Tíminn - 23.03.1968, Síða 8

Tíminn - 23.03.1968, Síða 8
LAUGARDAGUR 23. marz 1968. Stríðinu í Vietnam mótmælt TÍIVSINN Palme, hann heitir OLOF, hann er ráðlherra i kennslu- málum hér í ríki Erlanders. Palme hélt ræðu þann 21. febr. við stóra og virðulega mótanæla göngu í Stokkhólmi. Stríði Bandarílg'astjórnar í Vietnam var mótmælt. Að baki göngunni stóð Vietnamnefnd félagsmáia- hreyfingarinnar, með hundruð þúsunda félaga, m. a. stjórn- málafélög úr öllum filokkum, nema hægri. ýmsar kirkjulegar hreytfingar, auk annarra. Hvað Palme sagði, hefur enginn gagnrýnt eiginlega. Hitt hefur þótt hrollvekjandi, að Palme gekk í göngunni með öllum orðljótum spjöildum. og svo var köttur í bóli bjarnar. Sendi- herra Norður-Vietnam var staddur í Stokkhólmi, óvænt, og sá skratti tók sér bessaleyfi að ganga með. Og sem góðum gesti var honum boðið að vera í fremstu röð með Palme og Gunniari Myrdal. sem er for- maður Vietnam-nefndarinnar. Þegar svo um það biJ hálfum mánuði seinna kölluðu Banda- ríkjamenn heim sendiherra sinn hér, til viðræðna (ies: mótmæla sænsku stjórninni), þá vöknuðu stjórnarandstæðing ar og urðu geysi'hugrakkir. þá varð þátttaka Palme eitt voða- legt glappaskot. Hægriforing- inn, Holmberg, skoraði á Er- lander að reka Palme. Formað- ur frjálslyndra hefur farið svo klaufalega að í sinni þjónkun við Bandaríkjastjórn að bæði ungir frjálslyndir og frjálslynd ir stúdentar hafa mótmælt. Eins og vant er, er gamli Hedlund í miðjunni klókastur og heldur höfðinu köldu, segir fátt en glottir. Palme er rúmlega fertugur, róttækur ideolog og idealisti af borgaralegum ættum Hann er vanur við hörð átök. sem framámaður i alþjóðasamtök um stúdenta og seinna sem handgenginn einkaritari Er- landers og smám saman ráð- herra í ýmsum ráðuneytum. Það er þýðinsarlau'st að reyna að lýsa ræðu Palmes. úr því að ekki er hægt að hlusta á hann, verður að reyna að lesa fcana. Hún er ein heild. sem örðugt er að klippa í. Ég hef því reynt að þýða hana í heild og fylgir hún hér með. Ég er að vísu lélegur þýðandi. en tel mikil.s virði að svo merkileg ræða nái augum les- enda Tímans. Ég vona að Tíminn geti birt ræðuna. án þess að eiga á hættu að Lyndon kalli heim sendiherrann á ís- landi. RÆÐAN. Lýðræðið er kröfuhart stjórn arform. Það krefst virðingar fyrir öðrum. Það er ekki hægt að þvinga stjórnarform upp á þjóð útifrá. Þjóðirnar verða að hafa rétt til þess að móta framtíð sína eftir eigin höfði. Þess vegna byggir lýðræðið á ».,álfs- ákvörðunarrétti þjóðanna. Lýðræðið krefst réttlætis. Það er ekki hægt að vinna þjóð með þvi að fylla vasa hinna ríku á meðan fcinir fátæku sökkva niður i dýpri neyð. Það er ekki hægt að mæta kröfurn um félagslegt réttlæti með valdi og herafla. Lýðræð- ið byggir á félagslegu frelsi. Markmiði lýðræðisins verður ekki náð með aðferðum harð- stjórnarinnar. Það er ekki hægt að bjarga þorpi með þvi að jafraa það við jörðu — brenna akrana, eyðileggja húsin. loka fólkið inni eða drepa það. Þetta eru grundva'llaratriði þegar leggja skal mat á styrj- öldina í Vietnam. Almenningsálitið gegn stríð- inu í Vietnam sækir styrk í að geta visað til staðreynda. Því stríð þetta er engin tilviljun eða stundarskyssa, það speglar enga deilu, sem skyndilega hef ur blossað upp. Það á sér langa sögu, þar sem atburðirnir geta fylgt hver öðrum með nrellandi markvissu. Þrjú ártöl eru þess virði að sérstaklega hafa í hug í þess- ari atburðarás. Hið fyrsta er árið 1945. Vietnam var frönsk nýlenda Jlapanir hernáimu landið, þegar þeir sóttust eftir asíatísku heimsveldi. Japanir biðu ósig- ur. En trúin á yfirburði hvíta mannsins hafði beðið fcnekki. Þegar Frakkar reyndu að end- urheimta nýlendu 6ína mættu þeir þjóð. sem krafðist sjálf stæðis. Andspyrnuhreyfingin gegn Japönum varð kjarninn í hreyfingu. sem krafðist frets is frá allri erlendri íhlutun. Hún sótti uppörfun i sjálfstæð isyfirlýsingu Bandaríkjanna Hún treysti á stuðning USA við sjálfstæðiskröfur sínar taldi sig hafa fengið Ioforð Jtn það. Hún lýsti yfir stofnun lýðræðis legu alþýðulvðveldis Vietnam. Nýlenduveidið ákvað að end- urheimta og haida veldi sínu með ofbeldi. Og Bandaríki N- Ameríku stilltu sér upp við hlið Frakka. Þannig byrjaði stríðið í Viet nam, stríð gegn erlendri ásókn. Það er þetta stríð, sem enn þá er í gangi. Frakkar og bandamienn þeirra, innlendir, töpuðu. Þeir höfðu e'kki stuðning fólksins. Baráttan breiddist út yfir land- ið. USA skarst í leikinn til hjálpar. Eftir 1950 mun USA hafa borið 70—80% af stríðsút ^gjöldum Frakka. En það dugði ekki. Við Dien-Bien-P'hu féll draumurinn um franska ný lenduveldið saman. Og samning ar um frið hófust í Genf. Þann ig erum við frammi við ártal nr. 2, 1954. Þann 20. júlí 1954 náðist sam komulag um vopnahlé í Viet- nam. Til bráðabirgða var land- inu skipt. En aðeins til bráða birgða og aðeins frá hernaðar- sjónarmiði. Eftir tvö ár — í júlí 1956 — skyldu frjálsar kosningar fara fram í öllu land inu. Þar eftir skyldi landið sam einað. USA hafði verið andvígt Genfarsamningnum og vi'ldi ekki undirrita samkomulagið Það urðu engar frjálsar kosn- ingar. Vietnam var áfram klof- ið í staðinn sagðist USA vilja byggja upp lýðræðislegan va'- möguleika í Suður-Vietnam Uppá þennan möguleika kost- u$u þeir skipulagsaðstoð og óhemju fjárfúlgum. Sú stjórn í Saigon sem hlaut stuðning USA sameinaði rudda legar ofsóknir harðstjórans gegn öðrum skoðunum og full komna lítilsvirðingu fyrir rétt lætiskröfum alþýðunnar varð- andi félagsleg og efnahagsleg lífsskilyrði. Það var talað um skiptingu jarðeigna. Viet Minh hafði skipt landi milli bændanna. Það er sagt, að hinir gömlu jarðeigendur og okrarar hafi komið á vörubílunum, sem fluttu hermenn þá, sem sögð- ust komnir til þess að frelsa bændaþorpin. Fyrir bændurna voru það ek'ki frelsarar sem komu, það voru hinir gömlu kúgarar þeirra. Þess vegna fékk stjórnin í Saigon fólkið upp á móti sér. Það er ekkert, sem segir í mót, að þegar stríð ið blossaði upp aftur var það í öllum aðalatriðum uppreisn alþýðunnar gegn rotinni og hat aðri stjórn. Alveg eins og það gekk illa fyrir Frökkum, gekk það illa fvrir stjórninni í Sai- gon. Fólkið svalt og rotinn í stjórnarfarinu blómstraði. USA skarst í leikinn allt meir. Aukn ing stríðsaðgerðanna hófst. Fá- einir ráðgjafar urðu fleiri, urðu deildir, fylki, urðu stórir herir, hundruð þúsunda her- manna. Voldugasta stríðsvél veraldar tók að beina öllum kröftum sínum að því að brjóta niður viðnámið í þessu litla ' landi. Þó gekk það illa. Þar með erum við frammi fyrir þriðja ártalinu, febrúar 1965, um þetta Teyti fyrir þrem ur árum hófust sprengjuárás- irnar á Norður-Vietnam. Þar eð stríðið í Vietnam kallaðist verk utanaðkomandi árásarað- ila. hlutu aðgerðirnar að bein- ast gegn honum. Engin stríðs- yfirlýsing hefur þó verið gefin út. Yfir Norður-Vietnam hafa á þessum þremur árum fallið fleiri sprengjur-en yfir nazista- Þýzkalandi í he>nsstyrjöldinni síðari. Við vitum hvað þetta hefur þýtt í eyðileggingum og þjáningum einstaklinga. Vegna þess finnum við til reiði. sam- úðar og örvæntingar. En til- finningar geta skyndilega blossað upp og horfið jafn- skjótt ef þær hafa ekki fót- festu í orsakasamhenginu. Þess vegna skulum við vita að þess- ar þjáningar fólksins er hin bitra rökrétta afleiðing af tutt ugu ára rangri og djúpt rang- látri stefnu. Stundum er sagt að stefna USA í Vietnam byggi á röngum ályktunum, eða sé tákn um heimsvaldastefnu auðvaldsins. Mín skoðun er sú, að engmn auðvaldssinni með öllum mjalla geti verið svo óhemju misvitur. En enginn getur fceldur verið svo óhemju misvitur nema fjár hagslegir hagsmunir séu með í leiknum. Þrátt fyrir hinn gífurlega hernað gengur illa, trúlega allt lakar, fyrir USA í Vietnam. Þess vegna biifast heimurinn yfir næsta skrefi. Það er spurt í skelfingu: Verður það kjarn- orkuvopn? Hvern er þá eftir að frelsa? Og myndi það ekki þýða að þriðja heimsstyrjöldin væri staðreynd? Verður ráðizt á stíflur Rauða fljótsins? Það yrði ógnanleg eyðing manns- lífs. Eða þarf langa röð sjón- hverfinga og mistaka að teiða til þess að fólkið í Vietnam Ioksins geti fengið frið og sjálf stæði? Samningur er slitið orð. Hjá mörgum í Vietnam hefur orðið slæman hljóm. Fyrir þá hafa siamningar svo oft þýtt ekki endalok baráttu, heldur byrj un á svikum. Þess vegna er tortryggni þeirra djúpstæð. Þess vegna leita þeir trygg- ingar fyrir þvi. að samningar verði ekki skammætt millibils- ástand, heldur gefi áþr.dfanleg an árangur, leiðir til friðar og frelsis frá erlendri ásókn. Þeir þekkja líka betur en nokkur annar eyðileggingu stríðsins og hafa fceimsins stærsta herveldi með hálfa milljón hermanna fyrir andstæðing. Af biturn reynslu hafa þeir neyðzt til raunsæis. Stundum er sagt að Hanoi og FNL vilji ekki semja, vísi öll- um uppástungum þar að !út- andi á bug. Þetta stenzt ekki. Nú síðast í nýársboðskap bélt utanríkisráðherra Norður-Viet nam. Trinh, því fram, að Norð ur-Vietnam sé reiðubúið til samningaviðræðna ef sprengju- árásum sé hætt skilyrðislaust. Þess vegna eru það alltaf fleiri, sem um víða veröld, þrálátt og með vaxancþ krafti. sameinast um að heita a Banda ríkin: Hættið skilyrðislaust sprengiregninu yfir N-Vietnam. Viðurkennið FNL sem fuilgild an aðila við samningaborðið. Þá fyrst verða samningar. Þá verður sjálfsforræði fólksins að Vietnam nást. Það ætti að vera sjálfsögð skylda fyrir allar ríkisstjórnir í Evrópu að með kraftt og festu og krafti að balda fram Framhald á bls- 12. Bandaríski sendiherrann í Svíþjóð William Heath, ásamt konu sinni á dansleik, skömmu áður en hann yfirgaf Svíþjóð vegna deilunnar, sem risin er.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.