Tíminn - 16.07.1967, Qupperneq 16
SETT UPP FULLKOMIÐ FÆRl-
BANDAKERFI j SLATURHÚSI
KAUPFÉLAGS BORGFIRÐINGA
GÞE-Reykjavík, laugardag.
Framkvæmdir standa nú yfir að
fullum krafti í Borgarnesi við upi»
setningu færibandakerfis fyrir
slúturliúsið nýja, en það kemst
vænlanlega í gagnið fyrir næstu
sláturtíð, að því er Pétur Ingiinund
ai-son sláturhússtjóri tjáði blaðinu
Á sl. hausti var sett upp í slát
urtiúsinu slíkt færibandakerfi til
tilrauna og þótti gefast ákaflega
vel, og aðalkostur þess var, hve
fljótvirkt það var. Þetta kerfi var
þó ekki ætlað til frambúðar, bæði
vegna þess að það var alltof lítið
fyrir þarfir Borgifirðinga, og eins
hefði uppsetning kerfisins og út-
færsla ekki verið miðuð við fram-
tíðarnotkun, enda var það ekki not
að að fullu við siátrun á sl. hiausti.
Fallhiffastökk er íþrótt, sem lít-
i5 hefur verið stundað hér á
landl tll þessa, en á fimmtudags
kvöldið voru 7 menn að æfingu
upp á Sandskeiði að meðtöldum
kennaranum, Eiríki Kristinssyni.
Hann segir okkur, að nú séu 14
piltar i þjálfun hjá sér. en
falhlifastökkið er kennt á vegum
Flugbjörgunarsveitarinnar og
enn Sem komið er hefur því
ekki verið hægt að þjálfa aðra
en félaga í henni, Eiríkur er f
sjálfur útlærður i falihlffa- s
stökki frá Bandaríkjunum, en »
þar var hann við nám i fyrra
sumar. (Tímamynd ísak)
........ ' IT I------------------"
Kerfi það, sem tekið verður í notk
un nú í hau.st getur afkastað þrjú
þúsund kindum á 10 tíma vinnu-
degi, en eftíir því sem Pétur Ingi
mundarson sagði, verðnr ekki farið
upp í fu.il afköst til að byrja með,
heldur farið hægt í sakirnar.
Kvaðst Pétur ekki getað ímyndað
sér annað en þessi færibandakerfi
yrðu tekin í notkun í slátuirbúsum
um allt land, er fram líða stundir,
en svo sem fram he\ur komið í
fréttum hefur verið hafizt handa
um upp.setningu 9líkra kerfa við
sláturhú.sin á Búðardal og Húsa-
vík. Uppsetningu kerfisins í Borg
arnesi hefur annast Fjólmundur
Karlsson, en teikningar eru gerð
ar á Teiknistofu' 9ÍiS, samkvæmt
bandarískum og ný-sjálenzkum
hugmyndum.
Þess má að lokum geta, að fyrir
huguð er stækkun slátuphússins í
Borgarnesi, en óráðið er, hvenœr
framkvæmdir hefjast, og ekki hef
ur heldur verið ákveðið, hversu
miklu stækkunin á að/nema.
Flytur fyrirlestra um
Baha'íta.
GÞE-Reykjavík, laugardag.
í dag kemur hingað til lands á
vegmm Bahá'ita í Reykjavík kana
disk dansmær og kennari Nancy
Campell, og mun hún halda hér
fyrirlestra um Bahá'itakenningarn
at; en hún hefur verlð aðili að
Babá'ítahreyfingunni urii langt áfá
Framhald á bls. 14.
Lítið af túnum mun tví
slegið á þessu sumri
HEYFENGUR SENNILEGA MUN MINNI EN í MEÐALÁRI
FB-Reykjiavík, laugardag.
Við vonumst til, að veðráttan
verði sem heitust og bezt á næst-
unni, svo að gras vaxi upp úr því
sem óskemmt er af túnum bænda
á þessu sumri, og síðustu dag
arnir hafa í rauninni verið fyrstu
sumardagarnir, sagði Halldór Páls
son búnaðarmálastjóri, þegar við
spurðum hann um horfurnar í
heyskaparmálum bænda almcnnt
í landinu. Hann sagði einnig, að
augljóst væri, að mjög lítið af
túnum yrði tvíslegið að þessu
sinni, og að víst væri, að hey
skapur yrði með ininna móti og
minni en i meðalári. Hve miklu
minni væri auðvitað ekki hægt
að segja neitt um enn seni kom
ið er. en nauðalítinn hjá þeim, er
verst hafa farið út úr kalinu á
þessum vetri og vori.
— Það lítur ákaflega illa út
með heyskap á Norðurlandi öllu
saman, sagði Halldór, að undan-
teknum smásvæðum, sem hafa
sloppið tiltölulega vel. Bæði er
geysimikið uin kal, eins og kom-
ið hefur fram, en það er mjög
misjafnt frá einni sveit til ann-
arrar og einum bæ til annars,
frá því að vera hér um bil öll
túnin á einstaka bæ, og niður i
ekkert kal á sumum þæjum, som
betur fer. Jafnvel eru heilar sveit
ir. sem mjög iífið eða ekkert er
kalið í, og þar er grasvöxtur sæmi
legur.
Ef litið er á Norðurland í heild,
allt frá Langanesi og vestur á
Vestfirði, er allt meira og minna
kalið, þótt verst sé ástandið að
sjálfsögðu í Axarfirði, Keldu-
hverfi og Þistilfirði. Ofan á þetta
bætist, að spretta hefur verið
mjög seint. á ferðinni á þessu
svæði, og raunar á öllu landinu.
en víða hefur þó að lokum farið
að gróa þessa síðustu daga, sem
hafa verið fyrstu sumardagarnir,
víðast hvar. Á Suðurlandi er sums
sfcaðar góð slægja, en almennt er
það ekki orðið, en nokkuð marg
ir eru byrjaðir að slá sunnan-
lands. Á Austu.Tlandi hei'ur verið
mjög kalt og spretta seint á ferð-
inni, en ný köl eru óvíða á Aust-
fjörðum, en þó er það til í
Hjaltiastaðaþinghánni, þar sem
mikið er af nýjum kölum, en þar
kól mikið í hitteðfyrra.
Við spurðum búnaðarmála-
stjóra, hvort kalið á þessu vori
væri jafn mikið og á Austurlandi
fyrir tveim áru-m, og hvort grípa
yrði til þess að setj-a upp aðra
kalnefnd til þess að skipuleggja
hjálparaðgerðir til handa þeirn
bændum, sem verst hafa orðið
úti.
— Það er ekki gott að segja
á þessu stigi málsins, svaraði
Halldór. Á sLinum jörðum er
kalið ennþá meira en það var á
Framhald á bls. 14.
Sumarhátíö
í Vestur-
isafj.sýslu
Sumarhátíð Framsóknar-
manna í Vestur-ísafjarðar-
sýslu verður haldin í félags
heimilinu á Suðureyri við
Súgandafjörð laugardaginn
22. júlí og hefst kl. 21.00.
Ræður o-g ávörp flytja
Bjarni Guðbjörnsson, banka
stjóri, ísafirði Steingrimur
Hermannsson, framikvæmda
stjóri, Reykjavík og Ólafur
Þórðarson kennaranemi frá
Suðureyri. Karl Einarsson
gamanleikari og Jón Kristj-
ánsson gamanvísnasöngvari
skemmta. Hljómsiveit frá
Ísaíirði leikur fyrir dansi.
Steingrímur Bjarni
Sumar
feröin
Sumarferð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík verð
ur að þessu sinni farin til
Vestmannaeyja með m.s.
Esju. Farið verður á hádegi
laugardaginn 29. júlí frá
Reykjavík og siglt til Vest-
mannaeyja. Heimaey verð-
ur vandlega skoðuð, meðal
annars farið út á Stórhöfða
í Herjólfsdal, og þeir, sem
vilja, geta gengið á Helga-
fell. Frá Vestmannaeyjum,
verður farið eftir hádegi á
sunnudag, og siglt i kring-
um eyjarnar og til Surts-
eyjar. Komið til Rvíkur á
sunnudagskvöld. Farmiða-
pantanir og upplýsingar á
skrifstofu Framsóknarflokks
ins í síma 2-44-80 og 1-60-66
Ferðafélgaið er um þessar mund
ir að byggja sæluhús við Tjald
vatn i Velðivötnum eins og sagt
befur verið frá áður. Þetta á
að verða 50 manna skáli. og er
hann smíðaður úr tré með
steyptum undirstöðum. Skálinn
virðist ætla að verða hið reisu-
legasta hús, ef dæmt er eftir
myndinni, sem tekin var i vik
unni, þar sem sjá má að smíð
in gengur vel. (Ljósm. BJ)