Tíminn - 21.01.1968, Side 9

Tíminn - 21.01.1968, Side 9
SUNNUDAGUR 21. janúar 1968. TÍMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Krlstján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helfjason og IndriOi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Ang- lýsingastjóri: Steingrimur Glslason Ritstj.skrlfstofur 1 Eddu- búsinu, símar 18300—18306 Skrifsofur: Bankastræti 7 Af- greiðslusími: 12323 Auglýsingasími: 19523 Aðrar skrlfstofur, sími 18300. Ásikriftargjald kr 120.00 á mán. Innanlands — f lausasölu kr 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Deila um útvarpsþátt Deila er nú risinn út af því, að meirihluti útvarps- ráðs hefur, eftir krókaleiðum, fellt niður hljóðvarpsþátt, sem Magnús Torfi Ólafsson sá um. Látið er í veðri vaka, að þátturinn sé felldur niður vegna þess, að hann hafi. misheppnazt og þótt leiðinlegur. Um það mat skal ekki dæmt hér, enda geta útvarpshlustendur gert það sjálfir. Megin ástæðan til þess, að þátturinn er felldur niður, mun líka sú, að Magnús vék, í seinasta þætti sínum, eitt- hvað að réttarhöldum í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum á þann veg, sem „vinum“ Bandaríkjanna líkaði ekki. Þeir, sem heyrðu þennan þátt, geta hver um sig dæmt um það, hvort Magnús hafi þar brotið gegn reglum útvarpsins um óhlutdrægni. En til gamans skal þess getið í þessu sambandi, að síðastl. mánudag birti „Inter- national Herald Tribune“, sem er gefið út í París, í sam- vinnu við „New York Times“ og „Washington Post“ tvær forustugreinar úr „New York Times“, sem voru skrifaðar í samhengi. Fyrri forustugreinin fordæmdi dóm ana yfir rússnesku skáldunum og þau málamyndarréttar- höld, sem fóru fram í sambandi við þá. Síðari forustu- greinin átaldi hinsvegar stjórnarvöld Bandaríkjanna fyrir að neita júgóslavneska skáldinu Vladimir Dedijer um vegabréf, en hann hafði óskað eftir að mega koma til Bandaríkjanna- „New York Times“ komst svo að orði, að með þessu virtust Bandaríkin vera ákveðin í því að sýna, að kommúnistaríkin hefðu ekki neinn einkarétt á gjörræði. Því er hér vakin athygli á þessum tveimur forustu- greinum „New York Times“, að þær eru glöggt dæmi um það frjálsræði og víðsýni í fréttum og málflutningi, sem einkenna ekki aðeins mörg helztu blöð Bandaríkj- anna, heldur einnig fréttaflutning fjölmargra sjónvarps- stöðva þar. í þeim efnum eru Bandaríkjamenn á eftir- breytnislegan hátt að losa sig úr viðjum kalda stríðs- ins. Og jafn ákveðið og margir vilja fordæma fram- ferði þeirra í Vietnam, þá er jafnskylt að halda því á lofti, hve frjálslega og einarðlega er rætt um þessi mál í Banda ríkjunum. Þar gefa Bandaríkjamenn fordæmi, sem allur heimurinn getur dáðst að. Því er ekki að neita, að íslenzka útvarpið hefur enn ekki losnað við áhrif kalda stríðsins í fréttaflutningi sínum um útlend málefni. Það finna þeir bezt, sem hafa átt kost á að fylgjast með bandarískum sjónvarpsfrétt- um um nokkra hríð. Þær skýra málin frá sem flestum hliðum og frá sem flestum sjónarmiðum. Þátturinn „Efst á baugi“ er spor í rétta átt, því að þar er oft greint frá málum af víðsýni og óhlutdrægni. En slíkir þættir mættu vera fleiri og flytjendur fleiri. Á þeim vettvangi ætti maður eins og Magnús Torfi vel heima, því að hann er manna fróðastur á því sviði og vill segja rétt frá, eins og málin koma honum fyrir sjónir. Varðandi innlend efni hefur nokkuð þokazt í rétta átt hjá útvarpinu hin síðari ár, hvað það snertir að skýra málin frá sem flestum hliðum. Þó stendur þar enn margt til bóta. Varðandi alþjóðleg mál hefur hins vegar ríkt að miklu leyti stöðnun og jafnvel afturför frá því sem áður var. Þetta þarf að takast til endurskoðunar. Sú endur- skoðun á ekki að beinast að því að útiloka fréttir. sem Bandaríkjamönnum eða öðrum bandalagsþjóðum okkar geta verið óþægilegar, heldur að því að taka til fyrir- myndar hinn frjálsa og víðsýna fréttaflutning þeirra bandarískra blaða og sjónvarpsstöðva, sem fremst standa í þeim efnum. ROMNEY RÍKISSTJÓRI: Stefna verður að tryggðu hlut- leysi beggja Vietnamríkjanna og brottflutningi alls erlends herafla frá báðum ríkjunum. ROMNEY ríkisstjóri, sem keppir að því að verða fram- bjóðandi republikana í for- Setakosningunum, er nýlega kominn heim úr ferðalagi til Suður-Vietnam. Síðastliðinn mánudag flutti hann ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir því, hvernig haun vill vinna að því að koma á friði í Viet- nam. Rétt þykir að birta þann kafla úr ræðu Romneys, sem fjallar um þetta atriði, þar sem líklegt er, að hann mæli fyr- ir munn hinna frjálslyndari republikana. VIÐ segjumst vilja samn- ingaviðræður og fallast að nýju á grundvallaratriði Genf- arsamlþykktarinnar, en við höf um ekki hafzt nægilega að, til þess að sannfæra Hanoi-menn, íbúa umheimsins eða jafnvel Bandaríkjamenm sjálfa um að okkur sé alvara. Litið hefir út fyrir, að við breyttum skilyrðum okkar fyr- ir samningaviðræðum, sem leitt gætu til samkomulags, og við virðumst hafa misst af tækifærum til þess að fá samn ingaviðræður hafnar, hvort sem verið hefir af ásettu ráði eða mistökum. Afstaða okkar hefir þótt benda of mikið til þess, að við værum að krefj- ast skilyrðislausrar uppgjafar. Við ættum fremur að taka jákvæða afstöðu til þe9s á- stands, sem nú ríkir í alþjóða- málum, en að sýna þverlyndi. Nýframkomnar breyttar um- sagnir Norður-Vietnama um samningaumleitanir gætu lof- að góðu. Vera má, að afstað- an hafi breytzt, og þeim gæti verið alvara með að óska eft- ir raunverulegum viðræðum. ÉG hefi um nokkurt skeið verið að hugleiða uppástungu að alvarlegri ákvörðun um Vietnamdeiluna. sem leiða myndi til tryggðs hlutleysis þess landsvæðis, sem beinan hlut á að máli. Ég hefi bent á, að þetta væri aðeins ein margra hugsanlegra leiða til að hefjast handa, en þó vel þess verð, að hún væri athug- uð af gaumgæfni. Með tryggðu hlutleysi á ég við, að Norður- og Suður- Vietnam, Laos og Cambodia væru losuð við íkveikjuhættu af völdum átaka kalda stríðs- ins, eyðandi nærveru hinmar svonefndu „þjóðfrelsisstyrjald ar“ og frá þeim tekin beit- ing ofbeldis og ógnanir um beitingu þess, sem aðferðir til að leysa deilur eða koma fram pólitískum áformum innan marka þessa landsvæðis. Ef að þessu væri horfið, yrðu erlendar hersveitir oa herstöðvar fjarlægðar af svæð- inu og ekki yrði um nein bandalög að ræða milli þjóða á svæðinu og valdasamsteypa, hvorki austrænna né vest- rænma Sjálfsákvörðunarréttur inn vrði aflið, sem úrslitum réði innanlands á svæðinu. Ríkin á hlutlausa svæðinu ættu ■» - —B>W George Romney að vera frjáls að því að vinna að efnahagslegri framþróuin innan sinna marka í samvinnu, og ættu að njóta aðstoðar til að ná því marki. Með tryggðu hlutleysi ætti að vera unnt að ná því tak- marki, sem olli í upphafi af- skiptum Bandaríkjanna í Viet nam, eða rétti Suður-Vietnama til þess að ákveða sjálfir sína stjórnarhætti, án afskipta er- lendra afla. ÞRENNT þarf að gera til þess að unnt sé að koma á tryggðu hlutleysi. En þessi þrjú atriði eru hvert öðru háð. í fyrsta lagi þarf að ná al- þjóðlegu samkomulagi um Suð ur-Vietnam. Valdhafarnir í Saigon og þjóðlega frelsisfylkiingin yrðu að koma sér saman um aðal- atriði þessa samkomulags, bera á því höfuðábyrgð, en utan að komandi öfl gætu haft sam- vinnu um að beita áhrifum sínum í þessu augnamiði. í samkomulaginu ættu að vera ákvæði um niðurfellingu bar- daga af beggja hálfu, burt- flutning hvers konar erlends herafla og hernaðartækja. auk endurreisnar innlends valds og þjóðhollustu. Valdhafarnir í Saigon yrðu að vera fúsir til að veita aðil- um að Vietcong sakaruppgjöf og frelsi til þátttöku í stjórn- málastarfi í landinu. Viet- cong-menn yrðu að vera fús- ir að hverfa frá ofbeldi og þvingunum, sem aðferðum til að ná stjórnmálamarkmiðum. Samkomulag yrði einnig að vera um aðferð til lausnar þeim vanda að sameina Viet- nam-ríkin tvö að nýju. í ÖÐRU lagi yrðu stórveld- in að ná samkomulagi um málið. Með því móti yrði unnt að hverfa fró vopnuðum átök- um milli Suður- og Norður- Vietnam og erlendra banda- manna hvers um sig, afnema stjórnmála- eða hernaðaraf- skipti erlendra velda á hlut- lausa svæðinu og tryggja var- anlega frið og kyrrð þar. Þessu væri unnt að koma í kring fyrir atbeina aðildar- ríkja Genfarsamþykktarinnar, en ef til vill mætti njóta að- stoðar sérstakrar nefndar, sem þau skipuðu, og falið yrði að semja um sameiginlega sam- þykkt þeirra. Bandaríkjamenn ættu þarna aðild að sem þátttökuþjóð í Genfarráðstefnunni frá 1954. Vonandi tækju Kínverjar einn ig þátt, í þessu, en synjun þeirra um aðild ætti ekki að þurfa að koma í veg fyrir framkvæmdir meðan samvinna aðildarríkja Genfarsamþykkt- arinnar væri nægilega einlæg og áhrifamikil til þess að tryggja starfihæft ábyrgðar- kerfi. í ÞRIÐJA lagi þyrfti vendi- lega samræmt kerfi alþjóðlegr ar umsjónar, eftirlits og fram- kvæmdar samkomulagsins milli Saigon-manina og þjóðlegu frelsisfylkingarinnar og meðal aðildarveldanna að Genfarráð stefnunni. Þetta kerfi gæti náð til margs konar starfa, svo sem löggæzlu á landamærum, eftirlits með vopnahlésákvæð- um, endurreisnar innlends valds og brottflutnings erlends herafla. Þá miá og nefna stjórn mála- og hernaðarlega nær- veru til þess að tryggja stað- bundið öryggi og reglu, könn- un á hlutleysisbrotum og var- úðarráðstafanir gegn þeim, stjórn og opinbera þjónustu til bráðabirgða, eftirlit með framkvæmd kosninga og sér- íræðilega aðstoð og leiðbein- ingar við efinahagsþróun á á- kveðnum svæðum. Sérstök, aiþjóðleg sendi- nefnd gæti skipulagt þessi störf og falið þau ákveðnum aðilum, ef til vill undir yfir- stjórn Sameinuðu þjóðanna, sem notfærðu sér framlög þjóða eins og íra, Svía og Ethiopíumanna, sem hafa reynslu í friðargæzlu eða al- þjóðlegu eftirlitsnefndarinnar, sem þá yrði að efla með auknu valdi og búnaði, — og jafn- framt að losna við lömun neit- unarvaldsins. EIG-I að takast á við vand- ann með þessum hætti. þarf sameinað átak þjóða, sem láta stjórnast af sameiginlegri ó- beit á styrjöldum og ást á friði. Gagnkvæm snerting, sam skipti og umræður verða að fara fram á mörgum mismun- andi sviðum samtímis. Sér stök atriði áætlunarinnar yrðu svo að ákveðast nánar jafn- óðum og þau kæmu til fram- kvæmda. Bandaríkin gætu tekið að sér að hafa forystu í þessu éfni og beitt áhrifum sínum á aðra. Væri ég forseti. léti ég ekk- ert tækifæri ónotað til þess að hefjast handa um að hrinda þessu í framkvæmd.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.