Tíminn - 10.01.1968, Side 14
14
TÍMINN
MEÐVIKUDAGUR 10. janúar 1968.
VETRARHÖRKUR
Framilíald af bls. 1
24 gráður og í hinu veðursæla
Hollandi varð það 22 stig. í Spirn
ingen í Sviss hlj óp snjóskriða
yfir þéttbýlið, og urðu þar skemmd
ir á húsum og öðrum mannvirkj-
um. Ekkert manntjón varð þó
þar. Hins vegar létust fimm
manns í miklum snjóbyl er geys
aði um Alpana síðastl. sólarlhring.
Varla sézt nokkur sáia úti á
götum Rómaborgar, en íbúarnir
eru fremur óvanir slíkum vetrar-
hörkum. Einnig varð mjög mikið
umferðaröngþveiti af völdum snjó
þyngsla i Norður-Frakklandi í
dag. Á hinn bóginn tókst að
halda flestum flugvöllum þar opn
um og á Orly-flugvelilinum var
tekin í notkun nokkurs konar
heStaloftsvél í tilraunaskyni til
að bræða snjó og ís.
Snjókoma var um allt Grikk-
land í dag, og umferðin var í
mesta ólestri.
FÆREYJAFLUG
Frarrtihald af bls. 1
færeyska flugfélagið Faroe Air
ways varð að hætta starfsemi
sinnd í október í fyrra, þa.gar
ljóst var að félagið fengi ekki
endurnýjað leyfi sitt til flug-
ferða milli Færeyja og Dan-
merkur. Átti Nielsen fund
- með fulltrúum Flogsamband í
Þórshöfn, sem félagið hefur nú
hlutafé upp á 2,5 milljónir
danskra króna.
Flogsamband hefur farið þess
á leit við SAS, að fá að taka
þátt í ferðum á þessari flug-
leið ásamt SAS og Flugfélagi
íslands. SAS hefur hafnað þess
ari málaleitan, og mun engin
breyting hafa orðið á þvi á
fundinum í Þórshöfn.
• FLogsamband hefur samið
mn kaup á Fokker Friendship
flugvél. ;
LANDVISTARLEYFI
Framhald af bls. 1
vonumst við til þess að geta
haldið áfram námi hér“.
Ýmsir aðilar í Svíþjóð hafa
verið þeim hjálplegir á ýmsa
lund, útvegað þeim húsaskjól,
mat og fleira. Þeir eru nú þeg-
ar byrjaðir á sænskunámi, og á
fimmtudaginn ætla þeir að
sækja um upptöku í þarlenda
skóla.
Allir hafa þpir svo kallað
„High School“-próf, en þó að
það gildi til inngöngu í banda
ríska háskóla, gegnir öðru máli
um þá saánsku, og verða þeir
því að ljúka ýmsum forprófnm.
Stærsta vandamálið er þó fjár-
hagslega hliðin, þeir eru pen-
ingalausir, en ef til vill hleyp-
ur einhver undir bagga með
þeim til að þeir geti haldið
áfram námi.-
HERSHÖFÐINGI
Framhald af bls l.
öðrum mönnum í mótmælalhópn-
um, hrópaði hershöfðinginn til
hans: „Ég er ekki hræddur við
þig, ég óttgst ekki smástráka. Ég
hef barizt og úthelt blóði fyrir
þetta land“.
Hershöfðinginn var kennari við
helzta herskóla Sovélríkjanna allt
fram til ársins 1961, en þá var
hann 'sviptur embætti vegna þess
að hann mótmælti frelsisskorti í
Sovétríkjunum. 1964 var hann
handtekinn og lækkaður i tign
vegna þess að hann hafði haldið
ræður, sem taldar voru fjandsam
legar landinu. Fyrir tveimur ár-
um var hann lagður inp,^ geð-
veikraspitala, og eftir að hann
kom þaðan, hefur hann unnið að
því að fá uppreisn æru, jafnframt
því að hann hefur barizt fyrir
prentfrelsi í Sovétríkjunum.
Skjalið sem hann afhenti mönn
um fyrir utan bygginguna, var
afrit af vélritjuðu baenaskjaii, stíl-
uðu til réttarformannsins. Það
var samið af tólf vinum hinna
ákærðu og var mótmælaýfirl-ýsing
vegna þess að: „Þessi réttarhöld,
sem hefðu átt að heita opin, væru
haldin fyrir luktum dyrum". Skor
að var á formanninn að opna dvrn
ar öllum þeim sem áður • höfðu
sótt um að fá að vera viðstaddir
réttarhöldin.
Sakborningarnir fjórir; Galans
Orðsending
TIL HAFNFISKRA VERKAMANNA
Þeir verkamenn í Hafnarfirði, sem eru atvinriu-
-•Uv>
lausir, éru vinsamlega beðnir að koma til viðtals
í skrifstofu V.M.F. Hlífar, Vestúrgötu 10, n.k.
fimmtudag og föstudag, kl. 4 til 7 e-h.
Stjórn Verkamannafélagsins Hlífar.
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi
Egill Valdimar Egilsson,
andaðist að heimili sínu 8. þ.m.
Guðríður Þorsteinsdóttir
Sonja Valdimarsdóttir
Erlingur Herbertsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð
og vinarhug viðándlát og jarðarför bróður okkar
Guðmundar Einarssonar
frá Staðarbakka.
Sérstakar þakkir færum við hjónunum Bæring Elfssynl og Ásþóru
Friðriksdóttur, fyrir margvíslega aðstoð og vináttu.
Fyrir hönd okkar systkina hans og annarra vandamanna,
Halldór Jóhannsson.
Elglnkona min, og móðlr
Viktoría M. Jónsdóttir,
andaðist 8. janúar, á sjúkrahúsinu á Selfossi.
Arnbjörn Sigurgeirsson, Sigrún Arnbjarnardóttir.
kov, 29 ára; Ginöburg, 30 ára,
Dobrovolsky, 29 ára og ungfrú
Vera Lasjkov, 21 árs gömul, hafa
öll setið í varðhaldi í eitt ár, án
þess að mál þeirra hafi komið
fyrir rétt. Ýmsir menntamenn,
sem mótmælt hafa handtöku
þeirra fjórmenninganna stóðu í
anddyri hússins í dag ásamt vinum
sakborninganna _ og erlendum
fréttamönnum. Á meðal þessara
menntamanna voru t.d. Dr. Pavel
Litvinov, sonarsonur Litvinovs,
fyrrum utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, Pavel Jakir, sonur mar
skálks eins, sem iét lífið í Staiins
hreinsununum og stærðfræðikenn
arinn Volpin, sonur ljóðskáldsins
fræga, Sergei Jesenin.
Fjórmenningarnir, sem ákærð
eru, eru sökuð um eitt og ann-
að. Helzt er þar að telja, að því
er fréttaritarar álíta, að þau
kváðu hafa staðið í sambandi við
félagsskap rússneskra útlaga í V-
Þýzkalandi, NTS, sem hefur það
að markmiði, að steypa Sovét-
stjórninni. Segir í ákærunni að
þau hafi meðal annars þegið fé
af þeirri stofnun, og eru þau þá
einnig sek um gjaldeyrisbrask.
Þau kvóðu og hafa dreift pésa
nokkrum þar sem réttarhöldunum
yfir Sinjavsky og Daniel var lýst
í smáatriðum, þannig að ráða-
mÖnnum í Rússíá þótti niiður.
Dagblöð í Sovétríkjunum hafa
ekki minnst einu orði á réttar-
höldin til þessa og þar sem þau
eru lokuð, er ákaflega erfitt fyrir
erlenda fréttamenn að gera sér
grein fyrir hvað fram fer þar
innan dyra. Ekki er einu sinni
vitað með vissu hver ákæruatrið-
in eru. Þó herma öruggar heim-
ildir að Dobrovolsky og ungfrú
Lesjkova hafi játað sekt sína.
Einnig var sagt að Galanskov
hefði' gért slíkt hið samá. én fekki
vildu ættingjar hans staðfesta
það. Örfáir ættingjar sakborninga
fá að vera viðstaddir yfirheyrsl-
urnar.
Öllum heimildum kemur hins
vegar saman um að foringi bóps
ins, Ginsburg, hafi ekkerí :' «
á sig.
TERTAN OG HJARTAÐ
Framhald af bls 1.
með eðlilegu móti, en hann hef
ur lengi þjáðst af sjúkleika i
þeim líffærum. I dag sögðu
læknarnir, að tekizt hefði að
stöðva blóðmissinn að mestu,
og mætti þakka það blóðgjöf-
inni. Hjarta hans starfar ágæt-
lega og meðan svo er, telja
læknarnir að hægt verði að
ráða við hin vandamál líkams-
starfseminnar, en þau eru marg
vísleg, svo sem lifrar- og nýrna
sjúkdómur og krónísk lungna-
sýki. Það eina, sem má að nýja
hjartanu finna, er það að það
er þrefalt minna en það gamla
en það kvað ekki hafa neina
úrslitaþýðingu. Hjartað sem nú
slær í brjósti Kasperaks var
tekið úr fjörutíu og þriggja
ára gamalli húsmóður, Wirgin-
iu White, sem lézt úr heila-
blæðingu tveim stundum áður
en_ hjartað var grætt í hann.
í fréttum frá Höfðaborg í
Suður-Afríku segir, að dr.
Philip Blaiberg, tannlækninum
sem gekkst undir hjartaflutn-
ingsaðgerð fyrir viku, líði enn
ágætlega, og sé á greinilegum
batavegi. í dag sat hann á rúm
stokknum, með fætur á gólfinu
í stundarfjórðung.
f tilkynningu Groote Schuur
sjúkrahússins í morgun var
sagt, að líðan hans væri fram-
ar vonum, hann hefði góða mat-
arlyst og ekkert benti til þess
að líkami hans ætlaði að snú-
ast gegn nýja hjartanu.
UMFERÐARSKÓLI
Framhald af bls. 16.
barna sem þátt taka í honum.
Geta má þess að gangi þessi til-
raun umiferðaryfirvalda að vonum,
verður þetta fjölmennasti skóli
landsins, en í því umdæmi sem
hann nær yfir eru um 12 þúsund
börn á þeim aldri sem skólinn er
ætlaður.
Fyrirmyndir um starfsemi skól
ans eru að mestu erlendis frá, þar
sem víða eru starfandi umferðar
klúbbar fyrir börn. Til að athuga
hvers kbnar fræðsluefni muni
helzt henta. börnum á tilteknum
aldri var á síðast iiðnu ári gerð
tilraun með starfsemi umferðar
klúbba á tveim stöðum í Reykja
vík. Var annar þeirra í Rústaða-
hverfi og var hann rekinn í sam
vinnu við sóknarnefndina þar og
í leikskólanum Hoitaborg, í sam
vinnu við Sumargjöf.
Að sjálfsögðu er efni það sem
börnunum verður sent sniðið við
þeirra hæfi, en ekki er að efa að
foreldrar muni fara yfir sending
arnar með börnum sínum og út-
skýra efni þeirra fyrir þeim. í
vetur munu þau börn sem gerast
þátttakendur í umferðarskólanum
fá tvær til þrjár sendingar. Eru
það vel myndskreyttar útskýringar
á undirstöðuatriðum umferðar og
hvernig börnin eiga að haga sér
í samtoandi við bílaumferð án
þess að verða sér að voða af henn
ar völdum. Þá munu börnin fá
gjöf frá skólanum á afmæiisdag.
inn sinn.
Skýrslur lögreglunnar sýna þá
staðreynd að meiri hluti þeirra
barna sem slasast í umferðinni eru
innan við skólaskyldualdur, eða
sex ára og yngri. Á síðasta ári
slösuðust 59 börn í umferðinni í
Reykjavík, þar af voru 36 börn
sex ára og yngrii Samt sem áður
er það gleðiefni að barnaslysum
í umferð fækkaði verulega í
Reykjavík á sl. ári, miðað við ár
ið á undan. Er það áberandi að
hlutfallslega mun færri umferðar
slysum en áður var. Enginn vafi
leikur á að þessa staðreynd beri
að þakka síaukinni umferðar-
fræðslu í skólanum, sem stjórnað
er af Ásmundi Matthíassyni, yfir
lögregluþjóni.
Þar sem umferðarfræðsla barna
í skólum ber svo sýnilegan árang
ur er engin ástæða til að ætla ann
að en einnig megi fækka verulega
umferðarslysum á börnum undir
skólaskyldualdri, en af eðlilegum
orsökum er enfiðara að ná til
þeirra aldursflokka með umferðar
fræðslu. Er því enn ástœða til að
hvetja foreldra til að láta innrita
börn sín í umferðarskólann og að
stoða þau síðan við að öðlast skiln
ing á þeim verkefnum sem þau
fá þaðan.
SÍMINN
Framhald af bls. 16.
að gera til úrbóta á þeim vankönt-
um, sem á breytingunni eru. En
ekki væri búið að taka endaniega
ákvörðun í því máli. Til greina
kæmi að tengja þær þrjár sveita-
símalínur, sem hér er um að ræða
til Keflavíkur. þannig að símnot-
endur geti náð sambandi þangað
á þeim tímum, þegar símstöðin
Vogar er lokuð. Einnig væri hugs
anlegt að koma fyrir einum sjálf-
virkum síma einhvers staðar mið-
svæðis og gæti fólkið þá notazt
við hann.
Fleira kæmi einnig til greina.
En hvorutveggja lausnin yrði
bráðabirgðalausn, sagði yfirverk-
fræðingurinn. Framtíðin yrði auð-
vitað sú, að dreifbýlið fengi einn-
ig sjálfvirkan síma, þótt hann
kæmi fyrst til þéttbýlli staða. Slík
ar framkvæmdir í dreifbýlinu
væru m jög dýrar.
Útsalan hjá TOFT
byr|ar í dag og verður tekið fram margskonar vörur á mjög
mikið lækkuðu verði eins og:
Kvenblússur ur poplíni nr. 38 og 40 á kr. 100,00
Karlm.skyrtur nr. 38, 39, 40 og 43 á — 100,00
Karlmannarykfrakkar, bláir, brúnir — 300,00
Karlmannanærbuxur, stuttar og bolir, stk. á — 30,00
Karlmanna sportbolir, bláir og gulir, stk. á — 35,00
Barnanáttföt á 60,-, 70,- og 80,- kr. stk. — Telpu- og bleyju-
buxur, 5 stærðir á 12,50 til 17,- kr. stk. — Kvenbuxur m/teyju
í sk^lm, 4 stærðir á kr. 34,50 stk. — Kvenhosur hv. og mislitar,
4 stærðir á kr. 12,00. — Sportsokkar nr. 3 til 12, allar stærðir,
á kr. 12,00. — Röndótt sængurveradamask, hvítt á kr. 48,00
mtr., mislitt á kr. 55,00 mtr. — Hvítt léreft 80—90 og 140 cm.
breitt á kr. 18,00, 20,00, 24,00. — Myndaflónel 80 cm. br. á
kr. 20,00; 90 cm. breit á kr. 25,00. — Handklæði á kr. 30.00,
35,- 40,- 45,- og 48,-Gluggatjaldaefni á kr. 70,- og '75,- mtr.
Kven-nvlonsokkar á kr. 15,- 16.50, 25,- og 30,-Kven-nylon-
sokkar. lvkkjufastir, á kr. 25,- stk., — og margt fleira á góðu
verði. Það skal á það bent, að allar vörur eru frá því áður en
gengisbrevtingin kom til sögunnar.
Sendum gegn póstkröfu, meðan nægilegar birgðir eru til.
VERZLUNIN H. TOFT, Skólavörðustíg 8.