Alþýðublaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 16
16 Hún er með nef ekki ósvip- að þvl sem Michael Jackson hafði áður en hann uppgötv- aði lýtalækningar, hárið á henni er eins og á mann- eskju sem fengið hefur hressilegt rafstuð, varaþykkt- in er sennilega mjög nálægt tveggja stafa stölu ef mælt er í sentimetrum. Hún er ekki beint Ijót en samt alls ekki fríð, er það sem sumir myndu kalla Ijótsæt, hefur yfir sér einhverja dulda fegurð. Nafn hennar er Tracy Chap- man og hún er 24 ára gömul svertingjastelpa sem að und- anförnu hefur verið að leggja heiminn að fótum sér með laga- og textasmíðum sínum. Tracy talar um byltingu og segir að veröldin sé alveg „í rusli“. Þess vegna eru lög hennar alvarlegs eðlis og hef- ur hún jafnvel verið ásökuð fyrir að vera of alvarleg: „Ég vissi ekki að maður þyrfti að hafaeinhvern ákveðinn prósentuhluta plötu undir- lagðan af gríni og glensi," segir Tracy og bætir við, „kannski næsta plata mín verði bara grínplata." Æskuárunum eyddi hún með fjölskyldu sinni, svartri verkamannafjölskyldu, í Cleveland í Bandaríkjunum. Tracy var mjög ung þegar hún byrjaði að leika tónlist, sótti klarinettutima og spilaði mik- ið á orgel sem fjölskyldan átti. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fjögurra ára og eftir það bjó hún með móður sinni og eldri systur, Anetu, sem hún tileinkar plötuna. Tracy segir að alltaf hafi verið mikið hlustað á tónlist heima hjá sér, söngvarar á borö við Marvin Gaye og Mahalia Jackson hafi mikið verið spilaðir ásamt mörgum fleiri. „Þegar ég var að alast upp tók ég tónlist sem sjálf- sagðan hlut. Mér fannst skrýtið að koma inn á heimili og uppgötva að það var eng- inn plötuspilari til á svæð- inu.“ En hún hlustaði ekki bara heldur samdi hún líka á orgelið sem var i stofunni. „Þetta voru hræðileg lög,“ segir hún og hlær, „svona dæmigerðir lagastubbar sem átta ára krakki myndi semja, lög um skýin og þess háttar hluti." En umhverfið sem telpan ólst upp í hafði ekki bara tón- listarleg áhrif á hana. „Ég tók greinilega eftir öllum þeim miklu erfiöleikum sem mamma þurfti að ganga í gegn um, svört, einstæð móðirin sem reyndi til hins ýtrasta aö ala upp tvö börn. Sumt fólk fer létt með þetta en sér ekki að til eru öfl í þjóðfélaginu sem geta gert þetta að gífurlegu streði." Eftir Gunnar H. Ársælsson Hin pólitíska meðvitund Tracy Chapman jókst enn meir er hún hóf nám í litlum einkaskóla í Danbury í Connecticut. „Þarhitti maður fullt af fólki sem var mjög pólitiskt meðvitað og viðriðið stjórnmál ávirkan hátt. Marg- ir kennaranna höfðu t.d. ný- lokið menntaskólanámi og voru því mjög ungir. Fólk tal- aði mikið um hluti eins og breytingar á herskyldu, kjarn- orkuógnina og þess háttar." Tracy var mjög virk í félags- lífi skólans og spilaði m.a. í körfubolta-, fótbolta- og blak- liði skólans, kvennaliðunum að sjálfsögðu! Hún hélt líka áfram að semja lög og texta af krafti og spilaði reglulega í kaffi- teríu skólans. Úr einkaskólan- um útskrifaðist Tracy árið 1982 og skráði sig þá í há- skóla nærri Boston, hugðist læra líffræði og verða dýra- læknir seinna meir. En sök- um óánægju með námið hætti hún í líffræöinni en sneri sér þess í stað að mannfræði meö vestur- afríska menningu sem sér- grein. „Mig langaði að læra eitt- hvað sem ég hafði virkilega áhuga á og gæti jafnframt gefið lífi mínu ríkari tilgang," segir Tracy. Fljótlega varð hún sterkt afl á sviði alþýðutónlistar umhverfis Boston, spilaði í menntaskólum, háskólum og á strætum borgarinnar. „Það var í nóvember sem ég spil- aði i fyrsta skipti úti á götu. Þetta var kvöldið fyrir Þakkar- gjörðarhátíðina. Ég var bara að þvælast með vinkonu minni og við höföum ekkert að gera því flestir á heima- vistinni höföu farið heim í til- efni hátíðarinnar. Eins og venjulega var ég að spila á gítarinn minn þegarvinkona mín spurði mig hvers vegna ég færi ekki þarna út á torgið og spilaði fyrir þá fáu sem voru á ferli. Ég lét til leiðast en kuldinn var alveg hrikaleg- ur,“ segir Tracy og hlær. „Samt höfðum við 25 dollara upp úr krafsinu sem fóru hver og einn einasti í kínverskan mat.“ Einn þeirra sem heyrðu í Tracy þarna í kuldanum var Brian nokkur Koppelman, nemi við sama háskóla og Tracy. Faðir hans, Charles Koppelman, er einn eigenda SBK-útgáfufyrirtækisins sem er eitt hið stærsta á sínu sviði í heiminum. Strákurinn hvatti föður sinn til að koma með sér á tónleika með Tracy. Karl lét undan og fór með syninum til þess að hlusta á stelpuna. Og hann varð það hrifinn af Tracy að hann bauð henni plötusamn- ing eftir að hún útskrifaðist úr Tufts-háskóla árið 1986. Þessi skyndilega uppsveifla á ferlinum kom Tracy sjálfri mjög á óvart. „í rauninni datt mér ekki í hug að ég fengi nokkurn tímann samning hjá stóru plötufyrirtæki. Alveg frá því ég var srriástelpa var ég nokkurn veginn viss um að hljómplötufyrirtækjum fyndist tónlist mín ekki mark- aðshæf, ég meina, ég var að syngja um byltingu þegar diskóið tröllreið öllu. Mér fannst bara ekki vera pláss fyrir tónlist mína.“ En velgengni Tracy Chap- man er staðreynd og 24 ára gömul hefur hún sungið sig inn í hjörtu milljóna manna um allan heim. Breiðskífan hennar er þessar vikurnar meðal þeirratíu söluhæstu bæði í Bretlandi og Banda- ríkjunum og er það dágóður árangur á tveimur árum. Tónlist hennar á líka fullt erindi við okkur, vekur til um- hugsunar um samfélag okkar mannanna eins og það er i dag, gæti jafnvel haft þau áhrif að svör við ýmsum spurningum fyndust djúpt í hugartetrinu. Tónlistarmenn eins og Tracy Chapman eru þjóðfé- lagslega nauðsynlegir en hvað skyldi hún sjálf segja um velgengni plötunnar? „Ég vona að fólk hlusti á plötuna vegna þess að á henni finni það eitthvað sem er því mikil- vægt og ég hef það líka á til- finningunni að fólk hlusti á hana vegna þess að því finnst tónlistin góð.“ Svo mörg voru þau orð frá Tracy Chapman, einni virtustu alþýðusöngkonu samtímans. (Mjög frjálsiega þýtt úr Rolling StoneJ GHA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.