O. Nikulás-
sonar reynir að hafa aðeins gæða-
vörur, sem viðskiptavinir geta treyst
fullkomlega, á boðstólum, og býð-
ur upp á fullkomna varahlutaþjón-
ustu fyrir allar vélar og tæki sem
heildverslunin selur“, sagði Pétur
Pétursson að lokum.
G.T.K.