Tíminn - 16.07.1967, Síða 1
fV S ÍJ
j;Vs-
:.;V.
ív'ft /iSw
'
158. tbl. — Sunnudagur 16. júlí 1967. — 51. árg.
11 HAFA
FALLIÐ í
NEWARK
Friðrik vann belgíska
stórmeistarann O’Kelly
Það er í annað sinn, sem hann vinnur Belgann
- öðrum skákum þeirra hefur lokið með jafntefli
FÝLA
Eitt sinn vai reistui turn,
sem átti að leysa vandræði
heillar höfuðborgar, lykteyð
ingarturninn á Kletti. Turn
inn er fallegur á mynd, og
heldur er ekkert út á hann
að setja, þegai horft er á
hann sjálfan, en hann sést víð
ast hvar að úr Reykjavik. Síð-
ustu vikur hefur hann hins
vegar ekki þjónað fullkomlega
tilgangi sínum, því að megna
Hykt lagði yfir að minnsta
iosti Kleppsveginn, og ef-
laust fleiri götur í Reykjavík.
Datt sumum . hug, að verið
væri að bræða þá margumtöl-
uðu skemmdu saltsíld frá
síðasta sumri, svo mikil
var ýldan.
(Tímamynd ÍSAK.)
„MESTA ÁRÁS VÍETNAMSTRIÐSINS"
DA NANG í ELD-
FLAUGAREGNI!
NTBNang, laugardag.
•k Viet Cong-hcrmenn gerðu í
nótt ofboðslega árás á stærstu
flugstöð Bandaríkjanna i Suður
Vietnam, Da Nang flugvöll. Er
þetta talin öflugasta árás alls V'iet
namsstríðsins, en í árásinni voru
rúmlega 20 flugvélar eyðilagðar
a.m.k. 12 Bandaríkjamenn létu
lífið og á annað hundrað særðust.
★ Viet Cong-menn sendu rúm-
lega 50 sovézkar eldflaugar inn
yfir flugstöðina á þeim 40 mínút
um, sem árásin stóð yfir. Flugvél
ar sprungu í loft upp, og einnig
vopnageymslur, og eldflaugarn
ar lcntu á bröggunum, ]>ar sem
bandariskir hermenn voru sof-
andi. Er enn leitað að líkum og
lifandi mönnum í rústunum.
Eldflaugaskot Viet Cong manna
voru mjög nákvæm. Hittu þeir
íbúðarbragga, flugvélar, benzín
geymslur og skotfæra- og vopna
búr. 011 i þetta gífurlegum spreng
ingum um allan flugvöllinn. Rauð
glóandi járni rigndi niður m.a.
yfir margar flugvélar, sem
skemmdust það mikið, að hugs-
anlega verður að fleygja þeim
líka.
Mest varð sprengingin, þegar
eldflaug lenti á sprengjugeymslu.
Sprungu þar 5—6 kílóa sðrengj
Framhald á bls. .4.
20 franskir vísindamenn hingad á föstudag
KANNA HÁLOFTIN
AF REYNISFJALLI
ES-Reykjavík, laugardag.
Franskir vísindamenn eru
væntanlegir hingað til landa á
næstunni til rannsókna á háloft
unum. Það er franska geim
rannsóknamiðstöðin, sem gerir
út leiðangurinn, en hún hefur áð
ur sent leiðangra hingað til
lands, m.a. árið 1964, er Frakk-
arnir skutu eldflaugum af Mýr
dalssandi.
Visindamennirnir verða um 20
talsins, og eru þeir væntanlegir,
hingað til lands hinn 21. júli, oe
halda þeir daginn eftir austur að
Reynisfjalli í Mýrdal, þar sem
bækdstöð þeirra verður i þær
þrjár vikur, sem þeir dveljast
hér. Vísindatæki þeirra koma
hinn 18. júlí með Seadler, leigu
skipi Eimskipafélagsins, og verða
þau flutt austur, áður en þeir
koma.
Leiðangur þessd er á veguin
frönsku geimrannsóknamiðstöðv
arinnar, en sú stofnun hefur tví-
vegis áður sent hópa vísinda-
manna hingað til lands, fyrst ár-
ið 1964, er þeir skutu eldflaug-
um af Mýrdalssandi, eins og fólki
mun v.era í fersku minni. og aft-
ur árið 1965, en þá sendu þeir
loftbelgi til rannsókna upp frá
'Reykjavíkurflugvelli.
í þetta skipti hafa Frakkarn-
ir engar eldflaugar meðferðis,
heldur munu þeir: senda upp loft
'belgi ásamt rannsóknatækjum frá
Reynisfjalli í Mýrdal, og frá Sand
skeiði, en á Reynisfjalli verður
móttökustöð, sem veitir viðtöku
skéytasendingum frá tækjum loft
belgjanna. Rannsóknir Frakkanna
beinast að því að mæla röntgen-
geisla, sem myndast, þegar raf-
agnir koma inn í háloftin, en
skilyrði til slíkra rannsókna eru
Framhald á bls >4.
Auglýsing i TÍMANUM
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Genst askritendur að
ITMANUM
Hnngið i síma 12323
NTB-Newark, laugardag.
Átta létu lífið og sjúkrahúsin
fyHtnst af slösuðu fólM í nótt,
eftir ofsalegar kynþáttaóeirðir í
gærkvöldi. Eftir þriggja daga kyn
þáttaóeirðir, liggja 11 manns í
valnum. Rúmlega 700 manns
hafa verið handteknir.
f allan gærdag stóðu óeirðirn
ar og verzlanir vonu tæmdar og
kveikt í húsum. í gærkvöldi hóf
ust svo átök og bardagar að nýju
en lögreglan og hermenn úr þjóð
vamarliðinu í New Jersey hafa
umkringt það svæði borgarinnar,
þar sem átökin eiga sér stað.
Lyndon Johnson forseti hefur
rætt við fylkisstjórann í New
Jersey, R. Hughes, og boðið hon-
iiin aðstoð Bandaríkjastjóm-
ar, en fyíkisstjórinn hefur ekki
enn beðið um slíka aðstoð.
Hsím. — laugardag. —„Ég
hafði hvítt gegn belgíska stór
meistaranum O'Kelly í 2.
umferð a skákmótinu hér í
Dundee og fékk aðeins
skárra tafl út úr byrjuninni"
sagði Friðrik Ólafsson, þegar
blaðið ræddi við hann í morg
un. ,En þú veizt, að það eru
fáir seigari en O'Kelly í slik
um stöðum og honum tókst
næstum því að jafna taflið.
En bá uggði hann ekki að sér
lék hægfara leik, sem gaf
mér tækifæri að komast í
biskupsendatafl, þar sem ég
hafði heldur betra tafl — og
mér tókst að vinna skákina á
frekar léttan hátt".
Þið hafið teflt tnargar skákir
saman, ekki satt?
„Jú, þær eru orðnar nokk-
uð margar, ég man nú ekki í
svipinn nákvæma tölu, og þétta
er í annað skipti, sem ég sigra
0‘Kelly. Á Ólympíuskákmót-
inu í Varna í Búlgaríu 1962,
vann ég hann einnig, en öll-
um öðrum skákum milli okkar
hefur lokið með jafntefli."
Hvernig var skákin við Pen-
rose í fyrstu umferð?
„Ég veit nú eiginlega ekki,
hvað ég á að segja. Maður er
alltaf heldur hikandi í fyrstu
skák á móti, þegar. langt er síð-
an maður hefur teflt. Penrose
er góður skákmaður og við
sömdum jafntefli eftir rúma 20
leiki. Staðan var þá mjög við
sjárverð — og mátti raimveru-
lega hvorugur hreyfa sig —
en Penrose var með peði
meira.“
Hefur nokkuð merkilegt
skeð í öðrum skákum?
„Nei, lítið hefur verið um
óvænt úrslit, nema þá helzt að
Wade vann Pomar í fyrstu um-
ferðinni, en íslenzkir skákunn-
endur þekkja nú Wade kallinn
svo vel, og vita. að hann luniar
Framhald á bls. 14.