Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 20
20
Laugardagur 17. janúar 1987
Vélsmiðjan Dynjandi sf
Hreint loft
Rœtt við Gunnlaug P. Steindórsson, forstjóra Vélsmiðjunnar Dynjandi sf.
Öryggisáhöld af öllum gerðum. Frá vinstri: Bjarni Þórisson sölumaður og Steindór Gunnlaugsson, sölustjóri
Dynjandi.
„Hér hjá Dynjandi flytjum við
allt inn til öryggismála á vinnustöð-
um, auk hvers konar annarra hluta
sem létta fólki störfin og auka ör-
yggi þess“, sagði Gunnlaugur P.
Steindórsson, forstjóri Vélsmiðj-
unnar Dynjandi í viðtali við Al-
þýðublaðið. „Öryggishjálmarnir
voru upphafið að starfsemi okkar á
þessu sviði, en einnig má nefna hin-
ar vinsælu heyrnarhlífar og örygg-
isskó hverskonar, auk allra gerða af
grímum til verndar öndun. Þá erum
við með augnhlífar og gleraugu,
andlitshlífar og öryggisbelti ásamt
útbúnaði til vinnu við hættulegar
aðstæður, eins og t.d. við töku trolls
á skuttogurum og við vinnu við
hættulegar aðstæður á húsþökum.
Þá eru háþrýstidælur af öllum
stærðum og gerðum. Þær spara
mikla vinnu og auka á hreinlæti.
Frá því að við byrjuðum á þessu
Opnum nýtt
íþróttahús
— síðar í þessum mánuði —
Erum að hefja úíleigu á eftirtölc/um badmintontimum:
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
12.00 12.00 12.00 12.00 12.00 09.20 09.20
10.10 10.10
11.00 11.00
11.50 11.50
12.40 12.40
16.50 16.50 16.50 16.50 16.50 13.30 13.30
17.40 . 14.20 14.20
18.30 15.10 15.10
19.20 16.00 16.00
20.10 20.10 20.10 20.10 16.50 16.50
21.00 21.00 21.00 21.00 21.00 17.40 17.40
21.50 21.50 21.50 21.50 21.50
22.40 22.40 22.40 22.40 22.40
UNGLINGATÍMAR: • •
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud.
13.30 13.30 13.30 13.30 13.30 (10—14ára)
14.20 14.20 14.20 14.20 14.20 (10—14ára)
15.10 15.10 15.10 15.10 15.10 (14—18ára)
16.00 16.00 16.00 16.00 16.00 (14-18 ára)
KVENNATÍMAR - 6 VIKNA NÁMSKEIÐ:
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud.
15.10 15.10 15.10 15.10
16.00 16.00 16.00 16.00
6 VIKNA NÁMSKEIÐ (KARLAR OG KONUR):
Föstud.
15.10
16.00
Mánud.
19.20
20.10
21.00
21.50
Þriðjud.
21.00
21.50
Miðvikud.
19.20
20.10
21.00
21.50
Fimmtud.
21.00
21.50
Föstud. Laugard. Sunnud
19.20 11.00 11.00
20.10 11.50 11.50
12.40 12.40
13.30 13.30
Tímapantanir á föstum tímum í Gnoðarvogi 1 (ekki
í síma). Pantanir á unglingatímum og námskeiðs-
tímum í síma 82266.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur,
Gnoðarvogi 1, sími 82266.
fyrir nær 25 árum, höfum við alltaf
verið að slást við tollyfirvöld um
niðurfellingu tolla á öryggisútbún-
aði með misjöfnum árangri. Oft
mætt miklu skilningsleysi á þeim
bæ. Samt gerast kraftaverkin þar
eins og annars staðar. T.d. hefur
það tekist með mikilli baráttu að fá
lífsnauðsynleg öryggisbelti undan-
þegin tolli. Sending kom frá Sví-
þjóð í haust af þessum beltum, en
af því að það voru einhverjar snúrur
með þeim, þá skipti engum togum
að sendingin lenti bæði í tolli og
vörugjaldi. Þar með var viðskipta-
grundvöllur okkar fyrir þessari
sendingu brostinn og við endur-
sendum allt saman til Svíþjóðar.
Svíarnir urðu svo undrandi að þeir
spurðu bara hvort að íslenskir fjöl-
miðlar vissu af þessu og sendu vör-
una aftur hingað til Islands. Við
ætluðum bara að gera mál úr þessu.
Þá bar svo við að varan rann í gegn.
Svo dæmi séu tekin þá er 24%
vörugjald og allt að 25% tollur á
öndunargrímum. Má það furða
heita að við sem búum við mengun-
arlausasta umhverfi sem til er, þurf-
um að láta verkafólk okkar sem
vinnur óþrifalegustu og hættuleg-
ustu störfin sæta því. Fyrir þetta
fólk getur nefnilega verið dýrt og
líklega bara lúxus að anda að sér
hreinu lofti á íslandi"
Verðmerking-
um ábótavant
á útsölum
Um þessar mundir eru útsölur í
mörgum verslunum. Verðlagsstofn-
un hefur því kannað hvort farið
hefur verið eftir ákvæðum laga og
öðrum reglum um það hvernig stað-
ið skuli að útsölum. Niðurstöður
könnunarinnar eru þær að mikill
meirihluti þeirra verslana sem
kannaðar voru fóru ekki eftir sett-
um reglum.
í lögum um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti segir í 36. grein:
„Útsölu eða aðra sölu, þar sem
selt er á lækkuðu verði, má því að-
eins auglýsa eða tilkynna, að um
raunverulega verðlækkun sé að
ræða.
Þess skal gætt, að greinilegt sé
með verðmerkingum, hvert hið
upprunalega verð vörunnar var.“
Jafnframt vekur Verðlagsstofn-
un athygli á eftirfarandi:
1) Á útsölu skal eingöngu selja
eldri vörubirgðir. Þegar nýjar
vörur eru seldar á lækkuðu verði
er um tilboðsverð að ræða en
ekki útsölu.
2) Það telst ekki útsala ef aðeins
fáar vörur eru seldar á lækkuðu
verði. í slíkum tilvikum er um
tilboðsverð að ræða.
3) Útsöluvarning þarf að greina frá
öðrum vörum sem ekki eru á út-
sölu, þannig að neytendur geti
með auðveldu móti áttað sig á
hvaða vörur eru á útsölunni.
í þeirri könnun sem áður er vikið
að var verðmerkingum mjög ábóta-
vant jafnvel svo að í sumum versl-
unum voru engar vörur verðmerkt-
ar hvorki með upprunalegu verði né
hinu lækkaða verði! Er vandséð
hvernig verslunarmenn geta við
slíkar aðstæður veitt viðskiptavin-
um réttar upplýsingar um verð.
Verðlagsstofnun hvetur verslun-
areigendur til að fara eftir þeim
reglum sem hér hefur verið gerð
grein fyrir. Jafnframt því er neyt-
endum bent á að þeir geta ekki
sannreynt verðlækkun á útsölu
nema með því að geta kynnt sér
upprunalegt verð vörunnar.
Áð lokum skal verslunareigend-
um, af gefnu tilefni bent á að þeim
er skylt skv. tilkynningu Verðlags-
stofnunar nr. 32/1981 að hafa
liggjandi frammi í verslunum sölu-
nótur yfir keyptar vörur svo að full-
trúar Verðlagsstofnunar geti fyrir-
varalaust fengið aðgang að þeim.,