Alþýðublaðið - 19.02.1993, Page 4
Föstudagur 19. febrúar 1993
Fulltrúar á Viðskiptaþingi Verslunarráðs
72% vilja athuga
með aðild að EB
Samkvæmt niðurstöðum út skoð-
annakönnun sem gerð var á Viðskipta-
þingi Verslunarráðs íslands, í gær, vilja
72% félagsmanna sækja um aðild að
Evrópubandalaginu og athuga hvað ís-
lendingum býðst f samningaviðræðum
við bandalagið. I annari spumingu var
spurt um hvort Island ætti að sækja um
EB aðild strax og og svömðu þá aðeins
20% félagsmanna því játandi, 70%
voru á móti og 10% tóku ekki afstöðu.
Öllum þeim sem sátu Viðskipta-
þingið var gefin kostur á að taka þátt í
könnuninni, en í niðurstöðunum vom
félagsmenn í VI flokkaðir frá öðmm
fulltrúum á þinginu. Ljóst er að þeir
sem ekki em félagsmenn í VÍ em ekki
jafn hrifnir af EB aðild því 56% þeirra
vildu senda inn umsókn og einungis
EB-aðild ekki á dagskrá nú, segir Jón
Baldvin.
10% þeiira vilja sækja um strax. Ef
svör allra em tekin með þá vom um
60% fylgjandi því að ísland sendi inn
umsókn um inngöngu í EB, en það
hlutfall lækkar í 15% ef spurt er hvort
sækja beri um aðild strax.
í ræðu sem Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra flutti á Við-
skiptaþinginu sagði hann að EB aðild
væri ekki á dagskrá hjá þessari ríkis-
stjóm og því ljóst að íslendingar verði
ekki samferða öðmm Norðurlödum
inn í bandalagið, a.m.k. ekki í þessari
lotu. Hann sagði að það væri vert að
skoða kosti aðildar mjög vel og það
þyrfti að nota tímann vel og því væri
það mjög gott fordæmis sem VI sýndi
með því að hefja þessa umræðu hér á
landi.
Söguleg stund
Mörður og Svavar
í sama liði!
- Þorsteinn Davíðsson (Oddssonar) varar við því
glapræði að gefa ráðamönnum lausan tauminn við
húsbyggingar, það geti þýtt Alþingishús sem snýst
úti á miðju Þingvallavatni!!
1 fyrrakvöld voru þeir samherjar í
eina kvöldstund, Mörður Ámason og
Svavar Gestsson, en þeir hafa löngum
eldað grátt silfur saman í Alþýðuban-
dalaginu.
Þessi tíðindi urðu á málfundi
Framtíðarinnar, hins fomfræga mál-
fundafélags Menntaskólans í Reykja-
vík, sem um þessar mundir heldur uppá
afmæli með margvíslegum hætti. Þar
börðust Mörður og Svavar fyrir þeim
málstað að flytja bæri Alþingi til Þing-
valla á ný; og höfðu sér til fulltingis
Guðmund Steingrímsson, Hermanns-
sonar leiðtoga Framsóknar.
Geir Haarde fór fyrir liði fjenda
þeirra, sem í engu vildi hrófla við Al-
þingi. Meðreiðarsveinar hans voru
tveir ungir og efnilegir
sjálfstæðismenn, Birgir Ármannsson
og Þorsteinn Davíðsson, Oddssonar
forsætisráðherra.
Svavar
Fóstbræðumir Mörður og Svavar
snem bökum saman og beittu hárhvös-
sum rökum máli sínu til stuðnings en
þurftu eigi að síður að játa sig sigraða
fyrir þéttu liði sjálfstæðismanna.
Þriggja manna dómnefnd útnefndi
Þorstein Davíðsson ræðumann kvölds-
ins enda fór drengurinn einatt á kos-
tum. Þorsteinn taldi fráleitt að flytja
Alþingi til Þingvalla, og sérílagi hafði
hann áhyggjur af því húsi sem reist y rði
utanum þinghaldið. I þessu sambandi
benti hann á þær byggingar sem mesta
athygli hefðu vakið í Reykjavík síðustu
misserin.
Annarsvegar væri húsbákn sem
stæði útí Tjöminni, hinsvegar veitin-
gahús sem snerist á Öskjuhlíð.
Þorsteinn Davíðsson taldi einsýnt, að
ef ráðamenn fengju frjálsar hendur í
þessu máli myndi nýtt þinghús snúast í
hringi úti á ntiðju Þingvallavatni.
Mörður
Fossvogsdalur
Fleiri möguleikar
en golf kannaðir
Tillaga Sigríðar Einarsdóttur samþykkt í bæjarstjórn Kópavog
Hugmyndir hafa verið uppi um að gera golfvöll í Fossvogsdalnum. Ný-
verið samþykkti bæjarstjóm Kópavogs að kanna fleiri möguleika varðandi
útivist í dalnum að tillögu Sigríðar Einarsdóttur, bæjarfulltrúa Alþýðuflokk-
ins.
Það er ekki á hverjum dagi sem tillögur minnihlutans em samþykktar og
sagðist Sigríður vera mjög ánægð með að fá tillöguna samþykkta. Málefni
Fossvogsdalsins séu mjög viðkvæm en ákveðið hafi verið að ræða við
Reykjavíkurborg um fleiri notkunarmöguleika á dalnum en golfvöll. Tillaga
Sigríðar var samþykkt með 5 atkvæðum gegn 3 og hafa því 3 bæjarfulltrúar
setið hjá.
Frestaði Íslandsheimsókn í hittcö-
fyrra en er nú kominn
Mikill áhugi á
tónleikum Kris
Kristofferson
Poppgoðið Kris Kristofferson er
kominn til landsins til tónleika-
halds í Hótel íslandi. íslandsferð
hans fyrir tveim árum var frestað af
óviðráðanlegum, persónulegum á-
stæðum, en þá lofaði hinn
norskættaði Kristoffersson að hann
mundi eigi að síður koma og heilsa
upp á „frændur" sína hér á Fróni,
þótt síðar yrði. Og við það stóð
hann.
Mikill áhugi er greinilega fyrir
tónleikum Kris Kristoffersson, og
allt að seljast upp á Hótel íslandi.
Kris Kristoffersson, - loksins
kominn, og ekki stendur á aðdá-
endum hans hér á landi, þeir munu
fylla Hótel ísland.
Nashyrningur??? - Neí, Ottó flóðhestur
Þessa daga sýnir Leikfélag Kópavogs Ottó flóðhest en það hefur haldið úti öflugu leiklistarlífi í Kópavogi um árabil. Eins og glöggt má sjá á myundinni er Ottó
nashymingur en ekki flóðhestur