Alþýðublaðið - 30.12.1989, Síða 12
12
Laugardagur 30. des. 1989
Er ekki gaman að vera pólitikus? Þessir menn eru eiginlega dæmdir til aö verða kirkjumálaráðherrar i náinni framtið,
eða hvað? A-mynd/E.ÓI.
Á árinu sem nú er að líða var haldinn fundur utanríkisráöherra Norö-
urlandanna í Færeyjum, þar sem sérstaklega var rætt um þróunarað-
stoð Norðurlandanna við þróunarlönd. Myndin er tekin í Færeyjum
og eru á henni frá vinstri: Stefán Friöfinnsson, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra, Bryndís Schram ráöherrafrú, Guölaugur Tryggvi Karls-
son hagfræðingur, og Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri nor-
rænnar nefndar um þróunarhjálp.
VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI:
Samaverð
stundum lægra!
Nýmjólk, G-mjólk,
undanrenna og
léttmjólk lækka I
verði vegna
endurgreiðslunnar.
Þessi lækkun á að
skila sér beint í
vöruverðinu strax
eftir áramótin.
Neyslufiskur á að
lækka f verði.
Endurgreiðslan
miðast við ferskan
óunninn neyslufisk í
heildsölu.
Álagningin er frjáls,
og er mikilvægt að
fisksalar og
neytendurtaki
höndum saman til
að skattalækkunin
skili sér i
vöruverðinu.
Tegundirnarsem
lækkaeru: Ýsa,
þorskur, ufsif
steinbftur, karfi,
langa, keilá.lúða,
koli, skata,
skötuselur,
rauðmagi og
grásleppa.
Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir
söluskatt af hólmi nú um áramótin.
Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt
vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við.
Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig
uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins
einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á
því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin
að leiða til lækkunar á almennu vöruverði.
Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk,
ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5%
á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta
skattaumbætumar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9%
strax eftir áramótin.
\skj%)
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Kindakjöt i heilum
og hálfum skrokkum
lækkar í veröi frá
afuröastöðvunum
nú strax eftir
áramótin vegna
endurgreiöslunnar.
Verölækkun á til
dæmis
lambalærum,
lærissneiðum,
hrygg, kótilettum og
súpukjöti er háð
aögæslu
kjötkaupmanna og
aðhaldi neytenda
því frjáls álagning er
á unninni kjötvöru.
Allt innlent
/Sy^græhmeti lækkar í
verði, til dæmis
kartöflur, sveppir,
baunaspírur,
gulrófur og
gulrætur. Álagning
er frjáls á þessari
matvöru. Þess
vegna er þaö ekki
sist komið undir
árvekni neytendaog
aögæslu
verslunarmanna að
endurgreiðslan skili
séraðfullui
vöruverðinu.
FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD
Þáð er mikílvægt að almennlngur veiti aðhajd og beri saman verðlag fyrir og eftir
árániót. VERtH-AGSSTOFNUN fylgist með þvf af fremsta megni að
skattbreýtingin umáramót leiði ekki tii verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan
skilf sér í iækkUðu verði þeirrá innlendu matvæla sem hún tekur til.
Ef þú verður var/vör við óeðlUegar vérðheákkanir eftir áramótin, og ekki fást
fullnaágjandi skýringar hjá kaupmanninum,
skaltu hafá samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur
sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.
Knúli Hallssyni, ráðuneytisstjóra
menntamálaráðuneytisins, hefur
verið veitt orlof frá starfi um eins árs
skeið frá 1. janúar 1990. I fjarveru
Knúts mun Árni Gunnarsson, skrif-
stofustjóri háskóla- og menningar-
málaskrifstofu ráðuneytisins, gegna
starfi ráðuneytisstjóra, en Stefán
Stefánsson, deildarsérfræðingur,
mun gegna starfi skrifstofustjóra há-
skóla- og menningarmálaskrifstofu.
Undanfarið hefur verið unnið að
athugun á skipulagi ráðuneytisins
og i framhaldi af því hefur verið
ákveðið að stofna skrifstofu í ráðu-
neytinu er nefnist „almenn skrif-
stofa" og fjalli um rekstur ráðuneyt-
isins og sameiginlega þjónustu.
Staða skrifstofustjóra almennu
skrifstofunnar verður auglýst laus
til umsóknar á næstunni.
Frekari skipulagsbreytingar eru
til athugunar og verður greint frá
þeim síðar.
Sælir eru hógværir, því þeir munu
ríkissjóð erfa!