Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 1
25 þúsund eintök
Þetta blaö er gefið út í 25.000 eintökum og þvi
dreift aö stórum hiuta ókeypis um Stór-Reykjavík-
ursvæðið og víðar. Eins og sjá má er þetta að
verulegu leyti auglýsingablað, sem erorðinn fast-
ur liður i útgáfu Alþýðublaðsins. Vegna góðrar
dreif ingar er þessi útgáfa góður auglýsingamiðill,
og hefur hlotið nokkra viðurkenningu sem slíkur.
Laugardagur 17. janúar 1987
11. tbl. 68. árg.
Kosninga-
miðstöð
Alþýðu-
flokksins
í Síðu-
múla 12
Alþýðuflokkurinn hef-
ur nú opnað stóra kosn-
ingamiðstöð í Síðumúla
12. Þar verður unnið að
margvíslegum kosninga-
undirbúningi vegna Al-
þingiskosninganna, og
fyrst um sinn verður mið-
stöðin opin frá klukkan
13:00 til 19:00.
Frambjóðendur Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
hafa skrifstofur í þessum
nýju húsakynnum. Þar er
góð fundaaðstaða og hafa
þegar verið haldnir þar
nokkrir undirbúnings-
fundir.
Þessi kosningamiðstöð
er á 2. hæð hússins, gengið
inn frá vesturenda, og eru
allir boðnir þar velkomnir.
Kaffi verður á könnunni,
og er kjörið að líta inn til
skrafs og ráðagerða. Sím-
inn í kosningamiðstöðinni
er: 68 93 70.
Sturlu-málið
— sjá bls. 3 og 4 —
Fundur með
Jóni Baldvin
í nýju kosninga-
miðstöðinni
í dag laugardaginn 17. janúar
klukkan 13:30 verður fundur í
kosningamiðstöð Alþýðu-
flokksins Síðumúla 12 (gengið
inn um dyr á vesturenda). Þar
lalar Jón Baldvin Hannibalsson
og fjallar hann um efnið: „Við
upphaf kosningabaráttu". Allir
eru velkomnir á fundinn.
OSA
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ
ÞEIM NÝJU AMERÍSKU
MERCURY TOPAZ GS
FRAMHJÓLADRIFINN LUXUSBÍLL MEÐ SJÁLFSKIPTINGU, VÖKVASTÝRI,
RAFMAGNSRÚÐUM OG LÆSINGUM, LUXUSINNRÉTTINGU, ÚTVARPIOG
ÝMSUM AUKABÚNAÐIÁ AÐEINS kr. 695.000:■
FORD BRONCOII
ÓSKABÍLL ALLRA JEPPAÁHUGAMANNA, 140HÖVÉL, VÖKVASTÝRI, MIKILL
AUKABÚNAÐUR OG VERÐIÐ AÐEINS kr. 995.000.-
0-18
'SkvVVSBÍÍ