Tíminn - 10.01.1968, Qupperneq 1
Genst áskrifendur að
TÍMANUM
Mrmgið í síma 12323
Aagjysing í TÍMANUM
kemar daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
9. tbl. — Miðvikudagur 10. ían. 1968. — 52. árg.
TERTAN 06 HJARTAÐI 011 Evrópa
í greipum
hörkukulda
Á myndinni hér að ofan sjást frú Eileen Blaiberg og ekkja Clive Haupts, Dorothy, á heimili þeirr-
ar síðarnefndu rétt eftir jarðarför Haupts um helgina. Þrátt fyrir hin ströngu ákvæði um aðskilnað
kynþáttanna mætti frú Blaiberg, og nokkrir aðrir hvítir á hörund, við útför Haupts,- Er frú
Blaiberg að afhenda ekkjunni tertu að gjöf.
NTB-Palo Alto, höfðaborg,
þriðjudag.
Stáliðnaðarmaðurinn Mike
‘Jíasperak, sem hjartað var
grætt í á laugardaginn, er enn mjög innvortis. Læknarnir
þungt haldinn. í nótt þurfti telja að það stafi af því að;
að gefa honum sjö lítra af nýru hans og lifur starfa ekki
blóði, þvi að honum blæddi Framhald á bls. 14.
NTB—London, þriðjudag.
★ Geysilegt vetrarríki er nú um
gjörvalla Evrópu og sums staðar
liggur við neyðarástandi vegna
fannfengi og frosthörku. Frostið
hefur komizt niður í 30—35 gr.
á Norðurlöndum og kuldarnir ná
allt til syðstu endimarka Evrópu,
Suður-ftalíu og Gríkldands.
ir í Mið-Evrópu er ástandið víða
mjög slæmt. f Ölpunum varð stór
snjóskriða 5 manns að bana. —
Skemmdir hafa orðið á mann-
virkjum. Flugvellir eru víða Iok.
aðir, og samgönguörðugleikar
hafa verið mjög miklir.
★ Einnig eru mjög miklar vetrar
hörknr á austurströnd Bandaríkj
anna, og í dag var 18 stiga frost
í New York. f dag varð stórhruni
í New York, og slökkvistarfið
reyndist óhemju erfitt, vegna þess
að vatnið úr slökkvidælunum
fraus í loftinu.
Brezkir veðurfræðingar fullyrða
að ekki hafi jafnmiklar vetrar-
hörkur dunið yfir Bretland utn
margra ára skeið. Þær hófust
mjög óvænt, og hefur fjölda þjóð
vegá nú lokast vegna fannfergis,
flugsamgöngur hafa víða teppzt.
Hin volduga Big Ben stopp-
aði vegna snjóþungans, en það
kemur mjög sjaldan fyrir.. Að
sjálfsögðu hafa samgöngur mjög
torveldast og fjöldi manns komst
ekki til vinnu sinnar vegna snjó-
þyngsla .Jafnivel fiskmarkaðurinn
í Billingsgötu var lokaður, og er
þá mikið sa-gt, því að hann var
alltaf' staxfræktur, jafnvel þegar
sprengjur Þjóðverja dundu yfir
Lundúni í síðari heimsstyrjöld-
inni.
í Moskva komst frostið niður í
Framhald á bls. 14.
Frá rithöfundaréttar höldunum í Moskvu: )
Þekktur hershöfðingi var
handtekinn við dómshúsið
NTB-Moskvu, þriðjudag.
Réttarhöldin yfir sovézku rit-
höfundunum héldu áfram í dag.
Að nafninu til eiga réttarhöldin
að vera opin almenningi, en í
reynd er því á annan veg farið,
þau eru haldin fyrir luktum dyr.
um og þarf sérstakt vegabréf til
að stíga þar inn fyrir dyr. Líkt
og i gær, safnaðist nokkur mann-
fjöldi saman fyrir utan dómhús.
ið, til að mótmæla þessari tilhög-
un réttarhaldanna. Einn úr þeim
hópi„ hershöfðingi á eftirlaunum,
var tekinn höndum í dag fyrir að
hafa dreift afriti af bænaskjali
til réttarformannsins, meða) fólks
ins sem fyrir utan stóð. Ilann var
leiddur inn í bifreið af fimm ó-
einkennisbúnum lögreglumönnum
og ekið brott.
Hershöfðinginn, Pjotr Girgor-
jenko er gamall maður. hávaxinn
og nauðasköllóttur. I-Iann barðist
með Rauða hernum á tímum bylt
tnnarinnar Þegar réttarhöldin hóf
úst i gær, reyndi hann að fá að I eins hinna ákærðu. Dobrovolsky. I i gær, og þegar óeinkennisbúinn
vera viðstaddur þau, en var neitað Hann lenti hvað eftir annað í | öryggislögreglumaður kepptist við
um það, eins og flestum öðrum. hörkurifrildi við ungkommúnista að taka ljósmyndir af honum og
Hann er náinn vinur fjölskyldu I sem stóðu vörð um bygginguna Framhald á bls. 14.
Land-
vistar
leyfi
veitt
NTB-Stokkhólmi, þriðjudag.
Bandarísku hermennimir
f jórir, sem struku af skipi sínu .
í Japan og leituðu hælis í Sví-
þjóð sem pólitískir flóttamenn,
hafa nú fengið leyfi sænskra
yfirvalda til að setjast að þar
í landi. Nefnd sænska útlend-
ingaeftirlitsins var sammála um
þessa ákvörðun, en tók það jafn
framt fram, að hún teldi Banda-
ríkjamennina fjóra ekki bein-
línis pólitíska flóttamenn. Af
mannúðarástæðum væri þó rétt
að veita þeim dvalarleyfi.
Fjórmenningarnir voru sjó-
liðar á flugvélamóðurskipinu
Intrepid, en struku af því í
Tokíó. Bandarísku og japönsku
yfirvöldin gerðu mikla leit að
þeim, en árangurslaust, þeir
höfðu komizt úr landi til Sovét-
ríkjanna og þaðan til Svíþjóð-
ar. Þeir struku af skipinu í mót
mælaskyni við stefnu Banda-
ríkjastjórnar í Vietnam.
„Við erum frá okkur numd-
ir af gleði yfir að fá að setjast
að í Sviþjóð", sögðu þeir í dag,
þegar ákvörðunin barst þeim
til eyrna.
„Nú byrjum við auðvitað að
læra sænsku af kappi. og svo
Framhald á bls 14
FLUGFERÐUM FJÖLGAÐ TIL FÆREYJA
EJ-Revkiavík. briðiudaa.
í fréttatilkynnfngu frá SAS
segir, að flugferðum milli
Vagar í Færeyjum og Kaup
mannahafnar verði smám
saman fjölgað úr tveimur
ferðum fram og til baka,
eins og nú er, upp í fimm
ferðir í júlí og ágúst þetta
ár.
Forstjóri SAS, Johannes
Nielsen, sem stjórnar mál-
efnum SAS á Danmerkur-
svæðinu, og Birgir Þorgils-
son, sölustjóri Flugfélags-
íslands, sátu í gær fund f
Þórshöfn í Færeyjum, þar
sem þeir gerðu grein fyrir
flúqumferðinni á leiðinni
Kaupmannahöfn—Vagar—
Reykjavík á sumri kom-
anda.
Þeir aðrir, er fund þenn-
an sátu, voru Peter Mohr
Dam, lögmaður, Morgens
WÍahl, danski ríkis-umboðs
maðurinn, og færeyskir
menn, er sýnt hafa mikinn
áhuga á flugmálum Fær-
eyja.
Norska fréttastofan NTB
hafði það eftir góðum heimild
um í Þórshöfn í kvöld, að SAS
myndi ekki hafa samvinnu við
hugsanlegt færeyskt flugfélag,
en heldur ekki vinna gegn því.
Var sagt, að SAS væri ánægt
með samstarfið við Flugfélag
íslands, sem flýgur milli Fær
eyja og Kaupmannahafnar.
Stofnað var í Færeyjum fél.
Flogsamband. eftir að dansk-
Framhald á bls. 14.