Alþýðublaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 30. mal 1987
Mennjngarhátíð
á ísafirði
í NÝJU
FLUGSTÖÐINNI
ER
BANKI
ALLRA
LANDSMANNA
Landsbanki íslands býður alla bankaþjónustu í nýju
flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
I brottfararsal er opin afgreiðsla atla daga
frá kl. 6.30-18.30. Áhersla er lögð á gjaldeyrisviðskipti, ferðatryggingar
og aðra þjónustu við ferðamenn.
Á næstunni opnar svo fullkomið útibú á neðri hæð byggingarinnar.
Afgreiðslan í gömlu flugstöðinni verður starfrækt með hefðbundum hætti.
Við minnum einnig á nýja afgreiðslu á Hótel Loftleiðum,
þar sem m.a. er opin gjaldeyrisafgreiðsla
alla daga frá kl. 8.15-19.15.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra efnir til menningar-
hátíðar á Isafirði i samvinnu við
bæjarstjórn ísafjarðar dagana
3.—6. júní n.k. Þessi M-hátíð á ísa-
firði verður með mjög líku sniði og
M-hátíðin sem efnt var til á Akur-
eyri á liðnu sumri.
Á M-hátfð verður m.a. frumflutt nýtt
leikrit eftir Njörð P. Njarðvlk.
Menntamálaráðherra hefur lýst
því yfir, að tilgangur með M-hátíð-
um sé að vekja athygli á varðveislu
tungunnar, og einnig að vekja at-
hygli á þeim menningararfi sem
byggðirnar geyma. Þótti sýnt með
M-hátíðinni á Akureyri í fyrra, að
full þörf er fyrir sérstakar menning-
arhátíðir í byggðarlögum með
stuðningi menntamálaráðuneytis-
ins, enda komu þá fyrir almanna-
sjónir menningarverðmæti, sem
alltof oft eru látin liggja í láginni.
Má í því sambandi minna á yfirlits-
sýningu á málverkum frá akur-
eyrskum heimilum, sem vakti mikla
athygli.
Auðvitað setur hver staður sinn
svip á M-hátíð, og svo verður um
hátíðina á ísafirði, sem tengist Vest-
fjörðum öllum, eins og hátíðin á
Akureyri tengdist Norðurlandi
eystra.
M-hátíðin á ísafirði hefst á mið-
vikudagskvöld 3. júní með sýningu
Leikfélags Flateyrar á leikritinu
Orðabelgur í sal grunnskólans á
ísafirði. Daginn efti'r, á fimmtudag
4. júní hefst sýning á málverkum úr
Listasafni íslands í frímúrarasaln-
um á ísafirði. Menntamálaráðherra
mun flytja ávarp við það tækifæri
ásamt bæjarstjóranum á ísafirði
Haraldi L. Haraldssyni. Þá syngur
Guðrún Jónsdóttir nokkur lög.
Sýningin verður opin frá kl. 20.00
til 22.00 og kl. 15.00—18.00 og kl.
20.00—22.00 um helgar til 15. júní.
Þarna verða sýnd verk eftir gamla
og nýja meistara. Um kvöldið setur
svo menntamálaráðherra M-hátíð-
ina formlega í Félagsheimilinu í
Hnífsdal, áður en frumsýning hefst
á nýju íslensku leikriti Þjóðleik-
húss, „Hvar er hamarinn?“ eftir
Njörð P. Njarðvík. Tónlist við leik-
ritið samdi Hjálmar H. Ragnars-
son. Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. Leikmynd og búningar eru
eftir Sigurjón Jóhannsson. Með
hlutverk fara Erlingur Gíslason,
Lilja Þórisdóttir, Randver Þorláks-
son, Örn Árnason, Ólafur Örn
Thoroddsen, Valgeir Skagfjörð,
Eyþór Arnalds, Kristrún Helga
Björnsdóttir og Herdís Jónsdóttir.
Föstudaginn 5. júní hefst dag-
skrá kl. 18 í félagsheimilinu í Hnífs-
dal með sýningu fyrir unglinga og
fullorðna á verki Njarðar P. Njarð-
vík, „Hvar er Hamarinn?“ Um
kvöldið verður svo efnt til sam-
felldrar dagskrár í Alþýðuhúsinu á
ísafirði, en flutning dagskrár ann-
ast félagar úr Litla leikklúbbnum.
Tónlist er undir stjórn Jónasar
Tómassonar. Stjórn dagskrárflutn-
ings annast Oddur Björnsson. Flutt
verður efni úr skáldverkum eftir
Vestfirðinga og vestfirsk tónlist. Má
nefna upplestur úr „Söguköflum af
sjálfum mér“ eftir Matthías
Jochumsson, samlestur úr „Krist-
rúnu í Hamravík" eftir Guðmund
G. Hagalín, sögu eftir Fríðu Sigurð-
ardóttur og leikþátt úr „Manni og
konu“ eftir Jón Thoroddsen. Um
kvöldið verður hátíðardansleikur í
Sjálfstæðishúsinu, og hátíðardans-
leikur fyrir unglinga í Félagsmið-
stöðinni Sponsið.
Laugardaginn 6. júní verður efnt
til sérstakrar hátíðardagskrár í fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal kl. 14.00.
Stjórnandi dagskrár verður Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, forseti
sameinaðs Alþingis. Kristinn Jón
Jónsson forseti bæjarstjórnar á ísa-
firði flytur ávarp, en síðan mun
Sverrir Hermannsson flytja erindi
um Jón Sigurðsson forseta og Vest-
firðinga. Þá Ieikur Anna Áslaug
Ragnarsdóttir einleik á píanó,
Björn Teitsson, rektor, flytur erindi
sem nefnist „Framtíð íslenskrar
tungu“. Eftir kaffihlé, sem gert
verður að lokinni ræðu rektors,
flytur Sigfús Daðason, skáld, er-
indi um Stein Steinarr, skáld. Helgi
Þorláksson, cand. mag., flytur er-
indi um Jón Indíafara, en að því
búnu les Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, skáld á Kirkjubóli, ljóð
eftir sig. Hátíðinni lýkur með því að
Sunnukórinn á ísafirði syngur und-
ir stjórn Beata Joó.
Fyrirhugað er að útvarpa beint
frá hátíðarhöldunum, einkum dag-
skrá á föstudag og laugardag. Er
þess að vænta að Vestfirðingar fjöl-
menni til M-hátíðar á ísafirði, einn-
ig þeir sem á brott eru fluttir.
Utanríkisþjónustan:
Sendiherraskipti
Þórður Einarsson, sendiherra,
mun í haust taka við starfi sendi-
herra íslands í Stokkhólmi.
Sveinn Björnsson, sendifulltrúi í
London, hefur verið skipaður
sendiherra í utanríkisþjónustu ís-
lands frá 1. október n.k. og mun
hann þá taka við starfi prótókoll-
stjóra utanríkisráðuneytisins og
fastafulltrúa íslands hjá Evrópu-
ráðinu.
Árbæjarsafnið opnað
Árbæjarsafnið opnar á sunnu-
daginn, 31. maí. í sumar verður
safnið opið frá kl. 10—18.
Meðal nýjunga hjá safninu er
sýning á gömlum slökkviliðsbílum,
sýning um fornleifauppgröft í
Reykjavík og sýning á Reykjavíkur-
líkönum.
Verkamannabústaöir:
Eigendur íbúða
stofna samtök
Hinn 1. maí 1987 voru stofnuð í
Reykjavík „Samtök eigenda íbúða í
verkamannabústöðum“.
Tilgangur samtakanna er að
gæta hagsmuna félagsmanna sem
forsvarsaðili gagnvart löggjafar- og
framkvæmdavaldi og veita félags-
mönnum sínum ráðgjöf.
Samtökin eru landssamtök. Að-
ildarrétt á sérhvr eigandi íbúðar í
verkamannabústað og umsækjend-
ur slíkra íbúða.
Framhaldsstofnfundur samtak-
anna verður haldinn í sumar, þegar
fyrir liggur félagaskrá og drög að
lögum samtakanna hefur verið
kynnt félagsmönnum.
Stjórn samtakanna hefur opnað
skrifstofu að Smiðjustíg 13,
Reykjavík, sími 623420. Skrifstofan
er opin mánudaga til föstudaga kl.
10—12 og 14—17. Lögfræðingur
samtakanna hefur simaviðtalstíma
alla virka daga kl. 13—16 í síma
15408.