Tíminn - 23.03.1968, Side 12
LAUGARDAGUR 23. marz 1968.
12
TÍMINN
piltar;. - /
EépiÐEtOlPUNÍIliSTIJHÁ
ÞA Á EC HRIUO-AKT, /
fyrrm /ismw/sscn/
■/. <6’
Gvdjön Styrkársson
HjŒSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUSTURSTKÆTI « SÍMI 18354
VAXANDI ATVINNULEYSI
Framhald aí t>ls 9
á, að hinar síðlbúnu ráðstafanir
ríkisstj órnarinnar til þess að
veita milijörðum út í efnahags-
lífið samkivæmt „stuðnings“-
áætluninni og greiðsluhallanum
geri naumast betur en að skila
aftur þvd, sem áður var tekið,
og hafi því engin veruleg áhrif
til örvunar.
(Þýtt úr Internaioaal
Herald Tribune).
Heyrt og sé35
Framhald af bls. 7.
ganga enn framihjá íslendingi, og
værum við líklega þagnaðir, ef
þeir Indriði G., Snorri Hjartar
son eða Guðmundur Dan. væru
dottnir í þann lukkupott. Hver
vill ekki hálfa milljón í verðlaun
frekar en híruna, sem við nefn
um „listmannalaun". En sleppum
því. í>að var Sundman sem átti
að ræða um. Hann varð á vegi
mínum þarna dag einn, gat ekki
yfirgefið selskapinn strax, og nú
var hann að bauka við s'krítna
hluti í afherbergi einu í norska
Stórþinginu.
Sundman, er þegar alit kemur
til alls, harðpólitískur maður.
Hann er landsþingsmaður fyrir
Miðflokkinn í Stokkhólmsléni. Það
er næsta gráða fyrir neðan ríkis
þingmann. Myndi það vera nokk
urs konar sýslunefndarmennska á
okkar máli, og sumum finnst
fremd af því hér. En flokksmenn
Sundmans ætla honum meira.
Næst skal hann upp í Ríkisdag
inn, og víst er það að nú orðið
getur hann lagt með sér í kosn-
ingasjóðinn.
Per Olof Sundman stóð fyrir
klíkufundi í afkimum Stórþings
ins. Og þar var það hjartans
áhugamál hans að efla menning
arbaráttu miðiflokkanna, koma
því orði á, að þar gætu mennta
menn einnig starfað að þvi að
auka fylgið. Honurn fannst þessir
flokkar heldur litlir, og kenndi
þessu aðallega um. Ég sagði fátt
um þessa bluti. en reyndi að
laeða því að mönnum, að Fram
sóknarflokkurinn væri það stór,
að þar hlytu menningarvitar
einnig að vera innanborðs. Hafði
ég þá í huga menn eins og Hall-
dór á Kirkjubóli og Helga á Hrafn
kelsstöðum, og nú verður víst
einnig að telja Jóhannes Helga
þar með.
Stutta stund gat ég svo rætt við
Sundman, en ekki var næðið svo
gott, að neitt væri hægt að festa
á blað. Þetta er mjög yfirlætis-
laus og viðfelldin maður, útitek-
inn, enda hefur sitt'hvað verið
starfað. Sundman á sér sérstæð
an skáldferil. Hann sagði mér að
fyrsta bók sín hefði knmið út
1958. Áður hafði hatm skrifað
samfleytt í 23 ár — og ekkert
birt. Ég spurði hann, hvers vegna
veirðlaunabókin um heimskauta-
leiðangur Andrées í loftfarinu
hefði slegið í gegn. Sundman sagð
i«t ekki vera ujaður til að svara
því. Hann hefði ekki lesið þessa
bók — aðeins skrifað.
Verðlaunabókin fjallar um gam
alkunnugt efni fyrir allt eldra
fólk. Sænskur verkfræðingur,
Andrée hugðist veita þjóð sinni
og sjálfum sér þann heiður að
komast fyrstur á Norðurpólinn!
Hann lagði af stað við þriðja
mann fyrir 70 árum, og farkostur
inn var loftbelgur. Spurðist ekkert
til þeirra fyrr en 1930. Þá fundust
lík þeira á Hvíteyju, ferðalagið
hafði staðið í rúma 65 tíma. Það
var allt og sumt, og enn var góð-
ur spölur ófarinn, sem seinni tíma
menn fóru á raunhæfari farkost-
um.
Ég spurði Sundman, hvort þetta
ferðalag væri ekki orðið ú'tþvælt
efni fyrir gott skáld. Hann kvað
svo ekki vera. Þetta hefði á sín
um tíma verið glórulaust uppá
tæki. Því væru vissir töfrar bundn
ir við minningu Andrées. Sund-
man kvaðst taka það fram í bók
sinni, af hverju Andrée fél'l ekki
frá fyrirætlun sinnii, þegar hann
sá sjálfur fram á vonleysi henn-
ar. Sér hefði virzt, að þar kæmi
fram mannlegur breyzkleiki heim
skautafarans. Hann var þegar
hylltur sem hgtja áður en hann
lagði af stað. Og hann var eins
og annað fólk. Hann gat ekki snú
ið aftur og afklæðzt hetjubúnaðin
um. Hann var kominn inn í víta
hring, og um ekkert var að velja
annað en framkvæma þetta áform
og deyja síðan sem hetja.
Hið „harðorða" Vietnam ávarp.
Þegar leið á viikuna fóru fund
ir Norðurlandaráðs að færast yfir
í tómar atkvæðagreiðslur. Þar var
því eftir litlu að slægjast, og á
miðvikudaigskvöld hélt norska-
ríkisstjórnin lokahóf í Akurshús
kastala. Fundum Norðurlandaráðs
var endaniega slitið um hádegi á
fimmtudag, og héldu þá þingmenn
til sins heima. en við þessir ungu
komum ekki heim fyrr en laugar
daginn 24. febrúar. Það var síðast
á þessum fundum, að róttækir
ungir menn úr hópi sænskra Mið
flokksmanna suðu saman npkkuð
harðort Vietnam ávarp, þar sem
Bandaríikjamönnum var m. a.
bent á að hafa sig brott úr þriðja
heiminum, en svo vilja Sviar
nefna Austur-Asíu lönd. Undir
þetta rituðu þeir Hans Ingvar
Jonsison, frá Svíþjóð, Par Stenbáck
og Juurela frá Finnlandi, og svo
\ undirritaður, eii ófcomið var nafn
| Jo'hns Dale; er ég skildi við
i hina.
Það komst vist aldrei undir
plaggið. Dale fannst það of harð
ort og líklega brot á utanrikis-
stefnu flokks síns. Dagbladet, blað
Vinstri flokksins í Noregi birti
hins vegar ávarpið. Og næsta dag,
þegar ég var að fara heim, las
ég ennfremur allnokkurt skens í
því blaði um sundrun.gu allra þess
ara miðflokka á Norðurlöndum.
Þetta dæmi færði mér heim sann
inn, um að allnok'kur kuldi ríkir
milli þessara tveggja flokka í
Noregi, og má svo einatt. vera,
þar sem tveir dorga á sömu mið-
um.
Ein spurning hefur lengi svifið
yfir vötnum, þegar Norðurlanda
ráð þingar: Hvaða gagn gerir
þetta ráð? Þvi vil ég ómögulega
svara í þessari blaðagrein, tel mig
efcki hafa kunnugleika til slíks og
líklega er það erfitt ýmsum kunn
ugri. Norsk blöð rituðu sum eftir
mæli þingsins, og einn höfundur
líkti því við pappírsmyllu- Hann
sá aðeins skriffinnskuna og blaða
flóðið, sem fulltrúarnir létu eftir.
Svo er aftur á móti mikill meiri
hluti ábyrgra stjórnmálamanna,
sem telur að Norðurlandaráð hafi
þegar þýðingu, og greinilega er
það hugsjón sumra úr Skandinavíu
að Norðurlönd öll sameinist. Að
þeirra hyggju ber ráðinu að sam
ræma stefnu landanna í utanrí'k
is- og markaðsmálum. Þurfi gþá
lítið meira, því hinn norræni
bróðurkærleikur sé þegar til stað
ar.
Allt slíkt læt ég liggja hér milli
hluta. Fyrir mig voru þessir dag
ar á þann hátt verðmætir, að ég
kynntist öðrum ungum mönnum
með líkar stjórnmálaskoðanir,
lærði margt í sfcipulagsmálum
æskulýðssamtaka, og eins og.
einhvers staðar áður kom fram:
stendiir nkki einn «ér sem einangr
Fann, að Framsóknarflokkurinn
að fyrirbæri, heldur er full þörf
fyrir slífcan flokk, hvar sem frelsi
gefst til að hugsa og framkvæma
pólitískan vilja fólksins.
Páll Lýðsson.
UPPSALABRÉF
Prsmhalf <i' H »íðu
þessari skoðun. Þannig geta
staðreyndir og skoðanir okkar
leitt okkur fram til vissra á'yk!
ana.
Bandaríkin halda því fram,
að þau verji lýðræðisleg rétt-
indi vietnömsku þjóðarinnar
gegn erlendri ásókn. En ef mað
ur á að tala um lýðræði í Viet-
nam, er það augljóst. að það
hefur mun sterkari stöðu hjé
FNL en hijá leppstjörnum
Bandaríkjanna.
Þetta er fullyrðing byggð á
staðreyndum. Fremsta kenni-
merki lýðræðisins er stuðning
ur fólksins, rætur í alþýðunni.
Enginn dregur i efa að árið
1945 hafði Ho-Chi-Minh stuðn-
ing fólfcsins gegn franska nv-
lenduveldinu. Enginn dregur ’
efa að í þeim frjálsu kosning-
um. sem áttu að fara fram
1956, hefði Viet-Minh unnið
yfirgnæfandi sigur. Eisenhow-
er forseti hefur sagt að Ho-
Ohi-Min'h hefði vafalítið hlotið
yfir 80% atkvæða. Það var ein
mitt þess vegna sem engar kosn
ingar fóru fram. Enginn neitar
að Diem-stjórnin. sem sett var
á fót í Saigon, til þess að ve7'a
fuilltrúi lýðræðismögule'kans,
var ákaft hötuð af þjóðmni/
Henni var kastað 1963 og syrg
ir hana enginn.
Enginn vill heldur Þillyrða
að núverandi klíka byggi raun
verulega stöðu sína á stuð«ingj
fólksins. Það er staðreyna að
rotnunin í stjórnarathöfnunum
(korruption). dugleysið, áhuga
leysið gagnvart félags egum
kröfum. er meira en nokkru
sinni. Stjórn, sem þarf aðstoð
meira en fimm hundruð þú.sund
bandarískra hermanna, til þees
að lifa.einn einasta dag. hefur
fólkið upp á móti sér.
Bardagarnir síðustu vikurnar
hafa sýnt öllum heimin'um, að
Vietnam-striðið er byltmg gegn
þeim, sem fótumtroða grund-
vallar mannréttindi. Þess'. bylt-
ing er félagsleg hreyfing með
djúpar rætur í þjóðinni. Hefði
þessi bylting ekki í öllum aðai
atriðum notið stuðnings alþýð
unnar hefðu ekki árásirnar á
borgir um allt Suður-Vietnam
verið framkvæmanlegar með
slíkum árangri.
Einhver kann þá að segja:
Látum svo vera. að FNL hafi
stuðning fólksins i dag. En við
getum ekki stutt FNL Því ef
FNL sigrar og fær völdin, mun
sú nýja stjórn þvinga fólkið.
Um það vitum við ekfcert
með vissu, þar sem FNL hefur
svo lítið fengið að sýna sig
i friði. En við höfum aðgang
að stefnuskrá FNL. Ég mæli
með þessari stefnuskrá ti". at-
hugunar. Hún krefst samstöðu
sem flestra aðila í baráttunni
við USA. og samstevoustjórr.
þegar sigur er unninn. Stefnu
skrána í innanlandsmálum
myndu t.d. flestir stjórnmáia-
flokkar í Svíþjóð geta gert að
sinni. En auðvitað getum við
ekki i dag tekið afstöðu tú eða
ábyrgð á þvl sem hreyling í
öðru landi gerir. þegar hún
hefur náð völdum.
En andmæli mín eru fyrst og
fremst prinsip-eðlis. Með hvaða
rétti getum við neitað fólkinu
í Vietnam um rétt til þass að
það velji sér sjálft stjórn. Það
getur ekki verið verkefni lýð-
ræðisins að gera sig að for-
ráðamanni annarra þjóða. Þvert
á móti, það er misnotkun grund
vallarhugmynda lýðræðisins.
Og einn hlut vitum við með
vissu: Verri félagsleg kjör en
nú, meiri mannlegar þjáninear
en nú — þegár því skal bjarg-
að til lýðræðisins — getur
fólkið í Vietnam ómöeulega
nokkru sinni hlotið.
Einhver segir kannski: í
Vietnam eru drepnir þúsundir
bandarískra hermanna, sem
trúa því. að þeir berjist fyrir
lýðræðislegum hugsjónum
Vissulega er það ó'hugnanlegt.
Það er óhugnanlegt, að ung1
fólk er drepið, sært og limlest
— því er fórnað að óþörfu
fyrir óverðugt markmið í órétt
lætanlegu stríði. Það gæti haft
mikil verkefni að byggja betra
þjóðfélag með sinni eigin þjóð,
eða uppbyggjandi starf í bar-
áttunni gesn neyðinni og hungr
inu í heiminum. Það gæti borið
fram á við erfðavenjurnar. opið
geð, örlæti og bjartsýna trú á
framtíðina, sem ennþá lifir í
Ameríku. Virkt alþjóðlegt al-
menningsálit sfcál meðal ann-
ars leggja sinn skerf, til þess
að gefa þvi þann möguleika.
í mörg ár höfum við heyrt
að stríðið í Vietnam sé einnig
nauðsynlegt, til þess að vernda
lýðfrelsi annarra þjóða gegn
kínverskri ásókn. Falli Viet-
nam, er sagt að þá falli gjör-
vöH Suðaustur-Asía. þá eiga
þau lönd veraldar á hættu að
falla eins og hráviði fyrir nýrri
heimsveldisstefnu með sæti í
^ Pekipg. . Því beri öUum l.vð-
frjálsum töndum, vegha eigin
hagsmuna, að styðja amerísku
baráttuna í Vietnam.
Þéssi röksemd. var borin á
borð svo snemma sem ár,ð
1945. sem ástœða fyrio stuðn-
ingi við franska nOenduveld-
ið. Munurinn er einungis sá að
núverandi stjórn í Peking var
komin til valda.
Þessi röksemd er áfcaflega
hæpin. Þessu getur verið öfugt
farið. Hún virðir í engu sögu
Vietnam. En það er grundvallar
hugsunin, sem ég mun snerta
að nokkru.
Það er þannig vegna velferð
ar okkar, sem fólkið þjáist t
Vietnam. Okkur er þannig boð
ið að fórna sjálfsákvörðunar-
rétti lítillar þjóðar. velferð og
tilveru, fyrir það, að við meg-
um lifa í meira öryggi.
Þannig viljum við ekki mæta
framtíðinni.
Því hiver er lokaafleiðing
þessa hugsanagsngs. ekKi hvað
sízt ef þetta á eftir að endur-
taka sig æ ofan í æ.
Sjálfsákvörðunarréttur þjóð
anna verður voði félagslega
frelsið hótun, breytingar á þ'd.
sem er, hætta sem verður að
koma í veg fyrir. Við verðum
kölluð til að manna virki for
réttindafólksins til biturrar
varnar lifsviðhorfi sem hinir
rífcu hafa tileinkað sér.
Hringurinn verður þrengri
og þrengri. Þvi þjóðirnar munu
leita sjálfstæðis, krafar. um
félagsleg réttindi verður sterk
ari og sterkari, þráin eftir rétr
læti, betri lífskjörum. fielsun
frá fátækt og hungri verður
æ sterkari og mun móta þá ver
öld, sem við lifum í. 'Frerstum
við að byggja brynjaðan múr
í kringum þá ríku, þá brjót-
um við fasismanum leið inn
í menningu vora.
En þannig þarf það ekki að
vers
Með fólki hlnna ýmsi’i landa
eykst annarri stefnu fylgi,
stefnu sem vill byggja á örlæti
og bræðralagi yfir landamærin,
sem viðurkennir rétt pióðanna,
og sem veit, að það e>- hið fé-
tagslega ástand. sem fyrst og
fremst þarf að breyt.ast. And-
staðan gegn stríðinu í Vietnam
er gleðilegt tákn, ekki bara um
ósk um frið og frelsi í Vietaam
heldur og í víðari sjóndeildar
hring.
Það er alþjóðleg samhjálpar
hreyfing, sem ekki byggir á
þröngum eiginhagsmunum,
heldur leggur áherzlu á með-
ábyrgð. sameiginlegar skyldur,
viljan til bræðralags í hagnýtu
starfi. Þess vegna er hún upp-
byggjandi fyrir framtíðina —
Hún styður hagsmuni mann-
kynsins.
Stundum er sagt, að Evrópa
styðji Bandaríkjamenn í Viet
nam. Það séu aðeins smærri
hópar, sem í ofstækisfuliu hatri
gegn Ameríku. finna driffjöðr
ina til andspyrnu.
Þetta er rangt. Sannleikurinn
er sá. að yfirgnæfandi meiri-
hluti fólksins í Evrópu er and-
vígt þessari styrjöld, vftl að
þjáningunum linni, vitl gefa
fólkinu í Vietnam réttinn. að
það sjálft ákveði um framtíð
sina. Þessir lýðræðissinnar upp
lifa ekki bairáttu USA í Viet-
nam sem stuðning við Iýðr-æð
ið. beldur sem hættu fyrir
hinar lýðræðislegu hugsjónir,
efcki aðeiens í Vietnam, heldur
um allan heim.
Við trúum á lýðræðið vegna
þess að lýðræðið. þrátt fyrir
alla S'ína veikleika, veitir ein-
staklingnum tækifæri til virkr
ar þátttöku, hlutdeildar og
tekur tillit til einstaklingsins
á máta, sem engan harðstjóra
dreymir um. En lýðræðið má
aldrei þýða andstöðu gegn sjálf
stæði þjóða og félagslegu rétt-
læti. Það skal vera verkfærið
að veita einstaklingnum frelsi.
Við viljum ekki framtíð þar
sem þeir ríku verja forréttindi
sín með valdi og harðstjórn.
Við viljum veröld í jafnrétti,
þar sem fólkið getur lifað.
Þess vegna er Vietnam ekki
svo fjarlægt. Þess þjóð stendur
okkur nær. Þessi þjóð verður
að lokum að fá sinn frið og
sitt sjálfstæði.
Svo löng er ræðan. Hún er
þýdd upp úr Aftonbladet. Skyld
ir þú, lesandi góður, koma svo
langt í lestrinum. ef nú Timinn
birtir ræðuna, þá veiztu hvaða
tylliástæðu Lyndon notaði til
þess að kalla kúrekabróðurinn
frá Texas heim frá Stokkhólmt.
En þá veizt þú kannski einnig
sitthvað um Vietnam sem sjald
an er skrifað um í íslenzK blöð.
Mér er sagt að verkfall sé
á íslandi, og að blöð komi ekki
út. Kannski finnst þá einhverj
um, að ræðan sé orðin gömul
og úrelt. þegar verkfallið leys
ist og blaðið hefur rúvn fyTÍr
hana. Ég bygg að það sé sjóc-
hverfing. Ég hygg að ræðan sé
vel þess virði að prenta hana,
lesa og íhuga svo lengi sem
þetta þjóðarmorð heldur áfram
þar austurfrá. Það má vel skilja
þessa þýðingu mína á ræðunni
sem minn þátt til umræðna
um þetta mál á íslandi og
hvers vegna ekki sem þátt i
umræðunum um framtíð At-
lantshafsbandalagsins. sem
verður undir endurskoðun
næstu misserin.
Uppsölum, 16.3. 1968.