Tíminn - 10.01.1968, Síða 11
MIÐVIKUDAGTJR 10. janúar 1968.
Bóndi einn á Suðurlandi
hafði ráðið til sín vetrarmann,
sem honum líkaði prýðilega
við. Eitt sinn brá bóndi sér að
heiman, en þegar hann kom
heim aftur, kom hann óvörum
að konu sinni og vetrarmamn-
inum á dívan inni í stofu.
Bóndi varð ókvæða við og
fór á fund prests síns að ráðg-
ast um, hvað gera skyldi.
— Þú verður að láta vetrar-
manninn fara, segir prestur.
— Eg má nú illa missa hann,
enda líkar mér ágætiega við
hann, svarar bóndi.
— Nú, eða skilja við konuna,
segir þá prestur.
— Ekki vil ég það, og vand-
séð, að ég fái betri konu, segir
bóndi.
Nú líður nokkur timi, en þá
hittast þeir bóndi og prestur
á ný, og fer þá presturinn að
spyr;#- hann um einkámálin.
— Það er allt í lagi með þau,
svaraði bóndi. — Eg seldi
dívaninn.
— Ég verð að hætta núna,
Klara. Það er maður hér fyrlr
ntan, og hann er orðinn óþolin
móður.
Bandaríska kímniskáldið
Mark Twain var einu sinni sett
ur í fangelsi vegna ritsmíðar,
sem þótti helzt til skorinorð.
í fangelsinu hafði hann gott
tækifæri tiil að kynnast hinum
föngunum og lífi þeirra. Þegar
hann kom aftur úr fangelsinu,
spurði einn vina hans:
— Hvers konar fólk var það
nú eiginlega, sem þú kynntist
í fangelsinu?
— Því er nú þannig varið,
svaraði Mark Twain þungur á
svip, — að þegar maður kynn
ist famgelsLslífinu nánar, þá sér
maður, að þar eru einnig til
þrædmenni, eins og alls staðar
annars staðar.
barðapels á útsölu í gær.
Tvær kunningjakonur hittust
sumarið 1947, þegar mest var
um ferðir til Heklu að skoða
eldstöðvarnar.
— Ætlar þú ekki austur að
Heklu um næstu foelgi? spyr
önnur konan.
— Verður látin sápa í hana?
spyr þá hin.
— Ertu frá þér, manneskja!
Það er ekki látin sápa nema
í Gulifoss og Geysi, segir sú
fyrri.
f matsölu einni var borið á
borð gamalt og faðrað smjör,
sem menn gátu ekki etið, og
varð því lítið úr borðhaldinu.
Forstöðukona spyr gestina,
hvað vaMi þvi, að þeir borði
ekki.
Þá segir einn þeirra.
„Spyrjið þér smjörið að því.
Það er orðið nógu gamalt til
aS gieta svarað fyrir sig sjálft.“
——»■ ■<1 í.. C| ssp.hutRÖ’% 4-5
C. BouttevOde varð skák-
meistari Frakklands í sjötta
sinn, þegar hann sigraði á
meistaramótinu, sem háð var
nýlego. Jafnir í öðru sæti urðu
Letzelter og Huguet og eftir-
farandi staða kom upp í skák
þeirra og átti hinn fyrmefndi
(hvítt) að leika.
Svartur óttaðist sókn með f5
og hafði því leikið síðast Ha8
—d8. En hvítnr lék samt sem
áður 1. f5—Rxe5, en hveraig
tókst honum að fá svartan til
að gefast upp eftir fjóra leiki.
Svar á morgun.
15. krossgáta.
Skýringar:
Lárétt: 1 Skip 5 í vömbum —
7 Stafrófsröð 9 Sæti 11 Ómarga
13 Hraða 14 Kvenmannsnafo 16
Spil 17 Klaka 19 Gljáber.
Krossgáta
Nr. 5
Lóðrétt: 1 Mjólkurhlaup 2
Tveir eins 3 Ólgudrykkur 4
Plantna 6 Skaðar 8 Þrir eins
10 Heila 12 Erfingja 15
Labb 18 Keyri.
Ráðning á 14. gátu:
Lárétt: 1 Jagúar 5 Átt 7
Sá 9 Dls 11 Kal 13 Auk 14
Arin 16 Mu 17 Tíkin 19
Ósagða.
Lóðrétt: 1 Jaskar 2 Gá 3
Úti 4 Atla 6 Öskuna 8 Áar
10 Lumið 12 Lits 15 Nía
19 Kg.
\
TÍMINN
GEIMFARINN
E. Aroiis
20
hinum vagninum. En án efa hlaut
Harry að fara út úr bifreið sinni,
er hann heyrði komið aftan að
sér á veginum.
Ekkert gerðist.
Durell gekk að bifreiðinni.
Hann gat ekki séð að neinn væri
inni í henni. Djúpri kvíðakennd
skaut upp í huga hans.
— Deirdre, kallaði hann lágt.
Ekkert svar nema rigningin.
Vegurinn fram uandan var auð-
ur.
Hann leit yfir dökk limgerðin,
en þar var ekkert er vekti at-
hygli hans. Þá opnaði hann dyrn-
ar á ameríska bílnum. Súr eimur
af vindlingareyk gaus á móti hon
um, en við hann blandaðist ang-
an af ilmvatni Deirdre, um það
var ekki að villast. Svo Ottó hafði
þá sagt honum satt. Deirdre hafði
verið hér í fylgd með Hammett.
En hvar var hún? Og hvar var
Harry? Hér hafði eitthvað komið
fyrir. Hann gerði sér ekki Ijóst
hvað það var, en helzt leit út
fyrir að ekki hefði allt gengið
samkvæmt áætlun Hammets.
Það glitti í eitthvað á stýrinu.
Þetta var blóð. Hann gekk kring-
um vagninn og yfir hann. Við
daufan bjarmann sá hann spor á
veginum eftir áflog eða eitthvað
sem hafði verið dregið. Hann
rétti skyndilega úr sér og kvíði
hans jókst, er honum varð hugs-
að til þess hvað komið hefði get-
’áð"fyrir Deirdre hér á svo af-
skékktum Stáð. : sifilBa
— Herra Durell.
Hann snerist á haeli. Þetta er
Ottó.
— Þau eru horfin, Ottó.
— Það er hlaða þarna fyrir
handan.
— Alveg rétt, sagði Durell. —
Við skulum skyggnast þangað.
— Farið rólega, vinur minn.
SJÓNVAR P IÐ
Miðvikudagur 10. 1. 1968
18.00 Grallaraspóarnir
Teiknimyndasyrpa gerS af
Hanna og Barbera.
ísl. texti: Ingibjörg Jónsdóttir.
18.25 Denni dæmalausi
ísl. texti: GuSrún SigurSardótt-
■lr.
18,50 Hlé
20.00 Fréttir
20.30 Steinaldarmennirnir
fsl. texti: Vilborg Sigurðardótt.
ir.
20.55 Hof og leikhús
f mynd þessari segir frá hof
um og leikhúsum Forn.grikkja
og sýndar eru margar og merk
ar minjar um griska menningu
og list.
þýðandi og þulur: Gunnar
Jónsson. v
(Nordvision — Finnska sjón.
varplS)
21.25 Kulingen og frændur haris
Mýnd um sænska skopteiknar
ann Engström og oersónur
hans. Þýðandi og þulur: Óskar
Ingimarsson. (Nordvision,
sænska sjónvarpið).
21.55 Gullvagninn
(Le Carrosse dor)
Frönsk-itölsk kvikmynd gerð
af Jean Renoir. Aðalhlutverkin
lelka Anna Mangani og Dunc
an Lamont.
ísl. texti: Óskar Ingimarsson.
Myndin var áður sýnd á jóla-
dag 1967.
23.35 Dagskrárlok.
Þér eruð ekki eðlilegur í rómn-
um. Ég veit um tilfinningar yðar
gagnvart ungfrú Padgett.
— Haldið yður saman, Ottó.
Durell sagði þetta þó ekki reiði-
lega.
Þeir fundu Harry Hammett á
miðri leið til hlöðunnar.
Þessi stórvaxni, ljóshærði mað-
ur lá á grúfu í nýslegnum akrin-
um, fáein skref frá slóð þeirra
er þeir Ottó og Durell fylgdu.
Hann var ekki annað en dökk og
ólöguleg þúst á myrkri, votri
mold. Gult og hrokkið hár hans
sýndist dökkt í rigningunni.
Durell kraup skjótt á kné við
hlið hans. Hnakkinn var allur ein
storknuð blóðklessa, þar sem höf-
uðkúpan hafði verið moluð. Hain
sneri líkinu eætilega við og sá íð
undrunarsvipur, sem aldrei
myndi þaðan hverfa, hvíldi yt,;
fríðri og þóttafullri ásjónu
Harrys.
Þeir verða allir undrandi, hugs
aði Durell. Enginu býst við að
slíkt geti átt sér stað. Trúlega
verð ég svona undrandi eimhvern
næstu daga.
Lík Harry Hammetts var lítið
farið að kólna.
Hlaðan var fimmtíu metrum
fjær og árbakkinn skammt fyrir
handan hana. Durell hélt með
Ottó í áttina til hlöðunnar.
— Hvað haldið þér að hafi kom
ið fyrir? spurði Vínarbúinn.
— Harry var kappsfullur, anz-
aði Durell. — Svo kappsfullur að
hann dÓ af þvi ;; n- . .. s5wi
— Hér verður sammingamanns
ins hvergi vart, sem átti að hitta
herra Hammet niðri við fljótið.
•— Hamn er hér á næstu grös-
um.
— Haldið þér að Gígja hafi
myrt hanm?
— Ég held ekkert að svo
komnu máli, sagði Durell.
— Og stúlkan? Ungfrú Pad-
gett?
Durell anzaði honum ekki.
Hann fanm bræðina ólga í huga
sínum. Hann langaði mest til að
eyðileggja eitthvað. Hann vissi,
að þessi reiði var hættuleg, eigi
að síður en hamn var sannfærð-
ur um að hætta lá í leyni ein-
hvers staðar í regninu umhverfis
þá. Þeir voru ekki einir hér. Það
sem fyrir hafði komið í bifre’ð
Harrys, hafði gerzt fyrir nokkr-
um mínútum síðan. Og þvj var
ekki lokið enm.
— Þetta var leiðimlegt með
herra Hammett, muldraði Ottó
fyrir munni sér. — Það verður
að gera lögreglunni aðvart. Þessu
getum við auðvitað ekki leynt
— Það getið þé séð um, Ottó.
Þér kunnið til þeirra verka.
— Og við verðum líka að segja
frá ungfrú Padgett...
— Við sjáum til. Komið nú.
Þeir voru nærri komnir að hlöA
unni, en honum sýndist einhverri
hreyfingu bregða fyrir í hallan
um sem lá niður undir árbakk-
ann. Skammt þaðan var bátaskýli
og bryggjur tvær litlar. Regnið
buldi á amdliti hans, er hann
nam staðar og sneri sér þangað.
— Hvað var nú? hvislaði Ottö.
—Eitthvað þarna niður frá.
Farið varlega. Bíðið hér og verj-
ið mig ef þér viljið gera svo vei.
— Ég sé ekki neitt, en . . . ja,
herra Durell.
Durell þokaði sér inn í skugg-
amn af hlöðunni. fylgdi skugean-
um út á akurinn, skreið undir
girðingu, kom að annarri, klifr-
aði yfir limgerði og hraðaði sér
yfir nýsleginn akurinn í átt að
skúmum. Hann var ekki viss um,
hvað, hann hafði .-éð en be.'ar
hann var kominn fram á árbakk-
ann sá n»r>; i ; i í; >i
bát, er bundinn var við þá bryggj-
ua, sem nær var. Ekki sa liann
hvort nokkur var í bátnum. Hann
hljóp nokkur skref, tók þá eftir
skóhljóði sínu og nam snögglega
staðar.
Hann fór ógætilega. Þrá hans
eftir að vita havð komið hefði
fyrir Deirdre, hljóðaði í sál hans.
Hann gekk nú hægar og setti sér
að vera gætinn. Eftir nokkrar
mínútur var hann kominn að báta
skýlinu. Þegar hann sneri sér við
ÚTVARPI
Miðvikudagur 10. janúar
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádeg
isútvarp 13.00 Við vinnuna. 14.
40 Við, sem heima suium 5.
00 Mið-
degisútvarp
16 00 Veður-
fregnir. 16.40 Framburðar
kennsla i esperanto og þýzku
17.00 Fréttir Endurtekið tón-
listarefni. 17.40 Litli barnatím-
inn Anna Snorradóttir stj. 18-
00 Tónleikar 19.00 Fréttir 19.
20 Tilkyn-ningar 19-30 Tækni
og vísindi Örnólfur Thorlacíus
menntaskólakennari flytur er-
indi: Lífverur í hita 19.45 „Sá
ég spóa“ Erlingur Gíslason ieik
ari les tvær stuttar gamansög
ur eftir Svavar Gests 20 00 Ein
söngur Fritz Wunderlich syng
ur lög eftir Franz Schubert. 20.
25 Heyrt og séð Stefán Jónsson
talar við selaskyttur við Skjálf
andaflóa- 21.15 Tónlist frá
ISCM hátíðinni í Prag I októ-
ber Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir. 22.00 Fréttir og veður
fregnir 22.15 Kvöldsagan:
„Sverðið" Bryndís Schram les
(15) 22.35 Djassþáttur Ólafur
Stephensen kynn'- 23.05 Gest
ur í útvarpssal- tuben Varga
fiðluleikari frá NY og Árni
Kristjánsson leika. 23.30 Frétt
ir í stuttu máli. Dagskrárlok.
Fimmtudagur 11. janúar
7.00 Morgunútvarp 12.00 Ilá-
degisútvarp 13.00 Á frívaktinni
14.40 Við, sem heima sitjum
15.00 Mið-
degisútvarp
16.00 Veður-
fregnir Síðdegistónleikar 16.40
Framburðarkennsla í frönsku
og spænsku 17.00 Fréttir Á hvít
um reitum og svörtum. Sveinn
Kristinsson flytur skáklþátt. 17-
40 Tónlistartimi barnanna.
Egill Friðleifsson sér um tím
ann 18.00 Tónleikar. 19.00 Frétt
ir 19.20 Tilkynningar 19.30 Víð
sjá 19.45 Úr ýmsum áttum Ein
ar Ól. Sveinsson og Sveinn Ein
arsson lesa sögur úr fornum
bókum og „Vökunóttum“ eftir
Eyjélf Guðmunrlsson á Hvoli
Áður útv. á annan dag jóla.
20-30 Sinfóniuhljómsveit ís-
lands leikur í Háskólabíói. Stj.
Ragnar Björnsson Einleikari á
Píanó: Lrederick Marvin frá
Vínarborg. 21.15 Útvarpssagan:
„Maður og kona“ eftir Jón
Thoroddsen Brynjólfur Jóhann
esson leikari les (11) 22.00
Fréttir og veðurfregnir 2215
Um skólamál Magnús Gestsson
flytur erindi 22 40 Tónlist eftir
tónskáld mánaðarins, Sigurð
Þórðarson 23.15 Fréttir i stuttu
máli. Dagskrárlok.