Tíminn - 13.01.1968, Side 13

Tíminn - 13.01.1968, Side 13
 liiis Myndin er tekin við Skíðaskál ann í Hveradölum, Nú er skíðasnjórinn kominn, Mikíll og góður skíðasnjór kominn - segir Óli gestgjafi í Skíðaskálanum. A sunnu- daginn verður fyrsta skíðamótið sunnanlands háð Alf.—Reykjavik. — Skíðafólk hér sunnanlands hefur lengi beðið eftir skíðasnjó í vetur, en skíða sn<jór hefur verið af skomum skammti. En nú er að rætast held ur betur úr. Þegar íþróttasíðan hafði samband við Óla gestgjafa í Skíðaskálanum í Hveradölum seinnipartinn í gær, sagði hann, að við hefðum hringt á réttum tfma, „það er mikill og góður skíðasnjór kominn, sá fyrsti í vetur“, sagði Óli. Það eru því allar líkur á. að helgin núna verði fyrsta skíða- helgi Reyibvíkinga. Skíðaiand í Hveradölum er ákjósanlegt, bæði fyrir byrjendur og þá, sem lengra eru koimnir og er það ekki að efa. að margir muni nota tæki- færið og bregða sér -á skíði um helgina. Fyrsta skiðamótið sunnanlands, Muililers-mótið, á að fara fram í Hveradöium á sunnudaginn og hefjast kl. 1. Þetta verður fimmta minningarmótið um stofnanda Skíðafélags Reykjavíkur, L. H. Muiler. Olympíufararnir keppa á Akureyri á sunnudag Það má búast við skemmti- iegu skíðamóti í Hlíðarfjalli við Akureyri á sunnudaginn, en þá fer svokallað Togbraut- armót fram, en það er svig- mót. Meðal keppenda eru skiðamennirnir, sem nýlega J fróðlegt að vita hvernig þeim voru valdið til þátttöku íjtekst upp í skíðamótinu í vetrar-Olympíuleikunum í j Hlíðarf jalli á morgun. Grenoble í Frakklandi í næsta; Togbrautarmótið er opið öilum mánuði- Þeir hafa aeft mjög! sbíðamönnum. Verður keppt í öll j vel að undanförnu og verður Gott tækifæri fyrir ungl- inga tii aö læra badminton Badmintondeild KR hefur hafið starfsemi sína af fullum krafti, eftir áramótin og eru æfingar vel sóttar. Á laugar- dögum eru samæfingar og æf- ingar fyrir unglinga. Unglinga tímarnir hefjast kl. 3 og er þjálfari á staðnum. Eru ung- lingar hvattir til að notfæra sér þessa tíma og læra þessa fögru og skemmtilegu íþrótt. Má geta þess, að timar þessir eru ókeypis. Á eftir unglinga- tímunum eru svo samæfingar fyrir þá. sem lengra eru komn ir og standa þær yfir tii bl. 7. um flokkum og er búizt við góðri þátttöku. Þetta verður fyrsta skíða mótið nyrðra í vetur. en ágætt i skíðafæri er nú í Hlíðarfjalli. Aðalkeppnin á sunnudaginn j hefst kl. 1,30. Mótstjóri er Óðinn Árnason. Ekki 200 heldur 2000 Meinleg villa varð i fyrirsögn í frétt um skíðalyftuna á ísafirði, sem birtist í gær. Sagt var, að nokkrir ísfirðingar hefðu 200 tíma í sjálfboðavinnu að baki, en hið rétta er. að þeir hafa 2000 tíma að baki, eins og reyndar kom fram í greininni. íslandsmótið í körfuknattleik hefst í dag: TVEIR LEIKIR A AKUREVRIIDAG KR 00 ÍRLEIKA ANNAÐ KVÖLD Alf___Reykjavík. — íslandsmót- ið í körfuknattleik verður sett á Akureyri í dag, en þá fer jafn- framt fram fyrsti leikur mótsins, sem verður í 1. deild á milli heima liðsins Þórs og KFR úr Reykjavík. Einnig fer fram leikiu- í 2. deild milli heimaliðanna KA og MA. Bogi Þorsteinsson, fonnaður körfuk n a ttleikss ambands íslands mun setja mótið, en þetta er í fyrsta sinn. sem það verður sett utan Reykjavíkur. , Með því er Akureyri sýndur nokkur sómi, en vist er um það, að vel fer á þvi, að mótið skuli einmitt hefjast á Akureyri. því að Akureyringar senda 3 meistaraflokksiið til keppni í þessu Ísliandsmóti, sem er vel af sér vikið af 10 þúsund manna bæ. — Að sjáifsögðu verð ur leikur Þórs og KFR undir smá sjá í dag, en þama leikur Þór sinn fyrsta 1. deiidanleik. Með liðinu leikur Einar Bollaso-n og verður það án efa mikill styrkur fyrir Þór. Annað kvöld, sunnudagskvöld, verður fslandsmótinu í körfuknatt leik svo haldið áfram í Laugar- dalshöllinni í Reykjavík. Þá fara fram tveir leikir i 1. deild. Fyrst mætast Ármann og íþróttafélag Keflavíkurflugvallar, en síðan mætast erkióvinirnir. _KR og ÍR. KR-ingar hafa haldið íslandsmeist aratitlin'Uim. undanfarin ár, en ÍR ingar ailtaf fylgt þeim sem skugg inn. Spurningin er, verður breyt- ing á því á þessu keppnistíma- bili? Við fáum ekki svar um það EINAR BOLLASON — höfuð og heili Þórs-liðsins. annað kvöld, en e.t.v. einhverja vísbendingu. Fyrri leikurinn annað kvöld hefst kl. 8. Handboltinn: Hvaö skeð- ur um helgina? Alf-Reykjavik. — Keppn inni í 1. deild í handknatt leik verður haldið áfram í Laugardalshöllinni síðdeg is á snnnud. og verða þá leiknir tveir leikir og auk þess einn leikur í 2. deild. Fyrsti leibur á sunmudag inn er á mi'lli Vals og Hiauka og hefst hann klukkan 2. Þar næst mætast Fram og Víkingur. Báðir leikirnir ættu að geta orðið mjög spennandi og jafinir. Hauk ar hafa tapað leikjum sín um til þessa og reyna áreið anlega allt til þess að krækja í sín fyrstu stig. Hins vegar er vitað, að Vals menn ætla sér að keppa um efsta sætið — og muciu ekkert gefa eftir. Leikur Fram og Víkings ætti ekki Framtoald á bls. 12. Ný glímulög samþykkt Glímusamtoandið staðfesti ný glímulög þann 28. des. si., er nefnd, sem kosin var á Glímu- þingi, hafði samið, en þingið lagði tR. að gerðar væru nokkrar breyt ingar á þeim. Nýju glímuilögin skuilu gilda frá 1. jan. 1968, en Bókaútgáfa ÍSÍ sér um útgáfu þeirra. Ákveðið hefur verið, að Lands flokkaglúnan verði háð 24. marz n.k. og fslandsglíman 28. apríl. Glímuráði Reykjavíkur hefur verið faiið að sjá um þessi glímu mót. Þá hefur verið ákveðið, að Ungmennasamb. Snæfellsness- og Hnappadalssýslu sjái um Fjórð- ungsglímu Vestfirðingafjórðungs. fþróttabandalag Akureyrar sjál um Fjórðungsglímu Norðlendinga- fjórðungs. Glímuráð Ungmenna- og fþróttasambands Austurlands sjái um Fjórðungsglímu Austfirð- ingafjórðungs og Ungmennasam- band Kjalamesþings sjái um Fjórð ungsglímu Sunmlendingafjórðungs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.