Alþýðublaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 2
2 MPTÐKBLMÐ Slmi: Útgefandi: Ritstjóri: Ritstjórnarf ulltrúi: Blaðamenn: Framkvæmdastjóri: Skrifstofa: Auglýsingar: Setning og umbrot: Prentun: 681866 Blað hf. Ingólfur Margeirsson. Jón Daníelsson. Ingibjörg Árnadóttir Kristján Þorvaldsson og Örn Bjarnason. Valdimar Jóhannesson. Halldóra Jónsdóttir, Eva Guömundsdóttir og Þórdís Þórisdóttir. Guðlaugur Tryggvi Karlsson og Ólöf Heiöur Þorsteinsdóttir Filmurog prent, Ármúla38. Blaðaprent hf., Síöumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Heimsókn forseta íslands til Færeyja Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, erþessadag- ana í opinberri heimsókn í Færeyjum. Færeyjaferð forseta íslands er að mörgu leyti merkur atburður, ekki síst vegna þess að Vigdís Finnbogadóttir er fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem heimsækir eyjarn- ar. Færeyjar byggja45 þúsund íbúarog þæreru hluti af Danmörku en hafa sína eigin landsstjórn. Ferð Vig- dísar Finnbogadóttur til Færeyja ber hefðbundið yfir- bragð opinberrar heimsóknar tii sjálfstæðrar þjóðar og móttökur þær sem forseti íslands hefur hlotið ein- kennast ennfremur af miklu þakklæti og vinarhug til forsetans og íslensku þjóðarinnar. í ræðu Hergeirs Nielsens, forseta færeyska Lögþingsins, er hann ávarpaði Vigdísi Finnbogadóttur, kom meðal annars fram að Færeyingar væru þakklátir fyrir að það skuli vera íslenskur forseti sem komi í fyrstu heimsókn er- lends þjóöhöfðingja til Færeyja. n eimsókn forseta íslands til Færeyja minnir á hin löngu, sögulegu og vinalegu tengsl Færeyingaog ís- lendinga. Óþarfi er að tíunda þau góðu samskipti en benda má á sjósókn færeyskra á íslandsmið og at- vinnutengsl þjóðanna. Hinu erekki að leynaað förfor- seta íslands til Færeyja hefur pólitískan blæ yfir sér. Hún er óbein hvatning til Færeyinga í langri sjálf- stæðisbaráttu eyjanna. Það eitt að Vigdís Finnboga- dóttirer fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem heimsækir eyjarnar, segir sína sögu. Það hefur lengi verið opin- bert leyndarmál að Færeyingar líta á sjálfstæðisbar- áttu íslendinga sem undanfara eigin baráttu fyrir sjálfstæði. Það kom ennfremur fram í ræðu Hergeirs Nielsens, forseta færeyska Lögþingsins, að ísland væri fyrirmynd þeirra sem feta vilja sig áfram sem sjálfstæð þjóð. Hinar hlýju móttökur í Færeyjum og hin mikla eftirtekt og eftirvænting sem heimsókn for- setaíslands hefurvakiðáeyjunum, undirstrikaeinnig það þakklæti, sem Færeyingar sýna Vigdísi Finn- bogadóttur fyrir að viðurkenna menningarlegt sjálf- stæði þeirra með heimsókn sinni. Það gerir ennfrem- ur heimsókn forseta íslands enn sögulegri að hún skuli vera fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem rýfurt múrinn. Við íslendingar megum vera stoltir af Vigdísi Finn- bogadóttur. Heimsóknir hennar í opinberum erinda- gjörðum um heim allan hafa verið ómetanleg kynning á íslandi. Að öllum forverum hennar ólöstuðum hefur trúlega enginn forseti unnið jafn glæsilegt starf á er- lendri grund við að kynna þjóð okkar og menningu. Hvar sem Vigdís Finnbogadóttir hefur gist, hefur heimsókn hennar vakið athygli og aðdáun heima- manna og fengið óhemjumikla umfjöllun fjölmiðia. Færeyjar eru minnsta þjóð sem forseti íslands hefur heimsótt, en engu að síður er þessi ferð Vigdísar Finnbogadóttur ef til vill hennar stærsta. Hún hefur með för sinni viðurkennt, ( nafni íslénsku þjóðarinnar, að Færeyjarbyggjasjálfstætt fólk meðeigin tungu og eigin menningu. Og í reynd hefur forseti íslands með heimsókn sinni, viðurkennt rétt smáþjóðarsem heyrir undir erlent ríki, að berjast fyrir sjálfstæði sínu sem fullvalda ríki. Launanefnd ASÍ og VSÍ Samningar eða oddaatkvæði? í fyrsta sinn virðist verulegur ágreiningur í uppsiglingu innan launanefndarinnar. Meiri kaupmáttaraukning en gert var ráð fyrir? Launaskriðið kemur ekki jafnt niður. Svo gæti farið að oddaatkvæði yrði nú beitt í fyrsta sinn í launa- nefnd ASÍ og VSÍ. Launanefndin mun væntanlega koma saman fljót- lega til að ræða launahækkanir um næstu mánaðamót. Þetta hefur gerst á þriggja mánaða fresti frá því febrúarsamningarnir voru gerðir í fyrra en hingað til hefur alltaf náðst samkomulag í nefndinni um að bæta verðhækkanir að fullu. Nú eru í fyrsta sinn skoðanir verulega skiptar um réttmæti þess, eða öllu heldur þörfina fyrir, að bæta verð- hækkanir að fullu, og því gæti í fyrsta sinn komið til atkvæöa- greiðslu í nefndinni. Víglundur Þorsteinsson, for- maður Félags íslenskra iðnrekenda, sem vissulega á stórra hagsmuna að gæta, lýsti því yfir nýlega að nú væri ekki þörf á að bæta launþeg- um upp verðhækkanir vegna þess hve kaupmáttur launa hefði aukist mikið að undanförnu. Víglundur telur einnig að verði laun hækkuð í hlutfalli við verðlag, muni það leiða til „óðaverðbólgu". Frá öðrum fulltrúum atvinnu- rekenda hafa heyrst svipaðar raddir en á hinn bóginn hefur i þeirra röð- um einnig verið viðurkennt að kaupmáttaraukningin umtalaða hafi ekki náð jafnt til allra, þannig að vissir hópar launafólks hafi eftir sem áður þörf fyrir fulla uppbót. Þegar þetta er skrifað er enn ekki ljóst hversu mikið framfærsluvísi- talan hefur hækkað í ágústmánuði, en að undanförnu hefur verið talið að til að vega upp á móti vísitölu- hækkunum sem orðið hafa frá því í maí, þegar hækkanir voru síðast ákveðnar, þurfi launin að hækka kringum 7%. Frá því að farið var að semja um rauð strik og launanefndin tók til starfa hafa hækkanir á einu tíma- bili ekki orðið svo miklar áður. Nefna má í þessu sambandi að þeg- ar launahækkanir komu til fram- kvæmda 1. júní sl. voru verðhækk- anir þegar farnar yfir rauða strikið sem miðað hafði verið við þann 1. sept. Þetta þýðir að þrátt fyrir hækk- unina 1. júni, hafa launþegar orðið að bera óbættar verulegar verð- hækkanir sl. þrjá mánuði, þar sem launanefndin tók ekkert tillit til þeirra verðhækkana sem áttu sér stað eftir 1. maí. Að þessu leyti var nýja kerfið í vor farið að minna óþægilega mikið á gamla sjálfvirka vísitölukerfið, þegar nýjar verð- hækkanir komu til sögunnar strax eftir launahækkanir, en laun héld- ust síðan óbreytt næstu þrjá mán- uði. Þegar launin hækkuðu svo þrem mánuðum síðar til að bæta upp þessar verðhækkanir, komu strax nýjar verðhækkanir. Þannig hélst kaupmáttur að staðaldri mun lægri en um hafði verið samið. Frá því að nýja kerfið var tekið upp, hafa stjórnvaldsaðgerðir til að hefta verðbólgu lengst af verið eins konar hluti af kjarasamningum. Kerfið gerir þannig ráð fyrir því að unnt sé að meta verðbólgu á samn- ingstímabilinu og í samningunum sjálfum eru settar út launahækkan- ir á ákveðnum tímum til að mæta þeirri verðbólgu sem séð hefur verið fyrir. Rauðu strikin sem dreift er á samningstímabilið, eru svo varnagli sem í raun ætti ekki að þurfa að nota, ef ríkisstjórninni tekst að standa við sinn hluta og halda verð- bólgunni í skefjum. A því eina og hálfa ári sem liðið er frá febrúarsamningunum hefur þetta kerfi gefist tiltölulega vel. Verðlagshækkanir hafa yfirleitt orðið litlu meiri en gert var ráð fyrir og í launanefndinni hafa menn orð- ið sammála um að bæta þessar verðhækkanir að fullu. Það er þó ekki sjálfgefið að svo verði alltaf og sjálf tilvist launanefndarinnar stað- festir óhjákvæmilega þann skiln- ing. í launanefndinni sitja jafn- margir fulltrúar frá hvorum samn- ingsaðila og fulltrúar ASÍ og VSÍ skiptast á um að fara með odda- atkvæðið. Þegar launanefndin var upphaflega sett á fót, var svo um samið að fulltrúar ASÍ færu með oddaatkvæðið í fyrsta sinn. Enn hefur ekki komið til þess að því hafi verið beitt, þannig að það er enn í sömu höndum. Ef virkilega verður ágreiningur í launanefndinni að þessu sinni, er það því á valdi full- trúa ASÍ hvort Iaun hækka að fullu í samræmi við verðlagshækkanir að undanförnu eða ekki. Það er ekki nokkurt vafamál að fulltrúar Alþýðusambandsins í launanefndinni munu eiga erfitt með að afsaka það fyrir félags- mönnum sambandsins, ef odda- atkvæðinu verður ekki beitt. Það hefur þó óhjákvæmilega í för með sér að oddaatkvæðið færist yfir til atvinnurekenda, en slíkt gæti orðið launþegum dýrkeypt í næstu samn- ingalotu. Fulltrúar ASÍ í launa- nefndinni munu því væntanlega hugsa sig vandlega um áður en til þess kemur að oddaatkvæðinu verði beitt. Það er erfitt að hugsa sér sam- komulag í launanefndinni sem byggist á öðru en því að verðhækk- anir verði bættar að fullu. Slíkt er þó ekki hægt að útiloka. Kaupmátt- ur launa hefur vissulega aukist tals- vert og e.t.v. umfram það sem menn gerðu ráð fyrir við gerð síðustu samninga. Þessi kaupmáttaraukn- ing stafar þó fyrst og fremst af svo- nefndu launaskriði (yfirborgun- um) og dreifist því afar misjafnt. Til að bæta gráu ofan á svart eru það svo auðvitað hinir lægst Iaunuðu sem koma verst út úr launaskriðinu og fá minnstar yfirborganir. Verð- lagshækkanir undanfarinna mán- aða hafa því komið afar illa niður á þessu fólki og erfitt að mæla gegn því að ákveðnir hópar láglauna- fólks sem ekki njóta yfirborgana hafi þörf fyrir fullar vísitölubætur. Það getur á hinn bóginn orðið erfitt að afmarka þessa hópa á þann hátt sem þarf til að unnt sé að hækka Iaun þeirra meira en ann- arra. Samt er ekki með öllu unnt að útiloka þann möguleika að sam- komulag takist í nefndinni um ein- hverja mismunun að þessu leyti. Þá má ekki gleyma þeim mögu- leika að ríkisstjórnin komi inn í við- ræður launanefndarinnar sem þriðji aðili og taki að sér að bæta launþegum upp einhvern hluta verðlagshækkananna. Þetta er það sem kjarasamningar hafa byggst á sl. tvö samningstímabil. í herbúð- um ríkisstjórnarinnar munu menn þó ekki ýkja hrifnir af þessari hug- mynd. En hvernig sem lyktir þessa máls kunna að verða á endanum, þá er nú þegar ljóst að launanefndin á vandasamt verkefni fyrir höndum. Af niðurstöðu nefndarinnar mun væntanlega einnig ráðast hver út- koman verður hjá launanefnd BSRB og ríkisins, sem starfar eftir sama fyrirkomulagi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.