Tíminn - 16.07.1967, Blaðsíða 3
, % '> •• ■> *. í.-
'V < X % s-.
•SííSiHíÍÍWÍíÍ;
o' *
X \
'llWliillih^l
STJNNUDAGUR 16. júlí 1967
TÍMINN
Konan hér á myndinni heitir
Sheila Scott og er áhugaflug-
maður. Hún setti fyrir
skemmstu heimsmet í eins
manns flugi frá London til
Höfðaborgar. Tíminn. sem það
tók hana að fara þangað voru
þrír dagar, tvær klukkustund
ir og fimmtíu og tvær mínút-
ur. Fyrra metið átti Amy John
son og var það sett fyrir 31
ári og var Amy þrem klukku
stundum og þrjátíu og fjórum
minútum lengur.
*
Þriðjungur allra glœpa
sem framdir eru í Frakk-
landi eru framdir í borginni
Marseilles. Árið 1966 voru
framin 497 morð í Frakklandi
þar af 136 í Marseilles.
★
Frá því árið 1963 til ársins
1966 hefur fjöldi fólks- og
vörubifreiða vaxið úr 15 mill-
jónum og 560 þúsundum upp í
18 milljónir. Fjöldi þeirra sem
létust í umferðaslysum á þess
um árum jókst úr 10.227 i
12.333.
★
Brezki gamanleikarinn frægi
Peter Selles, mun innan
skamms fara að leika í ind-
versk-amerískri kvikmynd,
sem nefnist The Alien. Stjórn-
andinn er Indverji og hefur
hann einnig skrifað kvik-
myndahandritið, Kvikmyndin
verður meðal annars tekin í
Bengal.
í SPEGLITÍMAIMS
Það er heldur óskemtilegur
starfi að vera hermaður í
styrjöld, en útyfir tekur þó
í flestum tilfellum, að þurfa
☆
Innan um gamlar bækur,
sem komið var með til viðgerð
ar í Padua eftir flóðið mikla
í Flórens, fannst partur af
gömlu pergamenti. Pergament
ið var athugað og var það dr
Sambi próf. í Padua sem það
Og þessi mynd er frá St.
Péturs-torginu fyrir framan
Páfagarð í Róm, en þar var
mikið um dýrðir nýfega, þeg
ar páfinn vígði 27 nýja kardi
nála. Byggður var upphækk
aður pallur á torginu og þar
fór vígslan fram að viðstödd
um tugiþúsundum áhorfenda.
að berjast um rigningartímann
í hitabeltislandi. Þessir banda
rísku hermenn í Vietnam
reyna að hvilast í ausandi
gerði. Komst bann að raun um,
að á pergamentið voru rituð
nokkur erindi úr Vita Nuova
eftir Dante og lýsa ást skálds
ins á Beatrice. Er þetta elzta
handrit, sem inniheldur kveð
skap eftir Dante og telur
Sambi prófessor, að það hafi
verið ritað af skrifara á 14.
öld, sennilega á meðan Dante
var enn á lífi. Elzta handritið
sem til er af Vita Nuova er
prentað og gefið út í Flórens
1576.
í vikunni, sem leið lézt í
Montpellier í Frakkilandi skáld
rigningu, eftir að hafa verið
langtímum saman í stöðugri
hættu og baráttu við leyni-
skyttur.
konan Albertine Sarrazin. Hún
fæddist í Alsír árið 1937. Móð
ir hennar var aðeins fimmtán
ára gömul spænsk stúlka,
faðir hennar sennilega frá
Alsír. Hún kynntist aldrei for-
eldrum sínum og þegar hún
var tveggja ára gömul tóku
frönsk hjón hana að sér. Heim
ilislífið á þessu æskuheimili
hennar sem var í Marseilles
var ekki sérlega gott, húsbónd
inn yfirráðagjarn og þegar hún
var 16 ára gömul strauk hún
að heiman peningalaus og alls
laus og fór til Parísar á þumal
fingrinum. Þar gerðist hún
fljótt gleðikona og leið hennar
lá ýmist í fangelsi eða heimili
fyrir afvegaleiddar stúlkur og
þaðan strauk hún jafnharðan.
Á einni af flóttatilraunum sín
um kynntist hún innbrotsþjóf,
Julie Sarrazin sem var þrettán
árum eldri en hún og hann
hjálpaði henni á flótta henn-
ar. Síðar giftust þau og hún
tók að skrifa skáldsögur, sem
aflaði þeim það mikilla tekna
að þau gátu hætt sínum fyrri
iðjum, sem hafði orsakað það
að þau sátu samtals í tuttugu
og sex ár í fangelsi, Julien í
nítján, hún í sje.
Alibertine hefur aðeins skrif
að þrjár bækur. Fyrir tvær
fyrstu bækurnar „La Cavale“
og „L‘Astragale“ fékk hún
frönsk bókmenntaverðlaun,
sem tryggðu bókum hennar
sölu og henni sjálfri frægð.
Bækur hennar eru taldar mjög
berorðar og hispurslausar og
hún hefur notfœrt sér í þeim
þekkingu sína á lífi vændis-
kvenna og innbrotsþjófa. Einn
ig hefur hún skrifað um ástir
milli tveggja kvenna og hef
ur nafn hennar oft verið nefnt
í sömu andrá og nafn ritihöf
undarins Jean Genet, í því til-
viki. Albertine hafði verið
skorin upp vegna berkla í öðru
nýranu og fékk hjartaslag eft
ir uppskurðinn og lézt.
Kvikmyndaleikkonan sænska
Ingrid Thulin ætlar nú að fara
að leika í sænskri kvikmynd,
sem nefnist Badarna. Er þetta
fyrsta hlutverk hennar í
sænskri kvikmynd í tvö ár en
síðast lék hún í kvikmyndinni
Nattelek, sem Mai Zetterling
stjórnaði og sýnd var hér í
Stjörnuibíói skömmu eftir ára-
mótin.
★
Nýjasta útflutningsvara Dana
eru andafætur. Hefur slátur
hús nokkurt í Svendborg gert
samning við fyrirtæki í Hong
Kong um að selja þeim fimm-
tíu þúsund andafætur. í Kína
eni andafætur notaðar í súpu
og þykja hið mesta hnossgæti.
*
Franska lögreglan bjargaði
árið 1966 420 sundmönnum frá
drukknun og 1,553 fjallgöngu
mönríum úr háska.