Alþýðublaðið - 30.03.1985, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. mars 1985
3
Áhugamenn um úrbætur í húsnæðismálum
Húsnæðismálin verði
leyst tafarlaust
Aðra helgina í mars
giumdu í eyrum lands-
manna augiýsingar frá
Ahugamönnum um úr-
bætur í húsnæðismálum í
útvarpinu. Voru auglýst
símanúmer vítt og breytt
um landið og þeir sem
vildu tafarlausar breyting-
ar á óstjórn þeirri, sem ríkt
hefur í húsnæðismálunum
hvattir til að hafa sam-
band.
Vandinn
verði
frystur
þar til
lausn
finnst
hefðu tekið þeim vel og rætt málin
við þá. „Við gerðum þeim grein
fyrir hver raunverulegur vandi
fólksins væri, að það hefur ekki
reist sér hurðarás um öxl, einsog er
vinsælt viðkvæði núna. Vandamál-
ið er að stjórnmálamennirnir hafa
breytt öllum forsendum, sem fólk
gaf sér þegar það fór út í húsnæðis-
kaupin. Vextirnir einsog þeir eru í
dag eru hreint rán á okkur, miðað
við þær forsendur, sem lánin voru
tekin á. Þegar vextir ofan á verð-
tryggingu á skammtímalánum eru
7 °7o er ekki hægt að kalla það annað
en rán og slíkir okurvextir þekkjast
hvergi annarsstaðar i hinum sið-
menntaða heimi“
Þegar Bjarni var spurður hvað
hópurinn færi fram á að stjórn-
málamennirnir gerðu, svaraði
hann:
„Það er einkum tvennt, sem við
förum fram á. Við viljum að lausn-
in virki bæði aftur fyrir sig og fram
á við. Þegar við tölum um aftur-
virka lausn, viljum við að sá mis-
munur, sem safnast hefur upp
vegna misgengis lánskjaravísitölu
og kaupgjaldsvísitölu verði borgað-
ur okkur. Við teljum að ríkið skuldi
okkur þennan mismun. Þá viljum
við að okurvextirnir verði afnumd-
ir. Og þetta verður að ganga hratt
fyrir sig. Einnig viljum við að vand-
inn verði frystur á meðan leitað er
varanlegrar launsnar á honum“
Við spurðum Bjarna hvort við-
brögð stjórnmálamannanna væru
þannig að búast mætti við við-
brögðum frá þeim.
„Viðbrögðin hafa þegar sýnt sig,
þó ekki hafi enn verið brugðist við
með þeim hætti, sem við viljum.
Framh. á bls. 21
Á blaðamannafundi 11. mars
gerði hópurinn svo grein fyrir kröf-
um sínum. Kom þar í ljós að margir
af forsvarsmönnum hópsins voru
sömu aðilar og höfðu myndað Sig-
túnshópinn á sínum tíma. Megin-
kröfurnar voru nú, að þegar í stað
verði lagfært það misgengi, sem átt
hefur sér stað milli launa og láns-
kjara og að sú lagfæring taki til
opinberra lána, bankalána og
annarra fasteignalána. Þá er farið
fram á að þessi leiðrétting verði til
frambúðar og reiknist frá þeim
tíma er misræmis fór að gæta milli
launa og lánskjaravísitölu
Vegna þessa misræmis og
hækkunar vaxta stendur nú heil
kynslóð venjulegs fólks frammi
fyrir gjaldþroti. Vandamálin eru
mismikil: Sumir eru þegar búnir að
missa ofan af sér, aðrir að missa allt
út úr höndum sér, restin stefnir svo
harðbyri að gjaldþroti.
Krafa hópsins er útbætur strax
og telja forsvarsmenn hans mikil-
vægt að stjórnmálaöflin í landinu
sameinist um úrbætur. Á blaða-
mannafundinum var lögð fram svo-
hljóðandi greinargerð:
Mis.gengi lánskjaravísitölu og
launa, háir raunvextir og skortur á
langtíma lánsfé ásamt slæmum
greiðslukjörum á fasteignamarkaði
hefur rofið eðlilegt samhengi í hús-
næðismálum.
— Ungu fólki sem kaupir hús-
næði í fyrsta sinn fækkar stöðugt.
— Húsbyggjendur og kaupendur
eiga í sífellt meiri erfiðleikum með
að standa í skilum af afborgunum,
verðbótum og vöxtum af lánum.
— Fólk sem fyrir nokkrum árum
fór út í húsnæðiskaup og gætti þess
vel að reisa sér ekki hurðarás um öxl
verður nú vegna gerbreyttra
försenda að horfast í augu við af-
borganir sem eru að vaxa því yfir
höfuð.
— Eigendur lítilla ibúða geta
ekki lengur skipt um íbúðir í sam-
ræmi við fjölskyldustærð eins og
tíðkast hefur. Unga fólkið er því
fast í litlu íbúðunum og eldra fólkið
horfir upp á verðfall húseigna sinna
og sér ekki hag í því að minnka við
sig húsnæði.
Ýmis dæmi voru tínd til, sem
komið höfðu fram í samtölum við
fólkið. Þannig var nefnt dæmi af 58
ára gamalli konu, sem fékk lán fyrir
þrem árum til að láta lagfæra skuld-
laust hús sitt, sem metið var á millj-
ón krónur. Lánið er nú komið upp
í 500 þúsund krónur, þrátt fyrir
reglulegar afborganir og með sama
áframhaldi stendur hún eftir
nokkra mánuði frammi fyrir því að
eiga ekki lengur húsið.
Það fyrsta sem Áhugamennirnir
gerðu var að fara fram á fund með
forystumönnum allra stjórnmála-
flokkanna. Ræddu þeir við einn og
einn flokk í einu.
Bjarni Gíslason er einn af for-
svarsmönnum Áhugamannanna og
í viðtali við Alþýðublaðið sagði
hann, að stjórnmálamennirnir
ára reynsla í nýsmíði, viðgerðum
og alhliða viðhaldi mannvirkja.
Ráðgjöf:
Viðhald og viðgerðir.
Nýsmíði og
breytingar.
Hönnun
innanhúss.
Skoðun
fasteigna
vegna
sölu
og/eða
viðhalds.
Allt verkið á einum stað því ef við höfum
ekki fagmanninn þá útvegum við hann.
|
Sérhæfing í eftirfarandi atriðum.
Orkusparandi aðgerðir:
Glerskipti.
Endurkíttun á gleri.
Innfræstir þétti listar á glugga
Klæðning og einangrun
á þök og veggi
Steypu-
viðgerðir:
Vegna
frostskemmda
Vegna
alkalískemmda, við-
gerðir eingöngu unnar
að undangenginni
rannsókn samkvæmt umsögn
viðurkenndra aðila.
Klæðning útveggja.
Þétting steinþaka.
Sílanúðun.
Viðhaldsþjónusta.
Gerum bindandi samninga um eftirlit
og viðhald fasteigna.
Gefum árlegar skýrslur um ástand fasteigna
til stjórna húsfélaga og fyrirtækja.
rciMiijfai ■
Þétting samskeyta húsa.
Þétting húseininga.
Þétting neðanjarðarmannvirkja.
Þétting sturtu- og baðgólfa.
Lekaþéttingar á steinsteypu.
Þéttingar lekra þaka.
Háþrýstiþvottur.
SERHÆFÐIR í HUSAVIÐGERÐUM
Eöalverh s/í
%
SÚÐARVOGI 7 - 104 REYKJAVÍK SÚÐARVOGI 7- 104 REYKJAVÍK
SÍMI 33200 — NNR. 1655-3573 SÍMI 33200 — NNR. 7123-2972