Alþýðublaðið - 17.01.1987, Side 8
8
Laugardagur 17. janúar 1987
„Góð fjármálastjórnun
er besta kjarabótin“
Minning
Jón Eðvaldsson, skipstjóri
Sandgerði
segir Armann Reynisson, forstjóri Avöxtunar.
Um síðustu áramót varð nokkur
breyting á rekstri Ávöxtunar s.f.
Síðast liðin fjögur ár hafði fyrir-
tækið starfað með lokaðan verð-
bréfasjóð í eigin nafni og gerð fjár-
vörslusamninga við hvern og einn
viðskiptavin. Með breytingunni er
verðbréfasjóðurinn algjörlega op-
inn og gefinn út skuldabréf á sjóð-
inn, þannig að allur afrakstur kem-
ur til skila til eigenda skuldabréf-
anna.
„Undirtektir hafa verið stórkost-
legarj' sagði Ármann Reynisson,
forstjóri Ávöxtunar, í samtali við
Alþýðublaðið. „Hér hafa aldrei ver-
ið eins mikil viðskipti. Þetta mælist
vel fyrir hjá almenningi og á eftir að
verða gífurleg lyftistöng fyrir fyrir-
tækið. Þetta kemur til með að leiða
til þess, að við reynum ýmsar nýjar
leiðir í okkar viðskiptumí1
Fjármálastjórnun
Ármann sagði að á síðustu ára-
tugum hafi verið algjör vanþróun í
fjármála og bankastarfsemi í land-
inu. „Fjármunir sparifjáreigenda
voru stórlega rýrðir, að öllum
mönnum sjáandi. Síðustu fjögur
árin frá því Ávöxtun tók til starfa,
einnig frá því Fjárfestingarfélagið
og Kaupþing hófu starfsemi sína á
verðbréfasjóðum, hafa orðið gífur-
legar breytingar á almennum hugs-
unarhætti svo og fjármagnsmark-
aðinum. Þessar breytingar hafa að
mínu viti verið í rétta átt. Þessir
verðbréfasjóðir vinna fyrir sína við-
skiptavini og reyna að ná sem
mestri ávöxtun á fjármunum spari-
fjáreigendaý
Starfsemi verðbréfasjóðanna
hefur sætt nokkurri gagnrýni, og
margir draga í efa að hún leiði
nokkuð gott af sér fyrir þjóðina?
„Ég tek eftir þvi að æ fleiri hugsa
betur um hag sinn, fjármál sín, —
enda er góð fjármálastjórnun besta
kjarabótin fyrir almenning. Hvort
sem það er fjármálastjórnun hins
opinbera eða heimilanna. Um leið
og hinn frjálsi fjármagnsmarkaður
hóf starfsemi sína er hann hvetjandi
til sparnaðar fyrir landið, sem er
nauðsynlegt til að halda fjármagn-
inu í Iandinu og fjármagna okkar
eigin framkvæmdir, og að auki fær
almenningur meira út úr þeim fjár-
munum sem menn hafa í laun og
tekjur.
Þeir aðilar sem hafa horn í síðu
þessara breytinga eru í raun og veru
börn síns tíma. Þeir skynja ekki nú-
tímann og þær breytingar sem
orðnar eru og verða í framtíðinni.
Skólakerfið brugðist
íslenska skólakerfið hefur
brugðist við að fræða nemendur
um fjármuni og notkun fjármuna,
— sem er stór þáttur í lífi hvers ein-
staklings. Það er einmitt í'skólun-
um sem vandinn byrjar. Almenn-
ingur á oft erfitt með að skilja fjár-
mál vegna vanþekkingar. Meðal
annars hefur þessi vanþekking al-
mennings leitt til þess að stjórn-
málamenn sem ekki hafa staðið sig
við stjórnun fjármála, fá ekki
nægilegt aðhald. Það sýnir sig líka
að vandinn er víða, hvort sem það
er í Iandbúnaði, bankamálum, eða
erlendum skuldasöfnunum, svo
dæmi séu tekin. Á þessum málum
hefði þurft að taka fyrir löngu síð-
an.
Stundum er talað um frjálsa vexti
og okur sem nokkurn veginn sama
fyrirbærið. Þessar samlíkingar
heyrast jafnvel hjá stjórnmála-
mönnum, sem margir hverjir hafa
litla samúð með starfsemi verð-
bréfasjóðanna?
„Jú, sumir stjórnmálamenn hafa
verið að reyna að blanda okurmál-
inu saman við þá ákvörðun sem tek-
in var ’84 um að gefa vexti frjálsa.
Þetta eru auðvitað tvö ólík mál og
vanþroski að ætla sér að bera þetta
tvennt saman. Það er mitt mat, að
hinn frjálsi peningamarkaður örvi
þjóðfélagið í heild. Það má ekki
gleymast að frjálsi peningamarkað-
urinn er einmitt til hagsbóta fyrir
almenning og það fólk sem stjórn-
málamenn sækja vald sitt til. Þeir
aðilar sem eru í nöp við fyrirtæki
sem starfa á lýðræðislegum grund-
velli eru ekki í takt við lýðræðið
sjálftþ sagði Ármann.
Fyrirtœkin
Bent hefur verið á að miklar
breytingar eigi sér stað í rekstri fyr-
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Raf-
magnsveitu Reykjavfkur óskar eftir tilboðum í götu-
Ijósastólpa.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkju-
vegi 3, Reykjavík.
íilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. feb.
n.k. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
irtækja í landinu í dag. Sumir halda
því fram að gífurlegur fjöldi gjald-
þrota sýni m.a. þær sviptingar sem
eigi sér stað hjá fyrirtækjunum.
Mörg fyrirtæki hafa lagt upp laup-
ana, skipt um eigendur eða samein-
ast öðrum. Því hefur verið haldið
fram að þessi „grisjun" stafi fyrst
og fremst af því, að fyrirtæki og
einstaklingar þurfa í dag að greiða
raunvexti?
„Það má segja að breytingarnar
séu vegna þess að fyrirtækjum var
áður fyrr aldrei almennilega stjórn-
að af mönnum sem höfðu vit og
þekkingu, heldur mönnum, sem
númer eitt kunnu að spila á verð-
bólguna, númer tvö, mönnum sem
höfðu áhrif inn í stjórnmálaflokk-
ana og í þriðja lagi mönnum sem
höfðu sambönd í bönkunum.
Það eru einmitt þessir menn sem
fengu fjármunina lánaða og þurftu
aldrei að borga nema lítinn hluta af
því til baka. Það voru opinbera
bankakerfið og stjórnmálamenn-
irnir sem voru að hygla þessum
mönnum. Fjármunir meirihluta
þjóðarinnar voru rýrðir í þágu
þeirra sem kunnu að spila á stjórn-
málamennina og verðbólguna.
Þegar raunvaxtastefnan byrjar
breytist dæmið. Þá byrjuðu þeir að
detta út úr viðskiptunum sem
höfðu ekki vit á viðskiptunum
sjálfum, heldur högnuðust alltaf á
lántökunum. Þeir hinir standa upp
úr í framtíðinni, sem kunna að reka
sín fyrirtæki á raunsæjan og eðli-
legan hátt með þetta dýra fjár-
magn.“
Því er stundum haldið fram að
engin eðlileg þróun geti átt sér stað
í viðskiptalífinu við ríkjandi ríkis-
bankakerfi?
„Það sem ég tel eitt af alvarleg-
ustu málum í íslensku þjóðfélagi í
dag er að ungt fólk með hugmyndir,
kjark og þor og vill vinna sig upp,
hefur mjög litla möguleika. Það er
eins og allt sé gert til þess að gera
þessu fólki sem erfiðast fyrir. Það
er eins og öll hjól snúist um, að
koma því á kaldan klaka.
Það er alvarlegt að sjá hvernig fer
fyrir þessu fólki í ríkisbankakerf-
inu. Þetta er fólkið sem er raunveru-,
leg driffjöður hvers þjóðfélags. Það
eru þessir einstaklingar sem koma
til með að skapa störf, þróa nýjung-
ar og eru hið jákvæða afl í þjóðfé-
laginu. — Þarna þarf að snúa blað-
inu við,“ sagði Ármann Reynisson,
forstjóri Ávöxtunar.
„Því að nú sjáum við svo sem í
skuggsjá í óljósri mynd, en þá aug-
liti til auglitis“. (1. Kor. 13.12.)
Jón Eðvaldsson hefur siglt á
skipi sínu hinsta sinni út úr Sand-
gerðishöfn og tekið land í höfn sem
við skynjum í óljósri mynd. Á skil-
um lífs og dauða hætta jarðnesk
lögmál að hafa merkinu og mann-
legt vald verður að engu. Við stönd-
um frammi fyrir því sem engin
þekking né reynsla fær skýrt til hlít-
ar, en þeim sem kallaður hefur verið
hinsta kalli opinberast augliti til
auglitis.
I dag verður Jóns Eðvaldssonar,
skipstjóra frá Sandgerði, sem fórst
er bátur hans strandaði vestan við
Krísuvíkurbjarg, minnst í Hvals-
neskirkju. Hann hóf ungur að
sækja sjóinn á togurum frá Hafn-
arfirði og allt fram á síðustu stund
var sjósókn hans ævistarf. Ég átti
því láni að fagna að kynnast Jóni,
mannkostum hans og reynslu og fá
tækifæri til að starfa með honum
um tíma. Undir hans skipsstjórn
var gott og lærdómsríkt að starfa.
Það sem alltaf stóð í fyrirrúmi var
öryggið og sanngirnin, þetta tvennt
sem einkenndi svo ríkulega dagfar
allt og handtök. Hann gerði alltaf
meiri kröfur til sjálfs sín en annarra
sem birtist í þolinmæði, seiglu og
dugnaði. Því var jafn farsælt að
starfa með honum og njóta sam-
vista við hann.
Jón hafði búið mörg síðustu ár
ásamt fjölskyldu sinni í Sandgerði.
Þar hafði hann fest traustar r£?tur.
Fjölskyldan öll stóð samhent að
uppbyggingu útgerðar og fisk-
vinnslu í Sandgerði. Enginn sem
Jóni hefur kynnst, getur farið á mis
við að finna samheldnina og eining-
arkraftinn, sem fjölskyldan og
heimilislífið ber svo áþreifanleg
merki um.
Nú er skarð fyrir skildi. Jón kem-
ur ekki aftur að landi í Sandgerðis-
höfn. Hann er stiginn á annað land.
Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl-
skylduna alla, aðra ættingja og
vini. Þó hlekkur í einingarkeðju
hafi slitnað, þá mun Guð aftur sam-
anhnýta, líkna og styrkja. Verkin
hans munu ávöxt bera.
Gunnlaugur Stefánsson.
Nýtt fjár-
m ögnunarfyrirtœki
Þann 19. desember s.I. var stofn-
að nýtt fjármögnunarfyrirtæki á ís-
landi, FEFANG HF. Illutafé félags-
ins er 22,5 milljónir króna. Stofn-
endur og hluthafar eru:
Fjárfestingarfélag íslands hf.
(66.6%)
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
(10.7%)
Tryggingamiðstöðin hf. (10.7%)
Verzlunarbanki íslands hf. (10.7%)
Sparisjóður vélstjóra (1.3%)
Félagið er því eingöngu í eigu ís-
lenskra aðila.
•Tilgangur félagsins er hvers kyns
sérhæfð fjármögnunarþjónusta og
skyld starfsemi, en fyrst í stað verð-
ur einkum lögð áhersla á fjármögn-
unarleigu („Financial Ieasing“),
sem félagið hefur þegar hafið.
Féfang hf. mun alfarið taka við
fjármögnunarleigu þeirri, sem
Fjárfestingarfélag íslands hf. hefur
í vaxandi mæli stundað hin síðari ár
og bauð upp á fyrst innlendra aðila
á árinu 1972.
Af samkeppnisástæðum er nú
hins vegar talið æskilegt að að-
greina þessa starfsemi í sérhæft
fjármögnunartæki þ.e. í Féfang hf.,1
sem Fjárfestingarfélagið mun eiga
meirihluta í.
Erlendur fjármögnunar- og sam-
starfsaðili Féfangs hf. er sænska
fyrirtækið, PK Finans s.a. sem er í
eigu sænska PK bankans. PK
Finans hefur starfsemi víða um
Iönd og er eitt öflugasta fjármögn-
unarfyrirtæki Norðurlanda. Ljóst
er því, að Féfang hf. mun hafa góð-
an aðgang að hinum alþjóðlega
fjármagnsmarkaði. Jafnframt mun
Féfang hf. njóta reynslu erlenda
samstarfsaðilans og Fjárfestingar-
félagsins í hvívetna.
Stjórn Féfangs hf. skipa eftir-
taldir aðilar:
Gísli Ólafsson, formaður
Höskuldur Ólafsson
Jóhann J. Ólafsson
Ágúst Hafberg
Gunnar H. Hálfdanarson
Framkvæmdastjóri hefur verið
ráðinn Gunnar H. Hálfdanarson,
rekstrarhagfræðingur, en hann er
jafnframt framkvæmdastjóri Fjár-
festingarfélagsins.
Aðalfundur löggiltra endurskoðenda
Félag löggiltra endurskoðenda
hélt aðalfund sinn nýlega en á þessu
ári hefur félagið starfað í 52 ár. í
tengslum við aðalfundinn var nám-
stefna um virðisaukaskatt. Fram-
sögu á námstefnunni höfðu Geir R.
Haarde, aðstoðarmaður fjármála-
ráðherra og Jón Guðmundsson,
deildarviðskiptafræðingur hjá
embætti ríkisskattstjóra. Ennfrem-
ur var Garðar Valdimarsson, ríkis-
skattstjóri gestur fundarins. Eftir
framsöguerindin urðu liflegar um-
ræður, en fundurinn var mjög fjöl-
mennur.
Á liðnu starfsári stóð stjórn fé-
lagsins fyrir hádegisfundum einu
sinni í mánuði og voru haldin erindi
um margs konar efni. Endurmennt-
unarnámskeið voru einnig nokkur,
og árlega er haldin sumarráðstefna.
Félagið tekur þátt í starfi Nor-
ræna endurskoðunarsambandsins,
en á vegum þess var haldin í ágúst
s.l. samnorræn endurskoðunarráð-
stefna í Gautaborg. Slíkar ráðstefn-
ur eru háldnar fjórða hvert ár. Að
þessu sinni var aðalefni ráðstefn-
unnar „Endurskoðandinn og hin
tæknilega þróun“.
Félag löggiltra endurskoðenda er
einnig aðili að Evrópusambandi
endurskoðenda, F.E.E., Alþjóða-
sambandi endurskoðenda, IFÁC og
Alþjóða reikningsskilanefndinni,
IASC.
Á vegum félagsins eru starfandi 4
fastanefndir, þ.e. álitsnefnd, endur-
skoðunarnefnd, reikningsskila-
nefnd og menntunarnefnd. Einnig
er starfandi ritnefnd.
Formaður félagsins, Eyjólfur K.
Sigurjónsson, var endurkosinn
samhljóða, og er núverandi stjórn
löggiltra endurskoðenda þannig
skipuð:
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
formaður
Helgi V. Jónsson, varaformaður
Sigurður Stefánsson, gjaldkeri
Gunnar Sigurðsson, ritari
Gunnar R. Magnússon,
meðstjórnandi
Fasteignagjaldendur
Mosfellshreppi
Álagning fasteignagjalda 1987 í Mosfellshreppi er lok-
Ið.
Gjalddagar hafa verið ákveðnir, 15. jan., 15. mars, og 15.
maí.
Sveitarstjóri.
Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda, frá vinstri: Sigurður Stefánsson, Helgi V Jónsson, Eyjólfur K. Sigur-
jónsson, Gunnar Sigurðsson, Gunnar R. Magnússon.