Alþýðublaðið - 17.01.1987, Page 4
4 Laugardagur 17. jánúar 1987
Hugleiðing vegna brottvikningar Sturlu Kristjánssonar úr em-
bætti fræðslustjóra í Norðurlandi eystra. Skólamenn
um land allt mótmæla. Sverrir Hermannsson á næsta leik
Enn hefur ráðherra úr liði Sjálf-
stæðisflokksins tekið sér alræðis-
vald í mjög viðkvæmu máli og lýst
yfir stríði á hendur landsbyggðinni.
Aðför Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra að Sturlu
Kristjánssyni er einstök i sinni röð í
allri sögu lýðveldisins. Skammsýnin
sem afhjúpast í þessari aðgerð er
eftirtektarverð og menn spyrja:
Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins
í skólamálum? Er sú stefna til? Og
ef hún er til, hvers vegna er þá ekki
hæfur maður settur í stól mennta-
málaráðherra?
Hér fer á eftir brot af því sem
dagblöðin sögðu um þetta mál
fimmtudaginn 15. janúar s.l.
Þjóðviljinn:
„Brottreksturinn —
Menntamorðaráðuneyti“
Skólamenn í Norðurlandskjör-
dæmi eystra krefja Sverri Her-
mannsson skýringa á brottrekstri
fræðslustjórans. Forsætisráðherra
efast um réttmætið.
í þessari frétt Þjóðviljans kemur
fram að Steingrímur J. Sigfússon
þingmaður er fylgjandi því að
Sturlumálið verði tekið fyrir utan
dagskrár á Alþingi strax og þing
kemur saman. Einnig er þar rifjað
upp að menntamálaráðherra hefur
ekki enn svarað fyrirspurn frá
Hjörleifi Guttormssyni sem lögð
var fram í október á síðasta ári um
Hinn dæmdi maður Sturla Krist-
jánsson. Persónugerfingur hins illa
í augum menntamálaráðherra
Sverris Hermannssonar.
hvað lægi að baki ásökunum og
dylgjum í garð fræðslustjóra og
starfsmanna fræðsluskrifstofa um
landið.
Tíminn:
Skólamenn Norðurlandi eystra:
„Lítum enn á Sturlu sem fræðslu-
stjóra“
— skora á forsætisráðherra að
„létta af sér rangindum“ Sverris.
í þessu viðtali Tímans við skóla-
menn í Norðurlandi eystra kemur
fram vilji fyrir því „að Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga verði snú-
ið af fullri hörku gegn rangsleitni
Sverris Hermannssonar þar sem
Sturla Kristjánsson er látinn gjalda
samþykktar skólamanna sem þing-
mönnum Norðurlands eystra var
falin í hendur í fullum trúnaði“
Þess er einnig krafist að uppsagnar-
bréfið verði dregið til baka. Segjast
skólamenn áfram líta á Sturlu
Kristjánsson sem fræðslustjóra.
Dagblaðið Vísir:
DV talaói við allnokkra aðila
vegna máls Sturlu og segja fyrir-
sagnir meira en mörg orð:
Sturla Kristjánsson: Gusan sem
fyllti mælinn. Fyrstu aðgerðir:
Kennsla felld niður á morgun. Leið-
ari DV (10. jan. s.l.) mikið ræddur.
Sjálfstæðismenn hræddir og hissa.
Ulfar sagði nei við Knút. Ævareiði
vegna brottreksturs fræðslustjór-
ans: Allir tilbúnir í aögerðir. Old-
urnar lægir ekki — segir Þráinn
Þórisson, formaður fræðsluráðs.
Kennarasamband íslands: Lýsir yf-
Fórnardýrið í Menntamálaráðu-
neytinu, Sverrir Hermannsson:
,,Það hefur verið stöðugur stríðs-
rekstur gegn mér að norðan . . . “
ir stuðningi. (Segir að ákvörðun
Sverris sé gerræðisleg).
Allt ber hér að sama brunni. Allir
þeir mörgu aðilar sem talað er við
eru á einu máli um að hér hafi
Sverrir Hermannsson gengið skrefi
of langt.
Alþýðublaðið:
Sturla Kristjánsson, fyrrum
fræðslustjóri: „Kjaftshögg á skóla-
stefnuna í heild".
Þar kemur fram að Þorsteinn
Pálsson var settur menntamálaráð-
herra þann dag sem uppsagnarbréf-
ið til Sturlu er dagsett. Það er því
mikil spurning hvort bréfið er lög-
legt! í þessu viðtali Alþýðublaðsins
við Sturlu kemur einnig fram að
sérkennslan hefur verið sérstakt
áhugamál hans og einnig að hann
sem embættismaður hefur átt sam-
skipti við alla aðila þannig að telja
verður til fyrirmyndar. Sturla fram-
fylgdi aðeins Iögum um grunnskóla
og ekki honum að kenna ef þau
reynast vitlaust verðlögð. Aðför
Sverris verður þess vegna óskiljan-
leg með öllu, enda eru skólamenn
fyrir norðan óstarfhæfir eftir
„sjokkið".
En hvað segir þá Morgunblaðið
sem menn líta á sem málgagn
menntamálaráðherra, Sverris Her-
mannssonar?
Morgunblaðið:
Brottrekstur fræðslustjóra Norður-
lands eystra: Norðlendingar líta enn
á Sturlu sem fræðslustjóra. Skóla-
VIÐ BJÓÐUM YKKUR VELKOMIN A
Frumsýning 16.-17. janúar nk.
itfi/i— 1f*^~**
wrnnr^
Þórskabarett allar helgar
Borðapantanir hjá
veitingastjóra í síma 23335
Stórkostleg skemmtun
og veisla
sem munað verður eftir
Stórkostlegur þríréttaður kvöldverður, meiri-
háttar kabarettskemmtun með þátttöku margra
af okkar þekktustu skemmtikröftum svo sem:
Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Þuríður
Sigurðardóttir, Hermann Gunnarsson auk hins
frábæra Tommy Hunt, sem er lykillinn að ógley-
manlegri kvöldstund.
★ Hinn frábæri söngvari Tommy
Hunt skemmtir
Raggi Bjarna og Þuríður Sigurð-
ardóttir syngja nokkur lög
Ómar Ragnarsson aldrei betri
en nú
Hemmi Gunn mætir til leiks
Santos-sexettinn leikur
★
★
Brautarholti 20, símar 23333, 23334, 23335