Alþýðublaðið - 17.01.1987, Síða 18
18
Laugardagur 17. janúar 1987
Lesendabr&fc frá ^StrákarH^
„Líf til ein-
hvers“ þakkað
Þar sem ég er það mikið búinn að
horfa á móti ljósum við starf mitt
og stöðu um dagana, eru augun í
mér farin að þreytast, og það svo
mjög að ég get ekki horft á sjónvarp
vegna þess hvað myndbreytingarn-
ar koma ótt og títt á skerminn. Þess
vegna vildi ég vinsamlegast mælast
til þess að minnka hraðann á
skerminum, til þess að við, sem er
farin að daprast sjón, getum notið
slíkrar listar sem flutt er í okkar
sjónvarpi.
Sagan segir mér að það hafi verið
sýnd hin sterkustu ástaratlot, sem
manni og konu eru veitt til þess að
halda við sínu kyni, og það hafi ver-
ið dásamleg sjón. Verður því að
telja það slæmt fyrir okkur að
missa af að sjá slíka list, og sérstak-
lega þá sem hvorki hafa haft kjark
né kunnáttu í sér til að njóta slíkrar
listar. En fátt er svo með öllu illt að
ekki boði nokkuð gott. Ég vona því
að þessi nefnda Sjónvarpslist, verði
endurtekin, í okkar sjónvarpi öðru
hvoru hér eftir, til þess að breyta lifi
okkar sem höfum orðið undir í líf-
inu og ekki verið kennd nein list.
Það má telja víst að svo geti gjörst,
sem ég tel rétt að skýra hér frá.
Svo er mál með vexti að ég hefi
búið með ráðskonu, sem hefur haft
sitt sérpláss svo sem vera ber, og
aldrei litið inn til mín, þá halla tekur
degi. En þar sem ég er vanur að fara
snemma til hvílu, eins og sagan seg-
ir um Grím hinn prúða í sögu Úlfars
sterka, þá drottningin lagði leið
sína inn í hans sængurhús, þá hann
hrinti henni mður a golt, asamt
slæmum orðum sem hann lét
fylgja, en hún svaraði aftur með því
að láta Önund fríða leggja Grím að
velli með sverði, er þá var i gildi svo
sem sagan segir.
En þá ég hafði Iagt mig til hvíldar
þetta leiklistarkveld, þá kemur
ráðskonan til mín, og réttir mér
sína mjúku hönd, sem þó er farin að
fölna, og hvíslar að mér hvað listin
hafi verið áhrifarík í sjónvarpinu.
En þar sem sagan um Grím hinn
prúða og drottninguna komu þá
þegar í huga minn, ásamt sögulok-
um frá þeirra viðskiptum þá ákvað
ég að lofa ráðskonunni að ráða því
hvernig nóttin hjá okkur leið. Óska
ég þess, að nóttin hjá öllum ráðs-
konukörlum og ráðskonum, í okk-
ar landi hafi endað jafn vel.
Vil því vona að listin hafi liðið
um landið, líkt og sólargeisli um
sólstöður að vori til, svo sem áætlað
hafði verið að leiða yfir landsmenn,
i einu augnabliki, bæði fyrir konur
og karla.
Þar sem mér er tjáð að þessi list
hafi alveg verið til fyrirmyndar um
fræðslu og fróðleik, fyrir okkur
sem höfum áður verið útundan í líf-
inu, og ekki lært, né notið slíkrar
listar, sem mun Iíka auka vinsældir
Sjónvarpsins, svo sem vera ber. Má
nú líka telja það gott ef vinsældir
Útvarps og Sjónvarps, gætu batnað
svo að viðskiptamenn þess hættu
að halda fram hjá því til viðskipta
við aðrar útvarpsstöðvar, sem hefur
rýrt tekjur okkar Útvarps svo mikið
sem Alþingismenn okkar telja að
muni nema uppí 130 milljónir á
hinu liðna ári, og muni enn versna
fjárhagur þess á okkar nýbyrjaða
ári.
Væri nú ekki rétt fyrir formann
útvarpsráðs og útvarpsstjóra að
sækja nú þegar um einkaleyfi til
menntamálaráðherra, um að fá að
sýna lík listaverk og sýnd voru á ný-
ársdag, til þess að auka vinsældir
þess, svo að auglýsingatekjur þess
gætu aukist svo, að snúa mætti því
tapi við sem varð á síðasta ári, í jafn
háan tekjuafgang á þessu ári og þar
með stefna að því að styrkja fjár-
haginn til vinsældar líka.
Með Nýárskveðju.
Þar sem okkar flokkur býr við
bestar vinsældir nú, bið ég blaðið
að birta þessar línur næstu daga, og
það lítið breyttar.
Strákarl.
Hlemmur
— Kvos
Vegna mikilla tafa á Laugavegi
síðari hluta dags fara tímaáætlanir
vagna sem eiga leið um Laugaveg
meira og minna úr skorðum til
ómældra óþæginda fyrir farþega,
sem nota þessa vagna milli hverfa í
austur- og vesturhluta borgarinnar.
í dag hefst tilraun til að ráða bót
á þessum vanda, sem felst í því, að
sérstakir vagnar merktir
HLEMMUR—KVOS verða í ferð-
um um Laugaveg milli Hlemms og
Lækjartorgs. Vagnarnir verða ekki
tímasettir, en þeir fara á 10—15
mín. fresti frá áningarstaðnum við
Hlemrn, Laugavegsmegin, og hafa
viðkomu á venjulegum viðkomu-
stöðum við Laugaveg.
Þetta fyrirkomulag gildir milli
kl. 13—18 mánud.-föstudaga.
Nordjobb ’87 tekur til starfa
117 íslensk ungmenni fengu störf á vegum Nord-
jobb í fyrra. 76 krakkar frá hinum Norðurlöndunum
fengu vinnu á íslandi.
Nordjobb 1987, atvinnumiðlun
milli Norðurlandanna fyrir ungt
fólk á aldrinum 18—26 ára, er nú
tekin til starfa. Eins og á s.l. ári er
öll framkvæmdin í höndum nor-
rænu félaganna á Norðurlöndum.
Norræna félagið á íslandi hefur nú
þegar sent umsóknareyðublöð með
upplýsingum um framkvæmd og
tilhögun til allra framhaldsskóla á
Islandi svo og til allra vinnumiðlun-
arskrifstofa, sem starfræktar eru af
sveitarfélögum. Einnig munu þau
fyrirtæki fá umsóknareyðublöö,
sem buðu fram störf vegna Nord-
jobb á s.l. ári. Móttaka sjálfra um-
sóknanna er hafin en umsóknar-
fresturinn rennur út 01. marz n.k.
Umsóknareyðublöð má einnig fá
hjá Norræna félaginu, Norræna
húsinu, 101 Reykjavík, sími
1—96—70.
Störf, sem unnt er að sækja um á
vegum Nordjobb, eru í Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi og Noregi en
einnig eru nokkur störf í boði á
Grænlandi, í Færeyjum og á
Álandseyjum. Starfsgreinarnar,
sem störf eru boðin í, eru margvís-
legar, og má þar t.d. nefna ræktun-
ar- og garðyrkjustörf, lagerstörf,
verzlunarstörf, iðnaðarstörf, störf í
opinberri þjónustu o.fl., o.fl. Störf-
in verða í boði á tímabilinu frá 01.
júní til 15. september og er hvert og
eitt starfstilboð miðað við sam-
felldan vinnutíma og eigi skemmri
tíma, en 4rar vikur. Ferðakostnað
ásamt fæðis- og gistikostnaði verða
þátttakendur að greiða af eigin fé
en leitað verður samninga við Flug-
leiðir hf. um afsláttarfargjöld og
þátttakendur verða aðstoðaðir við
útvegun húsnæðis. Geta þátt-
takendur þannig átt kost á að búa á
stúdentagörðum, í öðru leiguhús-
næði eða hjá fjölskyldum, að sjálf-
sögðu gegn gjaldi. Kaup verður
greitt samkvæmt gildandi kjara-
samningum í hverju landi og kaup
er skattlagt eftir þeim reglum sem
þar gilda. Þátttakendur geta ekki
gert ráð fyrir því að geta komið
heim með umtalsverða fjármuni að
tímabilinu loknu, en vinnulaunin
eiga að geta dugað vel fyrir ferða-
kostnaði, fæði og gistingu þannig
að þátttakendur hafi eitthvað auk-
reitis í vasapeninga. Hér er hins veg-
ar um að ræða einstakt tækifæri til
þess að kynnast menningu og
starfsháttum nágrannaþjóðanna
og ýmiss konar kynningar-, ferða-
og skemmtidagskrár verða skipu-
lagðar fyrir þátttakendur. Áherzla
er lögð á, að væntanlegir þátt-
takendur geti bjargað sér á Norður-
landamálum; skilið og talað; og
munu slíkir umsækjendur sitja fyr-
ir um störf.
Á s.l. ári, sem var fyrsta árið er
Nordjobb var starfrækt af norrænu
félðgunum, sóttu 404 íslenzk ung-
menni um störf á vegum Nordjobb.
Af þeim tókst að útvega 117 unt-
sækjendum störf. Á sama tíma
sóttu um störf á íslandi 578 ungir
Norðurlandabúar og 76 störf tókst
hér að útvega. Er stefnt að því að
fjölga bæði þeim, sem héðan fara
og hinum, sem hingað koma, á
þessu ári, sem nú fer í hönd.
Nordjobb-starfseminni var upp-
haflega komið á fót að tillögu
nefndar norrænna athafnamanna,
sem stofnuð var að tilhlutan for-
sætisráðherra Norðurlanda og gera
átti tillögur um nýmæli í norrænni
samvinnu. Nefndin var yfirleitt
kennd við formann sinn, Per
Gyllenhammar, forstjóra Volvo í
Svíþjóð. íslenzkur nefndarmaður
var Erlendur Einarsson, forstjóri.
Nordjobb var fyrst starfrækt í til-
raunaskyni árið 1985 og var þá í
umsjá sænsks fyrirtækis. í ársbyrj-
un 1986 var svo stofnuð sjálfseign-
arstofnunin NORDJOBB með að-
setri í Danmörku og í eigu norrænu
félaganna, Sambands norrænu fé-
laganna og Norrænu iðnþróunar-
nefndarinnar, sem einnig var sett á
stofn að tillögu Gyllenhammar-
nefndarinnar. Sjálfseignarstofnun-
in NORDJOBB samdi síðan við
norrænu félögin hvert í sínu landi
um alla framkvæmd fyrir árið 1986
og hefur sá samningur nú verið end-
urnýjaður.
Verkefnisstjóri Nordjobb á ís-
landi s.l. ár var Eyjólfur Pétur Haf-
stein og mun hann áfram veita verk-
efninu forstöðu.
Lancer skutbíll
með sítengt aldrif
Lancer skutbíllinn, sem kom á markað hérlendis fyrir rúmu
ári, þykir ákjósanleg stærð af bíl í þessum flokki, sem hentar vel
til margvíslegra nota bæði sem fjölskyldu- og vinnubíll. Yfirbygg-
ingin hrífur augað vegna þess hve gott samræmi er í öllum hlutum
hennar og undirvagn og vélbúnaður sameina allt það fullkom-
nasta, sem fáanlegt er á því sviði.
Lancer 4WD
Nú hefur þessi ágæti bíll verið aðlagaður íslenskum aðstæðum
algjörlega með því að setja í hann sítengt aldrif, styrkja undirvagn-
inn og auka veghæðina til að gera hann hæfari til að þjóna sínu
hlutverki fullkomlega. Kostir þessa drifbúnaðar eru þeir, að stöð-
ug spyrna er bæði á fram- og afturhjólum og þarf því ökumaður
engar áhyggjur að hafa af því að velja milli aldrifs og eindrifs, þegar
færð breytist snögglega. Aflinu er dreift út á fram- og afturhjól í
gegnum mismunadrif, sem er innbyggt í gírkassann, og er hægt
að læsa því ef þörf krefur. Þessi sídrifsbúnaður er þrautreyndur í
bílum eins og Range Rover og hefur gefist frábærlega vel við skil-
yrði sem algeng eru á íslenskum vegum.
Lancer 4WD er með 90 h.a. bensínvél, sem er 12.6 sekúndur
að koma bílnum upp í 100 km/klst. Gírkassinn er með 5 gíra
áfram, þar af einn gír með sérstaklega lágt niðurfærsluhlutfall,
sem ætlaður er til aksturs í slæmri færð. í Lancer 4WD eru afl-
hemlar með loftkælda diska að framan, en skálar að aftan ásamt
hleðslunæmum stjórnloka, sem jafnar hemlunarkraftinn á hjólin
eftir hleðslu bílsins. Að framan er sjálfstæð gormafjöðrun,
Mc Pherson, en að aftan er gormafjöðrun á heilum ás. Þá er í bíl-
num ýmis aukabúnaður svo sem aflstýri, tregðulæsing á aftur-
drifi, loftnet og hátalarar, rúllubelti í öllum sætum og margt fleira.
21. tölublað Hugar
og handar komið út
Ársrit Heimilisiðnaðarfélags ís-
lands, HUGUR OG HÖND 1986,
kom út skömmu fyrir síðustu jól.
Þetta er 21. tölublað HUGAR OG
HANDAR, það er 56 blaðsíður
prentað að mestu í litum á góðan
pappír.
I ritinu eru fjölmargar greinar
um ýmislegt efni tengt heimilis- og
listiðnaði, af þeim má nefna grein
um þrjá gullsmiði, Jens Guðjóns-
son, Hansínu Jensdóttur og Jón
Snorra Sigurðsson, eftir Rúnu
Gísladóttur, grein um íslenska
sauðféð og sérkenni þess eftir dr.
Stefán Aðalsteinsson og Elsa E.
Guðjónsson safnvörður á Þjóð-
minjasafni skrifar um nokkur sér-
stæð krossspor sem varðveist hafa á
gömlu íslensku útsaumsverki og
hvergi annars staðar svo vitað sé.
Ingólfur Davíðsson grasafræðing-
ur skrifar fróðleiksmola úr gróður-
ríkinu og Þórir Sigurðsson um tó-
vinnukennslu Margrétar Líndal í
Laugarnesskólanum. Ýmsar fleiri
greinar eru í ritinu, auk þess upp-
skriftir fyrir prjón og vef, ýmsar
leiðbeiningar og félagsmál.
Framan á kápu er mynd Kristjáns
Péturs Guðnasonar af BJARG-
FUGLI Jens Guðjónssonar, silfur á
ísienskum steini.
Ábyrgðarmaður blaðsins er
Jakobína Guðmundsdóttir, for-
maður Heimilisiðnaðarfélagsins. í
ritnefnd eru Sigríður Halldórsdótt-
ir, formaður, Þórir Sigurðsson,
Rúna Gísladóttir, Hulda Jósefs-
dóttir og Hildur Sigurðardóttir.
Auk þess að vera félagsrit er
HUGUR OG HÖND selt til áskrif-
enda. Einnig fæst það í lausasölu
hjá íslenskum heimilisiðnaði og í
nokkrum bókaverslunum.
Afgreiðsla HUGAR OG HAND-
AR er að Laufásvegi 2, 101 Reykja-
vík.
HUGUR OG HÖND kom fyrst
út árið 1966 og óslitið síðan, eitt
tölublað á ári. Argangur 1986 er því
hinn 21. í röðinni.
Frá upphafi hafa meginmarkmið
útgáfunnar verið þau að stuðla að
eflingu íslensks heimilisiðnaðar
með því að birta leiðbeiningar um
margs konar handmenntir með
höfuðáherslu á þeim sem tengjast
íslenskri menningararfleifð. Einnig
hafa birst fjölmargar greinar um
heimilis- og listiðnað og ýmsan
þjóðlegan fróðleik.
Margir merkir íslendingar hafa
ritað greinar í blaðið, fróðir menn
og fræðimenn. Af þeim kunnustu
mætti nefna Elsu É. Guðjónsson,
Guðmund jósafatsson, Halldór
Laxness, Huldu Á. Stefánsdóttur,
Ingólf Davíðsson, Kristján Eld-
járn, Stefán Aðalsteinsson og Þórð
Tómasson.
Sérstaklega skal á það bent, að
þeir sem fást við að rita fræðigrein-
ar og bækur um efni tengt heimilis-
iðnaði og handíðum vitna oft í
heimildir birtar í HUG OG HÖND.
Þetta á ekki síður við um erlenda en
innlenda höfunda. Einnig er al-
gengt að nemendur í grunn- og
framhaldsskólum sem velja eða fá
það verkefni að skrifa um þjóðleg-
an fróðleik, leiti sér heimilda í
HUG OG HÖND.