Alþýðublaðið - 07.06.1986, Qupperneq 13
Laugardagur 7. júní 1986
13
Eitt og annað
um tækninýjungar
I tímaritinu Ægi eru kynntar
ýmsar nýjungar á tækjamarkaðn-
um. Þar er m.a. sagt frá nýjum
geröum af skipavogum sem fram-
leiddar eru af íslenskum fyrirtækj-
um þ.e. Pólinum hf. ísafirði og
Marel hf. Reykjavík.
Skipavogir
Tvö íslensk fyrirtæki, Póllinn hf.
ísafirði og Marel hf. Reykjavík hafa
um árabil framleitt vogir og vogar-
kerfi fyrir fiskvinnslustöðvar. Bæði
þessi fyrirtæki hafa nú einnig hafið
framleiðslu á vogum til notkunar
um borð í fiskiskipum. Venjulegar
vogir verða að standa á fastri undir-
stöðu og eru því ónákvæmar um
borð i fiskiskipum vegna hreyfingu
skipsins og vélartitrings. Skipavogir
skynja þessar hreyfingar og leið-
rétta vigtunarskekkjuna gagnvart
þeim.
Skipavogir frá Pólnum
Póllinn hf. framleiðir tvær gerðir
af skipavogum, þ.e. gerð S-55 og
gerð S-66. Við gerð S-55 eru vogar-
pallur og aflestrareining aðskilin.
Hægt er að fá vogirnar með mis-
munandi gerð vogarpalla, bæði
hvað snertir stærð pallsins og há-
marksþunga þess sem vegið er.
Gerð S-55
Á aflestrareiningu vogarinnar
birtist þunginn á ljóstöluformi,
ásamt tegundarnúmeri þess sem
vegið er. Einnig birtast ýmis tákn
sem sýna hvaða aðgerð er verið að
framkvæma, eða í hvaða vinnslu-
stöðu vogin er. Á aflestrareining-
unni er einnig lyklaborð og má með
því breyta stillingu vogarinnar og
hafa stjórn á ýmsum þáttum skrán-
ingarinnar.
Vogin er búin hraðastillingu sem
ræður tregðu vogarinnar gagnvart
veltu og titringi. Hraðinn er stillan-
legur frá 0 til 9 og er. tregðan mest
við hraða 9. Vogin er upphaflega
stillt af framleiðanda á hraðann 0
sem er nægjanlegur við venjulega
veltu.
Hægt er að núllstilla vogina með
þunga á vogarpallinum t.d. með
tómum bakka (törun) og sýnir vog-
in þá eingöngu þunga hráefnisins í
bakkanum. Síðan má stilla vogina á
ákveðna kjörþyngd hráefnisins og
er hægt að hafa sjálfvirk neitunar-
mörk, sem hjálpa til að koma í veg
fyrir ranga vigtun. Neitunarmörkin
miðast við ákveðið frávik frá kjör-
þyngdinni og er frávikið stillanlegt.
Ef þunginn á vogarpallinum er
rangur miðað við settan kjörþunga,
þá blikka tveir fremstu stafir vigt-
unartölunnar í sífellu. Þegar réttum
þunga er náð, þá stöðvast blikkið.
Sé hinsvegar rangur þungi fjar-
lægður af voginni gefur hún aðvör-
un með því að blikka „HE—HE“ í
sífellu og neitar að halda áfram að
vigta þar til þunginn hefur verið
settur aftur á pallinn og honum
þrýst niðurávið.
Vogin skráir hverja vigtun í minni
sitt annað hvort sjálfvirkt, þegar
bakkinn er tekinn af pallinum, eða
handvirkt, þegar þrýst er á lykla-
borðið. Þegar þungi er orðinn stöð-
ugur, þá kviknar ljós á aflestrarein-
ingunni og annað ljós kviknar síð-
an þegar skráning fer fram. Vinstra
megin á aflestrareiningunni birtist
fjögurra stafa númer fyrir tegund
þess sem vegið er, en tegundarnúm-
erinu er skipt í tvennt og eru fyrri og
seinni hluti númersins skráðir sitt í
hvoru lagi. Frá lyklaborði er valið
um hvor hlutinn er skráður með
vigtinni. Vogina má tengja við
prentara en hann getur verið á öðr-
um stað í skipinu, t.d. í brúnni og
getur vogin þá skráð allar vigtanir
jafnóðum á prentarann. Vogin man
allar skráðar vigtanir og með því að
ýta á takka á prentaranum er hægt
að fá sundurliðaðar upplýsingar
um hvert tegundarnúmer fyrir sig.
Gerð S-66
S-66 voginni svipar að nokkru til
S-55 vogarinnar nema hvað hún
hefur ekki lyklaborð og ekki sömu
skráningarmöguleika og S-55.
Skipavogir frá Marel
Marel hf. framleiðir tvær gerðir
af skipavogum, þ.e. gerðir'CV3002
og CV5002. Við báðar vogargerð-
irnar eru vogarpallur og aflestrar-
eining aðskilin.
Gerð CV3002
Á aflestrareiningu vogarinnar
birtist þunginn á ljóstöluformi.
Einnig sést í hvaða vinnsluhætti
vogin er, hvaða fisktegund verið er
að vinna o.s.frv. Voginni má stjórna
frá tölvu, sérstöku lyklaborði eða
frá takkaborði vogarinnar sjálfrar.
Vogin skráir það sem hún vigtar
og tengir við aðrar upplýsingar. Á
neðri hluta aflestrareiningarinnar
sést þunginn hverju sinni en efri
hlutanum er skipt í fjögur svið
þannig:
„Nafn-svið“ segir til um hvaða
hráefni er verið að vigta t.d. þorsk-
ur, ýsa. „Frá-svið“ gefur til kynna
hvaðan hráefnið kemur t.d. Hala-
mið, Jónsmið. „Til-svið“ gefur til
kynna í hvaða vinnslu umrætt hrá-
efni fer að lokinni vigtun, t.d. 5 lb.
pakkning , kælir, salt.
„Séraðgerðir“ er svið sem notað
er fyrir ýmsar aðgerðir t.d. vigta
frákast eða sýna frávik frá ákveð-
inni skammtaþyngd.
Hvert svið hefur 10 minni. I vog-
inni má þannig hafa upplýsingar
um allt að 10 fisktegundir í einu,
hún getur skráð frá tíu mismunandi
stöðum og samtímis skráð í 10 mis-
munandi pakkningar. Vogin leggur
saman allar vigtanir á hverri fisk-
tegund og telur vigtanirnar. Einnig
leggur hún saman vigtanir sem
skráðar eru frá hverjum stað fyrir
sig og einnig vigtanir sem fara í
hverja pakkningu fyrir sig.
Skráning getur verið hvort sem er
sjálfvirk (þegar bakkinn er tekinn
af pallinum) eða handvirk (þegar
ýtt er á takka á voginni). Törun
(vogin núllstillt með bakka á vogar-
pallinum) getur einnig verið hand-
virk eða sjálfvirk. Þegar sjálfvirk
törun er notuð, tarar vogin sjálf-
krafa mismun á bökkum af svip-
aðri þyngd. Fyrst þarf að tara einn
bakka handvirkt (bakkinn er settur
á pallinn og ýtt á takka á voginni)
síðan eru bakkarnir settir á pallinn
og þegar stöðugleikaljósið lýsir (0,5
sek) er hráefninu bætt við. Allir
tómir bakkar innan við 100 g (40 kg
pallur) eða 25 g (12 kg pallur), frá
bakkanum sem taraður var í upp-
hafi eru nú sjálfvirkt taraðir.
Vogina má stilla á ákveðna
skammtastærð og neitunarmörk
(læsing). Ef vogin er stillt á sjálf-
krafa skráningu og þyngd skammta
fer út fyrir neitunarmörkin birtist
textinn — RANGT VEGIÐ — á
skjánum, þegar tekið er af pallin-
um. Þá er bakkinn settur aftur á
pallinn og ýtt á takka.
FEGRLNARVIKA
/ >» > ^
I REYKJAVIK 7.-15. JIM
4=