Alþýðublaðið - 17.01.1987, Qupperneq 9
Laugardagur 17. janúar 1987
9
Ferðatilboð Útsýnar hf.
fyrstu mánuði ársins
GinS4MG115
AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST
Ef þú sefur illa og erí úrillur ó morgnana, lœfur
umferðina fara í faugarnar á þér, ótt erfiff með
að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu
líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í
allan sannleikann um GinsoiUlGll5
Skólavöröustíg 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.
Að vanda hafa þeir fjölbreyttar
hóp- og einstaklingsferðir í boði.
Þar ber þó hæst vetrardvöl á Costa
del Sol, Spáni ásamt heimsreisunni
til Brasilíu 13. mars.
Þeim fjölgar stöðugt sem sjá
hversu heilsusamlegt það er að
stytta langan vetur með ferðalögum
til suðrænna landa. Útsýn hf. hefur
boðið upp á sérstaka aðhlynningu
fyrir aldraða sem nýts sér þessa
möguleika. En það eru ekki aðeins
Spánarferðir í boði hjá ferðaskrif-
stofunni heldur einnig ferðir til
ýmissa stórborga víða um veröld
s.s. LONDON — GLASGOW —
AMSTERDAM — LUXEM-
BORGAR — HAMBORGAR —
KAUPMANNAHAFNAR
TOKYO — HONG KONG —
NEW YORK — RÓMAR.
Eins og áður hefur komið frani er
boðið upp á beint leiguflug og
ódýra vetrardvöl á Costa del Sol.
Costa del Sol
Costa del Sol er sá staður í Evrópu
sem eftirsóttastur er orðinn hjá
þeim sem vilja stytta hjá sér vetur-
inn og dvelja á sólrikum stað yfir
vetrarmánuðina. Mikil uppbygging
hefur átt sér þar stað síðustu ár og
Bandaríkjamenn, Kanadamenn og
Evrópubúar sem hafa valið Costa
del Sol umfram aðra staði í heimin-
um til að forðast vetrarkuldann,
flykkjast nú þangað til að dvelja
þar í 1, 2 eða 3 mánuði í besta veð-
urfari sem Evrópa hefur uppá að
bjóða.
Flesta daga vetrarins er hitinn á
Costa del Sol um 20 stig á daginn,
fer sjaldan niður fyrir 16 stig, og er
því hægt að líkja vetrinum þar við
gott íslenskt sumar. Verðlag á nauð-
synjum á Spáni er miklu lægra en
hér, svo að dvölin getur orðið í senn
ódýr og góð heilsubót. Fyrir þá sem
eiga kost á 6—8 vikna fríi eða eru
hættir störfum, er hér langódýrasti
kosturinn að dveljast í útlöndum
við ákjósanleg skilyrði. Sérstakt til-
Iit er tekið til ellilífeyrisþega með
hagstæð greiðslukjör.
Útsýn býður nú beint flug til
Costa del Sol yfir vetrarmánuðina á
einstöku verði.
Gististaðir
BENAL BEACH Nýjasti og eftir-
sóttasti gististaðurinn á ströndinni.
Heill heimur útaf fyrir sig með hit-
aðri sundlaug, fullkominni Iíkams-
ræktaraðstöðu, gufubaði, læknis-
þjónustu allan sólarhringinn, mat-
sölustað, matvöruverslun og banka.
Allar íbúðir með eldhúsi, baði og
svölum.
JUPITER Þægilegur og ódýr gisti-
staður með afar fallegum garði.
Allar íbúðir með baði, eldhúskrók
og svölum.
LA NOGALERA Stórar og rúm-
góðar íbúðir staðsettar í miðbæ
Torremolinos. Öll þjónusta, mat-
sölustaðir og bankar við bygging-
una. Allar íbúðir með baði, eldhúsi
og svölum.
ALOHA PUBERTO Einn þægileg-
Eyjan er vel þekktur ferða-
mannastaður og hefur verið í yfir
100 ár. Stolt eyjarskeggja eru glæsi-
leg fimm stjörnu hótel með frábær-
um sundlaugum og sólbaðs-
aðstöðu.
Florida
Land blómanna.
Um nokkurra ára skeið urðu
Florida ferðir vinsælar hjá ís-
lenskum ferðamönnum, einkurn að
hausti og vori vegna veðurfars og
hagstæðs verðurlags. ÚTSÝN var á
þeim tíma brautryðjandi í skipu-
lagningu Floridaferða og hefur nú
endurnýjað hin góðu sambönd frá
fyrri árum. Gengisþróun veldur
því, að nú geta íslendingar að nýju
komist í ódýrar ferðir á þessar suð-
rænu slóðir og með tilkomu áætl-
unarflugs Flugleiða verða ferðirnar
nú mun þægilegri en áður.
asti gististaðurinn á ströndinni,
hálft fæði innifalið.
TIMOR SOL Þægilegar íbúðir eða
studio með baði, eldhúsi og svöl-
um. Ágæt íþróttaaðstaða, góður
matsölustaður og fjörugt félagslíf
allan daginn.
HOTEL ALAYEinn besti gististað-
urinn á ströndinni. Allar íbúðir og
studio með baði, eldhúsi og svöl-
um. Afar fallegur garður, hituð
sundlaug og líkamsræktaraðstaða.
Lyfta niður á strönd og 2 mínútna
gangur inní miðbæ. Möguleiki á
morgunmat, hálfu og fullu fæði.
Kanaríeyjar
Kanaríeyjar undan vesturströnd
Afríku þar sem hlýir staðvindar og
Golfstraumurinn tryggja góðviðri
árið um kring, eru einn vinsælasti
vetrardvalarstaður íslendinga, enda
eru þær oft nefndar „Eyjar hins ei-
lífa vors“.
Gran Canaria
Gran Canaria er þriðja stærsta eyj-
an í Kanaríeyjaklasanum. íbúar
eyjunnar Gran Canaria eru um
600.000.
Á undanförnum árum hefur
„Enska ströndin“ milli Maspa-
lomas og San Augustin verið aðal-
staður íslendinga. Þarna er fjöldi
stórglæsilegra gististaða, 3ja km.
löng sandströnd, veitingahús og
skemmtistaðir, verslanir og mark-
aðir auk dægrastyttinga fyrir ungt
fólk á öllum aldri.
Nú eru þrír nýir gististaðir í boði
á Maspalomas og aftur er boðin
gisting á hinni skjólsælu strönd
Puerto Rico.
Ýmsar kynnisferðir eru í boði,
eínnig næturklúbbaferð, miðalda-
veisla og heimsókn til annarra eyja,
jafnvel til Afríku.
Madeira
Blómaeyjan í Atlantshafinu.
Um 300 km. norðan við Kanarí-
eyjar er hin fagra eyja Madeira.
Hlýjar öldur Golfstraumsins og
mildir norðaustanvindar leika um
hana og tryggja vorveður árið um
kring. Eyjan er aðeins um 714 km2
að stærð. Hún skiptist í gróðursæla
dali, villta skóga og tignarleg fjöll,
að ekki sé minnst á hrikalega kletta
sem ganga í sjó fram. Portúgalskir
landkönnuðir fundu eyjuna
snemma á 15. öld og gætir áhrifa
þeirra enn, svo sem í lífsháttum og
tungumáli. íbúar eyjunnar eru ein-
staklega glaðlegir og gestrisni
þeirra rómuð.
Atvinna
Sjúkraliðar og aðstoðarfólk óskast til starfa. Upp-
lýsingargefurhjúkrunarforstjóri í síma91—29133
frá kl. 8—16.
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar