Alþýðublaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 15
Laugardagiir!30. des. 1989 i Alþýðublaðinu „Til mín hefur komið fjöldinn allur af sendiherrum og ráð- herrum erlendra ríkja og óskað mér til hamingju með frammi- stöðu Jóns Sigurðssonar ráð- herra." — Albert Guðmundsson, sendi- herra í Frakklandi, 3. júní, en Jón stýrði árlegum fundi OECD í París. „Þetta er að mínu áliti mikils- verður árangur sem mun skila sér í aukinni hagkvæmni í bankarekstrinum og Iækkun inir vegna deilna hans við Kópavogskaupstað júlí, um úthlutun úr félagslega íbúðakerfinu. „Hann er allur á valdi æsifrétt- ar úr Sjónvarpi. Hann hefur enga vitneskju um hvaða ákvarðanir voru teknar hér í Húsnæðisstofnun.“ — Sigurður E. Guðmundsson, for- stjóri Húsnæðisstofnunar, 11. júlí um ummæli Hallgríms Guðmunds- sonar. „Eins og margir vita er búið að draga Austfirðinga á asnaeyrun- um í tæpan áratug með stóriðju- áformum.“ — Hrafnkell A. Jónsson, formað- ur Sambands sveitarfélaga, á Aust- fjörðum 12. júlí. „Fái ríkið þá vinnu sem það borgar fyrir er aukavinna í lagi.“ — Garðar Halldórsson, húsa- meistari ríkisins, 22. júlí, um auka- vinnu lians og starfsmanna embætt- isins. „Það eru alltaf einhverjir sem vilja fá kvóta og hafa það huggu- Iegt.“ — Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk 22. júlí, um umræður um framleiðslustýringu í svínafram- leiðslu. vaxtamunar þegar fram í sækir.“ — Jón Sigurðsson bankamálaráð- herra 13. júní, eftir að samningar um sameiningu 4 banka í einn risa höfðu verið undirritaðir. „Erum sennilega ekki nógu miklir kafbátar." — Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavík- ur, 5. júlí um hvers vegna sjómenn væru svo aftarlega í kjaramálum. „Ég hefi lýst þessu svo, að rík- isstjórn Steingríms Hermanns- sonar hafi farið upp úr hjólför- um ríkisstjórnar Þorsteins Páls- sonar með framhjólin og virst ætla upp úr meðafturhjólin, sem ekki hefur enn gerst.“ — Stefán Valgeirsson 7. júlí um ríkisstjórnina. „Ég átta mig ekki á því hvað þetta fólk í Húsnæðisstofnun er að hugsa. Maður er nánast orð- laus að heyra þetta. . . það er ekkert um annað að ræða en að leggja þessa stofnun niður.“ — Hallgrímur Guðmundsson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, 8. „Ég held t.d. aðfólk upplifi það ekki að jafnaðarmenn hafi for- ystu í þessari ríkisstjórn með því að lesa um hrókeringar í utan- ríkisþjónustunni eða endalaus- ar viðræður um það, hvort taka eigi klofningsframboð úr Sjálf- stæðisflokknum inn í þessa stjórn." — Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, 12. ágúst. „Ég hef rætt það við núverandi samstarfsaðila, að við kynnum að vera til viðræðu um að láta af hendi utanríkisráðuneytið að uppfylltum tilteknum skilyrð- um, nefnilega að við fengjum í staðinn landbúnaðar- og um- hverfisráðuneyti." — Jón Baldvin Hannibalsson 16. ágúst um stjómarviðræður við Borgaraflokkinn, þar sem kratar voru ásakaðir um að vilja ekki fórna neinu. „Það er öruggt og um það sam- staða, að enginn þingmaður flokksins bjargar ríkisstjórn- inni ef upp úr slitnar. Ekki Aðal- ÞAÐ STEFNIR BEINT í TOR- 1 k TÍMINGU LANDBÚNAÐAR- KERFISINS. ÞAÐ BER > f DAUÐANN í BRJÓSTI SÉR. T 'V — Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, 2. september vegna 11—14% hækkunar á mjólkurvörum. 'vák. heiður, ekki Óli og ekki nokkur annar í flokknum.“ — Áhrifamaður í Borgaraflokkn- um 25. ágúst, þegar að úrslitastundu dró í stjórnarmyndunarviðræðun- um. „Við sjáum að hin hagræna hugsun um meira og meira geng- ur ekki lengur. Jafnvel minna getur veitt okkur meiri ham- ingju.“ — Oscar Lafontaine, varaformað- ur þýskra jafnaðarmanna, 29. ágúst. „Fólk virðist frekar slegið yfir þessu og telja að með þessu sé verið að hverfa til fortíðar.“ — Selma Dóra Þorsteinsdóttir, formaður Fóstrufélags íslands, 6. september um kynjaskiptan leik- skóla í Hafnarfirði. „Ég held persónulega að það væri óráðlegt að leggja frain vantrauststillögu í upphafi þings, miðað við þær breytingar sem orðið hafa á ríkisstjórn- inni. . . ég hygg að með því væri verið að gefa stjórninni tækifæri á traustsyfirlýsingu." — Kristín Halldórsdöttir 13. sept- ember. Vantraustið kom síðar og spá Kristínar rættist! „Hann er ekkert að vinna í einkafyrirtæki þó að hann sé í stjórn þessa félags. .. Hann hef- ur farið stundum um helgar til að leiðbeina þeim og í sumarfrí- um, er það ekki frjálst?“ — Stefán Valgeirsson 16. sept- ember, um Silfurstjörnuna og sér- stakan aðstoðarmann sinn Trausta Þorláksson. „Já, það er rétt. Ég held hann sé það ennþá, en við höfum verið í vandræðum með það.“ — Steingrímur Hermannsson 16. september um stöðu Trausta Þor- lákssonar aðstoðarmanns Stefáns sem deildarstjóra í forsætisráðu- neytinu. „Já, mér finnst þetta fullkom- lega eðlilegt.“ — Ólafur Ragnar Grímsson 16. september um stöðu Trausta Þor- lákssonar. „Silfurstjarnan er auðvitað í gangi og þar er ég bara stjórnar- maður.“ — Trausti Þorláksson, aðstoðar- maður Stefáns Valgeirssonar og deildarstjóri í forsætisráðuneytinu, stjórnarformaður Fiskeldisþjónust- unnar og stjórnarmaður í Silfur- stjörnunni, 16. september. „Ég kemst að því í mínum nið- urstöðum að byggð norrænna manna á íslandi nái allt aftur á sjöundu öld.“ — Margrét Hermanns-Auðardótt- ir fornleifafræðingur 20. september, um byltingarkenndar niðurstöður sínar eftir uppgröft í Herjólfsdal. „Það eina sem ég vona er að Þorsteinn verði áfram formaður Sjálfstæðisflokksins, því hann minnir okkur Borgaraflokks- menn ávallt á hvað við berjumst fyrir.“ — Guðmundur Ágústsson 7. okt- óber, um landsfund Sjálfstæöis- flokksins. „Mér hefur yfirleitt fundist að skyldur mínar sem verkalýðs- foringja væru brýnni við verka- lýðshreyfinguna en Sjálfstæðis- flokkinn, sem í raun og veru er pólitískt keramik." — Björn Þórhallsson, fv. varafor- seti ASÍ, 11. október. „Ég tel að verkalýðshreyfing- in hafi verið allt of íhaldssöm á sitt innra skipulag. Afleiðing þess er að forystan hefur fjar- lægst fjöldann.. . þann kjarna sem hún er sprottin úr.“ — Jóhanna Sigurðardóttir 13. október, vegna boðaðra breytinga á vinnulöggjöfinni. „Hvað veldur því að ég er tengdur meintri spillingu Pap- andreous?" — Stefán Valgeirsson 20. október, vegna greinar Björns Bjarnasonar í Morgunblaðinu. „Þröstur sagði að sér fyndist koma til greina að nýir aðilar í matvöruverslun yrðu að setja háar tryggingar fyrir opinber- um gjöldum áður en þeir fengju verslunarleyfi.“ — Haft eftir Þresti Ólafssyni, stjórnarformanni KRON, 24. októ- ber. „Fólk sættir sig ekki lengur við að axla byrðar kreppunnar og lykilorðið núer kjarajöfnun." — Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, 21. nóvember. „Menn verða að gera sér grein fyrir því að þettaer allt tapað fé.“ — Sighvatur Björgvinsson, for- maður fjárveitinganefndar, 24. nóv- ember um 2,3 milljarða heildar- skuldir loðdýraframleiðenda. „I stað þess að skilja þegar skall í tönnum og segja af sér eins og kollegar hans austan tjaldsins rifna gera nú hver af öðrum, lét hann setja sig einan og hlæjandi á kjánaprikið mitt.“ — Úlfar Þormóðsson rithöfundur 25. nóvember um Ólaf Ragnar Grímsson, nýlega endurkjörinn for- mann Alþýðubandalagsins. „Sjálfstæðisflokkurinn er að leika hættulegan og óábyrgan leik sem, skaðar hagsmuni ís- lands. . . Ég spyr um umboð for- manns' Sjálfstæðisflokksins til að draga Sjálfstæðisflokkinn niður í svaðið.“ — Jón Baldvin Hannibalsson 1. desember, í tilefni af vantrauststil- lögu stjórnarandstöðunnar að frum- kvæöi sjálfstæðismanna. „Hún flytur ekki rökstuddar tillögur um framfaramál heldur stundar hér ómerkileg upp- hlaup á Alþingi og loddarabrögð til að ná athygli fjölmiðla og slá ryki í augu fólks“ — Jón Sigurðsson 5. desember um stjórnarandstöðuna. „Með þessari vitleysu er meiri- hlutinn að lýsa því yfir að fæð- ingar séu aftar á forgangslistan- um en alls konar smá viðvik sem þola bið.“ — Bjarni P. Magnússon borgar- fulltrúi 9. desember um leigu meiri- hluta borgarstjómar á hluta hús- næðis Fæðingarheimiiisins til 11 lækna. Paö kemur til greina aö viö seljum allt fyrirtœkiö og göngum út... Ég er ekki giftur Stöö 2. — Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarps- stjóri Stöðvar 2, 15. desember, vegna umræðna um kaup fimm fyr- irtækja á meirihluta í stöðinni. „Þetta eru engar málfundaæf- ingar eða karphúsströgl." — Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, 22. desember um kjaraviðræðurnar við vinnuveit- endur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.