Alþýðublaðið - 31.01.1987, Blaðsíða 16
16
Laugardagur 31. janúar 1987
Þriðjudaginn 3. febrúar 1987 verður Iðnaðarmannafélagið í Reykja-
vík 120 ára. Fyrsti formaður félagsins var Einar Þórðarson, prent-
ari. AIIs hafa verið 20 formenn í félaginu. Myndin er af núverandi
stjórn ogskemmtinefnd félagsins, sitjandi við borðiðfrá vinstri, Sig-
ríður Bjarnadóttir, hárgreiðslumeistari, gjaldkeri, Siguroddur
Magnússon, rafverktaki, ritari, Gissur Símonarson, húsasmíða-
meistari, formaður, Benóný Kristjánsson, pípulagningameistari,
vararitari, Helgi Hallgrímsson, húsgagnaarkitekt, varaformaður.
Standandi f.v. Guðmundur J. Kristjánsson, veggfóðrarameistari, for-
maður skemmtinefndar, Ólafur Jónsson, málarameistari, varamað-
ur í stjórn og Örn Guðmundsson, veggfóðrarameistari, í skemmti-
nefnd. Ljósm/Ljósmyndastofa Þóris.
Reykjavík styrkum fótum í fyrstu.
Stofnfélagar voru 31 en 15 töldust
félagsmenn röskum áratug síðar.
Ekki urðu þeir 100 talsins fyrr en
skömmu fyrir fertugsafmælið og fá
munu þau ár þegar tala skuldlausra
félaga hefur hærri verið en 300. —
Á 120 ára æviskeiði Iðnaðarmanna-
félagsins í Reykjavík hafa þær
stundir komið að þvi hefur vart ver-
ið líf hugað vegna fámennis. Því
vekur furðu hve afrekssaga félags-
ins er glæst og áhrif þess víðtæk.
Upphaflega var því ætlað að
„styrkja samheldni meðal handiðn-
aðarmanna, efla framfarir í innlend-
um iðnaði og styðja að gagnlegum
og þjóðlegum fyrirtækjum" en varð
aldrei að stéttarfélagi. Aðalvið-
fangsefni þess hafa ávallt verið
menningarmál af ýmsu tagi. Ekki
verður atburðasaga rakin hér —
aðeins fáum svipmyndum á loft
brugðið.
í upphafi greinar var minnst á Iðn-
skólann gamla og Ingólfsstyttu. Vart
leikur vafi á að höggmynd Einars
Jónssonar á Arnarhóli setur tignar-
svip á höfuðborgina.
Frumgerð hennar birtist í dönsk-
um blöðum 1906. Ekki hafði lista-
maðurinn efni á að fullvinna verkið
enda kostnaður talinn nema 175
kýrverðum en varð miklu meiri.
Ríkisþing Dana heyktist á að gefa fs-
lendingum styttuna og ákvað þá
Iðnaðarmannafélagið á almennum
fundi í septembermánuði sama ár
að standa straum af kostnaði.
Löng og torsótt reyndist leið að
marki en höggmyndina færði félag-
ið ríkisstjórn íslands að gjöf 24.
febrúar 1924 við hátíðlega athöfn.
Tillöguflytjandi, Jón Halldórsson
trésmiður, afhjúpaði styttuna en
vígsluræðu flutti hinn styrki braut-
ryðjandi, Knud Ziemsen, verkfræð-
ingur og borgarstjóri. Þá voru tæpir
tveir áratugir liðnir síðan félagið
lauk við að reisa Iðnskólann við
Lækjargötu.
Vart hafa margir sem í mannþyrp-
ingu stóðu 18. ágúst 1986 hugleitt
að umhverfis stóðu reisnarlegir
minnisvarðar um farsæl störf Iðnað-
armannafélagsins í Reykjavík sem
umgjörð hátíðarsviðs — og fáir vita
lengur að keðjan haglega sem borg-
arstjóri ber við hátíðleg tækifæri er
gjöf frá sama félagi.
Stefnumótun
Afskipti af iðnfræðslumálum er
sjálfsagt sá þáttur í starfi Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjaík sem al-
menningur þekkir best. Félagið hóf
þá fræðslu 1869 — tveim árum eftir
stofnun þess — og hafði af henni all-
an veg og vanda áratugum saman.
Fleiri komu til skjala er fram liðu
stundir en stoðum má renna undir
þá staðhæfingu að félagið hafi sinnt
stefnumótun í iðnfræðslumálum í
tæpa öld — frá stofnun uns núgild-
andi iðnfræðslulög voru samþykkt
1966. Einnig reisti það á eigin kostn-
að iðnskólahús við Lækjargötu sem
áður segir og hafði forgöngu um
byggingu stórhýsis á Skólavörðu-
holti þar sem Iðnskólinn í Reykjavík
hefur aðsetur. Reykjavíkurborg og
ríkissjóður eiga nú hús þessi en
drjúg mun eignarhlutdeild félagsins
í Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg.
Fróðlegt væri að ræða um og
reyna að meta áhrif þeirra fimm iðn-
sýninga sem félagið hélt á árabilinu
1883—1949 en ekki verður þess
freistað hér. En sýningarstarfsemi
þess hefur ekki einskorðast við iðn-
sýningar. Ég minni á að félagið hélt
myndlistarsýningu 1977 þar sem
eingöngu voru sýnd verk eftir ís-
lenska iðnaðarmenn — og merka
sýningu list- og nytjamuna úr tré
1980 — á ári trésins.
Eiginleikarnir góðu
f upphafi máls vék ég að því að Iðn-
aðarmannafélagið hafi aldrei verið
fjölmennt og saga þess sveiflukennd
FEBRÚAR
Síðasti skiladagur fyrir einstaklinga með
sjálfstæðan atvinnurekstur er 15. mars.
Ríkisskattstjóri
Jón Böðvarsson:
Iðnaðarmannafélag
Reykjavíkur 120 ára
Á 200 ára afmæli Reykjavíkurborg- skólahúsi upp á Arnarhólsbrún. Yfir
ar söfnuðust saman 60—70 þúsund gnæfði stytta af Ingólfi Arnarsyni. f
Islendingar hvaðanæva af landinu. sólskini þess dags varð atburðurinn
Mannþröng var samfelld frá Iðn- þjóðhátíð enda er höfuðborgar-
skynjun landsmanna einkum bund-
in kvosinni milli áðurnefndra mann-
virkja sem bæði eru minnisvarðar
um starfsemi Iðnaðarmannafélags-
ins í Reykjavík.
í kaupstaðarsögu Réykjavíkur eru
aldirnar tvær næsta ólíkar. Á hinni
fyrri var atvinnu- og menningarlíf
fáskrúðugt í smákaupstað þeim. Á
aldarafmælinu voru íbúar Reykja-
víkur innan við 2000 en landsmenn
allir tæplega 70000 — álíka margir
og afmælisgestir 18. ágúst 1986. En
síðari öldin einkennist af svo örum
umskiptum að minjar frá hinni fyrri
eru fáar og fyrirferðarsmáar. Sé að
hugað beinist athygli helst að göml-
um húsum, síður að menningar- og
félagslífi og er það að vonum því að
fá íslensk félög geta rakið rætur til
19. aldar og engin lengra aftur.
Elst og merkust teljast Hið ís-
lenska biblíufélag og Hið íslenska
bókmenntafélag. Bæði hafa frá önd-
verðu starfað á landsvísu og Reykja-
vík verður ekki miðstöð hins síðar-
nefnda fyrr en eftir síðustu aldamót.
Ég hygg að Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík sé elsta félag sem enn
er við lýði og einskorðað hefur
starfsemi við höfuðborgarsvæðið.
Saga þess samvefst gömlum húsum
og þræðir liggja allt til innréttinga-
tímans þegar Reykjavíkurkaupstað-
ur varð til vegna iðnrekstrarhug-
sjónar Skúla Magnússonar.
31 stofnfélagi
Ekki stóð Iðnaðarmannafélagið í
LAUNÞEGAR!
Vinsamlegast athugiö aö
síðasti skiladagur
skattframtala 1987 er