Tíminn - 21.01.1968, Síða 1

Tíminn - 21.01.1968, Síða 1
FASTEIGNASALAN HÚS&EIGNIR BANKASTR Æ T I f, Símar 16637 — 18828. Auglýsmg i Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Ingólfur Þorsteinsson, aSstoðaryfirlögregluþjónn, sk ýrir blaðamönnum frá gangi málsins um hádegið I gær. (Tímamynd: GE). MADUR HAND- TEKINN í GÆR OÓ-Reykjavík, laugardag. Enn er ekki búið að upp- lýsa hver myrti Gunnar Tryggvason, leigubflstjóra, að morgni fimmtudags s.l. Unnið er af fullum krafti að málinu og mjög viðtæk leit hefur stað- ið yfir að þýðingarmiklu vitni allt síðan á fimmtudagskvöld, en það er ekki komið í leit- irnar enn. I>á hefur Tíminn frétt að búið sé að úrskurða Bandaríkjamann í gæzluvarð- hald vegna morðsins. Rannsókn arlögreglan vill þó ekki stað- festa að svo sé, en neitar ekki að maður liafi verið handtek- inn. Tekið skal fram, að lög- reglan vill ekki láta annað uppi en að um sé að ræða mikilvægt vitni í málinu. Maðurinn sem hvað mest er leitað að er ungur að árum, en hefur oft áður komizt í kast við lögin. f gær gengu lögreglu menn á allar bílastöðvar borg- arinnar og sýndu bílstjórum mynd af manninum, ef þeir kynnu að kannast við að hafa ekið honium eftir að morðið var framið. Þá foru hengdar upp ljósprentaðar myndir af honum á bílastöðvunum, en það var ekki gert á vegum rannsóknarlögreglunnar, eða með hennar vitund, og voru þær teknar niður í gærkvöldi. í bíl Gunnars fannst stubb- ur af sígarettu sem er af teg- undinni John Silver. Þessar sígarettur eru ekki seldar hér á landi. en eru framleiddar í Svíþjóð. Vitað er ,að maðurinn, sem fcvað ákafast er leitað að, hafði slíkar sígarettur í fórum sínum og var að reyna að selja þær, en sígarettunum var smygl að til landsins. Fleiri atriði koma þó til greina í sambandi við mann þennan, sem benda til að varpað geti ljósi á morð- málið. Um kl. 6 á fknmtudags- morgni sáu tveir menn, sem voru að keyra út dagblöð, að maður var á flækingi á Rauða- læk, skammt frá þeim stað sem Gunnar fannst myrtur nokkru síðar. Sáu þeir ekki framan í þennan mann, enda sneri hann í þá baki. Veittu þeir honum ekki mikla athygli. en atburðurinn rifjaðist upp fyrir þeim þegar þeir fréttu um moröið. Mennirnir óku bíl sín- um suður Laugalœk og beygðu upp Rauðalæk. svo að þeir fóru eteki framlhjó bíl Gunnars, sem stóð rétt sunnan vegamótanna. Þá hefur maðurinn sem gekk framhjá bílnum rétt f-yrir klukk an 6 borið að honum hafi sýnzt sem einhver hafi legið í hnipri í aftursæti bílsins. Þó er hann ekki viss um að svo hafi verið, enda veitti hann bílnum litia athygli, eins og komið hefur fram í fréttum. Enginn aðili hefur enn gefið sig fram, sem ekið hefur með Gunnari milli kl. 4.05 og 4.50, en á því tímabili var Gunnar ekki við Laugarnesstaurinn, eða frá 4.50, en þá sást hann Framhald á bls. 15. VITNÍ VANTAR Rannsóknarlögreglan leitar mú að manni, sem talið er hugsanlegt að hafi tekið sér fari með R-461. á þeim tíma nœturinnar, sem enn hefur ekki tekizt að fá upplýsingar um. Þetta vitni hefur ekki fundizt, þrátt fyrir töluverða leit. Vindl ingsstubbur af sænskri tegund famnst í bílnum, og er talið að vitnið kunni að gefa einhverj- ar skýringar varðandi það. Tegund þessi er John Silver, en vitað er að vit.nið var með slíka vindlinga til sölu. Nauð- synlegt er fyrir lögregluma að þrengja hringinn sem mest varðandi ferðir Gunnars um nóttina. Þetta vitni er liður í því að brengja þanm hring. Við birtum mynd hér til hliðar af hinu eftirlýsta vitni, fólki til glöggvunar. Lögreglus itjórar og syslumem með ferð fylgjast um manna FB-Reýkjavík, laugardag. Morðið á leiguWílstjóranum hefur vakið mikla *thygli utan Reykjavíkur, og víða hér í nágrenninu, fyrir vestan og fyrir norðan, eru yfirvöld á verði fyrir öllum ókennilegum mannaferðum. Tíminn hafði í dag samband við sýslumenn og lögreglustjóra á þessu svæði. Má um þessa aðila hafa orð yfirlögregluþjónsins í Reykjavík, að þeir hafa „bæði augu og eyru opin“. En frá honum höfum við þær upplýsingar, að rannsóknarlögreglan hafi verið að leita að ákveðnum manni í Keflavík í sambandi við málið. Annars eru yfirvöldin mjög þakklát fyrir þann mikla stuðning, sem almenningur er fús að veita í málinu, og kemur m.a. fram í því, að rannsóknar- lögreglunni eru alltaf að berast upplýsingar, sem kannski gætu orðið að gagni. En einhverjar þessar upplýsingar geta orðið mjög mikilsverðar. Hér fara á eftir samtöl Tímans við yfirvöld á hinum ýmsu stöðum. Sigtryggur Árnason, yfirlögreglu- þjónn, Keflavík: Það hefur verið leitað til okk- ar hér, en við höfum ekki enn getað komið með neitt, sem hald er í. Það hefur verið að koma hing að maður og maður með uppó- stungur og upplýsingar um ferðir manna og byssueign og annað slíkt Við höfum verið beðnir um að leita að ábveðnum manni, hann mun hafa fundizt, en þó ekki hér hjá okku-r, heldur kom hann fram í Reykjavíik og á heima hér i Keflavík. Við erum að taka hér skýrslu-r og annað slífct, þessu varðandi og höfum bæði augu og eyru opin. Ingibergur Sæmundsson, yfirlög- regluþjónn í Kópavogi: Við höfum komið til skila öll- um þeim upplýsingum, sem borizt hafa okkur til eyrna, en við get- um ekiki gumað af þvi, að það hafi verið neitt mikið. Fólk hefu-r hringt til okfcar, og helzt sagt okkur frá mönnum, sem hafa átt byssur. í sumum tilfellum höf- um við látið það ganga beint til lögreglunnar í Reykjavík, en öðr- uim höfum við athugað það sjálf- ir. Ég er ekki viss um, að neitt af þessu hafi verið sams konar byssur, og sú, sem um er að ræða í þessu tilfelli, en þori þó ekki að segja um það fyrir víst. Steingrímur Atlason, lögreglu- þjónn, Hafnarfirði. Við höfum vakandi augia á öllu, og fylgjumst með því sem fram kemur bæði frá lögreglunni í Reykjavík og í blöðunum, og þær upplýsingar, sem við fáum látum við ganga áleiðis til þeirra í Reykjavík. Við látum þá vinsa úr því, sem okkur berst. Fólk hef ur haft samband við okkur, t. d. var okkur sagt frá því, að skotið hefði verið á bíl fyrir þremur til fimm árum úr húsi í Laugarnes- hverfinu, og komizt var að því úr hvaða húsi var skotið, og við gáf um það upp. Eins hefur okkur verið sagt fró mönnum, sem eiga byssur, eins og þá, sem auglýst hefur verið eftir, og því höfum við sömuleiðis komið á framfærL Jón Guðmundsson, yfirlögreglu- þjónn, Selfossi: Það ern að sjálfsögðu allir lög- gæzlumenn í landinu beðnir um að hafa augun opin í sambandi við þetta, og við þar með. Mér vitanlega er enginn ákveðinn grun aður enniþá, svo það er ekki mikið hægt að gera. Við tökum við þeim upplýsin-gum, sem kunna að berast og hingað til hefur ekkert borizt, sem við mundum telja athyglis- vert. Stefán Bjarnason, yfirlögreglu- þjónn, Akranesi: Við vorum beðnir um að svip- ast um eftir ákveðnum manni, og Framhald á bls. 14. ÁFENGI ST0LID ÚR LIDÓ EJ Reykjavík, laugardag. • í nótt var brotist inn í veit ingahúsið Lidó og þar stolið víni, sennilega 15—20 flöskum. Er hér um Genever og Gin að ræða. Mál þetta er nú f rann- sókn. Kristján Sigurðsson, lögreglu þjónn, tjáði blaðinu í dag, að rannsókn væri rétt að hefjast Hefði þjófurinn, eða þjófarnir, sparkað upp hurð á víngey-mslu í Lídó og haft á brott með sér ofangreint magn af áfengi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.