Tíminn - 12.06.1968, Síða 5
F
WavnaJBAGOí
12. jinní 1968
TIMINN
I SPEGLITÍMANS
Stulkan hér á myndinni heit
lr Ekatcrina Nowitzkaya og er
tra Sovétríkjunum. Fyrir
skömmu siðan vann hún píanó
kePÞni í Belgíu, sem er kenpd
íVrir íimmtán árum síðan
Var það í tízku, að kvenfólk
=€ngi í sokkum með saum og
utuðum hæl, sem náði upp eft-
17 kálfa. Síðan hvarf þessi tízka
Uln sinn og hefur svo að segja
Sleymzt. Nú er þessi tízka að
ryðja sér tii rúms aftur og er
Sagt, að það sé mest í tízku
að sokkamir séu gráir með
svörtum saum og hæl.
við Elizabetu drottningu. Með
Ekaterinu á myndinni er nafna
hennar Furtséva menntamála-
ráðherra Sovétríkjanna.
Það hefur lengi verið í tízku
á Norðurlöndum, að kóngafólk
hafi áhuga á fornleifafræði og
á sá áhugi mikið rætur sínar
að rekja til Gústafs Svíakon-
ungs. Nú hefur þessi áhugi
breiðzt út til konungsfjölskyld-
unnar í Bretlandi og fyrir
skömmu flugu þeir feðgar
Fhilippus og Karl (hertogimn
flaug meira að segja flugvélimni
VorkU
sjálfur) tii eyjarinnar Jersey
til þess að taka þátt í námskeiði
í fomleifafræði ásamt nokkr-
um öðrum áhugamÖnnum.
Karl prins dvaldist þarna í
heila viku við að grafa eftir
fommiinjum, en faðir haos lét
sér nægja að vera þar einn
dag. Hins vegar kom hann og
sótti drenginn sinn í einka-
flugvél sinui og fór með hann
til meginlandsins aftur.
★
Bóndi nokkur í Suður-Afr-
íku, Abrahatn Lagani að nafni,
hefur slegið brezku ríkisstjóm
inni vafasama gullhamra.
Hann á stórt svínabú rétt ut-
an við Joihannesarborg og hef
ur hann skírt svínin í höfuðið
á ráðherrum í brezku ríkis-
stjórninni.
★
í spænska þorpinu Aras er
starfandi kór, sem í eru sjö-
tíu söngvarar. Fyrir nokkru
síðan fór þessi kór til Madrid
til þess að koma fram í sjón-
varpinu þar. Meðan kórinn var
þar, féll niður öll vinna í þorp
inu. íbúar þorpsins voru nefni
lega allir í kónnum, jafnt börn
sem fullorðnir.
Luigi Carlavera býr í Turin
á Ítalíu og er hárgreiðslumað-
ur. Sonur hans er óttalegur
prakkari og einn daginn setti
hann grænan lit í hárvatn föð-
ur síns. Faðirinn varð að
'borga reiðum viðskiptavinum
sínum sextíu þúsund krónur
í skaðaibætur.
Pierre Ourvis í Montreal
fékk fyrir nokkru síðan skiln-
að frá konu sinni Jocelyn.
Ástæðan var sú, að á hverju
kvö'ldi fór Jocelyn með bæn-
ir sínar og lét þá ekki undir
höfuð ieggjast að minnast á
einhverja fyrrverandi vini sína.
Það er vist ekki ýkja gaman
að vera glæpamaður á Sardiníu
um þessar mundir. Öldum sam-
an hafa bandittar vaðið þar
uppi og gert það, sem þeim hef
ur þóknazt án þess að lögreglan
eða fólk hafi þorað að hreyfa
hönd eða fót. En nú á að
binda enda á það ófremdar-
ástand og þá skelfingu, sem
þeir hafa oft á tíðum valdið.
Allar byssur og vopn eru gerð
upptæk á eyjunni og lögreglan
og hundruð heiðarlegra manna
á Sardiiniu leita nú uppi ræn-
ingjann-a, sem. halda sig í skógi
vöxnum fjöllunum.
★
Jean Merring er tvítug
stúlka í Ástraliu og hún var
þar til fyrir nokkru trúlofuð
ungum manni. Þau fóru í smá
sjóferð og í þeirri sjóferð fórst
báturinn, sem þau voru um
borð í. Eftir það sleit Jean
trúlofuininni, þar sem eigin-
maðurinn tilvonandi gerði
ekki tilraun til þesis að bj'arga
henni og lét hana hafa fyrir
því sjálfa að komast í iand.
Hins vegar bjargaði hana
hundiinum sánum.
★
Sextíu og sex ára gamatl
Gyðingur flutti nýlega til fsra-
el. Fór hann meðal annars tJl
Tel Aviv og varð fyrir þvi, að
lyfta, sem hann ferðaðist í í
eimu stórhýsi borgarinnar, fest
ist milli hæða. Viðgerðarmað-
ur var sendur á vettvang ti'.
þess að kippa lyftunni í iag
og hjálpa mianninum. Þegar
þeir hittust, kom í ljós, a5
þeir boru bræður og höfðu
ekki hitzt í þrjátíu ár.
★
Það er ekki öl'lum, sem fe1!-
ur stutta tízkan í geð, að
minnsta kosti ekki öllum karl-
mönnum. Það er að segj-a, þeir
sætta sig ágætlega við hana,
ef það er ekki konan þeir -a,
sem klæðist henni. Þegac
stutta tízkan barst til Rúmen-
íu, fóru meira en hundrað
púmenskÍT eiginmenin í hop-
göngu til að mótmæla þessum
klæðnaði. Gengu þeir um göt-
ur Búkarest á nærbuxumm
einum saman.
kirH1^ er tekin 1 dóm-
u neilags Patreks í New
a rocðan líkkista Roberts
Kennedy stóð þar, og New
York búar gátu gengið fram
hjá henni og vottað hinum
látna virðingu sína. Á mynd-
inni er Pat Lawford, systir Ro-
berts Kennedy og nokkur börn
þeirra Ethel og Roberts Kenn
edy.
Á VÍÐAVANGI
Fyrstu stúdentarnir
frá Kennaraskólanum
Kennaraskóla íslands var slit
ið á mánudaginn í sex-
tugasta sinn og jafnframt út-
skrifuðust fyrstu stúdentarnir
frá skólanum, en skólanum
voni veitt réttindi til að út-
skrifa stúdenta með lögum, er
sett voru á árinu 1963. Þetta
er merkur áfangi í sögu skólans
og ber að fagna honum. Jafn-
framt er nú ákveðið að byrja
starfrækslu framhaldsdeiídar
við Kennaraskólann, vísi að
kennaraháskóla. Það, sem há
mun liins vegar starfsemi Kenn
araskólans er húsnæðisskortur.
Smíði byggingar skólans er að-
eins hálfnuð og nýtist ekki hluti
af núverandi húsnæði til fulls
í samræmi við upphaflegari til
gang ennþá. Þær umbætur, sem
gerðar hafa verið á skipan skól
ans mega ekki kafna í húsuæðis
þrengslum.
Forsetakosningarnat*
18 dagar eru nú til forseta
kosiiinganna 30. júní. Tals-
vert fjör hefur nú komizt í
kosningaundirbúninginn. Báðir
frambjóðendurnir eru nú í
kosningaferðalagi um landið og
koma fram á fundum, er stuðn
ingsmeim þeirra skipuleggja í
öllum laiidsfjórðungum. Einnig
má telja víst að efnt verði til
funda í Reykjavík skömmu fyr-
ir kjördaginn. Stuðningsmenn
beggja frambjóðendanna gefa
út myndarleg blöð og þótt bor
ið hafi á nokkrum ýfingum milli
blaðanna má segja að kosn-
ingabaráttan fari drengilega og
virðulega fram eins og sæmir
kosningum til virðulegasta
embættis þjóðarinnar.
Þáttur blaðanna
Dagblöðin eins og stjóm-
málaflokkamir hafa lýst yfir
hlutleysi sínu í þessum kosn-
ingum. Þau taka ekki þáv i
áróðri gegn eða fyrir öðrum
eða hinum frambjóðandanum
Tímanum hafa borizt fjöldi
bréfa og greina, þar sem af-
staða er tekin til frambjóðand
anna. Af því gefna tilefni vill
blaðið taka fram að slíkar
greinar verða ekki birtar í blað
inu og því þýðingarlaust að
senda blaðinu slíkt efni. Al-
mennt má segja, að lesendur
dagblaðanna fagni því að áróðri
fyrir forsetaefnunum er hald-
ið utan blaðanna. Blöðin væm
sjálfsagt ekki ýkja skemmtileg
aflestrar þessa dagana ef svo
væri ekki. Hins vegar flytja
blöðin hlutlægar fréttir af
starfsemi stuðningsmanna for-
setaefnanna og með blaðaút-
gáfu, fundahöldum og annarri
kwsningabaráttu forsctaefnanna
á þjóðin að fá nægar upplýs-
ingar til að geta grundvallað af
stöðu sína til forsetaframbjóð-
endanna 30. júní. Þar við bæt-
izt að Rikisútvarpið mun kynnn
frambjóðendurna bæði í hljóð
varpi og sjónvarpi og gefa þeim
kost á að skýra mál sitt fyrir
þjóðinni.
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaSur
Austurstræti 6
Stmi 18783.