Alþýðublaðið - 13.08.1988, Qupperneq 9
Laugardagur 13. ágúst 1988
9
um samkeppnina í bankakerf-
inu, sem mikilvægast er aö
bæta til þess aö ná vöxtun-
um niöur til lengdar.
Þetta þarf aö gaumgæfa
vel, en aðalatriðið er aö und-
irstaðan gangi. Grundvöllur
alls hér á landi er öflugt at-
vinnulíf út um allt land.
Þaö eru til fjölmargar
lausnir I efnahagsmálum,
sem horfa til þess í senn aö
auka frjálsræði í atvinnulífi,
en um leið eyða forréttindum
og auka jafnræði tækifær-
anna í landinu. Það er lykil-
atriöi í stefnu hins opna
þjóðfélags jafnaðarstefnunn-
ar að berjast fyrir frelsi og
jafnrétti en gegn forréttind-
um og einokun á öllum svið-
um.“
— Er samfylkingin með
Sjálfstæðisflokknum í dag
ekki meiri en með öðrum
flokkum á sviði efnahags-
mála?
„Við eigum samleið með
mörgum sem starfa innan
Sjálfstæðisflokksins um at-
vinnu- og efnahagsmál. Við
eigum samstöðu með þeim
sem starfa innan Kvenna-
lista, Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags um mörg
félags- og menningarmál. Við
eigum líka slíka skoðana-
bræður i Sjálfstæðisflokki.
En Alþýðuflokkurinn hefur
sett þessa þætti saman á
rökvísan og réttlátan hátt.“
ALLS EKKI SELJA
ÚTVEGSBANKANN TIL
SÉRHAGSMUNAAÐILA
— Hvar er Útvegsbanka-
málið statt?
„Ég ætla á næstunni að
skipa sölunefnd til að selja
bréfin. Verkefnið er að fá hátt
verð fyrir bréfin og hærra en
þau voru falboðin fyrir síðast.
Niðurstöður rekstrarreiknings
í fyrra og efnahagur bankans
býður upp á hækkun. Sala
bréfanna verður lika liður í
sameiningu lánastofnana og
aukinni hagkvæmni í lána-
kerfinu í landinu. Til liðs við
þessa bankasamsteypu
kæmi til greina að fá erlend-
an banka. Fyrirspurnir hafa
þegar borist. Ég hef þegar
rætt þetta við ýmsa innlenda
aðila.“
— Eru tilboðin frá
skandinavískum bönkum?
„Já, og víðar.
Mér er það kappsmál að
byggja upp á grunni Útvegs-
bankans og þeirra stofnana,
sem vilja ganga til samstarfs
við hann, sparisjóða eða ann-
arra viðskiptabanka, sterka
lánastofnun, sem getur stað-
ið á eigin fótum og skilað
eigendum arði, veitt góða
þjónustu og lækkað vaxta-
kostnaðinn í landinu. Þetta er
verkefni, sem kann að taka
langan tíma að koma í höfn.
Eg vil alls ekki selja ráð-
andi hlut ( bankanum til ein-
stakra atvinnufyrirtækja eða
sérhagsmunaaðila. Hyggileg-
ast er að selja mikilsverðan
hlut í bankanum öðrum fjár-
málastofnunum og lánastofn-
unum í landinu, sem hafa
beinan hag af að samstilla
sína starfsemi við þá starf-
semi sem er í Útvegsbankan-
um.“
— Ertu að segja að sam-
tök sparisjóða geti til dæmis
komiö til greina?
„Já, og geti orðið stór
aðili, hugsanlega í samstarfi
við einhverja hlutafélaga-
banka, og síðan hugsanlega
erlenda þátttakendur, en ríkið
yrði með um sinn.“
— Þú varst gagnrýndur
fyrir að selja ekki bankann í
fyrra. Bjargaði góð rekstrar-
afkoma bankans þér fyrir
horn, þar sem þú situr meö
betri spil á hendi nú en í
fyrra?
„Það er fráleitt að segja að
ég hafi bjargað mér fyrir
horn. Þetta voru einfaldlega
hyggindi sem í hag koma,“
segir Jón Sigurðsson.
1*1 FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
W
HÚSVÖRÐUR
óskast í fullt starf fyrir72 íbúöasambýlishús. Aðeins
umgengnisgott og reglusamt fólk kemur til greina.
Húsvörðurannast minni háttar viðhald og hefur um-
sjón með umgengni og ræstingu.
Góð íbúð fylgir starfinu.
Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson húsnæð-
isfulltrúi í Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar,
Síðumúla 34, sími 685911.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9, á eyðublöðum sem þar fást fyrir 20. ágúst
n.k.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
Landakoti
FÓSTRA —
YFIRFÓSTRA
Dagheimilið Litlakot við Landakotsspítala óskar
eftir að ráða yfirfóstru frá 1. sept. Litlakot er ein
dagheimilisdeild með 18 hress og góð börn á
aldrinum 1—3 ára.
Vegna vaktavinnu foreldra er hópurinn misstór frá
degi til dags.
Vinnutími starfsmanna sem eru 5 er einnig breyti-
legur.
Komið eða hringið eftir nánari upplýsingum hjá
Dagrúnu í síma 91—19600 / 287 fyrir hádegi.
ENN KEMUR T0Y0TA Á ÓVART
- NÚ BÆÐI NOTAÐIR OG NÝIR!
■ . •' • ÍV' ■ ■ .. ! ^
ÚTOGRESTIN
ÁNVAXTAOG
VERDTRYGGINGAR
Á12 MANUDUM
T0Y0TA býður nú hin einstöku greiðslukjör á takmörkuðum fjölda bíla af
’88 árgerð og að sjálfsögðu einnig á notuðum bílum í eigu umboðsins.
50% af kaupverði greiðast við samning en eftirstöðvar eru lánaðar
í 12 mánuði, vaxta- og verðtryggingarlaust!
Og ekki nóg með það... þeir sem staðgreiða nýjan bíl fá
13% afslátt.
Verið velkomin í sýningarsal okkar að
Nýbýlavegi 8 og einnig í Toyota bílasöluna,
Skeifunni 15.
Umboðsmenn okkar eru um allt land.
Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi, Sími 91-44144
AUK/SlA k109-88