Alþýðublaðið - 30.12.1989, Qupperneq 9
Laugardagur 30. des. 1989
9
um, hækkaði um 100 milljónir milli
áranna 1987 og 1988. Hækkunin
varð 30% umfram verðbólgu.
í DAGVISTARMÁLUM komu
upp deilur um hvaða ráðuneyti ætti
að hafa forræði með þeim málum.
Dagvistarmálin hafa heyrt undir
menntamálaráðuneytið en Jóhanna
Sigurðardóttir taldi eðlilegt að dag-
vistunarmál heyrðu undir félags-
málaráðuneytið, ráðuneyti sveitar-
stjórnarmála, enda stæði til að þau
mál færu alfarið til sveitarstjórn-
anna með breyttri verkaskiptingu
ríkisins og sveitarfélaga.
ALÞÝÐUFLOKKURINN kynnti
nýjar tillögur um gerbreytta skipan
landbúnaðarmála. Sagði Olafur
Ragnar fjármálaráðherra sumar af
tillögum Alþýðuflokksins fara sam-
an við hugmyndir Steingríms J.
landbúnaðarráðherra í þeim efnum.
_________OKTÓBER
DAVÍÐ ODDSSON var kjörinn
varaformaður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi eftir að hafa látið bíða
eftir ákvörðun sinni um framboð
fram á síðustu stundu.
JÚLÍUS SÓLNES var kjörinn for-
maður Borgaraflokksins á lands-
fundi hans.
ÞRÍR NÝIR ÞINGMENN tóku
sæti á Alþingi í stað annarra sem
hætt höfðu þingmennsku í sumar.
Þetta eru þau Anna Ólafsdóttir
Björnsson (Kvl.), Ásgeir Hannes Ei-
ríksson (Bfl.) og Rannveig Guð-
mundsdóttir (Afl.).
INGIBJÖRG R. GUÐMUNDS-
dóttir var kjörin formaður Lands-
sambands verslunarmanna í stað
Björns Þórhallssonar sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Hún er
Mrttarrínd Fralddandtfertatt bm í heimtákn. Hann er hár átamt Jáni Baldvin Hannibalttyni ej Steingrími Hermannttyni.
VIRÐISAUKASKATTURINN olli
miklu fjaðrafoki á þingi og ekki síð-
ur í fjölmiðlum. Innan ríkisstjórnar-
innar kom upp ágreiningur um það
hvort hann skyldi vera í einu þrepi
eða tveimur, hversu hár hann skyldi
vera og hvort unnt væri að koma
honum á um áramót. Samkomulag
náðist að lokum um eitt þrep, 24,5%
en niðurgreiðslur til að ná lækkun-
aráhrifum á vissar tegundir mat-
væla. Skatturinn gengur í gildi um
áramót.
„AUKAVINNA“ starfsmanna
Borgarverkfræðings í Reykjavík var
stöðvuð með sérstakri samþykkt
borgarráðs. Framvegis þurfa starfs-
menn Borgarverkfræðings sérstakt
leyfi byggingarnefndar og slík leyfi
verða háð ákveðnum skilyrðum.
FÆÐINGARHEIMILI REYKJA-
víkur varð fréttaefni í nóvember
landi. Viðræðum um þetta verður
þó haldið áfram og bandarískt fyrir-
tæki hefur nýverið sýnt málinu
áhuga.
BROTTVIKNING Magnúsar
Thoroddsen úr embætti hæstarétt-
ardómara var staðfest með dómi
Hæstaréttar.
JÓN ÓTTAR RAGNARSSON
lýsti því yfir í samtali við Alþýðu-
blaðið að til greina kæmi að hann
seldi hlut sinn í Stöð 2. Nokkur
þekkt stórfyrirtæki hafa að undan-
förnu haft til athugunar að kaupa
meirihluta í fyrirtækinu, sem þrátt
fyrir velgengni, skortir fjármagn.
UMHVERFISMÁLARÁÐU-
neytið átti að taka til starfa um ára-
mót. Af því verður ekki. Afgreiðslu
málsins var frestað á þingi, einkum
vegna harðrar andstöðu fyrrum
flokksbræðra Júlíusar Sólnes, verð-.
NICOLAI CEAUSESCU, fyrrum
einvaldur í Rúmeníu, og Elena kona
hans voru skotin á jóladag eftir að
hafa verið leidd fyrir herrétt.
JÓN BALDVIN HANNIBALS-
son utanríkisráðherra lét af for-
mennsku í ráðherraráði EFTA um
áramótin. Það kom í hans hlut að
undirrita samkomulag milli EFTA
og EB um formlegar samningavið-
ræður á næsta ári. Samkomulagið
var undirritað 19. desember og þar
með lauk könnunarviðræðum sem
staðið hafa yfir allan síðari hluta árs-
ins.
fyrsta konan sem gegnir þessu
starfi.
UPPLÝSINGALEKI úr skýrslu yf-
irskoðunarmanna ríkisreiknings
varð tilefni mikillar fréttaumfjöllun-
ar í október bæði vegna þeirra upp-
lýsinga sem þannig komust á fram-
færi og einnig vegna þess að Geir
Haarde, sem kom upplýsingunum á
framfæri áður en Alþingi hafði feng-
ið að sjá skýrsluna; hann var talinn
hafa misnotað aðstöðu sína til að
koma höggi á pólitíska andstæð-
inga.
NÝTT BORGARLEIKHÚS var
formlega opnað í Reykjavík.
ALÞYÐUBLAÐIÐ átti sjötugsaf-
mæli 29. október og minntist af-
mælisins m.a. með útgáfu veglegs
afmælisblaðs.
KAUPSÝSLUMENN í HONG
Kong spurðust fyrir um það hjá við-
skiptaráðuneytinu hvað það kosti
að fá sér íslenskt ríkisfang. Sumir
þeirra óttast yfirvofandi valdatöku
Kínverja og eru reiðubúnir að
greiða háar upphæðir í öðrum lönd-
um í formi fjárfestinga, til að fá að
setjast þar að.
INIÓVEMBER
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fær langmest af þeim ríkisstyrkjum
sem ætlaðir eru til útgáfumála.
Þessi styrkjamál voru nokkuð til
umfjöllunar í fjölmiðlum fyrri hluta
nóvembermánaðar, en gagnrýni á
þetta styrkjakerfi hefur einmitt
helst komið úr röðum sjálfstæðis-
manna.
ÓLÖGLEG HEIMASLÁTRUN
komst í fréttirnar í nóvember. Upp
komst um tvo lögregluþjóna í Bol-
ungarvík sem áttu kindur en ekki
kvóta og slátruðu heima. í viðtali
við Alþýðublaðið sagði Arnþór Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Félags
kjötiðnaðarmanna, að áætla mætti
að birgðir af heimaslátruðu kjöti af
kindum og nautgripum svöruðu til
2—3 mánaða sölu.
STEINGRÍMUR SIGFÚSSON
felldi Svanfríði Jónasdóttur úr vara-
formannssæti Alþýðubandalagsins
á landsfundi sem einkenndist af
býsna hörðum átökum. Almennt
þótti „flokkseigendafélagið" hafa
rétt nokkuð hlut sinn frá siðasta
landsfundi.
TAKMARKAÐ FRELSI til sam-
keppni var innleitt í innanlands-
flugi, þegar Steingrímur Sigfússon
samgönguráðherra gaf út ný flug-
rekstrarleyfi sem gilda frá áramót-
um.
FRANCOIS MITTERRAND
Frakklandsforseti kom til íslands til
viðræðna um samvinnu EB og
EFTA. Mitterand lýsti yfir skilningi á
sérstöðu íslands m.a. í veiðiréttar-
málum.
GJALDÞROT FISKELDISFYR-
irtækja voru mjög til umfjöllunar í
nóvember í kjölfar gjaldþrots ís-
landslax. Fiskeldið hefur átt í mikl-
um erfiðleikum og gjaldþrot hafa
orðið allmörg í greininni og fleiri tal-
in í vændum.
BERLÍNARMÚRINN hrundi nán-
ast í bókstaflegri merkingu. Ársins
1989 verður trúlega lengst minnst í
veraldarsögunni vegna lýðræðis-
þróunarinnar í Austur-Evrópu. Al-
ræðisstjórnirnar féllu hver á fætur
annarri. Táknrænu hámarki náði
þróunin þegar austur-þýsk stjórn-
völd ákváðu að opna Berlínarmúr-
inn.
LÖGREGLAN lokaði af stórum
hluta Vogahverfis í Reykjavík með-
an verið var að handtaka „byssu-
mann“ í íbúð þar i hverfinu. Vik-
ingasveitin mætti á staðinn og mað-
urinn var handtekinn. Hann reynd-
ist þó byssulaus með öllu en var
engu að síður færður á lögreglustöð
og húsrannsókn framkvæmd. Vopn
fyrirfundust ekki.
SILDIN seldist loksins þegar langt
var liðið á nóvember eftir langa
óvissu. Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra sætti gagnrýni úr ýmsum
áttum fyrir að skrifa undir olíu-
kaupasamning við Sovétmenn áður
en síldarsölumálin komust á hreint.
Sjálfur taldi Jón þvert á móti að
þetta flýtti fyrir síldarsamningum.
MAGNÚS MAGNÚSSON var að-
laður í Bretlandi. Af því að hann er
útlendingur þar í landi má hann þó
ekki nota titilinn ,,sir“.
BENSÍN, alls nærri 10 tonn, lak úr
geymum Skeljungs við Öskjuhlíð í
Reykjavík. Talið er að eitthvað af þvi
gæti endað í Tjörninni.
REYKJAVÍKURBORG skattlegg-
ur nágrannasveitarfélögin. Þetta
kom fram í sambandi við tillögu-
flutning Guðmundar Oddssonar á
Alþingi. Nágrannasveitarfélögin
kaupa orku af Hitaveitu og Raf-
magnsveitu Reykjavíkur en hagnað-
urinn rennur að hluta til beint í
borgarsjóð.
Fjármálaráðherrann, Ólafur Ragnar Grímsson, átti ekki alltaf sjö dagana ssela, þegar virðisauka-
skatturinn var til umrseíu.
vegna áforma um að leigja út stærst-
an hluta þess undir almennar lækn-
ingastofur.
DESEMBER
VANTRAUSTSTILLAGA á ríkis-
stjórn íslands var felld á Alþingi á
fyrstu klukkustund desembermán-
aðar.
GORBATSJOV OG BUSH áttu
með sér fund á Miðjarðarhafi, rétt
undan ströndum Möltu og ræddu
heimsmálin. Engar ákvarðanir voru
teknar. Gorbatsjov lagði fram hug-
myndir um afvopnum í höfunum en
hinn bandariski starfsbróðir hans
tók ekki undir þær. „Viðbrögð Bush
óskiljanleg" var haft eftir Steingrími
Hermannssyni á forsíðu Alþýðu-
blaðsins af þessu tilefni.
OFBELDI i miðbæ Reykjavíkur
varð tilefni frétta. Líkamsárásir ger-
ast þar nú æ algengari.
ALUSUISSE dró sig út úr viðræð-
um um aukna álframleiðslu á ís-
andi umhverfisráðherra, en þeim
mun ósárt um að Júlíus verði enn
um sinn að kalla sig Hagstofuráð-
herra.
HAFÍS varð landfastur á Strönd-
um. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1917
sem ís leggst að landi svo snemma
vetrar.
BORGARSPÍTALINN og stjórn
un hans varð bitbein milli ríkis-
stjórnar og borgarstjórnar síðustu
daga fyrir jól. Stjórnarsinnar sök-
uðu sjálfstæðismenn um að halda
uppi málþófi á þingi af þessum sök-
um og höfðu á orði að Davíð Odds-
son væri farinn að stjórna þing-
flokki sjálfstæðismanna. Samkomu-
lag náðist að lokum um óbreytta
stjórnun spitalans að sinni.
FJÁRLOGIN voru samþykkt á Al-
þingi með u.þ.b. 3,7 milljarða króna
halla.
BANDARÍKIN gerðu innrás í
Panama til að handtaka einvaldinn
Noriega. Hann slapp þó og baðst
hælis í sendiráði Páfagarðs.
Ný ríkisrtjóm wr myndui í byijun septamber.
SEPTEMBER
ATVINNULEYSI reyndist þrefalt
meira í september en á sama tíma
árið áður og mældist rúmlega 1%^
Síðar átti þó talan eftir að hækka. í
nóvember mældist atvinnuleysið
1,7%.
NÝ RÍKISSTJÓRN settist að völd-
um, þegar Borgaraflokkurinn gekk
til liðs við stjórnarflokkana. Oli Þ.
Guðbjartsson varð dómsmálaráð-
herra og Júlíus Sólnes ráðherra
Hagstofu, en hann mun væntanlega
síðar taka við umhverfisráðuneyti.
Þessi stjórn er sú þriðja á kjörtíma-
bilinu.
SALA SAMVINNUBANKANS til
Landsbankans olli talsverðum vær-
ingum. Lúðvík Jósepsson lýsti því
yfir að hann teldi vinnubrögð Sverr-
is Hermannssonar bankastjóra ekki
Þtrataimi Rúlsson Ftldt nýjan wraftrmann vií
hlib lár á landtfundi Sjó(fsto»ðisflokksins í
aktábar.
í samræmi við lög, þar sem það væri
hlutverk bankaráðs að kaupa og
selja eignir bankans.
JÓN BALDVIN HANNIBALS-
son utanríkisráðherra viðurkenndi
á fréttamannafundi að hafa gert
mistök, þótt hann hefði á hinn bóg-
inn ekki brotið neinar reglur, þegar
hann hélt ritstjóra Alþýðublaðsins
veislu á fertugsafmæli hans. Á fund-
inum kvaðst Jón Baldvin hafa greitt
ÁTVR áfengi það sem veitt var í
veislunni á fullu verði.
ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRI gekk í
störf rafiðnaðarmanna í verkfalli.
Með þessu tókst leikhúsinu að halda
áætlun varðandi sýningar á söng-
leiknum Oliver.
FRÉTTAANNÁLL alpýðublaðsins