Tíminn - 13.01.1968, Qupperneq 2
2 TÍMINN LAUGARDAGUR 13. janúar 1968.
FRÉTTABRÉF FRÁ SVÍÞJÓÐ
Eggjakast og ungir
menn í föðurlandsleit
Þá eru jólin liðin með jóla-
leyfi, góðum mat og talsverð-
um snjó hvarvetna um landið.
Uppi í Lapplandi hefur frost-
ið kamizt niður í 33 stig en
hér í Gautlandi hefur frostið
verið 10—20 stig mestallt jóla
.leyfið.
Jólavarzlun var meiri en i
fyrra og þar með sú mesta,
sem um getur í þessu landi.
Verzlunarmenn eru ánægðir,
þar eð þeir seldu meira en
þeir höfðu búizt við.
Aðalviðbnrður hér innan-
lands um jólin var koma 4
bandarískra hermanna, sem
ekki vildu berjast lengur í
Vietnam en flýðu alla ieið
hingað yfir Japan 02 Sovétrik
in. Piltar þessir höfðu engin
vegabréf né önnur skilríki en
fengu samt leyfi til að dvelja
í Svíþjóð að sinni.
Skömmu fyrir jólin var mik
il kröfuganga í Stokkhólmi
gegn aðförum Bandaríkja-
manna í Vjetnam og beitti lög
reglan tnikilli hörku í því sam-
bandi. S! miðvjkudae dró bó
til enn meiri tíðinda í sam-
bandi við Vietnam og Banda-
ríkin. OECD sendiherrann
bandaríski, Philip Trezise,
kom til Stokkhólms til þess að
skýra aðgerþir Bandarikja-
manna í efnahagsmálum fyrir
sænsku ríkisstjórninni. Þegar
Trezise ætlaði "að fara inn í
stjórnarráðið til þess að
hitta efinahagsmálaráðherr-
ann, Krister Vickman, dreif að
eina 50—80 unglinga úr smá-
götunum við stjórnarráðið.
Unglingarnir létu eggjum og
snjókúlum rigina yfir sendi-
herrann og föruneyti hans.
/ Trezise slapp að vísu ómeidd-
ur úr eggjahríðinni, en fínu
fötin hans voiru öll útbíuð og
létt til þess fallin að ganga á
fund hins snjalla efnahags-
máiaráðherra. sem auk Olof
Palme er talinn líklegur eftir-
maður Erlander.
Engin lögregla var neins
staðar nærri, og þegar hún
loks kom á vettvang voru ung-
lingarnir horfnir eins og dögg
fyrir sólu inn í smágöturnar
Jafnvel sænska sjónvarpið,
sem þó virðist' vera allsstaðar
nærri hafði ekki náð í neina
mynd af sendiherranum með
eggjamaukið utan á sér.
Bandaríkjastjórn hefur mót
mælt þessari eggjaárás harð-
lega og Torsten Nilsson lofaði
að koma í veg fyrir að eggj-‘
um verði kastað í bandariska
sendiboða framvegis. Rætt hef
ur verið um að auka lögreglu
vernd við bandaríska sendiráð
ið og aðra staði þar sem Banda
ríkjamenn halda til, til ( mik-
illa muna tii þess að firra frek
ari vandræðum.
Andstaða gegn stríði Banda-
ríkjamanna í Viefcnam var á
sama tíma gefin til kynna í
Kongó, þar sem varaforseti
Bandarkjamanna var á ferð,
og lenti í andbandarísku upp-
hlaupi. Baindarísk fjölmiðlun-
artæki gerðu mun meira úr at
burðunum í Kongo en Stokk-
hólmi enda varaforseti þekkt-
ari maður en sendiher-ra.
Tage Erlander, forsætisráð-
herra Svía fordæmdi harðlega
eggjaárasina og taldi hana ó-
verjandi með öllu.
Almenmt eru Svíar mjög and
snúnir aðförum Bandaríkja
manna í Vietnam og á stefna
Bandaríkjamanna þar sér enga
opimibera formælendur í Sví-
þjóð. Jafnvel eindregnustu
hægri blöðin eru hvað þetta
snertir almennt mun ákveðn-
ari gegn aðförum Bandarkja-
manma en blöð hliðstæðra
flokka í Noregi og Danmörku
svo ekki sé minnzt á aðalmál-
gagn ísl. ríkisstjórnarinnar.
sem mun hafa algera sérstöðu
hvað borganblöð norðan Alp-
anma snertir í dindilmennsku
gagnvart Bandarikjamönntim.
Eins og venjulega hefur
fjöldi bóka komið út í Svíþjóð
í haust en meðal þeirra hefur
bók Áke Ortmark „Maktspel-
et í Sverige“ algera sérstöðu.
Ake Ortmark er forstöðumað
ur innlendra frétta hjó
sænska sjónvarpinu og talin
vera meðal fimm manna sem
mest vita um það hvernig Sví-
þjóð er í raun og veru stjórn-
að og af hverjum. í bók sinni
segir hann frá ríkisstjórninni
og hennar gerðum, hverjir séu
þar í innsta hring og hverjir
séu líklegir til að taka við. Þá
gerir hann grein fyrir stjórn
arandstöðunni og foringjum
hennar, embættismönnum og
auðvaldinu. Bókiin hefur vakið
feikna afchygli og verið gefin
út í fimm útgáfum alls, til
þessa í 50.000 eintökum.
Margt í bók Ortmarks mun
vera alger nýjung fyrir fjölda
Svía t.d. sú staðreynd að meiri
hluti embættismanna ráðuneyt
arnna eru stjórnarandstæðing-
ar og sænskir jafnaðarmenn
veita ekki stöður vegna stjórn
málaskoðana heldur láta hæfni
og menntun ráða. Þá mum
flestum finnast næsta fróðlegt
að kynnast auðvaldinu bak við
tjöldim og þá fyrst og
fremst Wallenbergs-fjölsikyid-
unni, sem er einstæð i röð
minni þjóða. Fjölskyldan
ó eignir sem nema 1.600 millj-
ónum sænskra króna og er
ainnaðhvort aðaleigandi eða
meðeigamdi í flestum meiri
háttar sænskum fyrirtækjum.
Athyglisvert er, að þessi fjöl-
skylda hefur enn ekki úrkyni-
azt enda mun hún kosta kapps
um að vanda uppeldi baxma
sinna, sem hafa að jafinaði
minni vasapeninga en margir
jafnaldrar þeirra.
Mjög fróðlegt er að lesa um
aðferðir auðvaldsins við að
tryggja sér áhrif auk eigna og
afstöðu stjórnmálamanma til
auðvaldsins.
Af núverandi meðlimum
Wallenbeirgsfjölskyldunnar
mun flestum verða Marcus
Walienberg minnisstæðastur
Maðurinn, sem notar meira en
helmins nvsins ti' ' ei
lendis 02 hvs-• r '• ’vri-t
tæki þar sem honum finnst
hagkvæmt að ráðast 1 fjárfest
ingu.
Þar eð kosið verður tii Rík
isdagsins á þessu ári mun kafl
inn um komaindi kosningabar-
áttu þykja forvitnilegur bæði
utan Svíþj óðar og innan.
Við bæjarstjórnarkosning
arnar 1986 mátti heita friður
milli borgarflokkanina enda
unnu þeir þá mikið á. Að kosn
ingaósigri Jafnaðarmanna
loknum va-r almennt talið að
þeir myndu einnig bíða mik-
inn ósigur nú. Þessi skoðun er
samt ekki lengur eins útbreidd
og hún var. Erlander er kunn-
ur að því að hafa lag á að
láta borgaraflokkana berjast
iinmbyrðis eins og Morguniblað
ið gerir við vinstrimenn á ís-
landi. Á þennan hátt nær Er-
lander að jafnaði fjölda at-
kvæða frá borgaraflokknum
og veldur ruglingi í liði þeirra.
Greimilegf er eins og nú
standa sakir, að JafnaSar-
menn muni verða mun mark-
vissari í kosningabaráttu sinni
en borgaraflokkarnir hver svo
sem úrslitiin kunna að verða.
Áke Ortmann bregður upp
skýrum myndum af forustu-
mönnum sænsbra stjórnmála-
manna og er fróðlegt að
kynna sér lýsingar hans. Er-
lander verður að þessari lýs-
ingu lokinni mun geðþekkari
og meiri maður en flestir sarn
herjar hans á Norðurlöndum.
að undamskiidum Fagerholm.
en hann er nú að mestu hætt
ur afskiptum af stjórnmálum.
Á nýju fjárlögunum hækka
framlög tii vísinda og fræðslu
mála meira én nokkur annar
útgjaldaliður. Ekki er un.ir að
be^a þessi mál saman við nrál-
efnt sem gefið er sama heiti
á íslandi. Orðin þýða ekki
lengur hið sama þegar rætt er
um þessi mál á fslandi og í
Svjþjóð.
f þessu landi er þrettánd-
inn helgidagur og Svíar kunna
vel að meta hélgidaga. Þeir
vinna vel og lengi fimm daiga
vikunnar en laugardag og
sunmudag hvfla þeir sig sfni-
yrðislaust og njóta þess að eng
inn er lengur fátækur i Svi-
þjóð í gamalli merkingu orSs-
ins. Þeir sem ekki geta unnið
sökum heilsutorests fá svo
mikla aðstoð. að þeir geta not-
ið lífsins eftir því sem heils-
am leyfir.
Ekki er hægt að reka vel-
ferðanþjóðfélag nema aflað sé
fjiár og það er í Svfþjóð meðal
annars gert með háum skött-
um, þeim hæstu á Norðurlönd
um. Einmitt þessa dagana er
skattalögreglan að segja frá at
hugunum sínum á framtölum
manna og hefur fundið nokkra
sem ekki hafa munað eftir að
telja firam sitt af hverju m.a.
verzlunargróða. Hvað slflca
menn snertir er engin misk-
unn hjiá Maginúsi hér í Sví-
þjóð.
Gert er ráð fyrir batnandi
þjóðairhag á þessu ári en laun
hafa hækkað jafnt og þétt á
síðustu árum og meira en sem
nemur verðhækkunum.
Meðal félagslegra umfbóta
sem genigu í gfldi 1. jan. er
það, að einginn þarf lengur að
greiða nema í mesta lagl 15.00
kr. í senn fyrir meðöl og e<r
það mikil kjarabót fyrir þá
sem búa við vantoeflsu.
Annað kvöld sýnir sænska
sjónvarpið Gullna hliðið eftir
Davíð Stefánsson en annars er
sárasjaldan minnzt á fsland í
sænskum fjölmiðlunairtækj-
um. Talið er að íslenzki utan-
ríkisráðherrann sé því heldur
mótfallimn að skrifað sé um ís
lenzk málefni erlendis og
vinni heldur gegn þeirri litlu
landkynningu sem fvrir var.
Þetta hefur líklega haft ein-
hver áhrif. Ég spurði nýlega
20 vel memntaða menn hvað
íslenzki utanríkisráðherrann
héti, enginn gat svarað því en
einn hélt að hann héti Bjarni
Benediktsson
Skrifað á Þrettánda 1968.
Ólafur Gunnarsson.
Bandaríkjamennirnir 4, sem neituðu að berjast í Vietnam, við komuna tll Svíþjóðar.