Alþýðublaðið - 17.04.1984, Side 9
Þriðjudagur 17. apríl 1984
HUSEIGEnDnTRVGOinG
Útsvar hœkkar
Frh. af bls. 1
ráö fyrir gert með óbreyttum álagn-
ingareglum og afsláttarreglum.
Það hefði þá þýðingu að á heim-
ilin í landinu yrðu lagðar um 200
milljónir í aukinni greiðslubyrði í
stað 433 milljónir í aukinni
greiðslubyrði sem nú er stefnt í, en
af þessum 300 milljónum króna
tekjutapi sveitarfélaganna rynni
um 230 milijónir til einstaklinga en
70 milljónir rynni til ríkissjóðs í ó-
nýttum persónuafslætti.
Hungurlaun
Lágmarkslaunin í iandinu hafa'
mikið verið hér til umræðu á hátt-
virtu Alþingi í vetur og kjaramálin
almennt. — Aliir eru um það sanr-
mála, að enginn iifir af þessum
hungurlaunum sem Iágmarkslaun-
in eru í landinu. í nýgerðum kjara-
samningum voru þau hækkuð í
12.660 krónur, — sem ekki er einu
sinni fyrir ntatarreikningi vísitölu-
fjölskyldunnar, hvað þá annarri
framfærslu s.s. húsaleigu síma, raf-
magni o.fl. o.fl. sem nauðsynleg er
til framfærslu brýnustu nauð-
synja hvers heimilis í landinu.
Tökum af skarið
Ég tel að það sé tímabært að við
skoðun skattaáiagningu í landinu i
því ijósi, og að við háttv. alþingis-
menn spyrjum sjálfa okkur að þvi
hvort okkur sé stætt á því að skatt-
leggja nauðþurftar tekjur á land-
inu.
Við þingmenn Alþýðuflokksins
höfum fjallað um þetta mál og telj-
um tímabært og brýnt að tekið sé af
skarið hér á háttvirtu Alþingi á
þann hátt að a.m.k. þessi lágmarks-
laun sem í landinu eru 12.660 krón-
ur séu ekki skattskyldar.
Við teljurn að það sé hægt og
bindum vonir við það að um það
geti náðst pólitísk samstaða hér á
háttvirtu Alþingi — Þetta eru engin
laun — ekki fyrir nratarreikningi
fjölskyldunnar og hvorki ríkissjóð-
ur né sveitarfélögin eiga að geta
hrifsað til sín hluta af þessari hung-
urlús sem lágmarkslaunin eru.
Við Alþýðuflokksmenn erum
með þetta mál í athugun og ef tími
vinnst til munum við leggja fram á
yfirstandandi Alþingi frumvarp um
skattfrelsi til útsvars, sem ef sam-
þykkt yrði tæki gildi um næstu ára-
mót.
Hugmynd okkar er sú að a.rn.k.
þessi hungurlús sem lágmarkslaun-
in eru verði ekki skattskyld.
Erum við með í útreikningi ýmsa
möguleika til að mæta tekjutapi
sveitarfélaga ef þessi leið yrði farin.
Margt kemur til greina
Ýmsir möguleikar kærnu til
greina. — Má þar nelna að útsvars-
stofn yrði hækkaður sem eingöngu
kæmi þá á tekjur sem væru yfir lág-
markslaunum eða þá sá valkostur
að persónuafsláttur til útsvars og
barnafrádráttur yrði það hár að
ekki kæmi til greiðslu útsvars á
tekjur sent væru undir lágmarks-
launutn í landinu. Ég vil þó undir-
strika að með þessu móti er ekki
verið að leggja til að heildar-
greiðslubyrði í útsvari yrði meiri á
þá einstaklinga sem hafa tekjur yfir
þessu tekjumarki frá þvi senr nú er,
— heldur er tilgangurinn fyrst og
fremst sá að þjóðfélagið viðurkenni
að engar forsendur séu fyrir því að
skattleggja lágmarkslaunin i land-
inu. — Hugsa niætti sér einnig að
tekjutapi sveitarfélaga yrði mætt
með aukinni hlutdeild sveitarfélag-
anna í söluskattstekjum.
En þessir nröguleikar allir eru nú
til skoðunar í Alþýðuflokknum og
höfum við enn ekki fengið nauð-
synlega útreikninga, — til að hægt
sé að leggja mat á heppilegustu Ieið-
ina í þessu sambandi. —
Lágmarkslaun ekki skatt-
skyld
En markmiðið liggur Ijóst fyrir,
— við Alþýðuflokksmenn teljum
að haga verði skattheimtu ríkis og
sveitarfélaga með þeim hætti að
lágmarkslaunin í landinu verði ekki
skattskyld, — Ef heppilegra þykir
vegna framkvæmdarinnar að fara
þá leið að auka persónuafsláttinn
og barnafrádráttinn til þess að ná
þessu markmiði, — þá viljum við
að sjálfsögðu skoða þann valkost.
— En ntarkmiðið er skýrt — að
ekki þurfi að greiða skatta af nauð-
þurftartekjum og höfum við þar
a.m.k. í fyrsta áfanga staðnæmst
við lágmarkslaunin i landinu, og
gerum við okkur vonir urn að geta
lagt fram frumvarp um það á ylir-
standandi þingi.
Með því að sameina í einavátryggingu
ýmsar fasteignatryggingar sem seldar
hafa verið einar sér, hefur tekist að
lækka iðgjaldið verulega.
Iðgjaldið miðast við brunabótamat
húseignar eða eignarhluta tryggingar- ’
taka í henni á hverjum tíma.
A.ð öllum líkindum tölvan sjálf.
Fyrir það fyrsta þá kostar hún
minna en þú gætir haldið.
IBM PC einkatölva með 128000
stafa vinnsluminni, 83ja tákna
lyklaborði,360000 stafa diskettu,
prentara sem skrifar 80 stafi á
sekúndu, litaskermi, auk nokk-
urra grunnforrita, kostar minna
en nýr smábíll.
Og hún skapar þér aukinn
tíma. Með því m.a. að losa þig
undan svo mörgum tímafrekum
verkum eins og að endurreikna,
endurmeta, endurvélrita, endur-
útgefa, endurvinna og endur-
taka. Hún getur sparað þér
margar klukkustundir á viku.
H vers virði er hver klukkustund í
þinu starfi? Hafir þú ekki gert
þér grein fyrir þvi, láttu þá IBM
PC einkatölvuna leiða þig í allan
sannleikann.
Og annað, hún ætti að geta
hjálpað þér að gera nokkrar
skarplegar ákvarðanir í hverjum
mánuði - t.d. varðandi lausn á
verkefhum, í fjárfestingum, verð-
lagningu, skráningu á upplýs-
ingum, í útgjöldum og bættri
samkeppnisstöðu.
Allt þess eðlis að leiða til meiri
hagnaðar og meiri sparnaðar.
Að lokum, IBM PC einka-
tölvan er fjárfesting í réttari
ákvarðanatökum, betri stjórnun
og framleiðni og þægilegra
vinnuumhverfi - hún er fljót að
borga sig!
Farðu og hittu einhvern söluaðil-
ann fyrir IBM PC einkatölvuna.
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Gísli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, simi 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33,
Reykjavík, sími 20560
Örtölvutækni sf., Ármúla38,
Reykjavík, sími 687220
LJTTLB TRAMP CHARACTER LICENSED BY BUBBLE8. INC.. B.A.