Alþýðublaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 14
14
Þriðjudagur 17. apríl 1984
Útflutningur til
Bandaríkjanna
I Holtagörðum byggingu Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga við Holtaveg er önnur stærsta kexverk-
smiðja landsins, Kexverksmiðjan Holt. Viðar Þorsteins-
son, skrlfsíofuStjÖri Innflutningsdeildar Sambandsins
sagði okkur, að það hefði verið árið Í97S, sem kexVerk-
smiðjan Holt hefði tekið til starfa í Holtagörðum.
Verksmiðjan framleiðir núna 21
tegund af kexi,“ segir Viðar. „Aðal-
áherslan er á súkkulaðiliúðað kex
og kremkex. Framleiðsla verk-
smiðjunnar nú er um hundrað þús-
und kexkökur á dag og við þessa
framleiðslu starfa reglulega um tíu
manns. Við vinnum stöðugt að
þróun framleiðslunnar og njótum í
því sambandi bæði erlendrar og
innlendrar ráðgjafar. Við prófum
okkur stöðugt áfram t.d. með ný
bragðefni í kerm, auk þess sem unn-
ið er að því að auka mýkt og bragð-
gæði kexins.
Við teljum að með auknum vöru-
gæðum aukist eftirspurnin og
markaðshlutdeild okkar fram-
leiðslu aukist á kostnað innflutn-
ingsins. Umbúðamálin eru einnig
alltaf í skoðun hjá okkur og t.d.
verður nýr og enn fullkomnari
pökkunarútbúnaður tekinn í notk-
un á næstunni.
í ársbyrjun 1982 hófst góður vísir
að útflutningi á kexinu. Við flutt-
um út til Færeyja og Svíþjóðar um
2.600 kassa af kexi á sl, ári og þessi
markaður lofar góðu. Núna erum
við í viðræðum við finnska kex-
framleiðendur, kantolan, en það er
kexverksmiðja finnska Samvinnu-
sambandsins. Þessar viðræður lofa
góðu og ættu svo sannarlega að
Viðar Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri Innflutningsdeildar Sartt-
bands íslenskra Samvinnufélaga.
Ljósm.: C.T.K.
geta opnað möguleika á frekari út-
flutningi á kexinu og það jafnvel til
Bandaríkjanna. Að vísu panta þeir
stórt vestanhafs, en við ættum að
geta ráðið við pantanir sem þýddu
allt að tvöföldun á núverandi fram-
leiðslu og í því sambandi þyrftum
við eitthvað að endurnýja vélakost.
í fyrra jókst framíeiðsluverð-
mæti verksmiðjunnar um 100% og
við seljum til flestra verslana um
allt land. Ánð 1982 kvnntu
LUlli VlU
nýtt kex og hefur það líkað miög
vel. Það heitir Lísukex og Bourbon-
kex. Lísukexið er súkkulaðihúðað
með kókósflögum en Bourbonkex-
ið er kremkex með ýmsum bragð-
tegundum. Við erum með vöru-
kynningar á hverjum föstudegi á
höfuðborgarsvæðinu og út á landi,
árið um kring. Þetta hefur líkað
mjög vel og ávallt mikill straumur
fólks að sýningarbás okkar, til þess
að fá að smakka Holtakexið, en
með því kynnum við alltaf Braga-
kaffið frá Akureyri.
Við finnum greinilega að þessar
kynningar og aðrar auglýsingar
bera árangur, því stöðug aukning er
á sölu þessara vara, og svo tala gæð-
in auðvitað fyrir sig sjálf.
Þessi kexframleiðsla okkar er að
sjálfsögðu alíslensk iðnframleiðsla,
með öllum þeim hagnaði sem
þjóðarbúið nýtur af slíku. Hún er
atvinnuskapandi og sparar dýr-
mætan gjaldeyri, þannig að sá
kaupandi sem velur Holtakex í inn-
kaupakörfuna er vissulega að
styðja íslenskt. Við reynum svo
Baksturinn að byrja og deigið sett í ofninn. Takið eftir stœrðinni á pottin-
um og manninum sem er að skafa deigið ofaní fœriband að ofninum.
auðvitað að standa okkur bæði í
gæðum og verði og með þeirri stöð-
ugu framleiðsluráðgjöf sem við
njótum teljum við að þessi fram-
leiðsla okkar gefi erlendri fram-
leiðslu ekkert eftir.
Veljum því íslenskt og veljum
Holtakex, með því kaupum við
góða vöru og styrkjum þjóðarhagþ
sagði Viðar Þorsteinsson að lokum.
— G.T.K.
Kexkökurnar lagðar til í pakkninguna.
Kexverksmiðjan Holt:
Hann er enginn smásmíði bakarofninn fyrir Holtakex. Hjá honum stendur Ingimundur Jónsson, verkstjóri
kexverksmiðjunnar Holt.