Alþýðublaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 19

Alþýðublaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 19
Laugardagur 30. maí 1987 19 O'" t6.00 2 Footbal/ AssociatÚÉ. SAT-» J6 MAY, 1987 , WCK-OFF 3 YOU AHE ADVIsfB i. tm, «2S*ltPO*'T»« **%SSSZg*r.*-K*. ■ NORTH TERRACE S|jft7 - ---- TSAFETy fence V)EW nn Að berjast og sigra — eða tapa. Áhorfandinn sér sitt eigið líf endur- speglast í leiknum. Liðið hans er holdtekning sigra hans ílífinu og and- stœðingarnir fulltrúar þess sem mið- ur fer. svona sérstaka? Af hverju fara allar þessar þúsundir útá knattspyrnu- vellina til að hvetja liðið sitt til dáða? Af hverju sitja milljónir manna fyrir framan tækin sín og horfa á leiki? Um þetta hafa verið skrifaðar miklar og langar bækur og skýringarnar eru eins margar og mennirnir eru margir. Eftir slysið mikla í Brussel 1985 þegar nokkur hundruð ítalir biðu bana í slysi, sem varð eftir áflog milli Liverpool- aðdáenda og Juventusmanna, skrifaði ítalski rithöfundurinn Umberto Eco merkilega grein. Hann taldi, að áhorfendur fylgdust með íþróttakappleikjum af sömu ástæðu og Rómverjar hinir fornu horfðu á gladíatora sína slást. Þeir vildu sjá blóð, spennu og bardaga. Slysið í Brussel og leikurinn sem eftir fór voru því að áliti rithöfund- arins hin fullkomna skemmtun, þar sem áhorfendur fengu bæði blóðið og dauðann og auk þess knatt- spyrnuleik, sem kannski var óþarf- ur þar sem tilgangi hans var náð áð- ur en hann hófst. Hlutverkaskipti á velli: Frá sjónarhorni knattspyrnu- áhugamannsins hljóma svona hug- leiðingar eins og hálfgert nöldur en Umberto hefur nokkuð til síns máls. Á knattspyrnuvellinum fær maður útrás fyrir ákveðna árásar- girnd og reiði útí allt, sem hrellir mann. Dómarinn verður að per- sónugervingi valdsins sem alls stað- ar blasir við manni, hann verður fulltrúi lögreglunnar, skattstofunn- ar, stöðumælavarðanna og fólksins hjá Hagstofunni. Þegar maður æp- ir: „Drepum dómarann“, er maður í raun að hrópa niður allt vald, sem misbýður manni á öllum tímum. Andstæðingaliðið er fulltrúi alls þess, sem maður er andvígur og lið- ið sem maður heldur með er fulltrúi manns sjálfs. Þegar ég æpti og öskraði þegar Tottenham skoraði var ég að fagna eigin sigrum, mér leið vel meðan þeir voru yfir í leikn- um og sjálfsvirðingin mín jókst til mikilla muna. Coventry menn voru fulltrúar alls hins sem mér leiddist í lífinu, þegar ég baulaði á þá var ég að baula á ýmsa einstaklinga úr eig- in lífi, og þegar þeir skoruðu var eins og einhver hefði gert mér per- sónulegan óleik og og hoggið inná mitt umráðasvæði. Þegar Coventry hafði sigrað leikinn og maður sjálf- ur gekk hnípinn heim á leið undir fagnaðaröskrum aðdáenda þess liðs þá leið mér svona eins og mér líður stundum þegar konan mín hefur haft mig undir í rökræðum eða þegar flokkurinn minn hefur tapað kosningum. Ég hafði beðið enn einn ósigur og á þeirri stundu voru þeir Coventrymenn fulltrúar alls þess sem mér leiðist í lífinu, ameríska hersins á Miðnesheiði og sænskra þjóðrembumanna og alls þar á milli. Boltinn rúllar aftur: En knattspyrnuáhugamenn eru fljótir að jafna sig og lífið heldur áfram og það er jú kostur knatt- spyrnunnar, að alltaf koma ný tækifæri, boltinn fer aftur að rúlla í næstu umferð og þá er vonandi hægt að ná fram hefndum. Leikar og brauð fyrir lýðinn átti einhver rómverskur keisari að hafa sagt ein- hvern tímann. Og ég vil hafa leika og brauð fyrir mig um ókomna framtíð. íþróttamenn eiga að vera vel launaðir og fólk á að hætta að fjargviðrast útaf íþróttunum í sjón- varpinu. Þjóðfélagslegt gildi þeirra fyrir sálarheill áhugamannanna er meira en sumir gera sér grein fyrir. Mér finnst ég skilja betur og betur gildi knattspyrnunnar, gildi íþrótta- kappleikja, gildi afreksmanna, og gildi þess að taka þátt í keppnum sem áhorfandi. Mér leið betur eftir að hafa farið á báða þessa leiki þrátt fyrir ósigur minna manna í öðrum leiknum og jafnteflið í hin- um. Ég var hluti af heild, ég var ekki einn, ég var þátttakandi í því sem var að gerast, ég var ekki einangrað- ur og einn, ég var lifandi, ég var manneskja. Óttar Guðmundsson skrifar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.