Alþýðublaðið - 31.01.1987, Blaðsíða 8
8
Laugardagur 31. janúar 1987
Jón Baldvin um ríkisfjarlögin:
Undanlátssemi við sér-
hagsmuni og handahófs-
kenndar skottulækningar
Við þriðju umræðu fjárlaga fyrir jól fjallaði Jón
Baldvin Hannibalsson m.a. um greiðsluhalla ríkis-
sjóðs og gerði nána grein fyrir tillögum Alþýðu-
flokksins til lækkunar á ríkisútgjöldum og til tekju-
öflunar. Ræða hans fer hér á eftir:
Aldrei fyrr hefur hallarekstur rík-
isins aukist um jafnháar upphæðir
og jafnhratt á jafnskömmum tíma
og gerst hefur undanfarna daga. í
fyrradag staðfesti góðærið að tekjur
ríkissjóðs hefðu aukist um 3 mill-
jarða. í gær var það niðurstaðan af
stjórnlausri og sjálfvirkri útgjalda-
þenslu ríkissjóðs og útgjöldin hefðu
aukizt um 6 milijarða. Hallinn, sem
við lögðum upp með í haust upp á
1600 millj. er núna að nálgast 3000
millj. Reynslutölur fyrri ára segja
okkur, að ef við lítum raunsæjum
augum á þetta pappírsgagn, og
reynum að meta hve hallinn verði
mikill orðinn í árslok ’87 treystum
við okkur ekki til þess að nefna þær
tölur, en miðað við reynslu þyrfti
engum að koma á óvart þótt hann
væri hátt á fimmta þúsund millj. kr.
Og er þá ekki allt talið. Þá erum við
að tala um A-hluta ríkissjóðs og að
hluta B-hlutann, en eftir er að líta á
þensluhaliann, sem er innbyggður í
C-hlutanum, í sjóðakerfi ríkisbákns-
ins.
Gagnrýni
Við 2. umræðu fjárlaga lögðum
við Alþýðuflokksmenn fram álykt-
un þar sem við gáfum til kynna
hvaða stefnubreyting þurfi að eiga
sér stað í heild í ríkisfjármálum. Nú
eru menn út af fyrir sig almennt
orðnir sammála um gagnrýnina:
Sammála um að tekjuöflunarkerfi
ríkissjóðs er hrunið; að skattakerfið
er ekki einasta óréttlátt heldur líka
óskilvirkt; að afleiðing þessa,
ábyrgðar- og stjórnlaus skuldasöfn-
un, er komin út yfir hættumörk.
Þegar litið er á gjaldahliðina eru
menn orðnir sammála um að lög-
mál síþenslu og sjálfvirkni verði að
rjúfa. Það verði m.ö.o. að horfast í
augu við að við verðum, hvort sem
okkur líkar betur eða verr, og hvort
sem við kennum okkur til hægri eða
vinstri, að takast á hendur það verk-
efni að skiigreina hlutverk ríkis-
ins upp á nýtt.
Ríkisbúskapurinn á íslandi í miðju
góðærinu er orðinn stærsta vanda-
málið í efnahagslífi íslendinga.
Fram hjá því vandamáli verður ekki
gengið. Eina leiðin til þess að ráðast
til atlögu við það er sú að skilgreina
hlutverk ríkisins upp á nýtt og byrja
á þeirri kerfisbreytingu í ríkisbú-
skapnum sem er forsenda þess að
við náum böndum á ríkisbúskapinn.
Tillögur
Ég mæli fyrir breytingartillögu
sem þingmenn Alþýðuflokks flytja
við 3. umræðu fjárlaga. Mér er sá
vandi á höndum að breytingartillög-
urnar sjálfar munu ekki vera komn-
ar á borð þingmanna og ekki heldur
framhaldsnefndarálit. Þetta er
væntanlega á leiðinni. En það verð-
ur að fara sem vill.
Ég mun fyrst lýsa þessum tillögum
stuttlega. Tíllögur okkar felast í
þessu:
1. Við leggjum til að reynt verði að
afla aukinna tekna í ríkissjóð og
í annan stað draga úr útgjöldum
til að ná því markmiði að draga
úr þessum yfirþyrmandi halla á
ríkisfjárlögum, reyndar um 2
milljarða, þannig að hallinn
verði á bilinu 6—700 millj. kr.
Þetta leggjum við til að gert
verði með nýrri tekjuöflun í
formi stigbreytilegs eignar-
skattsauka á félög að upphæð
400 millj.
2. Að hækka tekjuskatta á félög
um 700 millj.
3. Að áætla hagnað Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins á árinu
7% hærri en gert er af hálfu
meiri hlutans, 250 millj.
4. Að leggja á 0,5% hækkun
launaskatts, sem að mundi gefa
ríkissjóði 300 millj. kr. Þetta
mundi þýða í heildartekjuauka
fyrir ríkissjóð 1650 millj.
Á gjaldahlið leggjum við til að
útgjöld ríkissjóðs vegna útflutnings-
bóta, sem hafa hækkað snarlega í
meðförum meirihlutans, verði
lækkuð um 200 millj. kr. I öðru lagi,
að gerðar verði ráðstafanir sem
komi til framkvæmda á miðju næsta
ári og varða kerfisbreytingu í rík-
isrekstri og fælu í sér lækkun út-
gjalda ríkissjóðs um 300 millj. kr.
Alls væri þetta útgjaldaminnkun um
500 millj. M.ö.o.: þar með mundum
við með tvenns konar aðgerðum,
aukinni tekjuöflun og lækkun út-
gjalda, ná þeim áfanga að lækka
áætlaðan hallarekstur ríkis-
sjóðs um 2150 millj. kr. þannig að
rekstrarhalli yrði 652 millj. í stað
2800 millj.
Heildaráhrifin af þessum breyt-
ingartillögum okkar yrðu þau að
lækka lánsfjárþörf ríkissjóðs að
því er varðar erlend lán úr 1700
millj. í 800 millj. eða um 900
millj. kr.
Markmiðin
Markmiðin sem við setjum okkur
með þessum tillögum eru fyrst og
fremst þau að draga úr háskalegum
fyrirsjáanlegum verðbólguáhrifum
af svo taumlausum hallarekstri í rík-
isbúskapnum og tryggja þannig, eft-
ir því sem tök eru á, að ríkisvaldið
reyni að standa við sinn hlut að því
er varðar nýgerða kjarasamninga.
Þetta reynum við að gera með því:
1. að afla ríkissjóði nýrra tekna,
2. að takmarka skattaívilnanir
fyrirtækja nú í miðju góðærinu,
3. að dreifa skattbyrðinni með
réttlátari hætti eftir greiðslu-
getu,
4. að draga úr millifærslum til at-
vinnuvega af skattpeningum,
5. að hefjast handa um þá óum-
flýjanlegu kerfisbreytingu í rík-
isrekstri, sem felst í því að
leggja niður nokkrar óþarfar
ríkisstofnanir og ætla öðrum að
afla meiri sértekna með sölu
sérfræðiþekkingar og þjónustu,
en miðað er við að sú breyting
komi til framkvæmda um mitt
næsta ár,
6. að draga úr erlendum lántök-
um ríkissjóðs fyrst og fremst
með því að gera tvennt: í fyrsta
lagi að draga úr fyrirhuguðum
framkvæmdum og í öðru lagi
að vísa sjóðum og stofnunum
ríkisgeirans meira á innlendan
markað í trausti þess að hann
beri það með aukinni innlendri
sparifjármyndun.
Rökin
Fyrsta tillaga er um að auka
tekjur ríkissjóðs vegna tímabundins
eignarskattsauka, sem gildi í eitt ár
og varðar félög, um 400 millj. kr.
Hér teljum við að við förum tiltölu-
lega hóflega í sakirnar. Við bendum
á að lögaðilar greiða um 40% af
heildareignarskattstekjum ríkis-
sjóðs, en einstaklingar tæplega
60%. Við teljum eðlilegt miðað við
ríkjandi aðstæður að breyta þessum
hlutföllum, nánast snúa þeim við.
Við teljum líka eðlilegt að sú breyt-
ing verði gerð að eignarskattur lög-
aðila, sem nú er hlutfallslegur, þ.e.
ein skattprósenta og engin skatt-
frelsismörk, verði gerður stigbreyti-
legur, þ.e. í þremur þrepum, og mið-
um þá við, sbr. fyrri tillögur okkar,
að þau félög sem eiga umtalsverðar
skuldlausar eignir sem nema tugum
milljóna beri meginþunga þessarar
skattheimtu.
I annan stað leggjum við til að
tekjuskattur félaga verði hækkaður
sem nemur 700 millj. kr. Við bend-
um á að tekjuskattar fyrirtækja eru
óheyrilega lágir á Islandi. Einungis
2800 fyrirtæki af 10.600 sem telja
fram, greiddu tekjuskatta á líðandi
ári. Þetta gerðist eins og kunnugt er
í skjóli frádráttafrumskógarins, sem
var hér til umræðu fyrir nokkrum
kvöldum þegar Alþingi ræddi skatt-
svikaskýrsluna og þær tillögur til úr-
bóta, sem þar voru nefndar. Við telj-
um að grisja beri þennan frumskóg
og einfalda, draga úr heimildum til
frádráttar vegna reiknaðra framlaga
í varasjóði og fjárfestingarsjóði og
20 gerdir
af breiðum
svefnsófum
Dcsign: KURT BRANDT
Áklæðið er sérstaklega varið svo það hrindi
frá sér óhreinindum.
Þægilegur sófi að sitja í og sofa á.
■*
ii'.'w’fs-rgrggn
ÖÍLDSHOf OA 20 ~ 112 REYKJAVÍK - 9t-68t I99oq681410
Tegund Pax.
Lengd 190 sm, breidd 160 sm.
Litir: Brúnt, grátt, blátt, rautt og
svart.