Alþýðublaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 5. septerriber 1987 Það er oft þannig að atburðir geta hlaupið með menn í gönur. Ungt fólk hrífst af hröðum atburðum og hugsar oft ekki rökrétt, hugsar ekki til framtíðar og fórnar þá einatt eigin lífi á altari atburðanna. Við heyrum oft sögur frá fjaríœgum löndum um harðstjórn, pyntingar og fangels- anir á mönnum og konum sem hafa skoðun sem er andstœð þeirri sem ríkjandi vald- hafar hafa á hverjum tíma. Mótmæli hafa ávallt verið fyrir hendi á hinum pólitíska vettvangi. Það er aldrei vinsœlt þegar einhver nœr alrœðistökum og ráðskast með meiri hluta fólks að geð- þótta. Eftirfarandifrásögn er loforð við ungan mann frá Suður-Ameríku sem ég kynntist 1979 í starfi mínu í Svíþjóð, en þar vann ég um árabil sem túlkur fyrir spœnsku og íslenskumœlandi menn. Til Svíþjóðar hafa leitað þúsundir flóttamanna síðast liðna áratugi alls staðar að úr heiminum. Hver og einn hefur sína sögu að segja og vœri fróðlegt að heyra þœr allar. Flestir eiga það sameiginlegt að vera á flótta undan erfiðri aðstöðu í sínu heimalandi, annað hvort fjárhagserfiðleikum í vanþróuðu hagkerfi, eða ófrelsi til orðs ogskrifa, athafna og lífs. „Skrifaðu einhvern tíma sögu mína, “ sagði Juan þegar ég skildi við hann fyrir mörgum árum, en hann var þá kominn á geðveikraspítala og lítil von um að hann fengi aðfara þaðan á ný. Augu og fas Juans var ofursorgmœtt, fjarrœnt og leitandi og hefur saga hans og sorg verið að brjótast lengi í mér og loks lítur „Saga Juans“ dagsins Ijós. Ég var kominn út á hlað heima og ætlaði að njóta þess að eiga frídag frá háskólanáminu og var á leið í gönguferð. Sólin skein og ég var í himnaskapi. Móðir mín kemur þá allt í einu út á stigapallinn sem um- lykur hús okkar og kallar til mín að það sé síminn til mín. Ég sný við og fer í símann því það er ekki á hverjum degi, sem hringt er í mig. Ég svara og það er Felipe vinur minn. „Felipe hér. Ertu með niður á torg klukkan fjögur? Við ætlum í mótmælagönguna. Við ætlum að segja ráðamönnum til syndanna. Kemurðu með?“ Ég svara að ég verði að hjálpa mömmu því pabbi komi heim á morgun. Móðir mín heyrir hvað ég segi við Felipe og kallar til mín: „Juan, elskan, þú skalt fara, þú ert nú einu sinni tvítugur, sjálfráða herramaður. Þú getur hjálpað mér þegar þú kemur heim!“ Ég segi þá við Felipe: „Jæja, ég kem niðureftir með strætisvagnin- um. Hvar eigum við að hittast?" „Hjá kirkjunni,“ svarar Felipe. „Allt í lagi, ég verð þar um fjög- urleytið." Þetta eru nú meiri lætin. Ég nenni þessu ekki, ég vil klára mitt nám. Ég vil verða frjáls, eiga mína menntun og stofna mitt heimili. Ef til vill finn ég einhvern daginn stúlku sem er jafnfalleg og vinkona Felipe, hún Anna. Frakkar og þeirra stúdentaóeirðir. Þarf þetta endilega að berast hingað líka. Jæja, ég labba með strákunum niður götuna og sjáum svo til. Ef mér leiðist fer ég bara heim með vagninum. Aum- ingja mamma að þurfa að sjá um allt á meðan pabbi er í farandvinnu á búgörðum inni í landi, en svona er lífið. Það lifir enginn á loftinu með litla menntun og sjö manna fjöl- skyldu. Þarna kemur bíllinn, úttroðinn af fólki. Hvað er um að vera? Ætla allir niður í bæ? Áfram hristist demparalausi strætisvagninn með járnbekkjun- um. Það fer lítið fyrir þægilegum strætisvögnum í einræðinu. Það ískrar í bremsum. Vagninn nemur staðar og enn einum er troðið inn. Eftir tuttugu mínútna ferð rennir vagninn inn á stoppistöðina rétt hjá aðaltroginu. Hvílikur mannfjöldi. Borðar, spjöld og steyttir hnefar. Getur verið að fólkið sé að rísa upp gegn harðstjórunum í alvöru, eða er

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.