Alþýðublaðið - 17.04.1984, Side 22

Alþýðublaðið - 17.04.1984, Side 22
22 Þriðjudagur 17. apríl 1984 Nói, Hreinn og Síríus 300.000 páskaegg Hérna hjá okkur er mik- ið að gera allt árið um kring,“ sagði Þórir Har- aldsson, verkfræðingur og verksmiðjustjóri hjá Nóa, Hreini og Síríus.“ T.d. hefjum við undirbúning að hinni svokölluðu páskavertíð strax árið áður með pöntunum á hráefni og öðrum undirbúningi. Enda eru ekki ráð nema í tíma sé tekið, því við fram- leiðum víst um 300.000 páskaegg fyrir þessa hátíð. Strax að páskahátíðinni yfirstað- inni, þá hefst áætlun framleiðsl- unnar yfir sumarmánuðina, þegar mikið er um frí og svo seinni part sumars hefst undirbúningur jól- anna. Þau páskaegg, sem við selj- um núna byrjuðum við að fram- Þórir Haraldsson, verksmiðju- stjóri: Stjóraukin framleiðsla og nýr vélakostur. Ljósm.: G.T.K. leiða strax eftir jól. Þannig að í rauninni er þetta stöðug framleiðsla hjá okkur, enda er salan jöfn og mikil alla daga ársins, þótt hún aukist auðvitað um stórhátíðar. Hjá okkur vinna um 125 manns og erum við aðallega staðsettir á tveimur stöðum í borginni. Þ.e. hér á Barónsstíg 2 — 4 og reyndar erum við með aðliggjandi hús líka, þ.e. Skúlagötu 36 og Hverfisgötu 93. Þetta hús er fimm hæðir og er allt notað undir framleiðsluna, skrif- stofur og hráefnalager. Söludeildin er svo staðsett að Suðurlandsbraut 4 og þar er einnig lager fyrir fullunna vöru. Verðmætasköpun er hér mikil og heilladrúg fyrir þjóðarhag, eins og annar iðnaður. Við erum algjörlega í opinni samkeppni við erlenda framleiðslu og get ég með ánægju sagt að við höfum algjörlega staðist þá raun. Við leggjum okkur fram að vanda vöruna sem best, bæði hráefnaval og vinnslu. Þá erum við stöðugt að hanna nýjar pakkning- ar, bæta útlit þeirra og frágang. Á síðustu tveimur árum hefur fyrirtækið endurnýjað allan véla- kost í framleiðslu á súkkulaði og Frábsrtv furdulegt ótrulegt VYD40 áHttumspfaV ^öfastahluti.smv'. ^Tltne«ura^-verðuraðpr6fa. ^|kD40testhiáOlís. \æs\ngar, lanrnr, Fimar hendur pakka páskaeggjunum Ijúffengu ípoka. Ljósm.: G.T.K. kexvörum. T.d. keyptum við nýja formunarvél, sem við höfum hafið notkun á í tveimur áföngum. fyrst í júlí á síðasta ári og seinni áfangann í febrúar á þessu ári. Sem dæmi um þessa breytingu má nefna, að í gömlu vélunum framleiddum við um 500 kg af - Pippi á dag, en núna getum við framleitt um 3 tonn af þessari vin- sælu vöru á dag. Þessi framleiðslu- aukning tryggir einnig það, að vör- ur okkar fáist alltaf í búðunum, en seljist ekki upp af og til eins og áður átti sér stað, vegna ollítillar fram- leiðslugetu. Þessi nýja vél gerir okkur einnig kleift að stórauka fjölbreytni fram- leiðslunnar, sérstaklega í fylltu súkkulaði, sem verður ábyggilega mörgum gleðiefni. Nýjar fram- leiðslugreinar sjá brátt dagsins ljós, enda höfum við nú þann besta véla- kost sem völ er á í heiminum í dag. Þetta eru þýskar vélar af Bindler— gerð, en þess má geta að hið heims- fræga breska fyrirtæki Cadbury notar mikið vélar af þessari gerð. Tölvur koma þarna til skjalanna við stjórnun framleiðslunnar og eykur það öryggið mikið. Við höfum einnig endurnýjað kexverksmiðju okkar, sem veldur því, að nú getum við stóraukið úr- valið í súkkulaðikexi. Aðeins til þess að nefna dæmi þá bjóðum við hið sívinsæla Malta kex okkar í þægilegum bitum, pökkuðum í poka, og svo hina stórvinsælu Bar- ónbita, sem einnig fást í pokum. Þá höfum við bætt aðstöðuna í páskaeggjaframleiðslunni og kem- ur það sér vægast sagt vel, því eins og ég sagði áðan framleiðum við hvorki fleiri nér færri en 300.000 páskaegg núna fyrir hátíðina, sagði Þórir Halldórsson að lokum. G.T.K. BYKO Alhliða Jón H. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri BYKO. Ljósm.: G.T.K. byggingavöru- þjónusta „Fyrir rúmum tuttugu árum eða árið 1962 var Bygg- ingavöruverslun Kópavogs, BYKO stofnuð. Það voru þeir Hjalti heitinn Bjarnason, byggingameistari og Guð- mundur H. Jónsson, sem stofnuðu fyrirtækið, og í byrj- un unnu þeir mest tveir við fyrirtækið. Tíu árum seinna var flutt að Nýbýlavegi 6 með allar byggingavörurnar og 1980 var flutt hingað á Skemmuveginn með timbursöl- una. Og núna vorum við að opna útibú í Hafnarfirði. Þar fást allar vörurnar okkar byggingavörur, timbur og plötur og steypustyrktarstál“. Það er Jón H. Guðmundsson framkvæmdastjóri BYKO sem hef- ur orðið, þar sem við hittum hann á skrifstofunni við Skemmuveginn. „Núna vinna yfir 120 manns hjá okkur og bara hérna á Skemmuveg- inum erum við með 40.000 m2 undir starfseminni. í allt er BYKO með 50.000 — fimmtíu þúsund fermetra undir starfseminni eða fimm hekt- ara svo varla er ofsagt að fyrirtækið hafi dafnað og blómgast. Hérna leggjum við sérstaka á- herslu á það, að allur aðgangur að vörunum sé góður og að hér fáist bókstaflega allt til byggingarstarf- seminnar á samkeppnishæfum verðum. Með hinu nýja útibúi í Hafnar- firði viljum við sérstaklega bæta þjónustuna við þau svæði, bæði Hafnarfjörð og nágrannasveitafé- lögin. í Hafnarfirði og þar í kring eru núna sérstaklega aðlaðandi byggingarsvæði og svo sannarlega er það ekki síðri valkostur en t.d. Grafarvogssvæðið“, sagði Jón H. Guðmundsson að iokum. G.T.K.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.