Alþýðublaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 15
Laugardagur 30. mal 1987
15
Von Veritas í Danmörku:
SKULDAR
70 AÐILUM
UM 50 MILUÓNIR
Stœrsta skuldin um 20 milljónir en
minnstu reikningarnir allt niður í 2
þúsund. Bókhald í ólagi. Engar
greiðsluáœtlanir. Enginn leyndar-
hjúpur yfir staðreyndum slíkra mála
í Danmörku.
íslensk-danska afvötnunarstöðin
Von Veritas fékk greiðslustöðvun
sina framlengda um þrjá mánuði á
mánudaginn. Það er þó alls óvíst
hvort unnt verður að halda rekstri
stöðvarinnar áfram eftir að
greiðslustöðvun lýkur. Skuldirnar
nema alls hátt í 50 milljónum ís-
lenskra króna og Ijóst er að kostn-
aðaráætlanir sem gerðar voru í
upphafi voru óraunhæfar með öllu,
auk þess sem gerð hafa verið alvar-
leg mistök í rekstrinum.
Dönsk blöð hafa fjallað talsvert
um yfirvofandi gjaldþrot stöðvar-
innar og því var m.a. nýlega slegið
upp á forsíðu blaðsins „Ny dag“ að
einn forsvarsmannanna, Björgólf-
ur Guðmundsson, væri flæktur í
stærsta og alvarlegasta fjármála-
hneyksli íslandssögunnar.
Tvö fyrirtæki
Von Veritas er eiginlega tvö fyrir-
tæki. Annars vegar meðferðarstöð-
in sjálf sem ber þetta nafn og hins
vegar er um að ræða sjálfstætt félag
um húseignir þær sem meðferðar-
stöðin er rekin í. Samkvæmt frá-
sögnum dönsku blaðanna eru hús-
eignir þessa félags veðsettar fyrir
a.m.k. tvöfaldri þeirri upphæð sem
hugsanlegt er að fengist fyrir þær.
8,6 milljónir danskar
Samtals nema skuldir félaganna
beggja um 8,6 milljónum danskra
króna, eða rétt um 50 milljónum ís-
lenskum. Á eignahliðinni er nokkru
fátæklegra um að litast. Þar stend-
ur fyrst og fremst húseignin, sem
metin er á þrjár og hálfa danska
milljón, sem svarar til um tuttugu
milljóna islenskra króna.
Alþýðublaðinu hefur borist listi
yfir þessar skuldir og er á honum að
finna samtals upp undir 70 nöfn
ýmissa aðila sem telja til skuldar
hjá meðferðarstöðinni og húseign-
arfélaginu.
íslensk nöfn á listanum
Tvö íslensk nöfn er að finna á
skuldalista Von Veritas. Fyrirtækið
skuldar Gunnari Rósinkranz,
75.000 kr. danskar og Pálma
Benediktssyni, sem búsettur er í
Danmörku, ríflega sex þúsund
danskar krónur. Það virðist því
ekki vera bara stóru reikningarnir
sem hafa verið látnir mæta afgangi.
Á Iistanum er reyndar einnig að
finna smáskuldir, allt niður í 500 kr.
danskar, eða innan við 3000 ís-
lenskar.
Óraunhæfar áætlanir
Svo virðist nú sem þær áætlanir
um rekstur meðferðarstöðvarinnar
sem gerðar voru í upphafi, hafi ver-
ið afar óraunsæjar og jafnvel gerð-
ar með það fyrir augum að afla
trausts lánveitenda.
Lagt var í gífurlegan kostnað við
innréttingar í húsinu og Carl Jessen
hjá fyrirtækinu „Rosningen sav-
værk“ segir í viðtali við eitt dönsku
blaðanna að unnt hefði verið að
spara milljón danskar krónur, eða
ríflega tíunda hluta heildarskuld-
anna, á byggingaframkvæmdun-
um.
Stjórnendur Von Veritas vissu, að
sögn sama blaðs, þegar fram-
kvæmdirnar stóðu yfir, að ekki
væru til peningar til að borga iðn-
aðarmönnunum, en engu að síður
létu þeir framkvæmdirnar halda
áfram. Dönsku verktakarnir eru yf-
ir sig hissa á þessum hugsunar-
hætti, en hann þarf kannski ekki að
koma íslendingum jafn mikið á
óvart.
Peningarnir fóru í skattinn
Ástæðan fyrir því að dönsku
verktakarnir gáfust endanlega upp
á margsviknum loforðum forráða-
manna Von Veritas, var sú að þeir
komust að raun um að fram-
kvæmdastjóri Von Veritas, Ebber
Christensen, hafði, þvert gegn fyr-
irmælum stjórnar fyrirtækisins,
tekið þá peninga sem áttu að renna
til verktakanna og greitt dönskum
skattyfirvöldum.
Hér var um að ræða eina milljón
danskra króna, sem hefði dugað til
að greiða iðnaðarmönnunum uin
helming þess sem þeir áttu inni.
Þegar þetta kom í ljós, ákváðu iðn-
hos Von Veritas
Skylder seks miH
kroner væk efter
et halvt ars
En n»*í«rc
repiáJ'x'i
Bctundlmpo
lobcl af
npaibcpki «» :
Vnnp xcVn milli
úmpcllln
■lighxlM p* gc
Guldbr
retter kritik mod Von Veritas.
ÍBobestyrer
ouucaij'iv" ■ --
Ledelsen af centret
Htryæret for dáriig
belalc 30 proccnl a( gxldcn Nul konkurS
ul hind*xiVerne. rom d Mjchacl Lunoe mc
fenlc afdiag. Dc 30 pioccm d,IeVl«« Ebhc Chncic
'ivarertUca. 600.000Vi. CI 1(jdl nlb.ice. t<>
Sat for hojt hjndlcdc niud 'in t-c
Saccn cndic i (Vificiellcn. dj han acndie l
chacl Lun<<c fu Kobcnhj< n dcl f« at bclatc
ul bobcdytei. MKhael Lun<<c ne cl,
ikal nu mdcn 25. ma) J(C''« . DiicVnn ; ^4
om.VonVcnU'i VcMciboig otdcmlicl '
kan oveitcve dcn oknnomi- jJdan
tkc Vn<c AdvoVaicn ei Ijngi en n* lci'./^T>
(,a iilficds mcd pljnlxgmn- ^
AUcicdc mcns, byggencl Ul , *igc
:Von Veiiu»<enlicl i Vetlei- n**'
boig ’rtod pl. *a« ledcUen , ceni
Tage. ved næsen
Da Ebbe Chriítensen lild- j.llc[ hvad Ny Dag eifa
le til lom diiekioi. miuc han V1due Von Veriias alten
aammcn mcd lcdclven lxfgc mcns byggcncl stod pl,
hell uicalimvkc budgellci. Vavven vai lom. nw" alligi
If palicnlci Wcv hl, icdclven ladcl hind'
kcine foiivxue a'be)
ke palienlci lil Dcifoi folet de involvci
andlingvccnlicl hindvxikcine ug godi
ií foihlnd. cn grundigt ugcl ved nxven
íed pjcbUVVclig.——Vdn Vcriia* aial de»<
af bobe-_''juveujnclbygguictudi
Vokat'-Michaclrf. et budccl. og dcl
‘ foid da d.icklö, Lbbc <
ii tlandKde foi llensen , cflciiiel 1VS6
len beialmgeine (|| al ccnlicl fik *tyt p
ollandske hind- Ovonomi
nu med cl kiav tbbe Oiritlentcn bli
lo millionci vio- uenie mcd betlyicl
labcl. lUndvxi- Von Veniat omknng d
ovci ai fi ccniici jf cenl(el og han ,ndv
ikun. men (oic- rinlfsvediapnl
'on Venlat og *■", ’ .. de.
|‘ki,Ut'i RV°unm'. cn óíd.c f.a bctfy.clte
han. og idag tkal
nlfort meie Vapiial. I
cl tkal oveilcvc.
fia Rotningen
e al fotvektle
Vuclikabct) ct
MvxiVcic. Ilan
Vcnus hji
>sen til Naksko
Dönsku dagblööin hafa flutt margar fréttir um yfirvofandi gjaldþrot Von/Veritas I Danmörku og sum þeirra notaö
stór lýsingarorð.
aðarmennirnir að bíða ekki lengur
og þeir lögðu inn beiðni um að Von
Veritas yrði tekin til gjaldþrota-
skipta.
Ekki mikið til skiptanna
Bústjóri sá sem danski skipta-
rétturinn setti yfir Von Veritas, hef-
ur ráðið iðnaðarmönnunum frá því
að krefjast gjaldþrots á þeim for-
sendum að þeir muni ekki ná fjár-
munum sínum á þann hátt. Bú-
stjórinn, Michael Lunoe, telur sem
sagt ekki mikið vera til skiptanna,
ef meðferðarstöðin yrði nú tekin til
gjaldþrotaskipta.
Kröfur iðnaðarmannanna sem
fóru upphaflega fram á gjaldþrot-
ið, námu um tveim milljónum
danskra króna, eða tæpum fjórða
hluta af því sem skuldirnar reynd-
ust vera þegar allt hafði verið talið.
AB-finans stærsti
kröfuhafinn
Stærsti kröfuhafinn í þessu máli
er fyrirtækið AB-finans, sem er
fjárfestingarfyrirtæki Amager-
bankans í Kaupmannahöfn. Skuld-
ir Von Veritas við þetta fyrirtæki
nema alls hátt á fjórðu milljón
danskra króna og eru til komnar
einkum af tveim ástæðum. Annars
vegar lagði fyrirtækið talsvert fé í
undirbúning að stofnun meðferðar-
stöðvarinnar og hins vegar hefur
það lánað einstaklingum fyrir með-
ferðarkostnaðinum.
Lyfjareikningurinn
ógreiddur
Af skuldalista fyrirtækisins að
dæma virðist sem enginn greinar-
munur hafi verið gerður á því hvaða
reikningar voru greiddir og hverjir
ekki. Áður er minnst á mjög lága
reikninga sem ógreiddir eru, en á
listanum eru líka ýmsir aðilar sem
meðferðarstöðin hlýtur óhjá-
kvæmilega að þurfa að hafa tals-
verð viðskipti við og kemst því varla
hjá að gera upp við nokkuð reglu-
bundið. Meðal þessara aðila eru t.d.
lyfjaverslun ein sem Von Veritas
skuldar nú um 25 þúsund kr. dansk-
ar. Einnig má nefna að mjólkurbú
eitt er á skuldalistanum. Upphæð-
irnar benda til að hér sé um nokkra
uppsöfnun að ræða, sem aftur
bendir til að efnahagsstaða Von
Veritas hafi verið orðin mjög slæm,
fyrst ekki var einu sinni unnt að
greiða slíka reikninga.
Tvær milljónir
útistandandi
I skýrslu Michaels Lunoe, sem
skiptaréttur skipaði bústjóra með-
an á greiðslustöðvuninni stendur,
kemur fram að Von Veritas á úti-
standandi um tvær milljónir
danskra króna, í vangoldnum með-
ferðargjöldum. Skuldunautarnir
eru sem sagt fyrrverandi sjúklingar
stöðvarinnar. Ekki kemur fram í
skýrslunni hvort félagið hafi full-
nægjandi tryggingar fyrir því að
þetta verði greitt. I dönskum blöð-
um hefur á hinn bóginn komið
fram að vegna dræmrar aðsóknar
að stöðinni í upphafi hafi verið
brugðið á það ráð að ganga ekki
hart eftir greiðslum.
Fyrir þetta hefur nú verið tekið
með öllu af hinum nýja bústjóra og
nú munu engir sjúkiingar vera tekn-
ir inn nema gjöldin séu greidd.
Fari svo að þessar útistandandi
skuldir fáist að lokum greiddar,
nema þær tæpum fjórðungi heild-
Jón
Daníelsson
skrifar
arskuldanna, en séu húseignirnar
taldar með, eiga fyrirtækin í sam-
einingu fyrir ríflega helmingi skuld-
anna.
Bókhaldið í óreiðu
í skýrslu bústjórans er vikið að
bókhaldi og það talið hafa verið af-
ar illa fært. Samkvæmt skýrslunni
virðist ekki hafa verið unt eiginlegt
bókhald að ræða, heldur einungis
færslur yfir það sem fór inn og út úr
kassanum.
Öll áætlanagerð varðandi
greiðslur og önnur fjármál var þar
af leiðandi lítil eða nánast engin.
Enginn þagnarhjúpur
Fyrir fjölmiðlamenn, sem hafa
þann starfa að miðla upplýsingum
til almennings, er einkar fróðlegt að
bera saman afstöðu danskra og ís-
lenskra yfirvalda og fyrirtækja í
málum af þessu tagi. Þegar Al-
þýðublaðið hringdi til hins nýskip-
aða bústjóra, Michaels Lunoe,
u.þ.b. tveim dögum eftir að
greiðslustöðvunin kom til fram-
kvæmda, veitti hann fyrirstöðu-
laust allar upplýsingar um þær
staðreyndir málsins, sem honum
voru kunnar. Af skrifum dönsku
biaðanna um þetta mál er lika ljóst
að engin fyrirstaða hefur verið gegn
þvi að staðreyndir málsins væru
gefnar upp.