Tíminn - 23.03.1968, Page 16
58. tbl. — Laugardagur 23. mari 1968. — 52. árg.
AKRANES
ili sínu að Sunnubraut 21, sunnu ||
dagskvöldið 24. marz kl. 8,30. Til
skemmtunar: Framsóknarvist og ||
Framsóknarfélag Akraness held' kvikmyndasýning. Öllum heimill |
ur skemmtlsamkomu i félagsheim1 aðgangur meðan húsrúm levfir.
Myndin er af Biafrastúdentum í London í kröfu
göngu, til stuðnings sjálfstæði Biafra.
Biafra vill kaupa skreið nú og
greiða hana að loknum sigri
ii
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Skreiðarkaupmaður frá Bi-
afra var nýlega hér á landi
og reyndi hann að fá keypta
skreið með þeim skilmálum að
hún verði greidd eftir að Biafra
menn hafa unnið sigur á sam-
bandsher Nigeríu. Biafra sagði
sig úr lögum við Sambandslýð
veidið Nigeríu fyrir rúmu ári
og hefur styrjaldarástand ríkt
f landinu síðan. Stjórnarher-
sveitir frá Lagos háfa reynt aft
ur og aftur að vinna bug á
Biaframönum, en þeir hafa
varizt af mikilli hreysti og
eru ákveðnir i að verja hið
nýstofnaða lýðveldi. Biafra
eða Austur-Nigerfa telur 8.5
milliónir íbúa sem eru af ætt
flokki Iboa.
Vegna styrjaldarinnar í Níg
eríu hefur skreiðarmarkaður ís
lendinga þar verið lokaður og
eru nú til 6 til 7 þúsund tonn
af óseldri skreið, scm litlar :ík
ur eru á að seljist fyrr en frið
ur kemst á í Nígeríu. Áður en
stríðið brauzt út seldu fslend-
ingar 70% af skreiðarfram-
leiðslunni til Austur-Nígeríu,
eða þess landsvæðis sem nú
nefnist Biafra. Hafa íslending-
ar átt mikil og góð viðskipti
við Iboa í Austur-Nigeríu i nær
fellt tvo áratugi.
Skreiðarkaupmaðurinn sem
hér var á ferð hefur keypt mik
ið magn af íslenzkri skreið á
þessu tímabili. Ekki tilgreindi
hann hve mikið magn hann
vildi kaupa nú, en eins og
fyrr segir eru skilmáilarnir
þeir að varan verði greidd þeg
ar Biafra hefur unnið sigur í
styrjöldinni gegn sambands-
stjórninni í Lagos. Eins verða
seljendur að sjá um flutninga
skreiðarinnar til Biafra. Er
hægt að flytja hana á skipum
til eyja fyrir strönd Vestur-
an til Port Harcourt, en þar
er eini flugvöllurinn í Biafra.
Skreiðankaupmaðurinn sagðist
geta úitvegað bankaálbyrgð í
London fyrir kaupverðinu og
flutningskostnaði, en um
greiðslu verður kki að ræða
fyrr en að loknum sigri.
Þegar uppreisn Iboa braust
út í Austur-Nigeríu á sfnum
tíma innkallaði sambands-
stjórn Nigeríu alla mynt lands
Framhald á blB. H.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ MEÐ GALDRA-LOFT í
LEIKFÖR TIL
NORÐURLANDA
GÞEReykjavík, föstudag.
Ýmislegt er á döfinni hjá Þjóð
leikhúsinu um þessar mundir.
Nýr, bandarískur gamanlciktir.
sem notið hefur mikiUar hyUi
vestan hafs og austan, verður
frumsýndur n.k. föstudag, 3 önn-
ur leikrit eru í æfingu og verða
a.m.k. tvö þeirra frumsýnd í vor.
Þá undirbýr Þjóðleikhúsið leikför
til Norðurlanda með Galdra-Loft
eftir Jóhann Sigurjónsson í júní.
Óperan Brosandi land eftir Lehar
verður frumsýnd í vor, og í ágúst
er franski Iátbragðsleikarinn
Marccl Marceau væntanlegur hing
að til lands. Þá verður að hausti
frumsýnt leikrit Brechts, Puntina
og Matti vinnumaður hans, og
eins hefur Þjóðleikhúsið keypt'
sýningarrétt á nýjasta barnaleik
riti Thorbjörns Egner, sem nefn-
ist Muntra Musikanter.
Þjóðleikhússtjóri kallaði frétta
menn á sinn fund í dag og skýrði
Framhald á bls 15.
Mikill ís milli ls-
lands - Grænlands
EJ-Reykjavík; föstudag.
MikiU ís virðist nú vera
ipilli íslands og Grænlands, og
mikið íshröngl á siglingaleið-
um. Eru isspangir og jakar
víða landfastir. Ekkert ísflug
hefur verið farið, þar sem mik-
ið dimmviðri er. Aftur á móti
tilkynnti flugvél frá Flugfélagi
íslands í dag, að samfeUdur ís
væri frá Seorebysundi á
Grænlandi að Horni, 7/10 að
þéltleika. Nokkuð hundruð
metra breitt ísbelti er land-
fast austan til á Gríms-
ey. Erfitt er að gera sér ná-
kværna grein fyrir þvi, um
hversu mikinn ís er að ræða.
Farið verður í ísflug strax og
veður leyfir. Aftur á móti er
ljóst, að siglingaleiðir fyrir
norðvestan eru hættulegar í
myrkri.
Eftirfarandi skeyti bárust í
dag um ísinn
Arnarfell kl. 7 i morgun:
„Erum við rtogur á leið fyrir
Horn. Mikið isrek suður að Rit.
Stór og þykk ísbreiða út af
Kögri. ísbreiður með landi.
Sæmilega greiðfært í björtu,
hættulegt í myrkri. Vindur
norðaustan átt. skyggni 3 míl-
ur.“
Hombjargsviti kl. 8: „ís-
breiðan orðin kílómetri að
breidd teð Landið frá Hom-
bjargi Bjteins langt austur og
séð varð’kl.' 7. Enginn ís sjá-
anlegur þar fyrir utan.
Skyggnd var þá um 10 sjómíl-
ur.“
Grímsey kl. 8: „Allstór ís-
spöng að sjá við norðurenda
eyjarinnar. Rekur tU suðvest-
urs. Skyggni 2—4 kílómetrar."
Arnarfell kl. 8.15: „Er-
um við Horn. Margir hættu-
legir jakar á siglingarleið Stór
Framhald á bls. 14.
Mynd bessi sýnir ísjaka við
Grímsey. Nú eru þar land-
fastar ísspangir.