Alþýðublaðið - 30.05.1987, Side 20
20
Laugardagur 30. ma( 1987
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
Tæknideild Laugavegi 77. R. Sími 28500.
ÚTBOD
Ólafsvík
Stjórn verkamannabústaða, Ólafsvík, óskar eftir
tilboðum i byggingu fjögurra ibúða, í tveggja
hæða sambýlishúsi, byggðu úr steinsteypu. Verk
nr. Z.04.01 úr teikningasafni tæknideildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 195 m2.
Brúttórúmmál húss 1249 m3.
Húsið verður byggt við götuna Vallholt, Ólafsvík,
og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á bæjarskrifstofum
Ólafsvíkur, Ólafsbraut 34, Ólafsvík og hjá tækni-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins, frá föstudeg-
inum 5. júní 1987 gegn kr. 5.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 23. júní n.k. kl. 11.00 og verða þau
opnuð viðstöddum bjóðendum.
f.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
yUMFERDAR
rAð
Hver flytur
17. júní ræðu í ár
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur heldur opinn
stjórnmálafund I nýbyggingu Hótel Sögu mánu-
daginn 1. júní n.k. kl. 20.30.
Áfundinum verðaþingmennirnir Jón Baldvin, Jón
Sigurðsson og Jóhanna Sigurðardóttir.
Jón Baldvin flytur framsögu um stjórnarmyndun.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Rafmagns-
iðnfræðingar
Raf magnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf-
magnsiðnfræðing til eftirlitsstarfa (veitueftirlit) í
innlagnadeild fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í
slma 686222.
Umsóknarfrestur er til 09. júní n.k.
k RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
1
Vinnuskóli Reykjavíkur
Leiðbeinandi óskast strax til að vinna með hópi
fatlaðra ungmenna. Vinnutími eftirsamkomulagi.
Upplýsingar í síma 622648 eða hjá Vinnuskólan-
um, Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, Borgar-
túni 3.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Guðmundur Einarsson skrifar
SÉRFRÆÐINGUR MINN
Sérfræðingur minn í stjórnar-
myndum segir að síðasti mánuður
hafi verið sér mjög erfiður. Fyrst
komu tvær vikur þar sem enginn
hafði formlegt umboð til stjórnar-
myndunar, en meiningin að menn
notuðu tímann til óformlegra við-
ræðna. Síðan fékk Steingrímur
formlegt umboð og þá hélt sérfræð-
ingur minn að formlegar viðræður
mundu hefjast. Svo var ekki, því
Steingrímur hélt óformlegar könn-
unarviðræður og skilaði síðan um-
boðinu. Þá fóru allir oddvitarnir í
formlegar viðræður við forseta ís-
lands í annað sinn og að þeim lokn-
um fékk Þorsteinn þetta formlega
umboð, sem Steingrímur skilaði.
Þorsteinn hóf þegar óformlegar
þreifingar við alla flokka og lýsti
því síðan að hann vildi hefja form-
legar stjórnarmyndunarviðræður
við krata og Kvennalista. Þá dugði
ekki minna en að skrifa bréf, svo
hægt væri að taka formlega afstöðu
til umleitunar Þorsteins. Kratar og
konur héldu náttúrlega formlega
þingflokksfundi og afgreiddu þess-
ar óskir Þorsteins.
Þá héldu menn að stjórnarmynd-
un væri loks að fara í gang enda
komnar fjórar vikur af viðræðum
og þreifingum.
Hins vegar kom þá í ljós að ekki
var hægt að funda nema 2-3 tíma á
dag því það vantaði gögn.
Stjórnmálamennirnir, sem voru
búnir að vera í kosningabaráttu og
lýsa ríkissjóðsafkomum og við-
skiptahöllum og voru líka búnir að
taka þátt í 4 vikna könnunum og
þreifingum, vissu nú ekkert lengur
um stöðu þjóðarbúsins.
Sérfræðingur minn sagði tvennt í
lokin. í fyrsta lagi finnst honum
þetta formlega viðræðurugl gengið
of langt. Annað hvort eru menn til
í að mynda stjórn eða ekki. Þá
skiptir engu máli hvort þeir eru með
formlegt umboð, hvort viðræðurn-
ar eru til þreifingar, könnunar eða
bara stjórnarmyndunar. Hann
sagðist hvergi finna neitt í sínum
plöggum um formlegt umboð.
Hann taldi að hvaða Pétur eða Páll
sem væri mætti mynda stjórn ef
hann hefði þingstyrk. (Að vísu taldi
hann vafa með Pál Pétursson, af því
að hann væri svo ofboðslegur fram-
sóknarmaður.)
í öðru lagi sagði sérfræðingurinn
að stjórnmálamenn væru að drepa
sig á þessum sífelldu útreikningum.
í stað þess að leggja Iínur og ræða
pólitík sætu menn lon og don og
pöntuðu útreikninga, læsu útreikn-
inga eða biðu eftir útreikningum.
Þannig kæmu menn sér hjá því að
taka á vandanum, sem væri um
stefnumörkun en ekki tölur með
þrem aukastöfum.
Sérfrœðingur minn
í borgarlífi
telur að Davíð Oddsson sé að gera
merkilega hluti í Reykjavík. Sér-
fræðingurinn telur meginóham-
ingju borgarbúans vera þá að hann
sé ekki lengur í snertingu við hætt-
urnar og spennuna, sem mannkyn-
ið þróaðist við. Þegar maðurinn
reikaði um í örófi aldanna voru
hætturnar á hverju strái, björgin
ultu niður eldfjallahlíðarnar, gufur
stigu upp úr eitruðum brennisteins-
fenjum og einangrun og sambands-
leysið milli fólksins olli hjátrú og
ótta.
Sérfræðingurinn telur að borgar-
lífið sé sem betur fer að nálgast
þennan æsandi uppruna sinn.
I fyrsta lagi sé vaxandi sam-
bandsleysi. Símakerfið sé smám
saman að hætta að virka. Menn ná
hvorki sambandi við opinbera aðila
né ættingja sína. Ef menn ætla síð-
an að nota fljótlegri aðferð en sím-
ann og ákveða að skutlast á bílnum,
þá er umferðaröngþveitið dagvax-
andi og engin bílastæði.
í öðru lagi kemur óttinn og
spennan. Ef maður gengur um göt-
ur bæjarins getur maður átt von á
að húsin hrynji við minnsta titring.
Foreldrarnir í Grafarvogi naga negl-
urnar upp i kviku í sælublöndnum
æsingi og ótta um afdrif barnanna
sinna í Foldaskóla. Til að auka
spennuna eru gerðar kannanir á
burðarþoli húsanna í borginni, birt-
ar yfirlýsingar um að þau séu að
hrynja, en stranglega bannað að
segja frá því hvaða hús séu verstu
gildrurnar. Þetta nær sömu áhrif-
um og góð rússnesk rúlletta.
í þriðja lagi benti sérfræðingur-
inn á Laugaveginn, þar sem verið er
að skipta um lagnir og yfirborð. Þar
er búið að grafa allt upp. Slöngur,
leiðslur spúandi skólprör gefa
skurðinum virkilegan regnskóga-
svip. Þarna kemst borgarbúinn í
góða spennu og framandi ógnir.
Maður getur til dæmis reynt að
ganga á þessum tveimur helluröð-
um, sem eftir eru af gangstéttinni
hvoru megin. Best er tilfinningin
þar sem kanturinn er að hrynja of-
an í skólppollinn og engin snúra er
lengur til skrauts á bakkanum.
Maður getur Iíka reynt að halda
niðri í sér andanum til að forðast
eiturgufurnar og athugað hvað
maður kemst langt. Svo er líka
hægt að „fíla“ fenjatilfinninguna i
botn og anda djúpt að sér ilminum
úr vellandi skurðinum. Þá er best
að standa á dyrahellunni hjá Sand-
holtsbakaríinu.
Með þessum ólíku aðferðum er
líf borgarbúans fyllt af þeirri
spennu og djúpu reynslu, sem hefur
verið á undanhaldi.
Sérfrœðingur minn
í Borgaraflokknum
sagði að þar væri undarlegt vanda-
mál í uppsiglingu. Sín á milli hafa
Borgararnir notað þá samlíkingu
að samskipti Sjálfstæðisflokks og
Borgaraflokks séu eins og sam-
skipti baðmullarbændanna og
þrælanna í Suðurríkjum Sáms
frænda forðum. Yfirstéttin í Sjálf-
stæðisflokknum á Iöngum að hafa
haft lítið samband við hinn al-
menna flokksmann. Við stofnun
Borgaraflokksins reif almúginn sig
lausan. Þannig verður slagur þeirra
Borgaranna að frelsisbaráttu í
þeirra eigin augum.
Sagnfræðingar Borgaraflokksins
segja að það hafi tekið þrælahald-
arana í Suðurríkjum mörg ár að
skilja að þeir þyrftu að ræða við
svörtu mennina og margir munu
aldrei gera það.
Sama skilningsleysi segja þeir að
einkenni samskipti Sjálfstæðis-
flokks og Borgaraflokks nú, þ.e.
Þorsteinn og Co vilji ekki á þá yrða.
Sérfræðingur minn segir að þessi
líking hafi verkað vel á þá Borgar-
ana í upphafi, gefið þeim tilfinn-
ingu um samstöðu.
En nú er komið babb í bátinn.
Hvorum líkist Albert Guð-
mundsson kúgaranum eða þræln-
,um? Hvað með Bensann, vindlana
og hádegismatinn á Hótel Borg?